Dagur


Dagur - 20.09.1989, Qupperneq 5

Dagur - 20.09.1989, Qupperneq 5
Miðvikudagur 20. september 1989 - DAGUR - 5 Þakkir fyrir ánægjulega orlofsdvöl í Mývatnssveit SKEMMTIKLÚBBURINN LÍF OG FJÖR Dansskemmtun verður í Allanum, Skipagötu 14, 4. hæð, laugardaginn 23. sept. nk. frá kl. 22.00. „Dagana 1.-7. september sl. dvöldu tuttugu og tvær konur í húsmæðraorlofi á Hótel Reyni- hlíð í Mývatnssveit. Tvær í þessum hópi, þær Snjó- laug Aðalsteinsdóttir frá Akur- eyri og Kristjana Sigurjónsdóttir frá Ólafsfirði, höfðu verið kjörn- ar af Sambandi norðlenskra kvenna til að annast umsjón og stjórn þessarar orlofsdvalar. Ræktu þær það hlutverk með mesta sóma. Öll samskipti innan þessa hóps voru hin bestu og dvölin öll svo ánægjuleg að hér var um að ræða sæluviku, sem leið allt of fljótt. Aðbúð öll á hótelinu var hin ágætasta. Allt í röð og reglu. Eftirtekt vakti og var lofsvert, að varla seinkaði nokkru sinni um mínútu að matur og kaffi stæði á borðum á tilskildum tíma. Var þó margan dag mikið um gesti (ferðamenn) á hótelinu og önnin þá þrotlaus. Smekkvísi og snyrti- mennska einkenndu alla fram- reiðslu. Vistir voru valdar og rausn eftir því. Starfsfólk í eld- húsi á hrós skilið. Sama máli gegndi um þær ungu og fallegu stúlkur sem önnuðust þjónustu í veitingasal og þær sem gegndu símavörslu. Þær voru all- ar einkar prúðar í framgöngu og ljúfar í viðmóti, boðnar og búnar til hins besta og áttu jafnan bros til að gefa. Alls þessa var sannar- lega ánægjulegt að njóta. Því sendum við ykkur og öllum hlut- aðeigendum fyllstu þakkir og óskum allra heilla. Með bestu kveðjum í Reyni- hlíð, OrIofskonur.“ Þeir sem hafa áhuga á því að gerast klúbbfélagar, en hafa ekki enn skráð sig, geta gert það á skemmtuninni. Húsið opnað kl. 21.30 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Hljómsveit Bigga Mar. sér um fjörið. Sjáumst hress! Stjórnin. Brynhildur Sverrisdóttir verður til \ið- tals á slcrifstofu Fjárfestingarfélagsins á Akureyri, Ráðhústorgi 3 (Ferðasltrif- stoíu Akureyrar) niiðvikudaginn 20. sept. nk. frá kl. 09.00-12.00. FJÁRFESTINGARFÉLAG ÍSLANDS FRJALSI LÍFEYRISSJÓÐURINN Messa á Knappstöðum í Fljótum Á liðnum ágústdögum var ég að hugsa um hvort ég ætti ekki eitthvað eftir, áður en ég legg frá landi, en viðbúið er að ég sigli í haust. Jú, það kom á daginn að ég átti eftir að fara til kirkju að Knappstöðum í Fljótum á þessu herrans sumri, þann 20. ágúst 1989. Ég fékk far með séra Gísla í Glaumbæ, en hann söng mess- una. Séra Gísli mun véra yngstur presta í prófastsdæminu, ré.tt um þrítugt. Hann hefur góðan málróm, flytur vel og byggir ræð- ur sínar upp skipulega. Hann er því á allan máta hinn snotrasti kennimaður. í Knappstaðapredik- un lagði hann út af ritningargrein um „Hinn miskunnsama Sam- verja“ og var það góð predikun. Þessi kirkjuferð varð mér til sálubótar, ef það annars er hægt að baéta sálu mína. Hún var ánægjuleg í alla staði og svo líður mér alltaf svo vel þegar ég sit í bíl og þarf ekki að borga fargjald. Þessi kirkja á Knappstöðum var byggð 1838 og mun því vera elsta timburkirkja á landinu. Mér var sagt