Dagur - 10.10.1989, Blaðsíða 1
72. árgangur Akureyri, þriðjudagur 10. október 1989 193. tölubiað
Nýjar
haustvömr
í úrvali
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sfmi 23599^
Akureyri:
Harður árekstur
á laugardagskvöld
- tveir fluttir á sjúkrahús
Laust fyrir kl. 20 síðastliðið
laugardagskvöld varð harður
árekstur á mótum Hörgár-
brautar og Hlíðarbrautar á
Akureyri. Þar skullu saman
jeppi og fólksbifreið og fóru
báðir bflarnir út af götunni og
ultu. Ökumenn voru einir í bíl-
unum og báðir fluttir á sjúkra-
hús. Ökumaður fólksbifreiðar-
innar slasaðist mikið en var
kominn úr hættu í gærdag.
Slysið vildi þannig til að Range
Rover jeppa var ekið suður
Hörgárbraut en fólksbifreið af
Galant gerð var ekið vestur Hlíð-
arbraut í veg fyrir jeppann. Jepp-
inn lenti á miðri hlið fólksbílsins
og ýtti honum drjúgan spöl út
fyrir gatnamótin þar sem báðir
bílarnir ultu. Fólksbifreiðin er
gjörónýt en jeppinn mikið
skemmdur.
Þrír minni árekstrar voru á
Akureyri um helgina en helgin að
öðru leyti róleg. Einn ökumaður
var tekinn vegna ölvunar við
akstur. JÓH
33
Yfirlýsing Svanfríðar Jónasdóttur í Degi:
Þetta kemur mér
verulega á óvart“
- segir Pálína Hjartardóttir, formaður
kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins
„Jú, það verð ég að segja að
þetta kemur mér á óvart,“ seg-
ir Pálína Hjartardóttir, for-
maður kjördæmisráðs Alþýðu-
bandalagsins í Norðurlands-
kjördæmi eystra, um þá yfir-
lýsingu Svanfríðar Jónasdóttur
í helgarviðtali Dags um helgina
að hún muni ekki gefa kost á
sér í 2. sæti á lista Alþýðu-
bandalagsins í kjördæminu í
næstu kosningum.
„Eftir þessu að dæma stefnir í
að nýr maður skipi 2. sætið á list-
anuni í næstu kosningum og sam-
kvæmt þessu lítur allt út fyrir að
slagur verði um fyrsta sætið á list-
anum. Kjördæmisráð kemur
saman til fundar 21. og 22. októ-
ber n.k. og væntanlega ber þetta
á góma þar. En svona í fljótu
bragði þá get ég ekki annað sagt
um þetta mál en það að þessi yfir-
lýsing kemur mér mjög mikið á
óvart,“ bætti Pálína Hjartardóttir
JÓH
við.
„Ég væri örugglega betri í sprangi en Árni Johnsen!“
Mynd: KL
Fingra-
langir
á
ferðimn
Sex innbrot voru framin
aðfaranótt mánudags; fímm á
Austurlandi og eitt á Suður-
landi. Við öll innbrotin voru
höfð sömu vinnubrögðin og
margt mun benda til að þar
hafí sömu aðilar verið á ferð.
Tvö innbrotanna voru framin á
Egilsstöðum, tvö á Breiðdalsvík,
eitt á Djúpavogi og eitt á Kirkju-
bæjarklaustri. Margt bendir til að
sömu þjófarnir hafi framið öll
innbrotin, þar sem um sömu
vinnubrögð og umgengni er að
ræða á innbrotsstöðunum. Farið
hefur verið inn um glugga og
gengið tiltölulega snyrtilega um.
Skiptimynt hefur verið tekin úr
pemngakössum og mun hvergi
hafa verið um verulegar upphæð-
ir að ræða, en þjófurinn ætti þó
að hafa haft vel fyrir bensíni, ef
um sama aðila er að ræða, að
sögn lögreglunnar á Egilsstöðum.
Ef einhver sést rogast um með
tugi kílóa af fimmtíuköllum ætti
að láta lögregluna vita um ferðir
hans.
Málið er í höndum rannsókn-
arlögreglunnar á Eskifirði. IM
Byggir íslandsbanki á Akureyri?
Línurnar varðandi framtíðar-
húsnæði íslandsbanka á Akur-
eyri virðast lítið vera farnar að
skýrast. Alllangt er frá því að
svokölluð staðarvalsnefnd
kannaði fasteignir útibúa
Alþýðubankans, Iðnaðarbank-
ans og Útvegsbankans í
bænum, en að sögn Ásgríms
Hilmissonar, útibússtjóra
Útvegsbankans, hefur ekkert
heyrst um hverjar niðurstöð-
urnar hafa orðið.
