Dagur - 16.08.1989, Page 11
Miðvikudagur 16. ágúst 1989 - DAGUR - 11
íþrótfir
KA vantaði grinmid
gegn Valsmönnum
Grimmdina vantaði í KA-pilt-
ana í 2. flokki þegar þeir töp-
uðu l^fyrir Val á Akureyrar-
velli í gærkvöld. Þung sókn lá
á vörn KA nær allan fyrri hálf-
leikinn en í þeim síðari höfðu
Bikarúrslit kvenna:
Úrslitin ráðast
á Akranesvelli
Ákvörðun hefur verið tekin um
að úrslitaleikur í bikarkeppni
meistaraflokks kvenna í knatt-
spyrnu fari fram kl. 14 næstkom-
andi sunnudag á Akranesvelli.
Pór og ÍA eru í úrslitum og var
kastað upp um hvort leikið yrði á
Akureyri eða Skaganum. Fram
til þessa hefur úrslitaleikurinn
oftast verið á Laugardalsvelli.
JÓH
Staðan
2. deild
Víðir 13 9-2-2 19:11 29
Stjarnan 12 9-1-2 28:12 28
ÍBV 12 8-0-4 29:18 24
Breiðablik 13 5-4-4 28:22 19
Selfoss 13 6-0-7 16:24 18
Leiftur 13 4-4-5 13:15 16
ÍR 13 4-3-6 16:19 15
Völsungur 13 3-2-8 18:29 11
Einherji 11 3-2-6 16:29 11
Tindastóll 13 2-2-9 19:23 8
KA-menn vindinn í bakið en
tókst ekki að nýta sér það.
Fyrsta markið kom á 32. mín.
þegar Steinar Adólfsson fékk að
leggja boltann fyrir sig í teig KA.
Ekki voru liðnar nema tvær
mínútur þegar Valsmenn komust
innúr vörn KA og Kristján Jó-
hannesson setti lokapunktinn
með því að vippa yfir Ægi í
markinu. Rétt fyrir lékhlé átti
Jóhann Ármannsson gott skot að
Valsmarkinu en boltinn fór fyrir
utan stöngina.
í síðari hálfleik lifnaði yfir KA-
liðinu. Lokahnykkinn vantaði
hins vegar á sóknirnar þannig að
Valsmenn gátu varist. Þegar á
leið fóru Valsmenn að ná hættu-
legum skyndisóknum og þegar
25. mín. voru liðnar bætti Páll
Þórólfsson við þriðja marki
Valsmanna. Eftir markið dró af
KA-mönnum en á lokamínútun-
um náði þó Pétur Friðriksson að
minnka muninn. JÓH
Staðan
2. flokkur A-riðli
ÍA 11 10-0-1 32:13 20
Valur 11 8-1-2 35:12 17
Þór 12 6-3-3 31:23 15
Víkingur 11 4-2-5 22:23 10
Stjarnan 12 4-1-7 22:25 9
KA 12 4-0-8 20:31 8
ÍBK 12 4-0-8 15:31 8
KR 13 3-1-9 12:30 7
Þórsarar gerðu
jaftitefli við Víking
Þórsarar mættu Víkingum í
fyrrakvöld í 2. flokki og lauk
leiknum með jafniefli, bæði
liðin gerðu 2 mörk. Þórsarar
berjast í efri hluta A-riðils en
Víkingar eru í neðri kantinuin
og áttu margir von á að Þórsar-
ar yrðu sterkari aðilinn en þeir
lentu 2:1 undir í leiknum en
náðu að jafna um miðjan síðari
hálfleik.
Pegar skammt var liðið af leiknum
var brotið á Arna Þór Árnasyni
innan vítateigs Víkinganna og
dæmt var umsvifalaust vítaspyrna
sent Páll Gíslason skoraði úr.
Víkingarnir jöfnuðu síðan rétt
fyrir hálfleik og strax í upphafi
síðari hálfleik bættu þeir öðru
marki við. Þegar 20. mínútur
voru til leiksloka braust Axel
Vatnsdal af harðfylgi gegnum
Víkingsvörnina og skoraði með
góðu skoti og jafnaði leikinn.
