Dagur - 06.10.1989, Síða 3
fréttir
Föstudagur 6. október 1989 - DAGUR - 3
„Þörfin fyrir þessa þjónustu er mjög brýn“
- segir Hákon Hákonarson um væntanlegan umboðsmann Húsnæðisstofnunar með aðsetur á Akureyri
í fundargerð Bæjarráðs Akur-
eyrar 26. september er fjallað
um samþykkt húsnæðismála-
stjórnar varðandi undirbúning
að umboðsmannakerfi í dreif-
býli. Framkvæmdastjóri Hús-
næðisstofnunar var spurður
um tildrög þessa máls, og sagði
hann að Hákon Hákonarson,
stjórnarmaður í húsnæðis-
málastjórn, hefði flutt tillögu
um málið á stjórnarfundi.
Bæjarráð skoraði á sínum tíma
á húsnæðismálastjórn að setja á
fót skrifstofu umboðsmanns
stofnunarinnar á Akureyri. Fé-
lagsmálaráðherra óskaði einnig
eftir því í bréfi til stjórnarinnar
að hún ynni að því að setja á
stofn umboðsmannakerfi um
land allt.
Á síðasta fundi Bæjarstjórnar
Akureyrar lýstu bæjarfulltrúar
yfir ánægju sinni með að ákveðið
væri að ráðgjafa- og upplýsinga-
starfsemi á vegum Húsnæðis-
stofnunar yrði komið á fót á
Akureyri.
Hvað nánari útfærslu á starfi
umboðsmanns Húsnæðisstofnunar
snertir er lítið vitað, en Sigurður
E. Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri stofnunarinnar, er væntan-
legur til Akureyrar vegna við-
ræðna við bæjarráð, eins og áður
hefur verið greint frá.
Hákon Hákonarson var spurð-
ur að því hvaða hugmynd hann
gerði sér um útfærslu á þessari
þjónustu í bænum, þar sem hann
átti frumkvæðið að samþykkt
húsnæðismálastjórnar.
Er fólksflóttiim staðreynd?
Sögur um fólksflótta frá ís-
landi hafa gengiö fjöllunum
hærra að undanförnu og sýna
tölur um lögheimilisskráningar
frá Hagstofu íslands ótvírætt
aö fólksflóttinn er staðreynd.
Mánuöina júlí-september á
þessu ári fluttu 1.132 íslenskir
ríkisborgarar frá landinu á
meðan aðeins 715 komu heim.
Á sama tíma í fyrra fluttu 698
íslendingar til útlanda en 844
komu heim.
Flestir fara til Svíþjóðar. Af
þeim sem flutt hafa undanfarna
mánuði fóru 498 til Svíþjóðar,
312 til Danmerkur, 118 til
Noregs, 112 til annara Evrópu-
landa, 72 til Bandaríkjanna og 20
til annarra landa.
Það sem af er þessu ári hafa
2.845 íslendingar flutt frá landinu
sem er um þúsund fleiri en á
sama tímá í fyrra. Á móti komu
500 færri til landsins í ár en á
sama tíma í fyrra og telja margir
þetta uggvænlega þróun.
En það eru ekki bara íslend-
ingar sem flýja landið því erlend-
Heiðrún EA farin á síld:
„Bíðum og
sjáum til“
„Við fengum fyrsta kastið í
fyrra þann sjöunda október og
ég býst ekkert við að síldin geri
vart við sig fyrr í ár eða jafnvel
ekki fyrr en um miðjan mán-
uðinn,“ sagði Hannes Svan-
bergsson, stýrimaður á Heið-
rúnu EÁ-28 frá L.-Árskógs-
sandi.
Þegar Dagur náði tali af Heið-
rúnu í gær var hún stödd út af
Vopnafirði á austurleið. Ferðinni
var heitið, að sögn Hannesar, inn
á Seyðisfjörð og síðan var ætlun-
in að leita að síld í Loðmundar-
firði og inn á Mjóafirði.
Fáir bátar hafa enn sem komið
er haldið á miðin en þó hefur
heyrst af Stafnesi KE-130 og
Guðmundi Kristni SU-404. Þeir
hafa lítið orðið varir við síldina
og bíða átekta. „Þetta kemur
allt. Maður verður bara að bíða
og sjá til,“ sagði Hannes. óþh
DAGIIR
Alíurcyri
S 96-»
Norðlenskt dagblað
um ríkisborgurum sem flytja frá
Iandinu fjölgar líka. í ár hafa um
200 fleiri útlendingar flutt frá
landinu en á sama tíma í fyrra og
um 400 færri flutt til landsins. I
þessu sambandi er vert að taka
tillit til þess að í fyrra komu
óvenju margir útlendingar til
landsins. Þeim fjölgaði milli
áranna 1987 og 1988 úr 728 í
1.533.
Ofangreindar upplýsingar ber
að taka með þeim fyrirvara að
þær eru miðaðar við skráningar-
dag flutnings í þjóðskrá, en ekki
þann dag sem flutningurinn átti
sér stað. Þá eru allar skráningar
taldar en stundum er sami flutn-
ingur skráður oftar en einu sinni
ef fleiri en ein tilkynning bersl.
