Dagur - 10.10.1989, Blaðsíða 9
8 - DAGUR - Þriðjudagur 10. október 1989
Þriðjudagur 10. október 1989 - DAGUR - 9
íþróttir
Úrvalsdeildin í körfoknattleik:
Þórsarar í kennslu-
stund í I Iafnarílrði
og Haukamir sigruðu 120:61
Þórsarar fengu heldur betur skell í
Úrvalsdeildinni í körfuknattleik er
þeir mættu sterku liði Hauka í
Iþróttahúsinu í Hafnarfirði á
sunnudaginn. Heimapiltarnir sigr-
uðu 120:61 eftir að hafa verið yfir
56:27 í leikhléi.
Pessi úrslit voru mikið áfall fyrir
Þórsara sem höfðu gert sér þokka-
legar vonir fyrir Ieikinn að standa í
Skíði:
Kristinn til
Júgóslavíu
- til æfinga
Skíðakappinn Kristinn Björnsson
frá Ólafsfírði dvelur nú við æfing-
ar í Júgóslavíu með júgóslavneska
unglingalandsliðinu. Þess má geta
að Valdimar Valdimarsson skíða-
maður frá Akureyri er nýkominn
frá Júgóslavíu þar sem hann
dvaldi um tíma við æfíngar.
Kristinn mun dvelja eina viku í
Júgóslavíu og mun halda þaðan til
Austurríkis þar sem íslenska lands-
liðið verður við æfingar.
Þess má geta að starfsfélagar
Kristins í Salthúsi Sigvalda Þorleifs-
sonar og Haukur Sigurðsson hafa
styrkt Kristinn til þessarar farar enda
kostar það sitt að fara alla þessa leið
til æfinga.
Kristinn er síðan væntanlegur aft-
ur til landsins um næstu mánaðar-
mót.
Haukunum. En Hafnfirðingar gáfu
strax tóninn á fyrstu tveimur mínút-
um leiksins og skoruðu átta stig án
þess að Þórsarar næðu að svara fyrir
sig. Reyndar náðu Akureyringarnir
að jafna 16:16 en þar með var
draumurinn búinn.
Haukarnir settu í annan gír og
skildu Þórsarana eftir í hlutlausum.
Staðan breyttist í 29:18 á stuttum
tíma og bilið jókst smám saman á
milli liðanna og þegar gengið var til
búningsherbergja var munurinn orð-
inn 29 stig, 56:27.
Ekki tók betra við í síðari hálfleik
fyrir gestina. Haukarnir yfirspiluðu
þá á öllum sviðum körfuboltans og
var þetta svo sannarlega leikur katt-
arins að músinni. Bandaríkjamaður-
inn Johnatan Bow í liði Hauka fór á
kostum og skoraði 21 stig á stuttum
tíma og réðu Þórsararnir ekkert við
hann á þeim leikkafla.
Um miðjan síðari hálfleikinn var
staðan orðin 81:40 og þá fóru Þórs-
áhangendur í áhorfendastæðunum
að forða sér úr húsinu. En Haukarnir
voru ekkert að slá af undir lok leiks-
ins og loktölur urðu sem sagt 59 stiga
sigur, 120:61 fyrir Haukana.
Hjá Þór náði enginn leikmaður sér
almennilega á strik í leiknum. Dan
Kennard átti þokkalegan leik í fyrri
hálfleik en sást ekki í þeim síðari.
Konráð átti ágæta spretti og Guð-
mundur Björnsson var drjúgur í
byrjun síðari hálfleiks og skoraði þá
15 fyrstu stig Þórsara. En í heild var
þetta slakur leikur hjá Þórsliðinu og
vilja leikmennirnir sjálfsagt gleyma
þessum leik sem fyrst.
Haukaliðið var mjög jafnt í þess-
um leik og verður það örugglega í
baráttunni um íslandsmeistaratitil-
inn. Bow átti góðan leik og einnig
voru þeir Henning Henningsson og
ívar Asgrímsson sterkir. Annars var
liðið jafnt og skiptu níu leikmenn
skoruninni á milli sín.
Dómarar voru þeir Jón Bender og
Bergur Steingrímsson og dæmdu
þeir þokkalega.
Stig Hauka: J. Bow 31, Hcnning Henningsson 23,
ívar Ásgrímsson 23, Pálmar Sigurðsson 9, Eyþór
Árnason 9, Reynir Kristjánsson 8, Jón Arnar Ingv-
arsson 7, Tryggvi Jónsson 6, ívar Webster 4.
Lið Þórs: Guðmundur Björnsson 20, Konráð ósk-
arsson 16, Dan Kennard 11, Eiríkur Sigurðsson 5,
Björn Sveinsson 3, Jón Örn Guðmundsson 2, Þórir
Guðlaugsson 2 og Ágúst Guðmundsson 2.
bjb/AP
Sheff. Utd. á sigurbraut
Þórsarinn Jón Örn Guðmundsson og Haukamaðurinn Bow berjast um knöttinn í
leiknum á sunnudaginn. Mynd. KK
Akureyrarmót í kraftlyftingum:
Kári stigahæstur
Jóhann hlaut Framfarabikarinn
Kristinn Björnsson æfir nú í Júgóslavíu.
