Dagur - 29.09.1989, Side 4

Dagur - 29.09.1989, Side 4
I _ - S8Gf %íecíí'r<»ítf.->í M •••íigRiiwJsö 4 - DAGUR - Föstudagur 29. september 1989 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREVRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (fþróttir), KARL JÓNSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Áfengiskaup á sérkjörum Meint hneykslismál vegna kaupa ýmissa ráða- manna á áfengi á kostnaðarverði hafa skotið upp kollinum annað slagið undanfarna mánuði. Fyrsta og stærsta mál þessarar tegundar voru tvímæla- laust áfengiskaup Magnúsar Thoroddsen, fyrrum forseta Hæstaréttar og eins af handhöfum forseta- valds. í tengslum við rannsókn þess máls komu fleiri kurl til grafar, sem vissulega geta orkað tví- mælis. Fjölmiðlar hafa velt upp ótal spurningum og á stundum berað visst dómgreindarleysi vegna þessara mála. Það er t.d. algerlega út í hött að bera saman umfangsmikil áfengiskaup fyrrum forseta Hæstaréttar til einkanota annars vegar og áfeng- iskaup einstakra ráðherra til að veita í opinberum móttökum heima fyrir hins vegar. Nokkrir fjölmiðlar leyfðu sér engu að síður að beita slíkum saman- burði. Síðan er þráttað um það fram og til baka hvort hinn eða þessi ráðherrann hafi brotið gildandi reglur um áfengiskaup á sérkjörum eða ekki. í raun fæst engin niðurstaða í málið, til þess eru gildandi reglur allt of óljósar. Þær má nánast túlka að geð- þótta hvers og eins. Nýjasta mál þessarar tegundar fjallar um tiltekin áfengiskaup Jóns Baldvins Hannibalssonar, núver- andi utanríkisráðherra, í fjármálaráðherratíð hans. Jón Baldvin keypti þá 106 flöskur af áfengi, sem síð- an var veitt í afmælisveislu ritstjóra Alþýðublaðs- ins. Yfirskoðunarmenn ríkisreiknings gera athuga- semd vegna þessara kaupa og telja þau benda til þess „að um alvarlega misnotkun á heimild ráðu- neytis til kaupa á áfengi á kostnaðarverði sé að ræða.“ Jón Baldvin telur sig þvert á móti ekki hafa brotið neinar reglur, því risna ráðherra geti tekið til samstarfsmanna og embættismanna jafnt sem stjórnmálamanna og félagasamtaka, innlendra sem erlendra, skv. mati ríkisendurskoðanda. Túlkun þessara aðila, þ.e. yfirskoðunarmanna ríkisreikn- ings annars vegar og utanríkisráðherra hins vegar, er eins ólík og framast er hægt að hugsa sér. Annar sér svart þar sem hinn sér hvítt. Mál þetta sýnir að þörf er á róttækum breytingum hvað varðar reglur um áfengiskaup á kostnaðar- verði. Fjölmörg dæmi, gömul og ný, sýna að póli- tískt siðferði er á afar lágu plani hér á landi. Reglum þarf því að breyta í eitt skipti fyrir öll á þann veg að áfengiskaup á kostnaðarverði heyri sögunni til. í Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins á aðeins að gilda eitt verð fyrir háa sem lága. Það er hvort sem er ekkert annað en bókhaldsatriði hvort ríkið borgar sjálfu sér fleiri eða færri krónur fyrir áfengisflösk- una. Það sem myndi ávinnast við þessa breytingu er að meint misnotkun heimilda til áfengiskaupa á vildarkjörum yrði úr sögunni. Síðast en ekki síst fengi almenningur í landinu gleggri mynd af því hvað veislur á vegum ríkisins kosta — mælt á því verðlagi sem almennt gildir í samfélaginu. BB. Bókaverslun Þórarins Stefánssonar á Húsavík 80 ára, elsta bókaverslun á landsbyggðinni og sú næstelsta á landinu. A myndinni eru Stefán Örn Ingvarsson, verslunarstjóri og Ingvar Þórarinsson, fyrrverandi verslunarstjóri.Mynd im Elsta bókabúð á landsbyggðinni 80 ára Bókaverslun Þórarins Stefánssonar á Húsavík varð 80 ára 17. sept. sl. og er hún elsta bókaverslun á lands- byggðinni, og sú næstelsta á landinu öllu. Aðeins Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar í Reykjavík er eldri. Það var 17. sept. 1909 sem Þórarinn hóf verslun með bækur í Kirkjubæ á Húsavík, húsi sem stóð þar sem nú eru bílastæði við verslunarhús KÞ. Síðar var bókaverslunin flutt í Templarahúsið að Garðarsbraut 9, en þar var áður danshús Húsvíkinga. Þetta hús stendur enn, en síðustu 22 árin hefur verslunin verið í nýbygg- ingu sem Ingvar Þórarinsson reisti við hlið gamla