Dagur - 06.10.1989, Blaðsíða 7

Dagur - 06.10.1989, Blaðsíða 7
Föstudagur 6. október 1989 - DAGUR - 7 kjarna þarf að tryggja undirstöð- ur atvinnulífsins á staðnum. í því sambandi má lengi um það deila hversu mikil vítamínsprauta stór- iðja er. Vel hefur verið staðið að uppbyggingu ýmissa smáiðnað- arfyrirtækja á Akureyri og ég tel æskilegast að byggja áfram upp fjölþættan iðnað. Ég held að mannlífið verði þannig betra. Hins vegar höfum við ekki efni á því að hafna álbræðslu eða ein- hverri annari stóriðju við Eyja- fjörð af hugsjónaástæðum ein- um, en til slíks fyrirtækis verður að gera afar strangar kröfur, t.d. hvað varðar hreinlæti. Ég er ekki ósammála iðnaðar- ráðherra um mikilvægi stóriðju en ég vara við að leita lausnar í því einu. Menn mega ekki gleyma þeim atvinnugreinum sem fyrir eru, landbúnaði, sjávar- útvegi og tækniiðnaði, svo eitt- hvað sé nefnt. Blönduvirkjun verður vonandi einhvern tíma nýtt til fullnustu en ég er sammála því að þær spár sem lágu að baki byggingu hennar, auk óskhyggju sumra um stóriðju, hafa meira og minna reynst rangar. Blönduvirkjun verður ekki fullnýtt fyrr en um aldamót án orkufreks iðnaðar og það er óskaplega dýrt að byggja svona fyrirtæki og nýta það ekki nema að hluta. En hitt er það að ef álbræðsla verður byggð hér syðra kemur Blönduvirkjun til með að nýtast fyrr. En án orku- freks iðnaðar verður að segjast eins og er að Blönduvirkjun er mistök." Fimm milljaröa skuldbreyting Atvinnutryggingasjóður útflutn- ingsgreina og síðar Hlutafjár- sjóður voru settir á stofn til þess að „bjarga útflutningsatvinnu- vegunum frá stöðvun", eins og það var kallað. Ríkisstjórnin sagði fyrir tæpu ári að sjóðirnir þyrftu að ljúka ákveðnu verkefni til að koma í veg fyrir hrun atvinnuveganna og síðan yrðu þeir aflagðir. Steingrímur segir að sjóðirnir hafi ekki að fullu lok- ið ætlunarverki sínu en skuld- breyting þeirra nemi nú um 5 milljörðum króna sem sé mesta skuldbreyting hér á landi til þessa. „Þessir sjóðir verða ekki lagðir niður því þeir eiga orðið svo miklar eignir. Talað var um að verja tiltekinni upphæð í þessu skyni og við töldum að með því mætti ljúka ákveðnu verkefni, annars vegar skuldbreytingu og hins vegar eiginfjárstyrkingu fyrirtækja. Þetta fjármagn er nú búið og Atvinnutryggingasjóður telur að hann hafi nokkurn veg- inn lokið sínu verkefni, þurfi 5- 600 milljónir í viðbót. Af fimm milljarða skuldbreytingu eru 800 milljónir í hagræðingarlán. Hlutafjársjóður er búinn að sam- þykkja frá sér um 600 milljónir í hlutafjáraukningu. Með þessu hefur tekist að bæta rekstrarstöðu útflutningsatvinnu- veganna verulega. Ég tel að sam- stillt átak með stofnun þessara sjóða, lækkun á raungengi krón- unnar og tímabundinni aðstoð í gegnum Verðjöfnunarsjóð hafi tekist ótrúlega vel, sérstaklega þegar haft er í huga að fiskvinnsl- Myndir: KL an sagði á haustmánuðum í fyrra að frystihúsin myndu ekki fara í gang eftir áramótin. Verslunar- ráðið sagði að 5000 manns yrðu án atvinnu. Ekkert af þessu hefur ræst.