Dagur - 06.10.1989, Side 2
2 - DAGUR - Föstudagur 6. október 1989
HöUurst
BÍIASAIA
við Hvannavelli.
Símar 24119 og 24170.
Landcruser stuttur bensín, hvítur,
árg. '88, ek. 25 þús.,
verð 1.600.000,-
Subaru station 1800 GL, afmæl-
isútgáfa 4x4, hvítur, árg. '88,
ek. 50 þús., verð 1.050.000,-
Daihatsu Rocky langur, grár/
hvítur, árg. '87, ek. 43 þús.,
verð kr. 1.270.000,-
Toyota Tercel 4x4, hvít, árg. '87,
ek. 51 þús., verð 750.000,-
M. Benz 200 sjálfskiptur, svartur,
árg. '86, ek. 75 þús.,
verð 1.550.000,-
Subaru station 1800 GL afmælis-
útgáfa, l.blár, árg. '86,
ek. 82 þús., verð 780.000,-
Trans Am 8 cyl., 5 Itr. vél, brúnn,
árg. '84, ek. 48 þús. míl.,
verð 1.000.000,-
★
Greiðslukjör
við allra hæfi
aílASAUNN
Möldurst
við Hvannavelli.
Símar 24119 og 24170.
1
fréttir
Umræður í Bæjarstjórn Akureyrar:
Hvenær er ræða framboðsræða?
Heimir Ingimarsson, bæjar-
fulltrúi, gagnrýndi bæjaryfir-
völd á Akureyri á síðasta
bæjarstjórnarfundi fyrir seina-
gang í málefnum öldrunar-
þjónustu og taldi að bæjarfé-
lagið hefði ekki staðið sig sem
skyldi í framkvæmdum vegna
þjónustumannvirkja íbúða-
bygginga aldraðra við Víði-
lund.
Heimir ræddi um vígsluathöfn-
ina þegar Víðilundur 24 var tek-
inn í notkun, og átaldi hann
Sigurð J. Sigurðsson, forseta
bæjarstjórnar, fyrir að hafa við
það tækifæri gengið fram fyrir
hönd húsbyggjenda eða fram-
kvæmdanefndarinnar og þakkað
sjálfum sér þetta mál.
Freyr Ófeigsson tók til máls á
bæjarstjórnarfundinum og sagði
að þessi málflutningur Heimis
væri ekkert annað en framboðs-
ræða.
Heimir var spurður að því eftir
fundinn hvort hér hefði verið um
framboðsræðu að ræða. Sagði
hann að slíkt hefði ekki verið ætl-
un sín, en ræða Sigurðar J. Sig-
urðssonar við vígsluathöfnina
hefði hins vegar svo sannarlega
verið í anda framboðs.
Heimir sagði ljóst að þjónustu-
kjarninn við Víðilund liti ekki
dagsins ljós fyrr en eftir einhvern
tíma, jafnvel einhver ár, en bær-
inn hefði lofað að ganga frá einni
íbúð í fyrra húsinu sem þjónustu-
rými. Ekki hefði þó verið farið að
vinna neitt í þessum málum fyrr
en nokkuð löngu eftir að fólk var
flutt inn í húsið. „Þetta er merg-
urinn málsins, því á sama tíma og
bæjaryfirvöld draga lappirnar í
því að gera það sem þeim ber og
þau hafa lofað í þjónustu fyrir
aldraða gengur forseti bæjar-
Félag eldri borgara,
Siglufirði:
Mótmælir hugmyndum
um hækkuo aldursmarka
til eftirlauna
Á fundi í Félagi eldri borgara,
Siglufirði, sunnudaginn 1. okt.
síðastliðinn, var samþykkt
eftirfarandi ályktun:
„Félagsfundur í Félagi eldri
borgara, Siglufirði, samþykkir að
mótmæla þeim hugmyndum sem
eru uppi í tryggingaráðuneyti,
að hækkuð verði aldursmörk til
eftirlauna, þ.e. að lífeyrisaldur,
sem nú miðast við 67 ára aldur
hækki í 70 ár.