hússins, á horni Garðarsbrautar og Stóragarðs. Þriðji ætt- liðurinn, Stefán Örn Ingvarsson er nú tekinn við verslunarstjórninni fyrir nokkrum árum, en faðir hans starfar enn við verslunina og er með honum á myndinni. Héraðsfundur EyjaQarðarprófastsdæmis haldinn í Hrísey: Hjónavígslum flölgaði á milli ára úr 82 í 119 - skírnum Qölgaði einnig en fermingarbörn voru færri en árið áður Héraðsfundur Eyjafjarðarpróf- astsdæmis var haldinn í Hrísey laugardaginn 2. september sl. Fundurinn hófst kl. 10 árdegis með helgistund prófasts sr. Birgis Snæbjörnssonar. Lagði hann útaf orðum 8. kafla Rómverjabréfs- ins: Ef Guð er með oss hver er þá á móti oss? í skýrslu prófastsins kenndi margra grasa, og ýmsir merkir atburðir höfðu gerst á starfsár- inu. Bar þar hæst biskupaskipti nú í júnílok og hreyfing á prest- um innan prófastsdæmisins. Sr. Pálmi Matthíasson var kallaður til þjónustu í Bústaðasókn í Reykjavík og sr. Pétur Þórarins- son Möðruvöllum var kosinn til þjónustu í Glerárprestakalli í hans stað. Þá var sr. Torfi Stef- ánsson Hjaltalín kosinn til Möðruvalla og hóf hann störf sín í prestakallinu með því að sækja Héraðsfundinn í Hrísey. Ljóst er á skýrslu prófasts að mikið starf fer fram innan kirkj- unnar í prófastsdæminu og marg- ir eru þar sem leggja hönd á plóginn. Alls búa rúmlega 21 þúsund manns á svæði prófastsdæmisins og voru sungnar alls 724 messur í kirkjum þess árið 1988. Skírð börn voru 409, sem eru 19 fleiri en árið áður. Fermingar- börnin voru þó töluvert færri en árið 1987 eða alls 384. En gleðileg breyting var í hjónavígslum milli ára eða fjölg- un úr 82 í 119. Útfarafjöldi var nær óbreyttur milli ára, - alls voru 159 greftran- ir í prófastsdæminu árið 1988. En tölur um athafnir segja ekki nema lítið um það starf sem fer fram innan safnaðanna. Þakkaði prófastur öllum hin- um mörgu sem vinna þar fórnfúst starf og hvatti til frekari aukning- ar og eflingar kirkjulegu starfi. Sr. Vigfús Þór Árnason prestur á Siglufirði var nýlega kominn heim eftir árs námsdvöl í Banda- Hjónavígslum í Eyjafjarðarprófastsdæmi fjölgaði um hvorki meira né minna en 37 á milli áranna 1987 og 1988, úr 82 í 119. Það er aukning um 45%. Með- fylgjandi mynd var tekin í júní í fyrra en þá fór fram fjórföld systragifting í Minjasafnskirkjunni á Akureyri. Mynd: tlv ríkjunum og sagði hann fund- armönnum frá námi sínu og kirkjulegu starfi þar vestra. Nefnd sem kosin var á síðasta Héraðsfundi til að vinna að hug- myndum fyrir kristnitökuafmælið árið 2000 lagði fram nokkrar til- lögur sem voru ræddar og endur- mótaðar að ýmsu leyti. Er ljóst að höfuðáherslan verð- ur lögð á eflingu trúarlegrar mótunar, bæði meðal barna sem fullorðinna. Verður höfðað til hverrar sóknar fyrir sig og reynt að efla starfið innan safnaðanna sjálfra, en stefnt skal síðan að sameiginlegri afmælishátíð. Júlíus Júlíusson safnaðarfull- trúi Siglfirðinga gerði grein fyrir leikmannastefnu kirkjunnar en þangað fór hann ásamt Jóni Oddgeiri Guðmundssyni Akur- eyri sem fulltrúar prófastsdæmis- ins. Mátti vel merkja á orðum hans að leikmannastarfið innan kirkj- unnar fer vaxandi og stöðugt eru það fleiri og fleiri leikmenn sem virkjast til kirkjulegs starfs. Sr. Hannes Orn Blandon flutti erindi um altarisgönguna og nýja siði við bergingu. Er víða farið að útdeila brauði og víni saman, þannig að brauð- inu er dýft í víni og það síðan veitt þannig. Allmiklar umræður urðu um málið og sýndist sitt hverjum, en flestum fannst hin nýja tilhögun vel þess virði að henni væri gaumur gefinn. Eftir kosningar í ráð og nefndir var gengið til kirkju og tekið þátt í guðsþjónustu. Sr. Svavar A. Jónsson prédikaði, Jóhann Bald- vinsson lék á orgelið og 5 prestar þjónuðu fyrir altari. Allan fundardaginn voru fund- armenn í stöðugum veisluhöldum í boði sóknarnefndar Hríseyjar- sóknar. Prófastur þakkaði þessar höfðinglegu móttökur og færði sr. Huldu Hrönn Helgadóttur sóknarpresti Hríseyinga sérstak- ar þakkir fundarins fyrir vel undirbúinn fund.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.