Dagur - 29.09.1989, Blaðsíða 11

Dagur - 29.09.1989, Blaðsíða 11
Föstudagur 29. september 1989 - DAGUR - 11 -i íþróttir Þórður Guðjónsson átti ágætan leik með Islendingum í gær. Drengjalandsliðið 14-16 ára: „Við áttum að nýta færin“ - sagði Þórður Guðjónsson eftir 2:0 tap íslendinga íslendingar töpuðu fyrir Svíum 2:0 í Evrópukeppni drengja- landsliða í knattspyrnu á KR- vellinum í gær. Svíar skoruðu mark í fyrri hálfleik, íslending- ar pressuðu síðan stíft í síðari hálfleik en gleymdu sér á loka- mínútunni og þá skoruðu Svíar sitt annað mark. „Við áttum að nýta færin og þetta tap gerir það að verkum að róðurinn verður mjög erfiður í síðari leiknum. Við erum hins vegar ekkert búnir að gefa upp vonina að komast í úrslitakeppn- ina og munum leggja allt í leikinn í Svíþjóð," sagði Þórður Guð- jónsson KA-maður eftir leikinn. Aðstæður til knattspyrnuiðkun- ar voru mjög slæmar í gær; Karfa: Þór-KR á sunnudagiim - í Höllinni kl. 20.00 Körfuknattleiksáhugafólk get- ur farið að setja sig í stellingar því Úrvalsdeildin í körfuknatt- leik hefst nú um helgina. Þórs- arar leika gegn KR-ingum í Höllinni á sunnudagskvöld kl. 20. Tindastóll situr yfir í fyrstu umferð en spilar á þriðjudag- inn gegn Þór á Sauðárkróki. „Við vitum að þetta verður erf- iður leikur en við gefum ekki tommu eftir og stefnum að sigri í leiknum," sagði Kjartan Braga- son formaður körfuknattleiks- deildar Þórs. Þórsarar tefla nú fram tveimur nýjum sterkum leikmönnum frá því á síðasta keppnistímabili. Þetta eru Bandaríkjamaðurinn Dan Kennard sem þjálfar einnig Þórsliðið. Síðan er það Jón Örn Guðmundsson sem kom frá ÍR og var einn sterkasti maður Reykjavíkurliðsins í fyrra. Kristján Rafnsson er sá eini af hópnum sem ekki er með síðan í fyrra. Hann er fluttur til Egils- staða þar sem hann þjálfar hjá UÍA. KR-ingar eru með mjög sterkt lið á þessu keppnistímabili og unnu m.a. Reykjavíkurmeistara- titilinn með glæsibrag fyrir nokkrum dögum. í KR-liðinu Dan Kennard leikur sinn fyrsta leik með Þór gegn KR. leikur sovéskur leikmaður sem þykir einn sterkasti erlendi leik- maðurinn í Úrvalsdeildinni að þessu sinni. En það eru ekki einungis er- lendi leikmaðurinn sem er sterk- ur í KR-liðinu. Flestir leikmenn liðsins, m.a. Guðni Guðnason, hafa leikið með bandarískum háskólaliðum og liðsheildin er því mjög öflug hjá KR. Það er því vert að hvetja allt íþróttaáhugafólk að fjölmenna í Höllina til þess að sjá leik Þórs og KR í Úrvalsdeildinni í körfu- knattleik á sunnudagskvöldið og fylgjast með viðureign erlendu Golf: Bændaglíman - að Jaðri á laugardag - verðlaunaafliending fyrir unglinga Hin árlega Bændaglíma verður hjá GA á morgun laugardag. Bændahöfðingjar verða Ás- mundur Bjarnason frá Húsa- íþróttir helgarinnar: Karfa: Sunnudagur: Þór og KR í Úrvalsdeildinni í Höilinni kl. 20.00 Golf: Laugardagur: Bændaglíman að Jaðri kl. 10.00 vík og Steinar Skarphéðinsson frá Sauðárkróki. Keppendur verða hins vegar víðs vegar að allt frá Eskifirði til Blönduóss. Keppni hefst kl. 10.00 og má búast við miklu fjöri að Jaðri all- an morgundaginn. En það er líka meira að gerast að Jaðri á morgun. Eftir að Bændaglímunni lýkur þá verða veitt verðlaun fyrir punktamót unglinga sem hefur verið í gangi í allt í sumar. Allir unglingar, sem tekið hafa þátt í þessum mótum, eru hvattir til þess að mæta. leikmannanna, Bandaríkja- mannsins hjá Þór og Sovét- mannsins hjá KR. völlurinn var rennblautur og hávaðarok var í Reykjavík. íslendingar léku á móti vindi í fyrri hálfleik og virkuðu hálf- taugastrekktir í byrjun. Guðmundur Benediktsson fékk þokkalegt færi um miðjan hálfleikinn