Dagur - 26.08.1989, Síða 2

Dagur - 26.08.1989, Síða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 26. ágúst 1989 Þjóðarmein íslendinga í nvju ljósi Hallfreður Örgumleiðason: Góðan daginn, ágætu lesend- ur. Ég hef stundum látið út úr mér þau fleygu orð að helsta þjóðarmein Islendinga væri hið ótrúlega og óraunhæfa fylgi Sjálfstæðisflokksins. Vissulega er það böl en margir hafa þó frekar viljað benda á reykingar, alkóhólisma eða jafnvel bakveiki. Núna, þegar aldurinn er að færast yfir mig, er ég ekki frá því að þetta með bakveikina sé ekki svo galið. Ég hef nefnilega kynnst henni af eigin raun og svei mér þá ef hún leggst ekki verr í mig en fylgi íhaldsins, jafnvel þótt það hafi farið yfir fjörutíu prósent. Síðustu ár hef ég þjáðst annað slagið af ýmsum bakkvillum. Stundum hefur þetta verið kallað tak, þursabit, vöðva- bólga í öxlum, eymsli í hálsi, of mikið álag eða eitthvað í þeim dúr og gjarnan hefur ver- ið talað um rangar stellingar og streitu sem orsakavald. Hing- að til hcf ég ekki gert mikið veður út af þessu en þó hef ég skroppið til læknis einu sinni á ári, en oftar en ekki hrekk ég í baklás yfir sumartímann, og blessaðir læknarnir hafa dælt í mig pillum af hjartans lyst. Skemmst er frá því að segja að pillurnar hafa reynst vita gagnslausar, nema litlu, hvítu valíumtöflurnar sem læknir einn í Reykjavík vildi endilega láta mig snæða. Auðvitað hlýddi ég ráðum hans og sveif um í sæluvímu í nokkra daga og gleymdi því að ég hefði nokkurn tíma fundið til í bak- inu. En þetta er vanabindandi og stórhættulegur andskoti og ég ákvað að taka fram fyrir hendurnar á lækninum og hætta þessu pilluáti áður en ég yrði heimilislaus dópisti í Reykjavík. Fyrir nokkrum mánuðum blossaði ótætis bakveikin upp og verkirnir voru slíkir að mér þótti nóg um. Stingir í hryggn- um sem leiddu upp í háls, þrúgandi höfuðverkur, helaumar axlir og stirt skap. Ég reyndi að hrista þetta úr mér en þoldi síðan ekki lengur við og skundaði til læknis. Sem betur fer hitti ég einn með fullu viti og hann nefndi töfra- orðið sem ég mun seint gleyma: Sjúkraþjálfari. „Ég ætla að vísa þér til sjúkraþjálf- ara,“ sagði hann alvörugefinn og í sömu andrá brutust geislar sólarinnar fram úr skýjaþykkn- inu. Sumarið var komið á Akureyri og í sinni mínu. Ég vissi að nú væri kvöl mín á enda eftir langa bið. Ég vissi að sjúkraþjálfarar væru ein- hverskonar töframenn sem læknuðu fólk með því að leggja hendur yfir það og strjúka því létt um bakið. Þess- ir galdrar áttu að lækna hvers kyns líkamlega kvilla, ef ekki andlega líka, og þetta hljóm- aði sannarlega vel. Ég fór því fullur tilhlökkunar í fyrsta tímann. Það vantaði ekki að það væri vel tekið á móti mér. Ég var látinn í fullkomna slökun, umvafinn hitateppum og værð- arvoðum. Einn í rökkrinu gleymdi ég amstri hversdagsins og sveif inn í draumalandið en allt of snemma var ró minni raskað með lágværu urri. Þeg- ar ég opnaði augun sá ég risa- stóran og loðinn karlmann gína yfir mér. Það skipti eng- um togum að að hann skellti mér á magann og urraði eitt- hvað sem átti að þýða „góðan daginn“ og síðan hóf hann að kreista á mér bakið og berja það eins og harðfisk. Frum- stæð sjálfsvarnarhvöt vaknaði hjá mér og ég ætlaði að rísa upp og sýna tröllinu hvar Davíð keypti ölið. Mann- apinn, sem mér skildist síðar að væri sjúkraþjálfari, hló stór- karlalega og hlekkjaði mig fastan við bekkinn. Upphófust síðan þær ægilegustu pyntingar sem ég hef upplifað og hef þó oft farið til tannlæknis. Það var ekki nóg með að hann notaði gríðarlegt vöðvaaflið því auk þess beitíi hann rafknúnum tólum og