Dagur - 06.10.1989, Page 1
72. árgangur
Akureyri, föstudagur 6. október 1989
191. töiublað
Venjuiegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMKNR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Umsjónarnefnd fólksbifreiða á
Akureyri hcfur nú lokið við að
úthluta fjórum lausum plássum
á Bifreiðastöð Oddeyrar. Eftir
að hafa grandskoðað gögn um
Svanfríður Jónasdóttir:
Fer ekki aftur
í annað sætíð
Svanfríður Inga Jónasdóttir,
aðstoðarmaður fjármálaráð-
herra og varaþingmaður
Alþýðubandalagsins í Norður-
landskjördæmi eystra, gefur út
þá yfirlýsingu í helgarviðtali
Dags sem birtist á morgun að
hún muni ekki skipa annað
sæti í kjördæminu í næstu
þingkosningum, en eins og
kunnugt er skipaði Steingrím-
ur J. Sigfússon, samgöngu- og
landbúnaðarráðherra, efsta
sætið á lista flokksins í kosn-
ingunum 1983 og 1987.
Svanfríður vill ekki kveða upp
úr með hvort hún hyggist sækjast
eftir fyrsta sæti á lista flokksins í
næstu alþingiskosningum en segir
að hún sé síður en svo hætt
afskiptum af pólitík.
Svanfríður segist halda þeim
möguleika opnum að sækjast eft-
ir endurkjöri í embætti varafor-
manns á landsfundi flokksins. Af
orðum hennar má þó ráða að hún
hafi hug á því að halda áfram því
starfi. „Mér finnst það uppgjöf
að draga sig í hlé kannski einmitt
þegar maður er að ná valdi á
hlutunum." óþh
Saurbæjarhreppur:
Maður fluttur
á slysadeild
Maður á bænum Argerði í
Saurbæjarhreppi datt og hlaut
höfuðmeiðsli á fimmta tíman-
um í gær. Maðurinn var fluttur
á slysadeild FSA en talið var
að meiðsli hans væru minni-
háttar.
í fyrrakvöld varð 10 ára dreng-
ur fyrir bíl við Skarðshlíð á
Akureyri. Hann var fluttur á
slysadeild en meiðsli hans reynd-
ust óveruleg. Tildrög slyssins
voru þau að gámabíll ók niður
Skarðshlíð og nam staðar til móts
við blokk nr. 22-28. Drengurinn
fór út úr bílnum og labbaði aftur
með honum og ætlaði í austur
yfir götuna. Engum togum skipti
að hann varð fyrir bíl sem ekið
var upp Skarðshlíð.
Ef frá er talið slysið fram í
Firði var rólegt hjá Akureyrar-
lögreglunni í gær. Eitt minnihátt-
ar umferðaróhapp varð í bænum.
óþh
Harður slagur um gesti veitingastaða:
„Menn eru að plokka augun hver úr öðrum“
- segir Stefán Gunnlaugsson veitingamaður
- „tek ekki þátt í þessari sláturtíð,“ segir Práinn Lárusson
Matsölu- og veitingastaðir á
Akureyri virðast berjast um
viðskiptavinina þessa dagana
ef marka má auglýsingar, en
fyrir komandi helgi auglýsa sex
af tíu matsölustöðum einhvers
konar tilboð á réttum til gesta.
Tilboð staðanna eru mismun-
andi en stefna þó að sama marki,
r.e. að ná til sín gestum. Aug-
lýstir eru sérstakir helgarmatseðl-
ar sem samsettir eru af tveimur
eða þremur réttum, fjölskyldu-
pakkar, hádegisverðarhlaðborð
og ókeypis heimsendingarþjón-
usta.
Dagur spurði Stefán Gunn-
laugsson veitingamann á Baut-
inn/Smiðjan, en hans fyrirtæki er
ekki eitt þeirra sem auglýst hafa,
hvort baráttan um viðskiptavin-
ina sé í raun svona hörð og játaði
hann því. „Menn eru að plokka
augun hver úr öðrum og nú hafa
bæst við a.m.k. þrír nýir staðir
sem berjast um þessa tiltölulega
fáu viðskiptavini. Aðilar sem í
dag geta boðið máltíð á 500 krón-
ur og skilað 100 krónum af því í
söluskatt sitja ekki uppi með
mikinn afgang þegar annar
kostnaður hefur verið greiddur.
Unnið að prhagslegri endurskipulagningu Árlax hf.:
Skuldar yfir 200 mffljónir
Forsvarsmenn fiskeldisstöðv-
arinnar Árlax hf. í Keldu-
hverfi eru þessa dagana aö
vinna tillögur um fjárhags-
lega endurskipulagningu
fyrirtækisins sem lagöar
verða fyrir hluthafa og stjórn
Byggðastofnunar en hún
hafnaði á dögunum beiðni
fyrirtækisins um 10 milljón
króna hlutafé í stöðina. Til-
lögur Árlaxmanna miða að
því að afskrifa skuldir til að
gera fyrirtækið rekstrarhæft.
Garðar Eggertsson, fram-
kvæmdastjóri, segir að greiðslu-
staða stöðvarinnar sé mjög erfið
og tjón sem hún varð fyrir ekki
alls fyrir löngu hafi ekki bætt
stöðuna. Fyrir liggur aö fisktjón-
ið varð um 10 milljónir króna
en ekki er vitað um fjárhagsleg-
an skaða vegna tjóns á mann-
virkjum.
