Dagur - 20.09.1989, Page 6

Dagur - 20.09.1989, Page 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 20. september 1989 y.v. ’fftf/t&X'fyfj't ífíOS C5AC;t*.fí - 7 Samstarfsnefnd ráðuneyta í ávana- og fíkniefnamálum: Fróðlegur fundur á Sauðárkróki Þann 16. sept. sl. hélt Sam- starfsnefnd ráðuneyta í ávana- og fíkniefnamálum fund á Sauðárkróki. Tilgangur fund- arins var að opna skoðana- og upplýsingaskipti milli stjórn- valda og heimamanna hvað þennan málaflokk varðar. 6 fuiltrúar eiga sæti í nefndinni frá jafnmörgum ráðuncytum. Þeir Erlendur Kristjánsson og Hrafn Pálsson fluttu framsögu um störf nefndarinnar og stöðu þessara mála í landinu. í máli þeirra kom fram að mikið væri gert til þess að fræða unglinga um skaðsemi fíkniefna og áfengis. Lionssamtökin í landinu kostuðu alla þýðingu á efni sem lieitir „Að ná tökum á tilverunni“ og var sérstaklega gefið út í þessu sambandi. Foreldrar barna sem sækja þessa fræðslu fá einnig sent efni sem heitir „Áhrif sem koma á óvart“. Peir kennarar sem sjá um að kenna þetta efni hafa farið á þriggja daga mjög stíf nám- skeið og hafa nú alls 127 kennar- ar sótt þessi námskeið, sem eru 5 talsins, auk 15 annarra aðila sem tengjast þessu efni á einhvern hátt. Nefndin vinnur einnig að því að koma á fót endurhæfingar- heimili fyrir langtíma endurhæf- ingu. Það heimili yrði það fyrsta sem færi inn á föst fjárlög. Með öðrum orðum, ríkisrekið. Þetta heimili kemur til með að geta tekið við allt að 14 gestum til langtímadvalar og um þessar mundir er verið að leita að heppi- legum húsakosti undir starfsem- ina. Nýbúiö er að auglýsa eftir starfsfólki og er leitað að fólki sem hefur áhuga á þessum mál- um og er reiðubúið að takast á við þau. Þegar starfsfólk hefur verið ráðið er það sent í starfs- þjálfun til Bandaríkjanna, en þetta heimili sækir fyrirmynd sína þangað. Ætlunin er að reka þetta heimili í þrjú ár til að byrja með og endurskoða síðan starf- semina. Hrafn skýrði frá því að þessir unglingar sem um ræðir væru aðallega á aldrinum 14-17 ára. Þeir byrjuðu vanalega á því að drekka áfengi en færu síðan út í sterkari og hættulegri efni. Ekki væri ætlunin að eingöngu eitur- lyfjaneytendur dveldu á þessu heimili. Þetta væri líka endur- hæfingarheimili fyrir þá sem selja þennan ófögnuð. Það væri tími til kominn að þessir „dílerar" hættu að safna smádómum sem einung- is héldu aftur af þeim í stuttan tíma. Húnaversmálið væri gott dæmi um það. Að sögn Hrafns munaði sáralitlu að Fíkniefnalög- reglunni tækist að uppræta mest- alla eiturlyfjasölu í Reykjavík nú í sumar. Einungis blankheit hafi komið í veg fyrir það, þar sem ekki voru til peningar til þess að vinna þá vinnu sem þurfti. Ástæð- an var niðurskurður í ríkisrekstri. Fram kom að þessi niðurskurður væri í raun mjög alvarlegt mál þar sem dópsalarnir héldu að