Dagur - 22.08.1989, Síða 7
Wr&m2Z M,im-1
„Þórsarar áttu þetta skilið“
- sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram
brunaði upp hægri kantinn, gaf
fastan bolta fyrir markið sem rat-
aði til Júlíusar Tryggvasonar.
Hann skaut föstu skoti á markið
en Birkir varði vel. Mínútu síðar
bætti Þór við öðru marki, og er
það með glæsilegri mörkum sem
fjölmargir áhorfendur á Akur-
eyrarvelli hafa séð. Dæmd var
aukaspyrna á að giska 8 metrum
inn á vallarhelmingi Framara.
Júlíus Tryggvason tók spyrnuna
og skaut þrumufleyg beint á
markið sent Birkir réði ekkivið.
Þcttá mark verður að skrifast á
reikning Birkis því hann var
mjög illa staðsettur. Á hitt ber að
líta að skot Júlísar var ekkert
venjulegt! „Ég var alveg ákveð-
inn í að skjóta á markið. Vindur-
inn hjálpar,“ sagði Júlíus eftir
leikinn.
Bojan Tanevski var ekki langt
frá því að bæta við þriðja mark-
íslandsmótið 1. deild Akureyrarvöllur/ Þór-Fram: 2-0:
Árni I‘ór Árnason Þórsari átti oft í harðri baráttu við varnarmenn Fram. Hér hefur hann betur í glímu við tvo þeirra.
Mynd: KL
inu mínútu síðar. Hann komst
einn inn fyrir en Birkir varði vel.
Á 43. mínútu skallaði Ragnar
Margeirsson boltann í markið
eftir fyrirgjöf frá hægri en markið
var dæmt af.
Framarar komu grimmir til
síðari hálfleiks og strax á 46.
mínútu átti Guðmundur Steins-
son mjög gott skot á markið en
boltinn fór rétt framhjá. Og á 60.
mínútu skall hurð nærri hælum
við Þórsmarkið. Ómar Torfason
tók aukaspyrnu og gaf stutt á Pét-
ur Arnþórsson sem þrumaði bolt-
anum rétt yfir. Þórsarar áttu einn-
ig sín færi. Tvívegis komst besti
maöúr vallarins, Árni Þór Árna-
son, í gott færi og var nálægt því
að skora. í seinna skiptið, komst
hann einn inn fyrir en Jón Sveins-
son stöðvaði hann nteð því að
bregða fyrir hann fæti. Fyrir vikið
fékk Jón að líta gult spjald.
Þrátt fyrir nokkuð stífa pressu
Framara á 15 mínútna kafla í síð-
ari hálfleik tókst þeirn ekki að
laga stöðuna. Þórsarar sluppu þó
nteð skrekkinn á 80. mínútu þeg-
ar Viðar Þorkelsson skaut í
þverslá.
Þrír leikmenn Framara fengu
að sjá gula spjaldið í leiknum,
Þorsteinn Þorsteinsson, Ómar
Torfason og Jón Sveinsson. Boj-
an Tanevski, Þórsari, fékk einnig
að líta gula spjaldið.
Bestu menn Þórs í leiknum
voru Árni Þór Árnason, sem er
sannarlega maður framtíðarinn-,
ar, Júlíus Tryggvason, sem lék
sem aftasti maður, Baldvin
Guðmundsson, öruggur í mark-
inu og Luca Kostic sem skilaði
sínu hlutverki á miðjunni mjög
vel. Framarar voru almennt held-
ur daufir í leiknum og var ekki að
sjá að þar færi lið í toppbaráttu.
Þó ber að geta Ragnars Margeirs-
sonar en hann barðist vel
lengst af. óþh
Bikarkeppni FRÍ/ 2. og 3. deild:
Glæstur árangur norðlensku sveitanna
UMSE, UMSS og HSÞ
Árangur norðlenskra frjáls-
íþróttamanna um liðna helgi er
mjög glæsilegur. Á Akureyri
og Húsavík fór fram keppni í
2. og 3. deild bikarkeppni FRÍ
og náðu norðanliðin að færa
sig upp um deildir. Lið HSÞ
sigraði í 3. deild á Húsavík og
tekur með sér lið HSH í 2.
deild að ári. Þá sigraði UMSE
2. dcildina nokkuð óvænt og
fer, ásamt UMSS í 1. deildina
næsta sumar.
Skagfirðingar og Eyfirðingar
voru í nokkrum sérflokki í 2.
deildinni á Akureyri. Eftir fyrri
dag keppninnar hafði UMSE 80
stig en UMSS 74 stig í öðru sæti.
Þriðju komu Ármenningar með
69 stig. UMSE og UMSS bættu
síðan við forskotið á seinni deg-
inum og urðu Eyfirðingarnir efst-
ir með 150 stig en UMSS hafði
142 í öðru sæti. UMSE hefur
ekki Jceppt í 1. deild um nokk-
urra ára skeið og ekki er árang-
ur Skagfirðinga lakari því UMSS
kom úr 3. deild í fyrra og stoppar
því stutt í 2. deild.