“ Þróunin að snúast við „Það er hins vegar rétt að fram að þessu hefur verið að ganga á eigið fé fyrirtækja en ég held að þetta sé að snúast við, a.m.k. bendir meðaltal sem Þjóðhags- stofnun gefur upp til afkomu í kringum núllið. Ég er ekki að segja að það sé nóg. Menn eru loks að átta sig á því að fjármagn- ið hefur hér leikið lausum hala. Það eru að mínu mati mjög athyglisverðar upplýsingar sem mér tókst að ná á dögunum um að arður af innlendum útlánum umfram verðbólgu á síðasta ári hafi verið 23 milljarðar króna. Tuttuguogþrír milljarðar króna renna frá þjóð sem býr við minnkandi þjóðartekjur inn í allskonar sjóði, banka, lífeyris- sjóði o.s.frv. Sumt af þessu er byggt á erlendum lánum og renn- ur úr landi. Við höfum ekki efni á þessu. Menn geta spurt sig hvað hefði skeð ef helmingur af þessu fjármagni hefði fengið að vera eftir í atvinnulífinu. Mitt svar er að hér væri allt annað ástand en nú. Fiskveiðasjóður hefur verið mjög tregur til að taka þátt í skuldbreytingu sjávarútvegsfyrir- tækja. Það er stórhættulegt ef sjóður eins og Fiskveiðasjóður fer ekki eftir markmiðum ríkis- stjórnar á hverjum tíma. Ef hann hefði t.d. verið fús að taka þátt í að finna lausn á málefnum Patreksfirðinga væri þar ekki ástatt eins og nú og þá sæti Fisk- veiðasjóður ekki uppi með frysti- hús sem er honum einskis virði. Hagsmunaaðilar ráða ferðinni í Fiskveiðasjóði og það er afar undarlegt að formaður LÍÚ og formaður Farmanna og fiski- mannasambandsins skuli ekki fáanlegir til þess að skoða þessa hluti frá öðru en peningalegu sjónarhorni. Vitanlega er æski- legt að sjóðsstjórnir hafi sjálf- stæða skoðun og ráðherra á ekki að ákveða einstakar lánveitingar, en að lokum verður stefnumörk- un ríkisstjórnar og Alþingis að ráða. Það kemur vissulega til greina að stokka þetta kerfi upp en til þess þarf Iagabreytingu.“ Hef áhyggjur af kvótakaupum Núverandi kvótakerfi í sjávar- útvegi hefur sætt mikilli gagnrýni á undanförnum árum. Einkum hafa hagsmunaaðilar í sjávar- útvegi á Vestfjörðum gagnrýnt kvótann og gefið honum langt nef og sagt að hann bjóði upp á misnotkun sem leiði til eyðingar byggðar á stórum landssvæðum. í þessu sambandi er einkum vísað til þess að fjársterkum aðilum sé það opið að kaupa upp kvóta og „ræna“ litlum sjávarplássum lífs- björginni. „Ég hef af því miklar áhyggjur að kvótinn safnist á hendur fjársterkra aðila,“ segir forsætisráðherra um þetta atriði. „Ég bendi til dæmis á að úr mínu kjördæmi, Reykjaneskjördæmi, hefur að undanförnu farið mikill kvóti. Sem dæmi hefur Grinda- vík misst 12 báta. Fjársterkir aðilar á ísafirði hafa keypt fjöl- marga báta með kvóta til úreld- ingar og Samherji á Akureyri hefur einnig gert það í ríkum mæli. Kerfi sem bíður upp á þetta er vissulega gallað og nú er verið að fjalla um hvernig eigi að sporna gegn þessu." Kvótakerfið í uppskurð „Kvótakerfið í sjávarútvegi þarf endurskoðunar við og í sjávar- útvegsráðuneytinu fer nú fram mikil vinna í því skyni. En áður en álit ráðuneytisins og fjöl- margra nefnda um kvótakerfið liggur fyrir ætla ég mér ekki að kveða upp úr um það. Komið hefur til tals að fisk- vinnslan fái hlutdeild í aflanum og það finnst mér koma vel til greina. Þá hefur einnig verið rætt um að sveitarfélög hafi forkaups- rétt á skipum. Gallinn við það er sá að sveitarfélögin hafa í mörg- um tilfellum ekki fjárhagslegt bolmagn til að kaupa þau. Gott dæmi um þetta er Patreksfjarðar- togarinn Sigurey. Fjárfestingin í sjávarútvegi var gífurlega mikil á árunum 1985- 1987. Þá fjölgaði vinnslutogurum á sjó um tæplega tuttugu. Það var auðvitað algjört brjálæði og sjáv- arútvegurinn er enn með timbur- menn út af því. Ég vil ekki loka á að sjávarútvegsfyrirtæki endur- nýi og hagræði í vinnslunni, t.d. að koma upp svonefndum flæði- línum. Hins vegar eru byggingar nýrra frystihúsa fásinna.