Akureyrarmótið í kraftlyftingum
fór fram í íþróttahöllinni á Akur-
eyri á laugardaginn. Kári Elíson
vann stigakeppni mótsins í sjö-
unda skipti en hann keppti í 75 kg
flokki. Þó nokkrir áhorfendur
fylgdust með mótinu og höfðu
þeir hina bestu skemmtun af.
Samtals voru sett 18 Akureyrar-
met á mótinu; 4 í fullorðinsflokki og
14 í unglingaflokki, en mikil gróska
er í unglingastarfi Kraftlyftingafélags
Akureyrar um þessar mundir. Það
var Jóhann Guðmannsson sem hlaut
Framfarabikar mótsins en hann er
einungis 14 ára gamall og á svo sann-
arlega framtíðina fyrir sér í kraftlyft-
ingum.
Verðlaun fyrir bestu hnébeygjuna
hlaut Flosi Jónsson en Kári Elíson
hlaut verðlaun fyrir bestu bekkpress-
una og bestu réttstöðulyftuna. Því
hlaut Kári flest stig eða 449, Flosi
varð í öðru sæti með 441 stig og Jón
Laugamót
í innanhúss-
knattspyrnu
verður haldið 17.-19. nóv.
Keppt verður með gömlu reglunum
(með böttum).
Þátttaka skal tilkynnt fyrir 10. nóv. á
aðalskrifstofu Laugaskóla, sími 96-
43120 á mánudögum og þriðjudög-
um eftir hádegi og miðvikudögum,
fimmtudögum og föstudögum fyrir
hádegi.
Norðfjörð þriðji með 327 stig.
En lítum á úrslitin í einstökum
flokkum:
67,5 kg:
Hnéb. Bekk. R.stl. saml.
1. Jóhann Guðmannsson 115 - 75 - 145 - 335 kg
2. Trausti Haraldsson 110 - 65 - 140 - 315 kg
3. Kristinn Benedikts. 80 - 40 - 110 - 230 kg
Jóhann vann öruggan sigur í þess-
um þyngdarflokki og setti Akureyr-
armet unglinga í réttstöðulyftu og í
samanlögðu. Hann hlaut gull-
og bronsverðlaun á íslandsmóti
drengja fyrir skömmu svo að Fram-
farabikarinn fór í góðar hendur.
Trausti og Kristinn voru að keppa á
sínu fyrsta móti og stóðu sig vel.
75 kg flokkur:
1. Kári Elíson 230 - 160 - 260 - 650 kg
2. Rúnar Friðriksson 162,5-100 - 192,5 -455 kg
Kári hlaut í þessum flokki sinn
tíunda Akureyrarmeistaratitil. Hann
lét öryggið sitja í fyrirrúmi að þessu
sinni og gerði aldrei ógilt. Rúnar
„fjósafrömuður" var í miklu stuði á
þessu móti og setti fjögur ný Akur-
eyrarmet unglinga.
82,5 kg flokkur:
1. Jón Norðfjörð 190 - 125 - 210 -525 kg
2. Guðlaugur Halldórs. 130 - 80 - 190 -400 kg
Jón Norðfjörð bætti sig verulega á
þessu móti, en hann varð fyrst
Jóhann Guðmundsson sigraði í 67,5 kg flokki og hlaut Framfarabikarinn að
launum. Mynd:AP
Akureyrarmeistari 1987. Hann hefur
einnig gert garðinn frægan í vaxtar-
ræktinni og virðist vera jafnvígur á
báðum vígstöðvum.
Guðlaugur Halldórsson, sem er nú
þekktari sem snjall júdómaður,
sýndi á sér nýja hlið og raðaði ung-
lingametunum á línuna. Segja menn
að hann hafi tekið réttstöðulyftuna á
ipponi!
Hjörtur Guðmundsson keppti í 90
kg flokki en var óheppinn og gerði
allar lyfturnar í hnébeygjunni ógildar
og var því úr leik.
100 kg flokkur:
1. Flosi Jónsson 285 - 160 - 285 - 730 kg
2. Gunnar Ellertsson 125 - 85 - 160 - 370 kg
Flosi „gullmoli" mætti grimmur til
leiks og setti hann tvö ný Akureyrar-
met á mótinu; í hnébeygju og í
samanlögðu. Hann var greinilega í
góðri æfingu og má búast við góðum
árangri frá honum í vetur.
Gunnar Ellertsson, sem er af
„heimsskautabangsaættum", tók vel
á og setti 4 Akureyrarmet. Gunnar
er einungis 16 ára gamall og á eftir að
ná langt í kraftlyftingum ef hann
heldur áfram á sömu braut.
+125 kg flokkur:
1. Torfi Ólafsson 100 - 220 - 200 - 520 kg
Torfi tók þetta mót létt og stefndi
að því að bæta árangur sinn í bekk-
pressunni. Það tókst hjá honum og
tvíbætti hann Akureyrarmetið og
lyfti 220 kg. Það er árangur á alþjóð-
legan mælikvarða og sagði þulur
mótsins, Jón Óðinn Óðinsson, að
þarna hefðu júdóæfingar Torfa skil-
að sér vel.
