Dagur - 20.09.1989, Blaðsíða 12
Akureyri, miðvikudagur, 20. september 1989
Kodak
Express
Gædaframköllun
★ Tryggðu f ilmunni þinni
Jbesta Tiedr6myndir
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Ólafur Ólafsson, verðandi forstjóri Álafoss hf, kom í gser í höfðustöðvar fyrirtækisins á Akureyri, en Ólafur var
áður framkvæmdastjóri Álafoss Ltd. í New York. F.v.: Ólafur Ólafsson, Aðalsteinn Helgason aðstoðarforstjóri og
Jón Sigurðarson, fráfarandi forstjóri Álafoss. Mynd: ehb
Raufarhöfn:
Atlanúpur fær
í flestan sjó
Fiskibáturinn Atlanúpur, sem
Jökull hf. á Raufarhöfn keypti
í sumar, er nú kominn á veiðar
eftir að hafa verið í viðgerð á
Akureyri. Að sögn Hólmsteins
Björnssonar, framkvæinda-
stjóra Jökuls, var hér aðeins
um smávægileg atriði að ræða
sem kippt var í liðinn.
Aflabrögð hafa verið þokkaleg
á Raufarhöfn að undanförnu og
staðan í atvinnulífinu með besta
móti, sérstaklega ef miðað er við
nágrannasveitarfélögin.
Þegar litið er á bráðabirgðatöl-
ur Fiskifélags íslands yfir afla-
brögð fyrstu átta mánuði ársins
kemur í ljós að ívið minna hefur
borist af þorski, grálúðu og ufsa
til Raufarhafnar en á sama tíma í
fyrra, en heldur meira af ýsu og
karfa. SS
Verðkönnun NAN:
KEA Nettó oftast
með lægsta verðið
Neytendafélag Akureyrar og
nágrennis tíndi saman vörur í
innkaupakörfu í matvöruversl-
Steinullarverksmiðjan hf. á Sauðárkróki:
Hlutafé fyrirtækisins aukið
utn rtunar 90 milljónir króna
- eignaraðild finnska fyrirtækisins Partek 0Y eykst um 20%
I gær undirrituðu hluthafar í
Steinullarverksmiðjunni hf. á
Sauðárkróki, samkomulag um
hlutafjáraukningu að upphæð
91,5 milljón króna. Aðilar að
Steinullarverksmiðjunni hf.,
Ríkissjóður Islands, Samband
íslenskra samvinnufélaga,
Kaupfélag Skagfirðinga, Partek
OY og Sauöárkrókskaupstaöur,
sem eiga um 98% hlutafjár,
hafa undanfarnar vikur leitað
leiða til að styrkja stöðu Stein-
ullarverksmiðjunnar hf. hér á
landi og erlendis, svo og á sviði
tækni- og vöruþróunar.
Af framangreindu hlutafé
skrifuðu núverandi hluthafar sig
fyrir 45 milljónum króna í réttu
hlutfalli við hlutafjáreign sína.
Partek OY, skrifar sig að auki
fyrir hlutafé að fjárhæð 45 millj-
ónir króna og ýmsum hluthöfum,
sem nú eiga um 2% alls hlutafjár-
ins, er gefinn kostur á að skrifa
sig fyrir hlutafé að fjárhæð 1,5
milljónir króna.
Samfara hlutafjáraukningunni
hafa náðst mikilvægir samningar
um lengingu lána og lækkun
vaxta.
í fréttatilkynningu frá Steinull-
arverksmiðjunni hf., er tekið sér-
staklega fram að Partek OY sé
eitt stærsta fyrirtæki Finna og
ræður yfir verulegum mörkuðum
fyrir steinull og er leiðandi aðili
við þróun einangrunarefna. Auk-
in aðild Partek að Steinullarverk-
smiðjunni hf. ætti því að styrkja
samkeppnisstöðu fyrirtækisins
verulega, sérstaklega á erlendum
mörkuðum.
Fyrir áðurnefnda hlutafjár-
aukningu átti Ríkisjóður 38% í
Steinullarverksmiðjunni, Partek
OY 8%, Sauðárkróksbær 31%,
Samband íslenskra samvinnufé-
laga 15%, Kaupfélag Skagfirð-
inga 6% og ýmsir aðilar 2%. Eft-
ir hlutafjáraukinguna á Ríkis-
sjóður 29%, Partek OY 28%,
Sauðárkróksbær 24%, Samband
íslenskra samvinnufélaga 12%,
Kaupfélag Skagfirðinga 5% og
ýmsir aðilar 2%. -KK
unum á Akureyri dagana 14.
og 15. september s.l. Verslun-
armenn höfðu þá á orði að
vöruverð hafi hækkað mikið
að undanförnu.
Félagið tók nú í fyrsta sinn
KEA Nettó með í verðkönnun
en að auki voru Hagkaup, KEA
Hrísalundi, KEA Byggðavegi og
Matvörumarkaðurinn með í
þessari könnun. Alls var athugað
verð á 20 vörutegundum og í
flestum tilfellum var verðið lægst
í KEA Nettó, eða 11 sinnum en 7
sinnum var verðið lægst í Hag-
kaupum.
