Dagur - 06.10.1989, Page 11
Föstudagur 6. október 1989 - DAGUR - 11
í
fþróftir
Guðmundur
bestur hjá
Leiftri
Guðmundur Garðarsson var
kosinn besti leikmaður Leift-
urs í meistaraflokki karla á
þessu keppnistímabili. Kjörið
var tilkynnt í lokahófi knatt-
spyrnudeildarinnar sem fram
fór nýlega. Þá var Elín
Asbjörnsdóttir kosinn besta
knattspyrnukonan.
Guðmundur ætlaði að hætta
eftir tímabilið í fyrra en fór að
mæta á æfingar aftur þegar sólin
hækkaði á lofti. Hann var ekki
lengi að tryggja sér sæti í liðinu
og var ein styrkasta stoðin í Leift-
ursvörninni sem fékk ekki nema
18 mörk á sig í sumar. Einungis
efsta lið deildarinnar. Stjarnan,
fékk færri mörk á sig, eða 16.
Gústaf Ómarsson, sem varð
efstur í fyrra, lenti í 2. sæti og
Hafsteinn Jakobsson lenti í 3.
sæti. Hjá stúlkunum lenti Elín
Guðmundsdóttir í 2. sæti og
Björg Traustadóttir varð í 3.
sæti.
Garðar Jónsson varð marka-
hæsti maður meistaraflokksins í ár
og skoraði hann 5 mörk í deild-
inni. Hann tök við titlinum af
Steinari Ingimundarsyni sem lék
aftur með sínu gamla félagi, KR.
Þess má líka geta að Arthur
Ubrescu er farinn aftur til Banda-
ríkjanna og ólíklegt að hann
komi aftur til að leika með Leiftri
á næsta ári.
Guðmundur Garðarsson var kosinn
lcikmaður ársins hjá Leiftri.
Friðjón Jónsson og fclagar í KA-liðinu mæta ÍBV um helgina.
Handknattleikur:
KA keppir við
ÍBV á Akureyri
- í tveimur æfmgaleikjum
Islandsmótið í 1. deildinni í
handknattleik hefst nú um
helgina. Reyndar sitja nokkur
félaganna yfir vegna Evrópu-
leikja í handknattleiknum og
þess vegna ætla tvö þeirra, KA
og IBV, að leika tvo æfinga-
leiki á Akureyri nú um helg-
ina. Sá fyrri verður í kvöld,
föstudag, kl. 20.30 og sá síðari
á morgun laugardag kl. 14.00.
Iþróttahöllin verður opin
almenningi og verður selt inn á
leikina.
ÍBV vann sér sæti í 1. deildinni
fyrir tveimur árum og hélt sér
uppi í fyrra eftir mikla baráttu
viö Breiðablik og Fram. Þjálfari
liðsins er gamli Víkingurinn,
Hilmar Sigurgíslason, sem tók
við af Sigurði Gunnarssyni þegar
Sigurður ætlaði til Spánar. En
eins og flestum er kunnugt þá
datt það upp fyrir og ákvað
Sigurður þá að leika áfram með
ÍBV sem venjulegur leikmaður.
Til liðs við Vestmannaeyinga
hefur einnig gengið KR-ingurinn
Guðmundur Albertsson en hann
Getr aimaleikurinn:
Þórsarar efstir
- KA í 2. sæti
íslenskar getraunir eru nú að
komast á fullt skrið og norð-
lensku liðin hafa verið iðin að
selja seðla á haustdögum. Þar
hafa Þórsarar verið í farar-
broddi og eru þeir nú sölu-
hæsta félagið á Norðurlandi.
Þórsarar eru í 6. sæti yfir land-
ið en KA-menn eru í því tíunda.
Þó nokkurt bil er í næsta lið sent
er Dalvík. Athygli vekur að
Austri á Raufarhöfn kemst inn á
listann í fyrsta skipti og einnig
vekur athygli slök sala Siglfirð-
inga en þeir komast ekki á topp
10. En lítum á tíu söluhæstu liðin
í þessum landsfjórðungi í síðustu
viku:
1.