“ Ekki tekist nógu vel í vaxtamálum Það er sama hvaða forsvarsmað- ur atvinnufyrirtækis í landinu á í hlut. Allir eru þeir sammála um að eitt helsta mein atvinnulífs sé alltof hátt vaxtastig, fjármagnið sé of dýrt og brjóti smám saman niður undirstöður fyrirtækjanna. Steingrímur segist geta fallist á það að stjórnarflokkunum hafi ekki tekist að lækka vextina eins og stefnt var að. „Þessari ríkis- stjórn hefur ekki tekist nægilega vel upp í vaxtamálunum. Okkur hefur að vísu tekist að lækka raunvexti að meðaltali úr 10,3% í 8% og breytingin á lánskjaravísi- tölunni var mjög áhrifarík. Engu að síður tel ég, miðað við mikla arðtöku fjármagnsins, að meira þurfi að gera. Ég tel að ríkisvald- ið verði enn að taka þarna til hendinni og frá því þurfi að koma fyrirmæli í stað tilmæla. Það er vissulega hægt að ná vöxtunum niður en þarna eru mörg ljón í veginum. Ég nefni í fyrsta lagi að kostnaður banka- kerfisins er alltof hár, líklega tvö- faldur miðað við önnur vestræn ríki. í öðru lagi getum við ekki borgað svo háa vexti á sparifé. Við getum ekki borgað að meðal- tali yfir 3% á sparifé, 1-2% væri nær lagi. Seðlabankinn hefur alla mögu- leika til þess að hafa hemil á vaxtastiginu með fyrirskipun. En það þýðir að hann verður að liggja yfir hlutunum og ég sakna þess að okurlögin skuli ekki vera í gildi en ég hygg að ég hafi ekki meirihluta fyrir þeim við núver- andi aðstæður. Það eru mismunandi áherslur í ríkisstjórninni um leiðir í þessu en ég vil ekkert um skoðanir einstakra ráðherra segja.“ Þarf róttæka hagræðingu í landbúnaði Samkvæmt nýbirtri könnum á vegum Neytendasamtakanna er fólki hjartfólgnast í dag að verð á brýnustu nauðsynjuvörum, eink- um þó lambakjöti, lækki veru- lega. Steingrímur segir að virðis- aukaskattskerfið geri ráð fyrir tveimur þrepum og að nauðsynja- vörur verði í neðra þrepi. Þannig náist allt að 10% lækkun þessara vara um áramót. „Annað sem ég tel afar brýnt er róttæk hagræðing í landbúnað- inum. Það á tvímælalaust að hafa sauðfjárræktina þar sem hún er hagkvæmust og mest þörf fyrir hana. Ég vill nefna sem dæmi Strandasýslu og Norður-Þingeyj- arsýslu í þessu sambandi. Þar er ofbeit minnst og dilkarnir þungir. Bændasamtökin eru sem betur fer farin að taka undir þessi sjón- armið. Svo er spurningin hvort hægt sé að ráðstafa niðurgreiðslunum betur, t.d. beint til bænda. Þetta er allt í skoðun. Menn eru nú loksins að vakna til vitundar um að sláturhúsum verður að fækka. Þau á að gera að hlutafélögum. Bændur eiga að mínu viti að taka þátt í rekstrin- um og ég vil sjá sameiningu Slát- urfélags Suðurlands og Afurða- deildar Sambandsins í einn kjöt- markað.“ Klórað í bakkann með hagræðingu og samruna Forsætisráðherra segir að mörg járn séu í eldinum hjá ríkisstjórn- inni og tíminn verði að leiða í ljós hvernig til takist. Meðal annars sé nú unnið hörðum höndum að mótun atvinnustefnu til frambúð- ar því þó vandamálin séu ærin í dag megi menn ekki gleyma atvinnuuppbyggingu fyrir næstu áratugi. „Ég held að næsta ár verði erfitt í efnahagslífinu hér og það verður höfuðborginni erf- iðara en landsbyggðinni. Krepp- an sem landsbyggðin hefur þegar gengið í gegnum er nú að lenda á þjónustufyrirtækjunum. Á höfuðborgarsvæðinu er fyrir- sjáanlegir miklir erfiðleikar í versluninni og ég sé þar fyrir stór- aukinn fjölda gjaldþrota. Að sama skapi verður atvinnuástand- ið á höfuðborgarsvæðinu erfiðara en í dreifbýlinu. Menn klóra í bakkann með hagræðingu og samruna fyrirtækja. Ég hygg að eftir erfitt ár 1990 snúist þróunin smám saman við. Ég er ekki smeykur við átök á vinnumarkaði á næsta.ári. Laun- þegahreyfingunni er vel ljóst hvernig ástandið er.“ óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.