Dagur - 16.08.1989, Blaðsíða 7

Dagur - 16.08.1989, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 16. ágúst 1989 - DAGUR - 7 » — í'ífi*>‘<imV«'t'fiiif Vc< ítiXi'tV.f. lirc'ít Snorri Berg Ægisson, aðstoðar- hótelstjóri, ásanit ömmu sinni Þor- gerði Kjartansdóttur, hótelstjóra á Kiðagili. Myndir: IM Hótel Kiðagil Barnaskólinn ■ Bárðardal. Bárðardalur: AUt í blóma á Hótel KiðagUi - spjallað við þrælhressan hótelstjóra „Við erum alveg þrælhressar með okkur og það er allt í blóma með reksturinn,“ sagði Þorgerður Kjartansdóttir, hótelstjóri á Hótel Kiðagili í Bárðardal eftir verslunar- mannahelgina. Hótel Kiðagil er í Barnaskóla Bárðdælinga, rúmlega 20 kin innan við Goða- foss. Þorgerður rekur hótelið í sumar ásamt Sigrúnu Hrings- dóttur og auk þeirra hafa ein kona og þrjár stúlkur starfað á hótelinu. Almennur hótelrekstur er á staðnum, hægt að fá gistingu í uppbúnum rúmum eða svefn- pokaplássi og veitingasala er opin frá kl. 8 á morgnana til 23.30 á kvöldin. Mat fyrir stóra hópa þarf þó að panta með svolitlum fyrirvara. Góð baðaðstaða er í kjallara hússins og þar er einnig saunabað og finnst mörgu ferða- fólki sem býr í tjöldum þægilegt að koma við á hótelinu og skreppa í bað. Á sunnudögum er boðið upp á myndarlegt kaffi- hlaðborð frá kl. 14.30 til 17.30 og sagði Þorgerður að Húsvíkingar hefðu verið mjög duglegir að koma í sunnudagskaffið til sín í sumar. Það sem var erfiðast við rekst- ur hótelsins franran af, var hve lengi Sprengisandsleið var lokuð, hún var ekki opnuð fyrr en síðast í júlí. Þar með liafði hótelið misst af viðskiptum við níu hópa sem ætluðu að koma þá leiðina. „Annars hefur reksturinn gengið sæmilega, það koma toppar og svo dauðir tímar á milli, eins og æfinlega í hótelrekstri,“ sagði Þor- gerður. Mikil umferð var í Bárð- ardal um verslunarmannahelgina og mikið að gera á hótelinu - „stundum fullt út úr dyrum", sagði hótelstjórinn. Meiri hlutinn af ferðafólkinu sem gistir eru útlendingar og mikið er um að Frakkar séu á ferðinni í sumar. Um næstu helgi verða þó íslendingar á Hótel Kiðagili því þar verður haldið ættarmót afkomenda Guðbjargar Sigurðardóttur og Jóns Pálssonar frá Lækjavöllum. Athyglisveröir skoöunarstaðir eru í nágrenni Hótels Kiðagils, m.a. Aldeyjarfoss. Hægt er að fá veiðileyfi í Svartárvatni og eftir þurrviðri er fært frá Svartárkoti, Engidalsleið, yfir í Mývatnssveit. Hótel Kiðagil veröur opið út ágústmánuð. IM Fjölnienni í kaiTihlaðborði á sunnudegi. AKUREYRARB/ER Félagsstarf aldraðra Ferð að Laugafelli þriðjudag 22. ágúst. Farið frá Húsi aldraðra kl. 9. Verð kr. 2000. Inni- falið fargjald og ein máltíð. Fólk er beðið að hafa með sér kaffi eða aðra drykki til dagsins og snarl að vild. Þátttaka tilkynnist í síma 27930 ekki síðar en 18. ágúst. Athugiö að ef ekki veröur hagstætt veöur verður farið eitthvað annað. Öldrunarþjónustan. Magi ★ Rass ★ Læri Hæ, hæll Er ekki kominn tími til að hreyfa sig? Komdu og vertu með á 4ra vikna haustnám- skeið í leikfimi sem hefst mánudaginn 21. ágúst. + Magi, rass og læri. Styrkjandi æfingar, þol og teygjur. Fyrir byrjendur og framh. * Þrekhringur, púltími í erobikk og tækjum. Tímar 2x og 3x í viku. Innritun í síma 24979 frá 17-19. Við fylgjumst með því nýjasta. Tryggvabraut 22 Akureyri rimsstuchoi Wnlice Sími 24979- VISA Haflð þið opið á laugardögum eða sunnudögum í sumar? Ef svo er, viljum við minna á að Dagur, helgarblað ltemur út snemma á laugardögum. (Fyrir kl. 8.00 til áskrifenda á Akureyri.) Hafið samband við auglýsingadeild Dags fyrir kl. 11 á fimmtudag, og auglýsingin birtist á laugardag. Strandgötu 31 • Síml 24:222. Dagblaðið á landsbyggðiimi Njóttu ferðarinnar!_ Aktu eins og þú vilt að aðrir aki Góðaferð! ||OMFEROAR Práð

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.