2.
Þór
KA
Knattspyrna:
Ellert hættir
- hjá
Arsþing KSI verður haldið í
Reykajvík í byrjun desember
en nú þegar eru farnar að heyr-
ast raddir um eftirmann Ellerts
íþróttir
helgarinnar
Karfa:
Sunnudagur:
Haukar-Þór í Hafnarfirði kl. 16.00
UMFN-Tindastóll í Njarðvík kl. 16.00
Kraftlyfíngar:
Akureyrarmótið í fþróttahöllinni
14.00
Handknattleikur:
KA-ÍBV æfingaleikir á föstudag
laugardag.
3. deild...UBK-b-Völsungur í Kópa-
vogi kl. 20.00
3. deild...Ármann-b-Völsungur í Selja-
skóla kl. 15.15
kl.
°g
KSI
B. Schram formanns KSÍ, sem
hefur lýst því yfir að hann ætli
ekki að gefa kost á sér aftur.
Helstu menn sem hafa verið
nefndir sem hugsanlegir eftir-
menn Ellerts eru Eggert Magnús-
son, formaður knattspyrnudeild-
ar Vals, Gylfi Þórðarson formað-
ur landsliðsnefndar og Ingi Björn
Albertsson alþingisinaður og
sonur Alberts Guðmundssonar
fyrrverandi formanns KSÍ.
Ellert hefur verið formaður
KSÍ í 16 ár og situr þar að auki í
stjórn Knattspyrnusambands
Evrópu, UEFA. Á þessum ár-
um hefur hróður íslenskrar
knattspyrnu í Evrópu aukist til
muna og knattspyrnuíþróttin á
mjög vaxandi fylgi að fagna
innanlands. Það er því ljóst að
Ellert B. Schram mun fá góð
meðmæli þegar saga KSÍ verður
rituð, hvenær svo sem það verður
nú.
3. Dalvík I 7.
4. Golfklúbbur Húsavíkur 8.
5. Leiftur 9.
6. Völsungur I 10.
Umf. Möðruvallarsóknar
Austri Raufarhöfn
íf. Eilífur Mývatnssveit
Magni
KA-æfingar
- í blaki og fótbolta
Innanhússæfingar eru nú hafnar
hjá blak- og knattspyrnudeild
KA. I blakinu eru það 1., 2.,
og 3. flokkur karla og 3. flokk-
ur kvenna sem æfa en í knatt-
spyrnunni eru það m.fl., 2. fl.,
3. fl. og 4. fl. karla sem æfa.
í blakinu æfa allir flokkar sam-
an í íþróttahöllinni á mánudög-
um kl. 20.00 og á fimmtudögum
kl. 18.00.
Knattspyrnumenn KA eru að
hefja innanhússtíma en vegna
þrengsla í íþróttahúsum bæjarins
komast ekki allir flokkar að í bili.
Meistara- og 2. flokkur æfa á
miðvikudagskvöldum kl. 22.00 í
Höllinni, 3. flokkur æfir á laugar-
dögum kl. 12.00 einnig í Höllinni
Enskir frjáls-
íþróttaþjálfarar
Fræðslunefnd Frjálsíþrótta-
sambands íslands gengst fyrir
námskeiði dagana 20.-26.
október fyrir frjálsíþróttaþjálf-
ara. Þar verður fjallað um
þjálfun í stökkum, millivega-
lengdum og langhlaupum og
verða kennarar breskir, Gordon
Cain og Dave Sunderland.
Báðir kennararnir eru sérfróð-
ir um þessar greinar og voru
útnefndir af Alþjóða Frjáls-
íþróttasambandinu til þessa
verks. Námskeiðið er styrkt af
Alþjóða Ólympíunefndinni og fá
allir viðurkenningu að námskeið-
inu loknu.
og 4. flokkur karla æfir á föstu-
dögum kl. 17.00 í Skemmunni.
er mjög sterkur og fjölhæfur
leikmaður sem á nokkra lands-
leiki að baki.