en markvörður Svía varði vel. Nokkru síðar hitti Þórður Guðjónsson boltann illa í upplögðu færi í teignum og þar fór besta færi íslendinga í súginn. Rétt á eftir skoruðu Svíar mark úr vítaspyrnu en Eggert Sigmundsson markvörður úr KA var ekki langt frá því að verja. í síðari hálfleik voru íslending- ar mun sprækari. Besta færið fékk Guðmundur Benediktsson eftir misheppnað útspark mark- varðar Svía. Hann renndi knett- inum í mannalaust markið en varnarmaður kom og bjargaði á síðustu stundu. íslendingar gleymdu sér síðan í sókninni og Svíar skoruðu annað mark á lokamínútum leiksins. Bestu menn íslands voru þeir Kristinn Lárusson úr Stjörnunni og Þórður Guðjónsson. Einnig átti Guðmundur Benediktsson ágæta spretti í leiknum. KA-hátíð - fyrir þá yngstu á sunnudaginn Knattspyrnudeild KA efnir til lokahófs fyrir yngstu þátttak- endurna í félaginu í Sjallanum á sunnudaginn kl. 14.00. Þetta hóf er ætlað KA-drengjum upp að 12 ára aldri og KA-stúlk- um að 14 ára aldri. Þarna verða veitt verðlaun fyr- ir góðan árangur í sumar og einn- ig verða veitingar á boðstólnum. Sýndar verða vídeómyndir af leikjum KA í sumar og margt annað verður þar sér til gamans gert. Fyrir eldri KA-krakkana verð- ur hóf í Sjallanum fimmtudaginn 5. október. Þá verða verðlauna- afhendingar og diskótek að því loknum. KA-hófið á fimmtudag- inn hefst kl. 21.00. 1X21X21X21X21X21X21X21X21X2 Gylfi vinnur og vinnur Gylfi Baldvinsson útgerðarmaður er einn sterkasti tippari sem þátt hefur tekið í getraunaleiknum á Degi. Hann lagði son sinn Jóhann B. Gylfason að velli í síðustu viku og var Jóhann þriðji keppandinn sem Gylfi hefur sigrað. Gylfi segir að nokkur heift sé hlaupin í fjölskylduna og vilji nú allir óðir og uppvægir berja á honum í þessum leik. Hann segist því vilja halda þessu enn innan fjölskyldunnar og nú skori hann á tengdason sinn, Stefán Hauk Jónsson, sem er Seyðfirðingur að ætt og uppruna, að mæta sér. Austfirðingar eru alþekktir keppnismenn og Stefán þar engin undantekning og hann tók því þessari áskorun. Það sem mesta athygli hefur vakið í ensku knattspyrnunni er slælegur árangur Tottenham-liðsins. Liðið er nú í næst-neðsta sæti deildarinnar en leikur í dag á heimavelli gegn Q.P.R. E.t.v. er Guðni Bergsson í liðinu í þessum leik enda veitir víst ekki af því að styrkja vörnina. Gylfi: Aston Villa-Derby 2 Chelsea-Arsenal x C. Palace-Everton x Man. City-Luton 1 Millwall-Norwich 1 Nott. For.-Charlton x Sheff. Wed.-Coventry 2 Southampton-Wimbledon 1 Tottenham-Q.P.R. 1 Port Vale-Leeds 2 Sunderland-Sheff. Utd. 1 Watford-Middlesbro 2 Stefán: Aston Villa-Derby x Chelsea-Arsenal 1 C. Palace-Everton 2 Man. City-Luton 1 Millwall-Norwich x Nott. For.-Charlton x Sheff. Wed.-Coventry 2 Southampton-Wimbledon 1 Tottenham-Q.P.R. 1 Port Vale-Leeds 2 Sunderland-Sheff. Utd. x Watford-Middlesbro 1 1X21X21X21X21X21X21X21X21X2 WHnnnŒm Möldursf. BflASAlA við Hvannavelli. Símar 24119 og 24170. Audi 80 Quatro 4x4, 5 gíra, v.rauður, árg. '87, ek. 42 þús., verð 1.290.000,- Dodge Aries station, sjálfskiptur, blár, árg. '87, ek. 26 þús., verð 850.000,- Daihatsu Charade Turbo, 5 gíra, hvítur, árg. '87, ek. 31 þús., verð 530.000,- MMC Lancer GLX, 5 gíra, brúnn, árg. '87, ek. 35 þús., verð 630.000,- Subaru station 1800 GL, 5 gíra, d.blár, árg. '86, ek. 54 þús., verð 740.000,- Suzuki Fox 410 stuttur, Volvo B-20 vél+kassi, blár, árg. '83, ek. 66 þús., verð 395.000,- Volvo 740 GL, 5 gíra, d.grænn, árg. '86, verð 1.150.000,- ★ Greiðslukjör við allra hæfi Möldursf. við Hvannavelli. Símar 24119 og 24170.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.