Minnstur var verðmunurinn á
milli verslananna 3% en mestur
var hann 62%. Sjá nánar verð-
könunina á bls. 6 í blaðinu í dag.
-KK
Bæjarstjórn Akureyrar:
Krossanesdeilan rædd í bæjarstjóm
- trúnaðarmaður ekki endurráðinn - kjaradeila eða flölskyldumál?
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir
bæjarfulltrúi vakti máls á
málefnum starfsmanna
Krossanesverksmiðjunnar á
fundi Bæjarstjórnar Akureyr-
ar í gær. Taldi hún gagnrýnis-
vert hvernig að samningum við
starfsmenn væri staðið, í
tengslum við uppsagnir og
endurráðningar.
Úlfhildur sagði að vegna við-
tala við formann Verkalýðs-
félagsins Einingar og formann
stjórnar verksmiðjunnar teldi
hún fulla ástæðu til að málefni
Krossaness yrðu rædd í bæjar-
stjórn. Nokkur atriði í málinu
hefðu ekki komið fram áður, og
væru bæjarfulltrúum því ókunn-
ug-,
Úlfhildur benti fyrst á að
verkamönnum í Krossanesi hefði
öllum verið sagt upp vegna skipu-
lagsbreytinga og hluti þeirra
endurráðinn. Trúnaðarmaður
starfsmanna var þó ekki endur-
ráðinn, en réttur trúnaðarmanns
á að vera umfram aðra starfs-
menn á vinnustað. Petta þótti
verkalýðsfélaginu athugavert, og
það sem verra var að aðrir menn
voru ráðnir í staðinn. Við endur-
ráðninguna var gengið á milli
manna og þeim boðið að undir-
rita einhliða kjarasamning, sem
var hliðstæður við samning Istess
hf. Jafnframt áttu þeir að skipta
um stéttarfélag og ganga í Iðju.
Verkamennirnir snéru sér til
Einingar og vildu fá málin á
hreint. Samningnum við starfs-
mennina hefði þó ekki verið sagt
upp um leið og fólkinu, og taldi
Eining að hann væri áfram í fullu
gildi til áramóta.
Verkalýðsfélagið fór því fram
á það við forsvarsmenn Krossa-
ness að þeir viðurkenndu gildi
samningsins, eða þá að nýr samn-
ingur yrði gerður við félagið, sem
hefði ávallt verið samningsaðili á
vinnustaðnum. Iðja hefur lýst
yfir að félagið hafi ekkert með
mál þetta að gera. Forsvarsmenn
Krossaness vísuðu málinu til
Vinnuveitendasambandsins, og
skírskotuðu til þess að verk-
smiðjan væri gengin í Félag
íslenskra iðnrekenda.
Úlfhildur varpaði þeirri spurn-
ingu fram á fundinum hvort
bæjarstjórn ætlaði að láta vinnu-
brögð af þessu tagi viðgangast
gagnvart starfsfólkinu, sem væri
raunverulega í vinnu hjá bænum,
en Akureyrarbær er eini eignar-
aðili Krossanésverksmiðjunnar.
„Bæjarstjórn er ábyrg gagnvart
þessu fyrirtæki og fólkinu sem
þar vinnur,“ sagði hún og flutti
tillögu um að Kjarasamninga-
nefnd Akureyrar gengi til samn-
inga við verkalýðsfélagið Einingu
fyrir hönd verskmiðjunnar.
Bæjarstjórn samþykkti sam-
hljóða að vísa tillögunni til
Bæjarráðs til umfjöllunar. Úlf-
hildur kvaðst sætta sig við þá
málsmeðferð, því þá færi málið
aftur á dagskrá í bæjarstjórn.
Sigfús Jónsson bæjarstjóri er
formaður Krossanesstjórnar.
Hann kvaðst ekki vilja tjá sig
mikið um málið á þessu stigi þar
sem það hefði borist svo óvænt
inn á borð bæjarstjórnar. Hann
gerði það að tillögu sinni að
bæjarráð fjallaði um það. Þau
kjör sem starfsmönnum Krossa-
ness hefðu verið boðin eftir
endurráðningu væru talsvert
betri en þau sem kjarasamning-
urinn milli bæjarins og Einingar
kvæði á um, en lakari en þau kjör
sem áður giltu, þ.e. fyrri kjara-
samningur að viðbættum auka-
sporslum til starfsmanna. Eining
hefði ekki fallist á að auka-
sporslurnar hefðu fallið niður við
uppsögn starfsmannanna. Sætti
starfsmenn sig ekki við þetta væri
þeim í sjálfsvald sett að leita
úrskurðar félagsdóms.
Um uppsögn trúnaðarmanns-
ins sagði Sigfús að um væri að
ræða erfitt fjölskyldumál, þar
sem 5 eða 6 meðlimir sömu fjöl-
skyldu hefðu starfað hjá verk-
smiðjunni. Hefði þetta verið til
vandræða og ekki verið annað
hægt en að grípa til ráðstafana.
Ekki hefði verið eðlilegt af Ein-
ingu að tilnefna son verksmiðjus-
tjóratis sem trúnaðarmann á sín-
um tíma. „Þetta er mál sem varð
að taka á,“ sagði Sigfús. EHB