Dagur - 01.09.1989, Page 12
Haldið veisluna eða fundinn
i
elsta húsi bæjarins
Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★
★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★
Fundi og hvers konar móttökur.
Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818.
Forráöamenn Ríkisútvarpsins áttu í gær íund með svcitarstjórnarmönnum á Noröurlandi og var þar rætt vítt og
breitt um Svæöisútvarp RÚVAK og fjölmiölun á Norðurlandi. Fram kom í máli fundarmanna almenn ánægja með
Svæðisútvarpiö og fagnað var nýju skrefi í þróun þess, útscndingum á Norðurlatidi vestra sem hefjast í dag.
Mynd: KL
RUV eykur þjónustu á Norðurlandi í dag:
Útvarp Norðurlands
hefur útsendingar
I dag hefjast útsendingar
Útvarps Norðurlands frá
Ríkisútvarpinu á Akureyri.
Sendingar þess hafa hingað til
náð frá Húsavík til Siglufjarðar
en ná nú um allt Norðvestur-
land til Hólmavíkur. Útsend-
ingartími verður sá sami og var
á Svæðisútvarpinu á Akureyri,
frá kl. 08.10-08.30 á morgn-
anna og milli kl. 18.00 og 19.00
á kvöldin.
Á fréttamannafundi af jressu
tilefni sem haldinn var í gær sagði
Markús Örn Antonsson útvarps-
stjóri að jietta hafi komið til m.a.
vegna óska þess efnis frá íbúum á
Norðurlandi vestra og áskorunar
á Fjórðungsþingi Norðlendinga
árið 1987. Þá er ætlunin að
útsendingar Útvarps Norður-
lands náist til Langaness um
áramót. „Það er rík ástæða
til þess að undirstrika hvað
Samþjöppun á samkeppnistímum:
Súkkulaðiverksmiðjan Línda og
Tómas Steingmnsson sameinast
rekstur svæðisstöðvanna nýt-
ist vel í þágu Ríkisútvarpsins í
heild, fréttaritarakerfið í lands-
hlutunum skilar sér býsna vel til
fréttastofunnar í Reykjavík og
berst þaðan til hlustenda um allt
land.“
Erna Indriðadóttir deildar-
stjóri RUVAK sagði að hingað
til hefði veriö kvartað yfir lítilli
umfjöllun í Ríkisútvarpinu frá
Norðurlandi vestra, en nú ætti
fréttaflutningur þaðan að cflast
og stóraukast.
Að loknum fréttamannafund-
inum héldu forráðamenn Ríkis-
útvarpsins fund með sveitar-
stjórnarmönnum á Norðurlandi
þar sem skipst var á skoðunum
um Svæðisútvarpið. Almennt
voru menn ánægðir með þróun-
ina og að útsendingar næðust nú
til svo til alls Norðurlands. Áskell
Einarsson hjá Fjórðungssam-
bandi Norðlendinga sagðist vona
að Útvarp Norðurland láti stjórn-
ast af eigin fréttamati og vildi að
raddir Norðlendinga heyrðust
meira á aðalrásum útvarpsins.
Sigurður Jóhannesson bæjarfull-
trúi sagði vægi Svæðisútvarpsins
sem auglýsingamiðils hafa aukist
mjög og lýsti ánægju sinni með
hve þáttur þess í landsútvarpin'u
væri að aukast. VG
Tvö gamalgróin fyrirtæki á
Akureyri eru að ganga í eina
sæng um þessar mundir. Þctta
eru Linda hf. og Heildverslun
Tómasar Steingrímssonar &
Co. Sigurður Arnórsson, fram-
kvæindastjóri Lindu, og Leifur
Tómasson, framkvæmdastjóri
heildverslunarinnar, tilkynntu
á blaðamannafundi í gær að
sameining fyrirtækjanna væri
vel á veg komin. Astæðuna
segja þeir vera aukna hag-
kvæmni.
„Það blasir við að fyrirtækin
eru mikið til nteð sömu viðskipta-
vinina og með sameiningu má ná
fram mikilli hagræðingu og spara
milljónir í rekstrarkostnað.
Markmiöið er að stofna hér
öfluga þjónustu- og dreifingar-
miðstöð fyrir Norðurland og i
framhaldi af því munurn við gera
stórt markaðsátak,“ sagði
Sigurður Arnórsson.
Heildverslun Tómasar Stein-
grímssonar var stofnuð árið 1936
en Linda árið 1948. Leifur sagði
að heildverslunin hefði dreift
vörum Lindu um langt skeið auk
margra erlendra vöruflokka.
Heildverslunin verður nú undir
sama þaki og Linda en núverandi
húsnæði verslunarinnar selt.
Sigurður sagði að stjórn Lindu
ætti einnig í viðræðum við tvo
aðila á Akureyri með samstarf í
huga og þa hefði verið rætt viö
nokkra aðila um hugsanlega
eignaraðild. Hann sagði að við-
tökur hefðu verið mjög göðar og
ljóst að hlutafé verður aukið.
Þeir Sigurður og Leifur sögðu að
líklega þyrfti ekki að grípa til
uppsagna í fyrirtækjunum, nema
þá í sáralitlunr mæli, því vonast
er til að sameiningin hafi aukna
sölu í för með sér auk hagræðing-
arinnar.