Óstaðfestar fregnir frá aðilum
innan bankakerfisins herma þó
að staðarvalsnefndin hafi ekki
getað lagt blessun sína yfir neitt
af því húsnæði sem hún kannaði,
nema þá helst útibú Alþýðubank-
ans. í núverandi mynd væri það
þó talið of lítið, því skrifstofu- og
Svavar Gestsson, menntamálaráðherra, um Háskólann á Akureyri:
Meiri kröfur gerðar til þeirra
sem koma úr óvenjulegri átt
Allt frá því að Háskólinn á
Akureyri var settur á stofn
hafa heyrst gagnrýnisraddir
um réttmæti hans og það full-
yrt að skólinn geti aldrei orðið
annað en orðin tóm. Einkum
hefur heyrst hljóð úr horni frá
ýmsum af forráðamönnum
Háskóla íslands og nægir þar
að nefna skrif Valdimars K.
Jónssonar, prófessors við
Verkfræðideild HÍ, í Morgun-
blaðinu nýverið.
Svavar Gestsson, menntamála-
ráðherra, var inntur eftir því hver
væri í raun ástæða fyrir framkom-
inni gagnrýni háskólamanna
syðra á Háskólann á Akureyri.
unnið að lausn á húsnæðisvanda sjávarútvegsfræðibrautar
þessi skóli lifað og
Sagði menntamálaráðherra að
þetta ætti að nokkru leyti sínar
eðlilegu skýringar. „Háskóli
íslands býr við knappari fjárhag
en áður vegna samdráttar í efna-
hagslífinu. Á sama tíma sér hann
að verið er að byggja upp nýjan
skóla á Akureyri.
Hins vegar gagnrýni ég það
mjög harðlega að menn séu að
dæma Háskólann á Akureyri
áður en hann er farinn að sýna
hvað hann getur. Ég vil segja að
forráðamenn Háskólans á Ákur-
eyri verði að standa sig betur en
nokkurn tíma stjórnendur
Háskóla íslands vegna þess að
það eru ætíð gerðar meiri kröfur
til þeirra sem koma úr óvenju-
legri átt. Til dæmis eru gerðar
meiri kröfur til menntamálaráð-
herra Alþýðubandalagsins en
menntamálaráðherra íhaldsins.
Þetta er bara svona og því verður
ekki svo auðveldlega breytt. Þess
vegna er gerð mjög þung fagleg
krafa til Háskólans á Akureyri.“
Menntamálaráðherra sagðist
auðvitað verða var við mikla tor-
tryggni háskólamanna syðra í
garð Háskólans á Akureyri. „Ég
held hins vegar að ef vandað
verður til sjávarútvegsbrautar
Háskólans, hún tengd séríslensk-
um aðstæðum og ef menn um leið
taka upp þá stefnu að háskóla-
samfélagið á íslandi sé samtengt,
þá geti
dafnað.“
Svavar segir að á fjárlögum
næsta árs sé gert ráð fyrir að sjáv-
arútvegsfræðibraut færi af stað af
fullum krafti. Hann segir að
húsnæðismál hennar séu þó ekki
komin á hreint, um þetta sé
nefnd skipuð fulltrúum fjármála-
og menntamálaráðuneytis, Akur-
eyrarbæjar og Háskólans á Akur-
eyri að fjalla. „Það er auðvitað
stefnan að skólinn eignist eigið
húsnæði fyrir sjávarútvegsbraut-
ina, en sem stendur er allt í
athugun, að leigja húsnæöi til
bráðabirgða, kaupa húsnæði eða
byggja.“ óþh
geymslupláss vantaði. íslands-
banki þyrfti bæði fyrstu og mest-
alla aðra hæð Alþýðuhússins, ef
vel ætti að vera. Ekki er vitað
hvort þau stéttarfélög sem eiga í
2. hæðinni eru tilbúin til að láta
eitthvað af henni af liendi, en
mörgum þykir slíkt ólíkleg lausn.
„Mér þykir sennilegt að
íslandsbanki vilji byggja ef
Alþýðuhúsið dugar ekki. Ég hef
að vísu ekki skoðað þetta
nákvæmlega en mér kæmi ekki á
óvart þótt jarðhæðin í Alþýðu-
bankanum þætti óhentug vegna
stigagangsins, þetta yrði þá svip-
að fyrirkomulag og hjá okkur
hérna í Útvegsbankanum," sagði
Ásgrímur, er hann var spurður
álits.
Ásgrímur bjóst ekki við að
neinar breytingar yrðu tilkynntar
fyrr en á næsta ári. Hann bjóst
fastlega við að húsnæði Útvegs-
bankans myndi ekki vera nægi-
lega stórt fyrir íslandsbanka,
jafnvel þótt geymslur og hvelfing
væru í kjallaranum.
Elías I. Elíasson, bæjarfógeti á
Akureyri og Dalvík og sýslumað-
ur Eyjafjarðarsýslu, segir að
hann hafi reynt að fá upplýsingar
um húsnæði Útvegsbankans, en
skrifstofur embættisins og dóms-
salur eru eins og kunnugt er á efri
hæðum hússins Hafnarstræti 107.
Þrátt fyrir eftirgrennslanir hafi
engin svör fengist, en þvt sé ekki
að neita að áhugi sé fyrir því hjá
embættinu að falast eftir fasteign-
inni á 1. hæð því meira húsrými
vantaði. EHB