Sigrar Sigurðar Matthíassonar
í kastgreinum karla skilaði
UMSE 16% af stigum sambands-
ins. Hann setti vallarmet í spjót-
kasti með 74,28 m kasti og setti
auk þess Eyjafjárðarmet í
sleggjukasti. Af árangri einstakl-
inga má benda á óvæntan sigur
Gísla Sigurðssonar UMSS í 110
m grindahlaupi og stökk Kristjáns
Hreinssonar UMSE í hástökki
þegar hann fór 1,96 m en þessa
hæð hefur hann ekki stokkið síð-
astliðin 5 ár.
í 3. deildarkeppninni á laugar-
daginn hlaut HSÞ 128 stig í fyrsta
sæti en næstir komu HSH með
108 stig og UMFK með 105 stig.
Karlasveit HSH var hlutskörpust
í karlaflokki en í kvennaflokki
sigraði sveit HSÞ með 64 stig,
eða 14 stigum rneira en næsta
sveit.
Æfingar norðlenskra kepp-
enda virðast hafa skilað sér vel en
vert er að geta þess að HSÞ,
UMSE og UMSS sendu öll sveit-
ir í æfingabúðir í Þýskalandi í
vor. JÓH
færast öll upp um deild
Sigurreifír keppendur UMSE að
afloknu móti á sunnudag þegar
sambandið tryggði sér sæti í 1.
deild bikarkeppni FRÍ. Á inn-
felldu myndinnu sést Sigurður
Matthíasson í spjótkasti.
Myndir: KL
„Ég hef ekkert annað um leik-
inn að segja en að þeir áttu
Staðan
1. deild
FH 14 7-4-2 20:11 26
Fram 15 8-2-5 19:13 26
KA 14 6-6-2 19:12 24
KR 14 6-5-3 21:17 23
Valur 14 6-3-5 15:11 21
ÍA 14 6-2-6 14:16 20
Víkingur 14 4-5-5 21:19 17
Þór 15 3-6-6 16:23 15
ÍBK 14 2-5-7 15:23 11
Fylkir 14 3-1-10 12:27 10
2. deild
Víðir 14 10-2-2 20:11 32
Stjarnan 13 10-1-2 30:12 31
ÍBV 13 8-0-5 31:25 24
Selfoss 14 7-0-7 18:24 21
Bréiðabiik 14 5-4-5 28:24 19
Lciftur 14 4-5-5 13:15 17
ÍR 14 4-4-6 16:19 16
Tindastól 14 3-2-9 26:25 11
Völsungur 14 3-2-9 18:30 11
Einherji 12 3-2-7 16:31 11
3. deild
KS 14 13-1-0 55: 2 40
Þróttur N. 14 10-2-2 43:15 32
Dalvík 14 7-3-4 35:16 24
Reynir Á. 14 7-2-5 34:23 23
Huginn 14 6-2-6 26:29 20
Magni 13 4-3-6 22:27 15
Kormákur 15 3-3-9 28:59 12
Valur Rf. 14 2-2-10 9:43 8
Austri 14 1-2-1110:48 5
þetta skilið,“ sagði vonsvikinn
þjálfari Framara, Ásgeir
Elíasson, eftir 0:2 tap hans
manna gegn frískum Þórsurum
í fyrsta leik 15. umferðar í 1.
deild á Akureyrarvelli sl.
sunnudag.
Það var greinilegt strax í byrj-
un leiksins að Þórsarar ætluðu að
selja sig dýrt enda rnjög mikil-
vægt að ná stigum í erfiðri botn-
baráttu. Að sama skapi virkuðu
Framarar ótrúlega daufir og var
engu líkara en þeir hefðu unnið
þennan leik fyrirfram. Lítil bar-
átta var í liðinu og virtist sem þeir
söknuðu mjög Péturs Ormslev,
sem var í leikbanni.
Framan af leiknum gerðist fátt
markvert, liðin þreifuðu fyrir sér
og reyndu að finna smugu í gegn-
unt varnirnar. Guðmundur
Steinsson, átti fyrsta færi leiksins
á sjöundu mínútu en gott skot
hans fór rétt framhjá.
Á 23. mínútu dró til tíðinda
við mark Fram. Friðgeir Hall-
grímsson, góður dómari leiksins,
dæmdi aukaspyrnu vinstra megin
rétt fyrir utan vítateiginn. Júgó-
slavinn, Luca Kostic, sem að
þessu sinni spilaði á miðjunni,
skaut gullfallegu „bananaskoti“
yfir varnarvegg Framara og hafn-
aði knötturinn efst í fjærhornið,
óverjandi fyrir Birki Kristins-
son, markvörð.
Markið hleypti lífi í leikinn og
voru Þórsarar heldur aðgangs-
harðari. Á 35. mínútu áttu þeir
snarpa sókn. Valdimar Pálsson