Dagur - 16.08.1989, Blaðsíða 12
Kodak
Express
Gæöaframköllun
★ Tryggðu f ilmunni þinni
Jbesta GPeóíSmyndir'
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
NH
Flugkennsla hjá ÚA? Nei, síður cn svo. Einungis bráðhrcssar konur í vinnslusal að gera nauðsynlegar líkams
æfingar að afloknu vinnsluhléi. Mynd: kl.
Húsavíkurflugvöllur:
„Reynsluflug“ endaði
með brotlendingu
- „stýrimaður“ slapp furðu vel
Það óhapp varð á Húsavíkur-
flugvelli um kl. 14 á mánudag
að gírókopti hrapaði til jarðar
og stjórnandi hans slasaöist.
Var maðurinn fluttur á sjúkra-
húsið á Húsavík þar sem gert
var að meiðslum hans. Að
sögn lögreglu sem kom á
slysstað slapp maðurinn furðu-
vel, en talið er að flugfarið hafi
hrapað úr um 50 feta hæð.
Gírókoptinn er heimasmíðuð
eða samsett þyrla, í raun aðeins
létt álgrind með mótor og skrúfu.
Það voru menn úr Aðaldal sem
voru að reynsluaka flugfarinu á
flugvellinum, en það var nýsam-
sett og hafði því aldrei verið
flogið. Ökumaður gírókoptans
missti hann á loft, án þess að
meiningin hefði verið að taka
flugið að þessu sinni. Talið er að
flugfarið hafi náð 50 feta hæð er
það stakkst á nefið og brotlenti
með þeim afleiðingum að flug-
maðurinn meiddist.
Harður árekstur tveggja bíla
varð á móts við Grænuhlíð í
Fnjóskadal seint á mánudags-
kvöld. Engin slys urðu á fólki en
báðir bílarnir skemmdust mikið.
Að sögn lögreglu á Húsavík
var helgin róleg en full ástæða til
að hvetja fólk til að gleyma ekki
Ijósa- og beltanotkun. IM
Uppsögn fram-
kvæmdastjóra ÚS:
„Tjáimig
ekki frekar
um málið“
- segir Ágúst
Guðmundsson
Kaupfélag Þingeyinga:
Fyrirspurnir um Gljúfraútibú,
Fosshóll ekki leigður út
- hugsanlegt að Sparisjóður Kinnunga flytji starfsemi að Fosshóli
Hreiöar Karlsson, kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Þingeyinga,
segir að fyrirspurnir hafi borist
um möguleika á að leigja
rekstur útibús KÞ að Gljúfrum
í Aðaldal. Hins vegar segir
hann, að rekstur útibús að
Fosshóli verði ekki leigður út í
bráð. Eins og fram hefur kom-
ið hefur rekstur útibús KÞ að
Laugum og í Reykjahlíð verið
leigður út og þá hefur verið
ákveðið að leggja flutninga-
deild félagsins niður í núver-
andi mynd.
Hreiðar segir að ákveðnir aðil-
ar hafi sýnt því áhuga að taka
rekstur Gljúfraútibús á leigu en
enn sem komið er hafi ekkert verið
ákveðið endanlega. Útibúið á
Fosshóli er stærra spurningamerki.
„Við buðum ekki út rekstur úti-
búsins á Fosshóli. Við vinnum að
því að breyta fyrirkomulagi á
rekstri þess og munum einbeita
okkur að því fyrst um sinn,“
sagði Hreiðar.
Til tals hefur komið að Spari-
sjóður Kinnunga flytji starfsemi
sína að Fosshóli, en til þessa hef-
ur hann verið til húsa að Fremsta-
felli í Kinn. Degi er kunnugt um
að kaupfélagsmenn á Húsavík
hafa áhuga á að af flutningum
sjóðsins að Fosshóli verði því
rekstur verslunarinnar myndi
styrkjast við að fá bankastofnun
svæðisins við hliðina.
Arni Jónsson, sparisjóðsstjóri,
sagði í samtali við Dag, að þetta
hefði vissulega borið á góma en
of snemmt væri að segja fyrir um
hvort af flutningum sparisjóðsins
að Fosshóli yrði. Þetta myndi
koma til umræðu á næstu dögum.