Þá má telja líklegt að stór hluti
brottfluttra íslendinga á haustin
séu að halda til náms erlendis um
stundarsakir. VG
Hús Bernörou Alba í brennidepli:
Á dagskrá hjá LA
og Þjóðleikhúsinu
- Þá sýndi Sjónvarpið
samnefnda kvikmynd
Laugardaginn 14. október
frumsýnir Leikfélag Akureyrar
Hús Bernörðu Alba eftir
spænska leikskáldið Garcia
Lorca. Það hefur vakið athygli
fólks að sama verk er á
dagskrá í Þjóðleikhúsinu um
jólin og þá sýndi Sjónvarpið
nýverið sjónvarpskvikmynd
eftir þessu sama leikriti. Þarna
er um sérkennilega tilviljun að
ræða.
Sjónvarpið var með heimilda-
þætti um Garcia Lorca á dagskrá
í haust og sýndi einnig spænska
sjónvarpskvikmynd sem gerð var
eftir leikritinu Hús Bernörðu
Alba. Mörgum þótti myndin
þung en þó hrífandi og áhuga-
verð.
Sigurður Hróarsson, leikhús-
stjóri Leikfélags Akureyrar,
sagði í samtali við Dag að hann
hefði ekki horft á umrædda sjón-
varpsmynd og raunar hefði hann
verið mjög óánægður með þá
ákvörðun Sjónvarpsins að sýna
þessa mynd svo skömmu fyrir
frumsýningu hjá Leikfélagi
Akureyrar. Á hinn bóginn benti
hann á að þetta leikverk Lorcas
væri alls ekki sniðið fyrir kvik-
myndun heldur fyrst og fremst
leiksvið.
En hvers vegna er Hús Bern-
örðu Alba bæði á verkefnaskrá
Leikfélags Akureyrar og Þjóð-
leikhússins? Sigurður sagði að
það væri tilviljun, leikfélögin
hefðu ekkert vitað um verkefna-
valið hvort hjá öðru. Hins vegar
hefði Leikfélag Akureyrar verið
fyrra til að ganga frá sýningarrétti
á þessu verki og því hefði Þjóð-
leikhúsið hæglega getað liætt við
áform sín. Þess í stað fengu þeir
nýjan þýðanda og skýrðu leikrit-
ið upp og heitir það Heimili
Vernhörðu Alba í uppfærslu
Þjóðleikhússins.
„Það er samt mikill áhugi fyrir
sýningunni hjá okkur og það er
orðið fullt á frumsýninguna.
Einnig veit ég til þess að áhuginn
er töluverður fyrir sunnan þannig
að ég vonast til að þessi merki-
lega tilviljun setji ekki strik í
reikninginn hjá okkur,“ sagði
Sigurður. SS
Lágmarksverð á sfld til
frystingar og söltunar
- frjáls verðlagning á sfld og
sfldarúrgangi til bræðslu
Á fundi Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins þann 3. okt. s.l.,
varð samkomulag um eftirfar-
andi lágmarksverð á síld til
frystingar og söltunar á síldar-
vertíð haustið 1989.
Síld 33 cm og stærri kr. 10.70
pr. kg, síld 30-33 cm kr. 9.00 pr.
kg og síld 25 cm að 30 cm kr. 5.00
pr. kg.
Greitt verður 10% ála_g á ofan-
greint verð á síld sem kæld er í
kössum eða körum og hæf er til
vinnslu. Verðið er uppsegjanlegt
frá 1. nóv. með viku fyrirvara.
Þá var á fundi Verðlagsráðs
þann 4. okt., samkomulag um að
gefa frjálsa verðlagningu á síld og
síldarúrgangi til bræðslu á síldar-
vertíð haustið 1989.
Hákon Hákonarson sfjórnarmaður í
húsnæðismálastjórn.
„Mfnar hugmyndir eru að
Akureyringar og Norðlendingar
eigi þess kost að snúa sér beinf til
fulltrúa Húsnæðismálastofnunar
í bænum, til að fá upplýsingar,
ráðgjöf og annað það sem lýtur
að húsnæðismálum og er verkefni
stofnunarinnar. Ég held að óhætt
sé að fullyrða að við sem höfum
starfað fyrir verkamannabústaða-
kerfið á Akureyri á undanförnum
árum höfum fundið það manna
best hversu brýn þörfin er fyrir
þessa þjónustu. Það er einlæg
von okkar í húsnæðismálastjórn
að þetta muni einfalda og bæta
þá þjónustu sem stofnunin veitir
Akureyringunt og öðrurn þeim
sem kunna að vilja sækja þjón-
ustu í þessum efnum til Ákureyr-
ar en ekki til Reykjavíkur. Von-
andi er þetta upphafið að víð-
tækri og öflugri þjónustu Hús-
næðisstofnunar ríkisins við fólk
utan Stór-Reykjavíkursvæðis-
ins," sagði Hákon Hákonarson.
EHB
Leiðrétt auglýsing
um lausar stöður heilsugæslulækna
í auglýsingu ráðuneytisins frá 12. september
1989 um lausar stöður heilsugæslulækna var
auglýst laus til umsóknar önnur staða heilsu-
gæslulæknis á Höfn í Hornafirði H2 frá og með 1.
janúar 1990. Hér var um misritun að ræða, því
standa átti frá og með 1. ágúst 1990 og leiðréttist
það hér með.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
2. október 1989.
Nýkomnar Hyundai (Hondæ)
tölvur
á ævintýralegu verði.
Kynning á föstudag
og laugardag frá kl. 10-16.
Sérstakt kynningarverð.
Frá kr. 59.911,-
með Samráðshugbúnaði.
Kaupvangsstræti 4
sími 26100 • Akureyri.