Þrátt fyrir möguleika á mörkúm
hjá Þór í lokin urðu þau ekki
fleiri og félögin deila stigum.
JÓH
ítrekaðar frest-
anir á knatt-
spyrnuleikjum
Leik Einherja og Stjörnunnar
sem vera átti á Vopnafirði í gær-
kvöld hefur enn verið frestað en
þessi leikur átti upphaflega að
vera í fyrrakvöld. Einherji á nú
tvo frestaða leiki.
Þá var leik KS og Austra sem
vera átti í gærkvöldi einnig frest-
að og verður hann í fyrsta lagi í
næstu viku. JOH
3. og 4. deild í knattspyrnu:
Heilar umferðir
leiknar í kvöld
í kvöld verður mikið um að
vera í neðri deildunum í knatt-
spyrnunni. í fjórðu deildinni
verður heil umferð og sama er
að segja um 3. deildina.
í Norðurlandsriðli 4. deildar
eru línur orðnar nokkuð skýrar
þar sem TBA hefur tryggt sér sig-
ur og þar með leikinn við Leikni
um sæti í 3. deild. En eftirtaldir
leikir fara fram í kvöld: TBA-Efl-
ing á Akureyrarvelli, UMSE-b-
HSÞ-b á Laugalandsvelli, SM-
Æskan í Hörgárdal og Neisti-
Þrátt fyrir að sóknir KA væru oft þungar í síðari hálfleik í leiknuni við Val í 2. flokki í knattspyrnu, sem fram fór
í gærkvöldi, tókst KA ckki að rétta sinn hlut og tapaði 3:1. Oft var hart barist eins og sjá má á þessari mynd úr leikn-
um. Mynd:KL
íslandsmótið 2. deild/Leiftur-Selfoss:
Þrjú stig eftir í norðan-
garranum í Ólafsfirði
Leiftursmenn þokuðu sér af
mesta hættusvæðinu í 2. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu
með 3-2 sigri á Selfyssingum í
Ólafsfirði í gærkvöld. Þeir
sigla nú lygnan sjó í sjötta sæti
dcildarinnar með 16 stig en
Selfoss er áfram með 18 stig í
fímmta sæti.
Það voru ekki beint gæfulegar
aðstæður til knattspyrnu í Ólafs-
firði í gærkvöld, norðaustan rok
mcö úrhellis rigningu og fimm
stiga hita. Knattspyrnan sem upp
á var boðið bar nökkurn keim af
því, lítið sást af fallegu spili cn
þcint mun meira af ónákvæmum
sendingum og þófi.
Heimennn mættu mjög ákveðn-
ir til leiks, ákveðnir í að láta ekki
þrjú stig fara í farteski gestanna.
Þeir byrjuðu leikinn rneð miklum
látum og uppskáru mark strax á
fimmtu mínútu þegar Garðar
Jónsson skoraði eftir að Selfyss-
ingum hafði markítrekaö mistck-
ist viö að hreinsa frá marki sínu.
En Adam var ekki lengi í Para-
dís. Frjálslyndi hægri maðurinn
Ingi Björn Albertsson lét ekki
norðangarrann á sig fá og náði að
jafna með miklu harðfylgi um
miðjan hálfleikinn. Ingi Björn
komst inn í sendingu frá einum
varnarmanna Leifturs sem ætluð
var Þorvaldi markverði.
Þegar síðari hálfleikur hófst
var völlurinn orðinn eitt drullu-
svað. Hcimamenn höfðu norðan-
vindinn í bakið og því lá mikið á
gcstunum. Þegar liðnar voru 10
mínútur af síðari hálflcik fékk
Rúmeninn David Ubrescu bolt-
ann óvænt inn í teig og þrumaði
honum cfst í markhornið. Staðan
2-1 fyrir Leiftur og fáum áhorf-
cndum í Ólafsfirði hlýnaði á ný.