Fundurinn bendir á, að nokk-
urt atvinnuleysi sé og spáð er að
það aukist. Því sé það röng stefna
að skylda aldrað launafólk til að
lengja starfsævi sína og seinka
því að það geti notið áunninna
réttinda sinna hjá lífeyrissjóðum
og almannatryggingum."
Sigurður J. Sigurðsson.
stjórnar fram fyrir hönd hús-
byggjenda eða framkvæmda-
nefndarinnar og fer að slá um sig
sem aðila sem beri að þakka
þetta mál,“ sagði Heimir eftir
fundinn.
Sigurður J. Sigurðsson var
spurður um þetta tilvik, og sagð-
Heimir Ingimarsson.
ist hann hafa mætt til vígslu Víði-
lundar 24 fyrst og fremst til að
taka þátt í að fagna þessum
áfanga með íbúununr.
„Eg lét það koma skýrt fram í
minni ræðu að það hefði ekki
verið Akureyrarbær sem hefði
staðið að þessari framkvæmd, en
bærinn hefði hins vegar reynt að
styðja við bakið á öldruðum í
þessu máli. Ég ætlaði bænum
ekki meira hlutverk í þessu en
honum bæri, en það var fyrst og
fremst að leggja fram fjármuni í
upphafi til að hönnun hússins
gæti farið fram og greitt götu fyrir
lóðarveitingu. f öðru lagi veitti
bærinn ábyrgðir til að tryggja
framkvæmdir og lagði til bygg-
ingarstjóra. Jafnframt hét bæjar-
félagið því að reistur yrði þjón-
ustukjarni sem hentaði íbúunum.
Hlutur Akureyrarbæjar er
hvorki meiri né minni en þetta.
Öldrunarþjónusta bæjarins hefur
verið endurskipulögð frá grunni
og til hennar varið verulegum
fjármunum og ráðnir nýir
starfsmenn, m.a. til að bæta
þjónustu við aldraða í heimahús-
um, því smám saman er verið að
hverfa frá stofnanaþjónustu,"
sagði Sigurður J. Sigurðsson.
EHB
Miðstjórn ASÍ átelur stjórnvöld harðlega:
Fyrir að standa ekki við gefin
loforð um vemdun kaupmáttar
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt á fundi miðstjórnar
Alþýðusambands íslands í vik-
unni:
„Þeir kjarasamningar verka-
lýðsfélaganna sent kenndir eru
við 1. maí sl. og gerðir undir for-
ystu ASÍ voru frábrugðnir öðrum
heildarkjarasamningum verka-
fólks, því þar var í enn ríkara
mæli samið við stjórnvöld en
beint við atvinnurekendur.
Þessir samningar innihéldu
óverulegar beinar taxtahækkanir
og þannig tekið tillit til samdrátt-
ar þjóðartekna.
Ríkisstjórnin lofaði hins vegar
að tryggja kaupmáttinn, með því
að hindra verðhækkanir á vöru
og þjónustu ásamt aðhaldi í
gengismálum.
Þá var einnig af hálfu ríkis-
stjórnar lofað lækkun fjármagns-
kostnaðar og óbreyttu raunverði
á landbúnaðarvöru. Þrátt fyrir
þessi loforð hefur á gildistíma
þessa kjarasamnings orðið veru-
leg kaupmáttarrýrnun, vegna
mikilla hækkana á verði vöru og
þjónustu allri, ekki síst þeirri sem
stjórnvöld verðleggja sjálf og enn
blómgast vaxtaokrið.
Þá hefur af hálfu stjórnvalda
lítið örlað á efndum loforða til
úrbóta í atvinnumálum.
Nú er svo komið að ráðstöf-
unartekjur almenns launþega
hafa dregist svo saman, að með
engum hætti verði lengur við það
unað.
Miðstjórn ASÍ átelur stjórn-
völd harðlega fyrir að standa ekki
við gefin loforð um verndun
kaupmáttar.
Miðstjórn ASÍ hvetur til órofa
samstöðu innan verkalýðshreyf-
ingarinnar til sóknar til að vinna
upp þá kaupmáttarrýrnun sem
orðið hefur að undanförnu.