Skuldabyrði Árlax hf. er mik-
il og nema langtímalán 128
milljónum króna, skammtíma-
lán eru 50 milljónir og afurða-
Ián 38 milljónir.
Áætlanir miðuðust viö 150
milljón króna framleiðsluverð-
mæti á næsta ári en nú er Ijóst
að tekjurnar veröa nokkru
minni vegna áfalla.
Fiskurinn sem drapst þegar
eldisker brustu í matfiskstöð
fyrirtækisins á Kópaskeri var
kominn í sláturstærð og var
meiningin að lóga honum á
haustdögum. Stöðin varð þar af
verulegum tekjum en að sögn
Garðars verður fyrsta laxinum
slátrað í lok þessa mánaðar.
Þessi fiskur er í kvíum í Vopna-
firði. Regluleg slátrun hjá
Árlaxi hl'. hefst síðan næsta vor.
óþh
Það segir sig sjáll't þegar stans-
laus fjölgun veitingas aða á sér
stað á sama tíma og kaúpmáttur
rýrnar og fólksfjöldi stendur í
stað að baráttan er erfið."
Þráinn Lárusson veitingamað-
ur á Uppanum sagðist ekki ætla
að taka þátt í þessari „sláturtíð,"
eins og hann oröaði það. „Við
ætlum að snúa okkur meira að
skemmtanahaldi og láta hina um
að berjast. Ég hef alltaf haft að
markmiði að gera eitthvað annað
en hinir og er ekkert hættur því.“
Þráinn sagði að undanfarið hafi
luinn einvörðungu haft eldhúsið
opið um helgar en seldi pizzur
öllu jöfnu. „Eg býst við að fljót-
lega fari ég að hafa lokað í
hádeginu hjá ntér og leyfi hinum
stöðunum að bítast þá um við-
skiptavinina. Baráttan hefur
aldrei verið harðari en nú og ég
spái því að hún eigi eftir að
versna þegar frá líður. Veitinga-
menn þurfa að taka sig sarnan og
reyna að ná fólki út af heimilum
og inn á staðina í stað þess að
vera að berjast unt þessa fáu sem
eru á markaðnum.“ Aðspurður
um hvernig farið yrði að því sagði
Þráinn að það ætti eftir að koma
í ljós en á döfinni væri fundur
með þessum aðilum þar sem mál-
in yrðu rædd. VG
22 umsækjendur komst nefnd-
in að þeirri niðurstöðu að þeir
Jón Óli Ólafsson, Albert
Valdemarsson, Gylfi Jónasson
og Jónsteinn Áðalsteinsson
færu inn á stöðina.
Heimir Ingimarsson er for-
maður úthlutunarnefndarinnar,
skipaður af ráðherra, cn hinir
nefndarmennirnir, Guðfinna
Thorlacius og Ellert Kárason,
voru skipaðir af Bæjarstjórn
Akureyrar og Bílstjórafélagi
Akureyrar.
Heimir sagðist leggja ríka
áherslu á að nefndin hefði unnið
af fyllstu samviskusemi og heið-
arleika við úthlutun þessa og yfir-
ferð gagna, m.a. segir í bréfi frá
henni til samgönguráðuneytisins:
„Nefndin telur að við úthlutun
þessara atvinnuleyfa hafi verið
gætt ákvæða laganna og reglu-
gerðar af fyllstu réttsýni.“
í stuttu máli hafði Jón Óli
forgang þar sem hann var laun-
þegi í leigubifreiðaakstri, Albert
vegna örorku og sérbúinnar bif-
reiðar fyrir hreyfihamlaða, en
hinir tveir samkvæmt ákvæði um
að nefndin velji þá af réttsýni
sem hún telji hæfasta og hafi öðl-
ast a.m.k. fjögurra ára starfs-
reynslu við akstur á fólki. EHB
Jón Jónsson og Friðrika Kristjánsdóttir í Fremstafelli við hið 60 ára gamla tré sem féll í rokinu á laugardags-
kvöld. Mynd: IM
Fremstafell í Kinn:
60 ára tré fauk upp með rótum
Það varð ýmislegt undan að láta
í byljunum sl. laugardagskvöld,
þar á meðal var um 60 ára
gamalt reyniviðartré sem stóð í
garðinum sunnan við Fremsta-
fell í Kinn. Þar búa Jón Jónsson
og Friðrika Kristjánsdóttir, en
það mun hafa verið Páll H.
Jónsson, tvíburabróðir Jóns,
sem gróðursetti tréð á sínum
tíma um svipað leyti og bærinn
var byggður. Suðvestanátt var á
laugardagskvöld og mikla bylji
gerði. Tréð klofnaði niður við
rót og rifnaði að hluta til upp
með rótum. Annað mun yngra
reyniviðartré í garðinum brotn-
aði einnig. Þeim hjónum finnst
leiðinlegt að sjá á bak þessum
gamla félaga, en þau hafa búið í
bænum við hrísluna um hálfrar
aldar skeið. Þó höfðu þau orð á
að bæta nýjum reyniviði í garð-
inn sinn að vori og glöddust yfir
leik þrastanna í föllnu trjákrón-
unni.
Bifreiðastöð Oddeyrar:
Fjórir fengu leyfi en
22 umsóknir bárust
- gætt ákvæða laga við úthlutun