sér höndum fram til 20. hvers mán- aðar en þá er yfirvinnan búin hjá lögreglunni. Þá geta þeir stundað þessa ógeðfelldu iðju sína óáreitt- ir. Eftir þessa framsögu svöruðu þeir Erlendur og Hrafn fyrir- spurnum heimamanna og ræddu við þá um þessi mál. Voru þeir mjög ánægðir með fundinn og umræðurnar sem spunnust útfrá framsögu þeirra. Nú ætti öllum að vera ljóst að hér er um mjög alvarlegt mál að ræða. Lykilaðil- arnir í þessu máli fyrir utan ungl- Erlendur Kristjánsson og Hrafn Pálsson fluttu framsöguerindi á fundinum. Mynd: KJ ingana sem neyta þessara efna, eru foreldrarnir. Þeir mega ekki loka augunum fyrir þessu vanda- máli og trúa því að þeirra börn geti ekki lent í viðjum eiturlyfja- martraðarinnar. Staðreyndin er sú að þeir unglingar sem neyta fíkniefna koma úr öllum stéttum landsins og af allskonar heimil- um. Höfum það hugfast. KJ Verðkönnun NAN Neytendafélag Akureyrar og nágrennis tíndi saman vörur í innkaupakörfu dagana 14. og því er klósettpappírinn frá Spar og eldhúsrúllurnar frá Serla. í KEA Nettó er Kellog’s 15. sept. Verslunarmenn höfðu á orði að vöruverð hafi hækkað mikið undanfarið. Félag- cornflakes til í 500 gr. pakka á 157 kr. Matvörumarkaðurinn og Hagkaup selja Plastos ið tók nú í fyrsta sinn KEA Nettó með í verðkönnun en sú verslun er fyrst sinnar tegund- nestispoka nr. 2, 50 stk. í rúllu. Þeir kosta 129.40 í M.M. og 121.50 í Hagkaup. ar hér á Akureyri. Tekið skal fram að í Matvörumarkaðnum voru ekki til Papco vörur og Tegund vöru Hag- kaup KEA Hrisal. KEA Nettó KEA Byggðav. Matvöru- markaóurinn Mismunur hæsta lægsta verð Mismunur o o Kornax hveiti 2kg 78.- 76.30 72.-X 77.70 79.50 7.50 10.0 Sykur 2kg 138.-X 163.50 145.- 165.10 174 .- 36 .- 26.0 Kellog's cornfl.750gr 238.-X 239.10 243.40 256.- 18.- 7.0 Cheerios- 425gr 195.- 190.20 180 .-X 197 .- 17.- 9.0 Sana tómatsósa 500gr 110.60 99.-X 112.50 114 . - 15.- 15.0 Bragakaffi gulur 250gr 103 .- 103.- 93.-X 107.- 107 . - 14 .- 15.0 Ýsuflök ný lkg 362 .- 345.- 345.- 327.-X 35.- 10.0 Nautahakk lkg ófrosið 782.- 730.- 819.- 566.-X 253 .- 44.0 Spægipylsa nióursn.lkg 990 .-X 1178.- 1074.- 1178.- 1333.- 343 .- 34.0 Smjörvi 300gr 177.- 153 .- 152.-X 170.10 173 . - 25.- 16.0 Tómatar lkg 295.- 263.- 260.-X 305.- 310 .- 50 .- 19.0 Laukur 2kg 69.-X 106.- 103.- 112.- 80 . - 43.- 62.0 Vex uppþv.lögur 660gr 93.- 86 .- 81 .-X 86.- 94.50 13.50 16.0 Vex þvottaduft 700gr 103.- 95.- 90.-X 96.- 101 . - 13.- 14.0 Silkience sjampó 150ml 151.-X 158.70 162.80 11.80 7.0 Silkience hárnær.lSOml 151.-X 155.80 4.80 3.0 Klósettpappir 4i pk 99 .-X 101.80 106.70 102.50 7.70 7.0 Eldhúsrúllur 2i pk 101 . - 103.30 99 . -X 99 .-X 4.30 4.0 Plastpokar Ako nr2 89.- 72.40 65.-X 86.60 24.- 36.0 Egg lkg 387.- 380.- 352.-X 380.- 414.- 62.- 17.0 x merkir lægsta verð.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.