Þá er og ljóst að væntanlegir
kjarasamningar verða að skila
meiri launajöfnuði í þjóðfélaginu
og engir samningar verði gerðir
án þess að verðtrygging komi
til.“
F r amsóknarflokkurinn:
Boðar til ráðsteftiu um
heilbrígðismál á morgun
Á morgun, laugardaginn 7.
október, mun Framsóknar-
flokkurinn gangast fyrir ráð-
stefnu um heilbrigðismál að
Hótel Sögu. Megintilgangur
ráðstefnunnar er að fjalla um
og upplýsa stöðu mála í þess-
um mikilvæga málaflokki og
gefa um leið áhugafólki tæki-
færi til að fylgjast með því sem
gert hefur verið og ekki síður
því sem framundan er á sviði
heilbrigðismála.
Stórútsala
á pottaplöntum
Allt að 50% afslaftur ★
Opið laugardag og sunnudag frá kl. 10-18.
*
AKUR
KAUPANGIV/ MYRARVEG 602 AKUREYRI
SÍMAH 24800 & 24830 PÓSTHÓLF 498
Ráðstefnan verður sett kl. 10.00
í fyrramálið af Steingrími Her-
mannssyni, formanni Framsókn-
arflokksins. Að setningu lokinni
mun Guðmundur Bjarnason,
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, flytja framsöguerindi um
stefnuna í heilbrigðis- og trygg-
ingamálum. Því næst, eða um kl.
10.45, mun Páll Sigurðsson,
ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu, fjalla
um uppbyggingu og yfirstjórn
heilbrigðis- og tryggingamála. Þá
flytur Finnur Ingólfsson, aðstoð-
armaður heilbrigðisráðherra,
erindi um hvar megi spara í heil-
brigðis- og tryggingamálum.
Um kl. 12.15 verður gert mat-
arhlé en að því loknu flytur
Guðjón Magnússon, aðstoðar-
landlæknir, erindi um samstarf
heilbrigðisstétta og skipulag heil-
brigðisþjónustu. Ólafur Ólafs-
son, landlæknir, mun síðan flytja
erindi sem hann kallar „Fagleg
forgangsröð í framtíðinni".
Kl. 14.15 er „Siðfræði heil-
brigðisþjónustunnar" á dagskrá.
Framsögumaður er Örn Bjarna-
son, trúnaðarlæknir Ríkisspítala.
Guðmundur G. Þórarinsson,
stjórnarformaður Ríkisspítal-
anna, flytur síðan erindi sem
hann kallar „Þverstæður heil-
brigðisþjónustunnar“.
Að loknu kaffihléi er liðurinn
„Manneldisstefna - Neyslukönn-
un“ á dagskrá. Framsögumaður
er dr. Laufey Steingrímsdóttir,
næringarfræðingur. Þá flytur
Þráinn Hafsteinsson, íþrótta-
fræðingur, erindi sem hann nefn-
ir „Eru íþróttir heilbrigðismál?"
Um kl. 16.40 flytur Alda Hall-
dórsdóttir, barnahjúkrunar-
fræðingur erindi sem nefnist
„Sjúk börn utan og innan sjúkra-
stofnana og fjölskyldur þeirra“.
Síðasti liður heilbrigðisráðstefn-
unnar fjallar um öldrunarmál og
mun Steinunn Sigurðardóttir,
formaður samstarfsnefndar um
málefni aldraðra, þá flytja erindi
sem hún nefnir „Þjónusta og
uppbygging á aðstöðu fyrir
aldraða.“
Að loknu hverju framsögu-
erindi verður ráðstefnugestum
gefinn kostur á að koma með
fyrirspurnir til frummælenda.
Ráðstefnulok eru áætluð um
kl. 17.15. Ráðstefnustjörar verða
þau Unnur Stefánsdóttir og Haf-
steinn Þorvaldsson. Sem sjá má
hefur mjög verið vandað til
dagskrár ráðstefnunnar og er full
ástæða til að hvetja allt áhugafólk
um heilbrigðismál að láta hana
ekki fram hjá sér fara. BB.