örbylgjum. Því hærra sem ég öskraði þeim mun ákaf- ar níddist hann á blessuðum hryggnum. Rétt áður en ég féll í öngvit heyrði ég nautið rymja að þetta væri fljótvirkasta og besta aðferðin til að iosa mig við vöðvabólguna. Ég vaknaði við það að bros- mildar stúlkur ýttu við mér og sögðu að þetta væri búið í dag og nú gæti ég snúið aftur til vinnu. „Sama tíma á morgun," gögguðu þær vingjarnlega þeg- ar ég skreið út úr dyrunum. Fyrir þessa meðferð var ég varla vinnufær vegna bak- eymsla en eftir tímann varð ég auðvitað gjörsamlega óvinnu- fær og lagðist í rúmið. Þar er ég enn. A hverjum degi hringja aðstoðarstúlkur loð- fílsins og grátbiðja mig um að koma því ég hafi svo gott af því. Ég þori ekki þangað. Það liggur við að ég hringi frekar í valíumlækninn í Reykjavík. Æ, það er einhver að koma. Hjálpi mér hamingjan! Þetta er heil hersveit frá Kvöl og heilsu hf. Nei, nei, ekki aftur! Ég... Það þýðir ekkert að setja tærnar upp í loft þegar maður er að drcpast í bakinu. Þetta veit Hallfreður og þess vegna dreif hann sig í áhrifamikla meðferð hjá sjúkraþjálfara. heilsupósturinn Umsjón: Sigurður Gestsson og Einar Guðmann Nætnrhrafnar og morgunhanar Truflar maki þinn þig með því að velta sér og snúa hvað eftir annað í rúminu af því að hann er ekki tilbúinn til að fara að sofa og þú getur þess vegna ekki sofnað? Eða er hann ennþá steinsofandi klukkan ellefu fyrir hádegi þegar þú hefur verið á fótum í marga klukkutíma? Ef svo er þjáist þið af svo- kölluðum ósamhæfðum dægur- sveiflutakti - sem á mannamáli kallast mismunandi svefn og vökuþarfir. Ef þú hefur átt við þetta vandamál að stríða þá ert þú ekki einn um það. Af þeim 150 pörum sem Jeffry Larson og félagar hans rannsökuðu voru 82 sem höfðu mismunandi dægur- sveiflur. Af þeim voru 33% sem áttu í einhverjum vandræðum með hjónabandið en einungis 8% af þeim sem voru í fullu samræmi áttu í vandræðum. í rannsókninni þurfti hvert par að svara spurningum um svefn og vökuvenjur og einnig því hvernig ástatt væri fyrir hjónabandinu. Það kom í ljós að þau pör sem voru ósamhæfð í dægursveiflu- takti deildu meira og stunduðu minna kynlíf heldur en hin. Einnig töluðu þau sjaldnar alvar- lega saman og gerðu minna af því að gera eitthvað saman sér til gamans. Bæði eiginmennirnir og eiginkonurnar kvörtuðu yfir því að áhugamál og sjónvarpsgláp kæmu í staðinn fyrir samveru og félagsskap þeirra sem og annarra. Þó svo að Larson fullyrði að mismunandi dægursveiflur stuðli að vandamálum í hjónabandinu þá bendir hann jafnframt á að þær geti allt eins verið afleiðing vandamálsins frekar eins og orsök. Óhamingjusöm pör forð- ast hugsanlega hvort annað upp að vissu marki þegar vandamál koma upp. En hvernig fara svona pör sem annars eru hamingjusamlega gift að því að ná sáttum? Þau verða að vinna að því þrátt fyrir - eða vegna - ósamhæfninnar. Það kom í ljós í rannsókninni að þessi pör leystu sum vandamál sín bet- ur heldur en hin. Aðferðirnar voru einfaldlega hreinskilni, sveigjanleiki og góð samskipti. Til dæmis gæti annar aðilinn reynt að aðlagast venjum hins. Morgunhani sem er giftur næt- urhrafni gæti valið sér vini sem vilja taka þátt í einhverjum áhugamálum sem makinn hefur ekki áhuga á. Einnig er hægt að nýta þennan mismun á margvís- legan hátt. Eftir fæðingu barns til dæmis gæti það verið næturhrafn- inn sem vakir lengur og morgun- haninn sem sér um barnið á morgnana. Það sem hins vegar skiptir mestu máli við að láta svona hjónabönd bjargast er sveigjanleikinn og að vera alltaf tilbúinn að sættast á einhverja málamiðlun.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.