Dagur - 20.09.1989, Síða 2

Dagur - 20.09.1989, Síða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 20. september 1989 fréttir Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva: Kosið í stjóm samkvæmt nýjum lögum samtakanna Aðalfundur Samtaka fisk- vinnslustöðva 1989 verður haldinn í Vcstmannaeyjum 22. september næstkomandi. Á síðasta aðalfundi, sem haldinn var í Stykkishólmi í sama mán- uði í fyrra, voru samþykkt ný lög fyrir samtökin. Samkvæmt þeim eru stjórnar- menn ekki lengur tilnefndir af félagsmönnum SF í landshlutun- um og af sölusamtökunum eins og var samkvæmt eldri lögum samtakanna. Samkvæmt nýju lögunum er stjórnin kosin til tveggja ára, þannig að fjórir stjórnarmenn ganga úr stjórn annað árið og fimm það næsta. Það sama á við um varamenn. Um þetta mál er fjallað í nýjasta fréttabréfi SF. Á aðalfundinum í Stykkis- hólmi átti að kjósa í fyrsta sinn samkvæmt nýju lögunum en fyrri stjórn var endurkjörin án þess að til atkvæðagreiðslu kæmi. Sam- kvæmt bráðabirgðaákvæði nýju DAGl'R Akureyri @96-34222 Norðlenskt dagblað laganna var dregið um hverjir skyldu sitja í eitt ár og hverjir í tvö. Þessir stjórnarmenn og vara- menn í stjórn SF munu sitja áfram: Stjórnarmenn, Arnar Sigur- mundsson, Brynjólfur Bjarnason, Konráð Jakobsson og Kristján Guðmundsson. Varamenn, Ein- ar Páll Bjarnason, Einar Oddur Kristjánsson, Gunnar Tómasson og Jón Friðjónsson. Þeir stjórnarmenn og vara- menn sem ganga úr stjórn áfund- inum eru: Stjórnarmenn, Ágúst Einarsson, Árni Guðmundsson, Soffanías Cecilsson, Þorbergur Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra Guðmundur Bjarna- son hefur skipað nefnd sem hefur það hlutverk að endur- skoða lög um vátryggingastarf- semi. Lög nr. 50/1978 um vá- tryggingastarfsemi hafa verið í gildi í meira en áratug. Miklar breytingar hafa átt sér stað í þjóðfélaginu á þessum tíma, bæði í vátryggingastarfsemi og á öðrum sviðum, og þróunin ör hin síðari ár. Því er nauðsyn- legt að endurskoða ýmis ákvæði nefndra laga og einnig að fjalla um ný svið sem ekki eða að litlu leyti er fjallað um í núgildandi lögum. Einnig þarf að taka mið Þórarinsson og Þorsteinn'Árna- son. Varamenn, Eðvarð Júlíus- son, Kristinn Pétursson, Sturlaug- ur Sturlaugsson, Teitur Stefáns- son og Þorsteinn Ásgeirsson. Stjónarkjör fer fram í tvennu lagi, fyrst eru kosnir fimm stjórn- armenn og að lokinni talningu eru kosnir jafn margir varamenn í stjórn samtakanna. Heimilt er að endurkjósa þá sem eiga að ganga úr stjórn en allir félags- menn eru í kjöri. Félagsmenn SF hafa atkvæði á aðalfundinum í hlutfalli við greidd félagsgjöld á síðasta ári og er 1 atkvæði fyrir fullar 1000,- kr. í félagsgjaldi. af þeirri reynslu sem fengist hefur af framkvæmd laganna á þeim tíma sem þau hafa verið í gildi. Því hefur tryggingamálaráð- herra skipað þessa nefnd sem í eiga sæti: Sigmar Ármannsson framkvæmdastjóri fulltrúi Sam- bands íslenskra tryggingafélaga, Jón Magnússon lögfræðingur fulltrúi Neytendasamtakanna, Bjarni Þórðarson trygginga- fræðingur, Guðný Björnsdóttir lögfræðingur og Erlendur Lárus- son forstöðumaður Tryggingaeft- irlitsins og er hann formaður nefndarinnar. Ritari nefndarinnar er Rúnar Guðmundsson lögfræðingur. Lög rnn vátrygginga- starfsemi endurskoðuð Blanda Hreinn Appeís PureOrangeJuice I helgarblaði Dags var sagt frá ungum dreng sem hefði bjargað félaga sínum úr Húsavíkurhöfn í síðustu viku. Hér er komin mynd af þeim félögum, til vinstri er Róbert Stefán Róbertsson, 8 ára, sem togaði Björgvin Viðarsson, 9 ára, upp úr sjónum. Piltarnir voru að veiða á Suðurgarðinum og er Björgvin var að fara niður í bát skrikaði honum fótur og hann datt í sjóinn. Mynd im Nýverið var afhentur vinningur í Vorhappdrætti SÁÁ, bifreið af gerðinni Chevrolet Monza 1989. Bifreiðin kom í hlut Mörtu Svavarsdóttur frá Hafn- arfirði og á myndinni sést Jón Baldvinsson, framkvæmdastjóri SÁÁ, afhenda dóttur hennar, Selmu Jóhannesdóttur, bifreiðina. lagning gerð á rekstri SÁÁ - Róðurinn hefur þyngst til muna með tilkomu bjórsins Mikil endurskipulagning hefur farið fram á rekstri SÁÁ að undanförnu. Með henni er fyrst og fremst verið að efla og sam- eina fjármálastjórnun hinna ýmsu deilda og stefnt að því að félagið geti hægt og sígandi unnið sig út úr fjárhagserfiðleikum undanfarinna ára. Búið er að tölvuvæða allt starfsmannahald og bókhald félagsins og fer nú allt fjárstreymi í gegnum aðalskrifstofuna í Síðu- múla. Hefur þessi breyting þegar skilað miklum árangri og auð- veldar bæði daglegan rekstur og gerð langtímaáætlana. Fyrir ligg- ur að auka þarf þjónustu SÁÁ með ýmsum hætti; til stendur að stórefla göngudeildina í Síðu- múla og þegar er búið að taka upp svonefnda vinnustaðaþjón- ustu. Um fimm þúsund manns leit- uðu til SÁÁ á síðasta ári. Lítið lát er á eftirspurn eftir hinni margvíslegu þjónustu og aðstoð sem veitt er og hefur róðurinn þyngst til muna með tilkomu bjórsins. Alls eru um hundrað manns á launaskrá hjá hinum ýmsu deildum og stofnunum, en SÁÁ rekur sjúkrastöðina á Vogi, meðferðarheimilin á Sogni í Ölf- usi og Staðarfelli, auk göngu- deildar fyrir alkóhólista og fjöl- skyldudeildar að Síðumúla 3-5 í Reykjavík.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.