Stuttu síðar fengu Selfyssingar
vítaspyrnu þegar Þorvaldur Jóns-
son markvörður geröist brotlegur
inn í teig. Ólafur Ólafsson skor-
aði örugglega úr vítinu og jafnaði
leikinn á nýjan leik. Síðustu 25
mínútur leiksins lá stanslaust á
Selfyssingum en þegar tvær
mínútur voru til lciksloka skoraði
Gústaf Ómarsson skrautlegt
mark. Skotið var í raun fyrirgjöf
utan úr horni sem vindurinn
feykti yfir markvörö Selfyssinga
og í hornið. Lokatölur því 3-2
fyrir Leiftur og leikmenn liösins
og áhorfendur aö vonum ánægð-
ir. ÓH/óþh
Körfuknattleikur:
Hvöt á Hofsósi.
í þriðju deildinni er baráttan
hörð og mikilvægir leikir í kvöld
sem geta skorið úr um hverjir
halda sér í deildinni. Leikirnir
eru: Reynir-Huginn á Árskógs-
strönd, Kormákur-Magni á
Hvammstanga og á Dalvík er
stórleikur milli heimamanna og
Þróttara frá Neskaupsstað.
Allir þessir leikir hefjast kl. 19
en samkvæmt mótabók KSÍ
munu allir leikir sem spilaðir
verða á kvöldin eftirleiðis hefjast
kl. 19.
Birgir Mikaelsson hættur við
að ganga til liðs við Þórsara
- Bowman Heyden kominn til Sauðárkróks
„Jú, það er rétt. Eg hef hætt
viö að ganga til liðs við Þórsara
og niun verða áfram í herbúð-
um KR,“ sagði Birgir Mikaels-
son, körfuknattieiksmaður, í
samtali við blaðið í gær cn í
fyrrakvöld tilkynnti Ilirgir
ákvörðun sína til Körfuknatt-
leiksdeildar Þórs. Þórsurum
hefði verið mikill fengur að
Birgi og telst þetta nokkuö
áfall lyrir þá sem ætla sér að
„rífa“ körfuna upp í vetur.
„Það eru nokkrar ástæður sem
valda því að ég fer ekki og þar
spilar stórt að KR-ingar lögðu
hart aö mér að vera áfram. Þeim
fannst þetta svolítið mikið áfall.
Auk þess togar það dálítið mikið
í ntann að KR ætlar að taka þátt
í Evrópukeppninni í vetur þannig
að það eru stórir hlutir að skc.
En aftur á móti hafði ég mikinn
hug á aö koma norður, og er
raunar spenntur fyrir því enn. Ég
kann vel við mig á Akureyri, er
fæddur á Akureyri og bjó þar
lengi, auk þess að þekkja ágæt-
lega þessa stráka sern eru í Þór.
En það er mcira en að segja það
að yfirgefa KR, maöur er svo
mikill KR-ingur í sér en þetta var
niðurstaðan eftir miklar vanga-
veltur," sagði Birgir.
Fyrir tveimur árum stóð til að
Kristján Rafnsson og féiagar i Þór
verða án krafta Birgis Mikaclssonur
í vetur.
Birgir gengi til liös við Þórsara en
hætti þá cinnig við. En Itugsar
hann sér til hreyfings að ári?
„Það cr best að gefa engar yfir-
lýsingar um það. Maöur hugsar
ekkert um það núna."
Enn cru Itkur á að Jón Örn
Guðmundsson komi til Þórsara
frá ÍR og blaðið hcfur fyrir því
hcimildir að Þórsarar líti nú í
kringum sig eftir leikmanni eftir
þessa ákvörðun Birgis.
Á rnorgun kemur Brand Hag-
wood, hinn bandaríski þjálfari og
leikmaður Þórs, til Akureyrar og
tckur við þjálfun liðsins strax
næstu daga.
Bowman Heydcn, bandaríski
leikmaðurinn í Tindastólsliðinu
kont til Sauðárkróks í fyrrakvöld
og mætti á sína fyrstu æfingu með
hópnum í gærkvöld.
Haraldur Leifsson, körfuknatt-
leiksmaður Tindastóls, mætti
ekki á landsiiðsæfinguna um síð-
ustu helgi og ætlar ekki að gefa
kost á sér í landsliðið í vetur af
persónulegunt ástæðum. JÓH