Sigurður sagði ennfremur að
ýmsar innanhússbreytingar hefðu
verið gerðar hjá Lindu og verk-
smiðjan væri nú að útbúa mark-
aðspakkningar fyrir stórmarkaði,
m.a. á Reykjavíkursvæðinu, en
hið sameinaða fyrirtæki mun
Samherji hf á Akureyri hefur
fest kaup á frystitogaranuin
leggja megináherslu á Norður-
land eystra og vestra.
Ekki liefur verið ákveðið
hvaða form verður á sameining-
unni eða hvort nafnabreyting á
sér stað en stjórnir fyrirtækjanna
eru hlynntar þessum hugmyndum
og ljóst er að af sameiningunni
verður. SS
Arinbirni RE 54, en skipið var
áður í eigu SæHnns hf, hluta-
félags í Reykjavík. Ekki fæst
uppgefiö hversu mikill kvóti
fylgir með í kaupunum en
heildarkvóti skipsins á þessu
ári er tæplega 3300 tonn.
Arinbjörn er talinn gott skip.
Hann var smíðaður árið 1978 hjá
Stálvík í Garðabæ, og samkvæmt
skipaskrá mælist hann 384 tonn
brúttó. Lengdin cr 48 metrar.
Með kaupunum á þessu skipi
stóreykst sá veiðikvóti sem Sam-
herji hf hefur úr að spila, því
heildarkvóti Arinbjarnar fyrir
þetta ár er 3.293 tonn. Skipið er á
sóknarmarki, og skiptist kvótinn
í 1.045 t af þorski, 1.550 t af
karfa, 550 t af grálúðu og 148 t af
rækju.
Magnús E. Gestsson, forstjóri
Sæfinns hf, vildi ckki gefa neitt
upp um söluverð skipsins og
kvótans. Arinbjörn var afhentur
Samherjamönnum í gær, en ekki
náðist samband við forráðamenn
fyrirtækisins. EHB
Norðurland eystra:
Hugmyndir um
aukna samvinnu
sparisjóða
Stefnt er að aukinni sam-
vinnu milli sparisjóða á
Norðurlandi eystra á næstu
mánuðum. Fulltrúar frá
Sambandi sparisjóða, Lána-
stofnun sparisjóða og
Tryggingastofnun spari-
sjóða áttu í gær tvo fundi á
Akureyri með forráða-
mönnum sparisjóða á svæð-
inu og þriðji fundurinn hef-
ur verið boðaður í dag.
Sigurður Hafstein, fram-
kvæmdastjóri Sambands
sparisjóða, sagði ekki á döf-
inni að sameina sjóðina í
einn sjóð en hins vegar teldu
menn nauðsynlegt að huga
að aukinni samvinnu.
„Viö stefnum ekki að niður-
stöðu á þessum fundum cn
vonumst til að þeir komi af
stað umræðu og vinnu í því
skyni að auka samvinnu milli
sjóðanna," sagði Sigurður.
Hann sagði að á undanförnum
árum hafi sparisjóðir í landinu
aukið samvinnu verulega og
hugmynd um frekara samstarf
því eðlilegt skref. „Við teljum
okkur standa frammi fyrir
breyttri samkeppnisstöðu m.a.
vegna samvinnu hlutafélaga-
bankanna sem kann að kalla á
einhverja skipulagsbreytingu
hjá sparisjóðunum," sagði
hann ennfremur.
Ákveðið er að efna til sam-
bærilegs fundar á Vestfjöröum
á næstunni, að sögn Sigurðar
Hafstein. óþh
Munum gera allt til að fá
atvinnuleyfi fyrir Þorvald
„Við viljum ekki lofa meiru
en við gctum staðið við í sam-
bandi við Þorvald Örlygsson
og því er ekki að Ieyna að það
er mjög erfitt að fá atvinnu-
leyíi fyrir erlenda leikinenn í
Englandi," sagði Ron Fenton
aðstoðarframkvæmdastjóri
Nottingham Forest er Dagur
forvitnaðist um málefni Þor-
valdar hjá félaginu.
„Hins vegar munum við gera
allt sem í okkar valdi stendu: til
þess að fá þetta atvinnuieyfi
eftir að Þorvaldu’ kemur út til
okkar og við munum reyna að
sýna yfirvöldum fram á að við
fáum ekki jafn góðan leikmann
Ron Fenton.
fyrir þennan pening í Eng-
landi,“ sagði Fenton.
Hann sagðist vonast til að
komast til Islands til að sjá leik
KA og Vals á Akureyri 9. sept-
ember en það væri þó ekki
öruggt að hann kæmist. „Þor-
valdur stóð sig vel þennan tíma
sem hann var hjá okkur og ég
vona svo sannariega að hann
geti gengið í okkar raðir," sagði
Ron Fenton aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Nottingham
Forest.
I þessu sambandi má minna á
að Southampton reyndi að fá
júgóslavneskan leikmann, sem
leikið hafði átta Iandsleiki, í
sínar raðir í fyrra en það gekk
ekki upp og þurfti hann að
hverfa aftur til síns heima.
Samherji hf. kaupir frystiskip:
Hefur 3300 tonna
kvóta á þessu ári