Það þarf ekki að fjölyrða um
KA-Iiðið. Það er skipað leik-
reyndum leikmönnum eins og
Friðjóni Jónssyni, Erlingi Krist-
jánssyni, Guðmundi Guðmunds-
syni og Pétri Bjarnasyni. Síðan
eru að koma upp efnilegir strákar
þannig að gaman verður að fylgj-
ast með liðinu í vetur og þessi
leikur við ÍBV er prófraun á
hvernig veturinn verður.
Forráðamenn
1. deildar liða á Stór-
Reykjavíkursvæðinu:
VUja ekki
helgarleiki
„Á síðasta fundi kom greini-
lega fram að liðin á Stór-
Reykjavíkursvæðinu eru mjög
inótfallin því að ieika 1. deild-
arleikina um helgar,“ sagði
Sigurður Arnórsson formaður
knattspyrnudeildar Þórs en
hann á sæti í stjórn félags 1.
deildarfélaga.
í sumar hafa komið upp sterk-
ar raddir um að leika alla leikina
í 1. deildinni á sama tíma, t.d. á
föstudögum eða laugardögum.
Akureyrarfélögin hafa verið
hlynnt þessari hugmynd en á
þessum orðum Sigurðar er greini-
legt að andstaða er gegn þessum
hugmyndum fyrir sunnan.
Sigurður segir hins vegar að
menn séu tilbúnir að ræða fastan
leikdag og þá hafi komið upp
hugmyndir að leika deildina á
miðvikudags- eða fimmtudags-
kvöldi. Búast má við að þetta mál
verði rætt og tekin ákvörðun á
KSÍ-þinginu í Reykjavík í des-
ember.
1X2 1X2 1X21X2 1X2 1X21X21X21X2
Þar lá Gylfi
Þar kom að því aö Gylfi Baldvinsson lá í getraunaleiknum. Það
var tengdasonur hans, Stefán Haukur Jónsson, sem lagði Gylfa
snarlega í síðustu viku. Reyndar þurfti Stefán ekki nema fjóra
rétta til þess að sigra tengdaföður sinn sem var ekki upp á sitt
besta í spánni að þessu sinni.
Stefán hefur skorað á Sverri Björgvinsson sjómann, sem er
Dalvíkingur að ætt og uppruna, en stundar í vetur sjómennsku
frá Árskógsströnd. Það hefur aldrei verið lognmolla er Árskógs-
strendingar og Dalvíkingar hafa mæst, hvort sem er á íþrótta-
velli eða á dansleikjum, og má því búast við hörkuviðureign að
þessu sinni.
Ekkert er leikið í 1. deildinni ensku að þessu sinni vegna
landsleiks Englendinga og Pólverja í Póllandi á miðvikudaginn.
Bobby Robson fékk frí fyrir alla landsliðsmennina og þar sem
þeir koma frá svo mörgum félögum varð að fresta öllum leikjum
í deildinni.
Stefán:
Blackburn-Middlesbro 1
Bradford-Brighton 1
Hull-Swindon X
Ipswich-Newcastle X
Öldham-Barnsley 2
Oxford-Portsmouth 1
Plymouth-Stoke 1
Port Vale-Leicester 1
Sunderland-Bournemouth 1
Watford-WBA x
West Ham-Leeds 2
Wolves-Sheff.Utd. 2
Sverrir:
Blackburn-Middlesbro 1
Bradford-Brighton 2
Hull-Swindon x
Iþswich-Newcastle 1
Oldham-Barnsley 1
Oxford-Portsmouth 2
Plymouth-Stoke 1
Port Vale-Leicester x
Sunderland-Bournemouth 1
Watford-WBA 1
West Ham-Leeds x
Wolves-Sheff.Utd. 2
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2