að tveim árum fyrr hefði kirkja verið reist á þessum stað, 1836, en þá kom jarðskjálfti svo mikill að hún hrundi til grunna, en sóknarfólk lét ekki deigan síga og endurreisti kirkjuna án tafar. Þannig hefur þrjóskan og seiglan í fari íslendinga komið þeim að gagni um ár og síð. Síðustu árin hafa Knappstaðir verið í eyði og þessi jörð á það sameiginlegt með Ábæ í Aust- urdal, en á báðum þessum jörð- um standa kirkjur til vitnisburðar um fyrri tíð. Kirkjan á Knappstöðum stend- ur í brekku skammt fyrir ofan veginn, sem liggur um Stíflu og norður Lágheiði. Ekki er turn á kirkjunni og hann þarf ekki að vera. Rismikil fjöll eru á þrjá vegu og þau eru eins og vísifing- ur, sem bendir upp í himininn. í þessum fjallasal við ysta haf er friður og ró. Það er ekkert sem glymur, nema einhver suða í bíl- um sem renna um veginn. Og allt er vafið í grasi hátt upp í hlíðar og þar heitir Stekkjarhóll. Lífrík- ið allt er ein heild og þess vegna stendur skrifað: „Allt hold er gras.“ Knappstaðakirkja sýnist ekki stór, en þó rúmar hún í sæti um 50 manns og var fullsetin við fyrr- nefnda messu. Nýlega var hún endurbætt og er nú svo falleg, að ekki hefur hún verið fallegri nýbyggð. Veggir eru málaðir hvítir utan og innan, hvelfing dökkblá með stjörnum. Nokkuð stór altarisbrík er í kirkjunni, orðin dauf og dökk af elli. Helgi- myndir eru í spjöldum predikun- arstóls og presturinn þarf ekki að ganga rangsælis upp í stólinn, eins og á Króknum. Kirkjugarð- urinn er vel hirtur með smekk- legri girðingu. Kirkjan stendur á hlöðnum grunni, en vegna þess hvað túninu hallar er stigi upp að kirkjudyrum, því auðvitað er kirkjugólf lárétt. Áður fyrr voru Knappstaðir prestsetur og þar sátu prestar er sumir voru nafnkenndir. Nú er margt breytt. Siglufjörður þurfti að fá rafmagn frá Skeiðsfossi og sú virkjun varð þess valdandi að fögur engjalönd í Stíflu fóru und- ir vatn og nokkur býli þar í eyði. Fólki fækkaði í Knappstaðasókn, sem leiddi til þess að nýlega er búið að sameina Barðs- og Knappstaðasóknir. Ekkert mælir á móti því að einn söfnuður eigi tvær kirkjur. Hvað sem öðru líður verður því ekki á móti mælt að kristni- hald er gott í Holts- og Haganes- hreppum. Kirkjurnar á Barði og Knappstöðum bera vitni um það. Sönn guðstrú er ekki eingöngu bænagerð, heldur kemur hún fram í verkum manna ekki síður. 24. ágúst 1989 Björn Egilsson. ||.|1tónlistarskólinn áakureyri Frá Tónlistarskólanum á Akureyri Enn er hægt aö bæta viö nemendum í forskóla og á eftirtalin hljóðfæri: Selló, klarinett, óbó, fagott, trompett, básúnu, horn, trommur og túbu. Tekiö veröur viö umsóknurri næstu daga milli kl. 13 og 17 á skrifstofu skólans. Skólinn veróur settur í Akureyrar- kirkju laugardaginn 23. september kl. 17.00. Skóiastjóri. Spariskírteini ríkissjóðs bera nú 5,5-6,0% vexti. umfram verðbólgu Gengi Einingabréfa 20. sept. 1989. Einingabréf 1 ... .... 4.198,- Einingabréf 2 ... .... 2.316,- Einingabréf 3 ... .... 2.753,- Lífeyrisbréf .... 2.111,- Skammtímabréf .... 1,441 Sparískírteini ríkissjóds er eign sem ber arð

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.