Um síðustu áramót var póst-
hús á Fosshóli lagt niður og þar-
með missti staðurinn spón úr sín-
um aski sem miðstöð fyrir
svæðið. Heimamenn voru heldur
óhressir með þessa skipan mála
og hafa nú loks fengið það í gegn
að áfram verði starfrækt svoköll-
uð bréfhirðing á Fosshóli. Það
þýðir að þar verður tekið á
móti öllum pósti en ábyrgðarpóst-
ur ekki afgreiddur. Raunar er það
þannig á meðan Mývatnsrútan
gengur að póstur kemur frá
Akureyri og fer í flokkun og
dreifingu á Fosshóli. óþh
Eins og sagt var frá í blaðinu í
gær þá er framkvæmdastjóri
Utgerðarfélags Skagfirðinga,
Ágúst Guðmundsson, búinn
að segja upp starfi sínu. Blað-
inu tókst að ná fali afÁgústi í
gær, en hann vildi ekki tjá sig
frekar um málið, sagði það
alfarið vera á milli sín og
stjórnar félagsins.
Ekki tókst að ná í stjórnar-
formann, Martein Friðriksson, í
gær, þar sem hann er í orlofi. Eft-
ir því sem heimildir blaðsins
herma mun hann endanlega hafa
sagt af sér starfi stjórnarfor-
manns á stjórnarfundi ÚS í síð-
ustu viku, en þá ákvörðun til-
kynnti hann á aðalfundi félagsins
fyrr í sumar. Ekki tókst heldur að
ná í varaformann stjórnar í gær.
-bjb
Sauðárkrókur:
Ráðist í endurbætur á kirkjunni
Um þessar mundir eru aö helj-
ast endurbætur á Sauðárkróks-
kirkju að utan. Skipta á um
klæðningu, nokkrar stoðir og
a.m.k. eina sperru í þakinu. Þá
verður gengið betur frá klæðn-
ingu í kringum glugga og ein-
angrun komið fyrir. Leifur
Blumenstein, byggingafræð-
ingur og þekktur húsagerðar-
maður í Reykjavík, var feng-
inn til að skoða fúaskemmdir
og taka út verkið. Verktaki við
cndurbæturnar er Trésmiðjan
Borg hf. á Sauðárkróki. Gert
er ráð fyrir að framkvæmdir
taki hátt í tvo mánuði, því um
mjög vandasamt verk er að
ræða.
Sauðárkrókskirkja, sem er ein
af elstu kirkjum landsins, verður
100 ára árið 1992. í samtaii við
blaðið sagði Leifur að þrátt fyrir
háan aldur væri kirkjan í ágætu
ástandi, en fúaskemmdir væru
mestar í kringum gluggana. Þeir
hafa verið mjög óþéttir og bleyta
lekið um þá. Það var fyrir þrem
árum sem fyrst var tckið eftir fúa
í kringum gluggana, þegar unnið
var viö gluggauppsetningu. Þá
var Leifur fenginn til að líta á
fúaskemmdirnar. Síöan þá hefur
verkið veriö í undirbúningi. „Það
er eðlilegt að það þurfi að líta á
þctta gömul hús, svona öðru
hverju. En miðað við aldur cr
Sauðárkrókskirkja viö bestu
heilsu, sntíði hennar á sínum
tíma hefur verið ntjög vönduð og
þar hafa menn kunnað til vcrka,"
sagði Leifur Blumenstcin.
Að sögn Jóns Karlssonar, for-
manns sóknarnefndar Sauðár-
krókskirkju, hefur veriö sótt um
styrk til Húsfriöunarsjóös vegna
þessara framkvæmda, en að öðru
leyti þarf nefndin að útvcga fjár-
magn sjálf. -bjb
Verið að kanna ástand viðarins í klæðningu Sauðárkrókskirkju. Frá vinstri:
Emil Vilhjálmsson, smiður, Bragi Skúlason, yfirsmiður, og Leifur Blumen-
stein, byggingafræðingur og húsagerðarmaður. Mynd: -bjb