Dagur - 22.08.1989, Síða 5
Þriðjudagur 22. ágúst 1989 - DAGUR - 5
-4
lesendahornið
Hvaða reglur gilda um sundur
tekt á lambaskrokkum?
Guðrún hringdi og vildi kvarta
undan því hve mikil fita fylgdi
lambakjöti því sem selt væri i
búðum. Guðrún nefndi sérstak-
lega huppbita, það sem einnig er
kallað kloffita, og einnig bitann
framan við bóginn. Pá fannst
henni að stundum væri illa staðið
að hreinsun eitla til dæmis fram-
an á hálsi. Guðrún vildi fá svar
við því hvort ekki giltu einhverj-
ar reglur um það hvernig kjöt
væri tekið í sundur fyrir neytend-
ur, til dæmist finndist henni iðu-
lega fylgja heilt kíló af súpukjöti
með þegar hún keypti læri.
Oli Valdiniarsson hjá Kjötiðn-
aðarstöð KEA varð fyrir
svörum. Óli segir að ef urn sé að
ræða tilboðskjötið sem nú er á
markaðinum, eða það sem kallað
hefur verið „ráðherrakjöt" þá
hafi komið nákvæm fyrirmæli um
það frá ráðuneyti hvernig ætti að
taka það í sundur. Par segir m.a.
að taka eigi af hupp, slagið þar
sem það er beinlaust, bringukoll-
inn og framan af banakringlunni.
Óli segir að reynt sé að fylgja
þessum reglum.
Almennt gilda hins vegar eng-
ar reglur um það hvernig taka
eigi skrokka í sundur en hins veg-
ar er ætlast til þess að verð ráðist
af því hvernig farið er að. Þetta
segir Óli að sé gert. Hann nefndi
sem dæmi að þegar verðkönnun
var gerð þá hafi Kjötiðnaðarstöð-
in komið út með hæsta verð á
lærum vegna þess að þar tóku
menn fremsta bitann og hækilinn
af og skildu aðeins eftir það
besta. Óli sagði að jafnan væri
reynt að ná stærstu eitlasvæðun-
um í burtu cn ske kynni að
eitthvað yrði eftir.
Enn um Sólborgarveginn:
Skammarlegt að ekki
skuli betur að staðið
Björg skrifar:
„Fyrir stuttu birtist grein í Degi
þar sem fjallað er um ástand veg-
arins að vistheimilinu Sólborg á
Akureyri. Ég vil sem fyrrverandi
starfsmaður taka undir orð Pór-
hildar Svanbergsdóttur um að
umræddur vegur sé hreint og
beint hættulegur.
Það er ekki nóg með að hann
sé holóttur malarvegur heldur
eru mjög krappar beygjur á hon-
um og verður að aka löturhægt
eftir honum til að keyra ekki nið-
uí vist- og starfsmenn í göngutúr-
um eða aka hreinlega útaf.
Þessi vegnefna er eina aðkom-
an að vistheimilinu og því engin
önnur leið sem hægt er að ganga
með vistfólki og skammarlegt að
ekki skuli betur að staðið. Hver
sem býr við þessar aðstæður hef-
ur þolinmæði til að bíða eftir því
að Dalsbraut og Borgarbraut,
fyrirhugaðar götur í nágrenninu,
komist á blað hjá ráðamönnum
bæjarins sem vilja sem minnst af
þessum vegi vita?
Ég vil hér með skora á bæjaryf-
irvöld að bæta ráð sitt og viður-
kenna að þarna þurfi úrbóta við
því allir bæjarbúar hljóta að eiga
heimtingu á almennilegri
aðkeyrslu heim til sín.“
Fyrirmyndarþjónusta
á bensínstöð
Kona hringdi og vildi koma
eftirfarandi á framfæri: „Ég
kom á bensínstöð við Glerár-
brúna og keypti mottur í bílinn
minn. Það var ungur elskulegur
rnaður sem afgreiddi mig og gerði
það ekki endasleppt því hann
setti þær líka í bílinn fyrir mig.
Hann spurði mig hvort hann ætti
ekki að fara með motturnar út og
ég þáði það og hélt að hann
mýndi bara leggja þær við bílinn
en þegar ég kem út þá er hann að
enda við að setja þær í. Ég vil
þakka alveg kærlega fyrir þetta.
Mér finnst þetta alveg til fyrir-
myndar og vil koma þakklæti til
Vitlaus Kiwanisklukka
verri en engin
Vegfarandi hringdi og vildi
kvarta um klukkuna á Ráðhús-
torgi, Kiwaniskiukkuna svoköll-
uðu. Klukkan hefur verið biluð í
nær allt sumar og sýnir ekki ann-
að en heila tímann. Þannig sýnir
hún til dæmis tímann 7:00 allt
þangað til klukkan slær átta.
Áður en klukkan bilaði svo
hressilega sagði vegfarandinn að
hún hefði verið orðin nokkrum
mínútum of sein og það kæmi sér
mjög illa ekki síst þar sem klukk-
an væri í næsta nágrenni við
strætisvagnana og farþegar færu
eftir henni. „Væri nú ekki liægt
að fá gert við þessa klukku,“
sagði vegfarandinn.
þeirra sem veita svona þjón-
ustu.“
.... -■ -
Lax og sUungsveiði
í Þorvaldsdalsá
Veiðileyfi seld hjá versl. Eyfjörð sími 25222 og í
Kállsskinni sími 61630.
(Síðan 23. júlí hafa veiðst um 20 laxar og um 120 bleikjur.)
Veiðifélagiö Valdi.
LETTIB
1l
ÍDL 10 ára
Afmælis- og
deildarmót
verður haldið á Breiðholtsvelli dagana 26. og
27. ágúst.
Keppt verður í öllum hefðbundnum íþróttagreinum.
Skráning fer fram í Hestasporti og lýkur fimmtudag-
inn 24. ágúst kl. 19.00.
Skráningargjald kr. 200 á hverja keppnisgrein og
greiðist við skráningu.
Stjórnin.
Víeioimen
Angóra
undirfatnaóur
í úrvali
(Nýr grænn litur).
PflRIS
Leikfangaroarkaburinn
. Hafnarstræti 96, Akureyri
Sími: 27744.
Vélhjólaáhugamenn!
Loksins hin þekktu Ducati vélhjól á íslandi. ítölsk
hönnun, ítölsk gæði. Dagana 21 .-25. ágúst verða hjólin
til sýnis í glugga hjá Véladeild KEA Óseyri 2.
Opið verður svo dagana 26.-27. ágúst milli kl. 13 og 18.
Cocis 50 cc. Vandað hjól.
Diskabremsur framan og aftan, rafstart, tvö framljós og
vatnskæling.
Dart 350 Morini. Frábært hjól
á góðu verði. Komið og skoðið. Sjón er sögu ríkari.
Ducati super bike street 851.
Komið og fáið upplýsingar um þetta einstaka hjól. Vara-
hlutir nú þegar á lager.
Ií
r ítal íslenska hf.
Hvaleyrarbraut 3, Hafnarfirði, sími 652740.
Útibú Akureyri
Upplýsingar í síma 21920 á milli kl. 19 og 21 alla daga
meðan á sýningu stendur!
EYÞÓR JÓNSSON.