Sigurður Gestsson var yfirdómari
á mótinu og skilaði hann því hlut-
verki með miklum sóma. Næsta mót
hjá Kraftlyftingafélagi Akureyrar er
Meistaramót Akureyrar í bekk-
pressu um næstu mánaðamóí.
Engir leikir voru í 1. deild á
Englandi um helgina þar sem
Englendingar leika í Póllandi í
undankeppni Heimsmeistara-
keppninnar á miðvikudag. Af
sömu sökum var einnig frestað
leikjum í Skotlandi, en Skotar
leika í sömu keppni gegn
Frökkum í vikunni. Það fór
hins vegar fram heil umferð í
2. deild að undanskildum leik
Blackburn gegn Middlesbrough,
- Vinny Jones hefta Leeds gegn WH
Mark Steve BuII fyrir Wolves gegn
Sheff. Utd. dugði ekki til sigurs.
2. deild
Blackbum-Middlesbrough frestað
Bradford-Brighton 2:0
Hull City-Swindon 2:3
Ipswich-Newcastle 2:1
Oldham-Barnsley 2:0
Oxford-Portsmouth 2:1
Plymouth-Stoke City 3:0
Port Vale-Leicester 2:1
Sunderland-Bourncmouth 3:2
Watford-W.B.A. 0:2
West Ham-Leeds Utd. 0:1
Wolves-Sheffield Utd. 1:2
3. deild
Blackpool-Reading 0:0
Bolton-Wigan 3:2
Brentford-Bristol City 0:2
Bristol Rovers-Fullham 2:0
Chester-Bury 1:4
Huddersfield-Cardiff City 2:3
Northampton-Preston 1:2
Rotherham-Birmingham 5:1
Shrewsbury-Mansfield 0:1
Swansea-Crewe 3:2
Tranmere-Leyton Orient 3:0
Walsall-Notts County 2:2
4. deild
Aldershot-Colchester 4:0
Carlisle-Wrexham 1:0
Chesterfield-Lincoln 0:0
Grimsby-Rochdale 1:2
Halifax-Gillingham 0:1
Hartlepool-Scunthorpc 3:2
Maidstone-Burnley 1:2
Peterborough-Exeter 4:3
Southend-Scarborough 1:0
Stockport-Hereford 2:1
Torquay-Doncaster 2:0
York City-Cambridge 4:2
en honum var frestað vegna
mikils vatnsaga á leikvelli
Blackburn.
Sheffield Utd. heldur sínu
striki á toppi 2. deildar, en liðið
lenti þó í kröppum dansi á úti-
velli gegn Wolves sem eins og
Sheffield kom upp úr 3. deild í
vor. Úlfarnir höfðu undirtökin í
leiknum, en vörn Sheffield varð-
ist vel og liðið skoraði síðan tví-
vegis öllum að óvörum. Steve
Bull kom Wolves yfir á 17. mín.
með marki úr þvögu og liðið sótti
látlaust. 5 mín. fyrir hlé tókst
hins vegar Wilf Rostron að jafna
fyrir Utd. með góðu skoti frá
vítateig. Sheffield skoraði síðan
sigurmarkið 5 mín. eftir hlé, eftir
langt innkast barst boltinn til Jim
Gannon sem lagði hann fyrir sig
og skoraði með þrumuskoti af
löngu færi. Þrátt fyrir þunga sókn
Wolves næstu 40 mín. tókst vel
skipulagðri vörn Sheffield að
koma í veg fyrir að liðið næði að
jafna og þrjú mikilvæg stig
tryggðu liðinu efsta sætið áfram.
Það var uppselt á leik West
Ham gegn Leeds Utd. í London
og það þurfti að seinka leiknum
um 15 mín. meðan áhorfendur
komu sér fyrir. Leeds Utd. hóf
leikinn af miklum krafti og náði
forystu á 22. mín. er Vinny Jones
skoraði af stuttu færi eftir góðan
undirbúning þeirra Andy Willi-
ams og bakvarðarins Mike Whit-
low sem sendi fyrir markið. Eftir
markið breytti Leeds Utd. leik
sínum og hugsaði aðeins um að
verjast. Allan síðari hálfleikinn
lék liðið stífa rangstöðutaktík
sem sóknarmenn West Ham
gengu fúslega í og sennilega hef-
ur línuvörðurinn fengið strengi í
handlegginn, svo oft þurfti hann
að lyfta flaggi sínu. Leikurinn var
því ekki fyrir augað, harka mikil
á báða bóga og boltinn sendur til
Mervyn Day markvarðar Leeds
Utd. í tíma og ótíma. En leik-
mönnum og áhangendum Leeds
Utd. stóð á sama, liðinu tókst að
halda þessu eina marki og sigra
og er nú jafnt Sunderland í 2.-3.
sæti. Gordon Strachan var áber-
andi bestur á vellinum og þessi
fyrrum leikmaður Man. Utd. og
núverandi fyrirliði Leeds Utd. er
í landsliðshópi Skota gegn
Frökkum í vikunni, en hann fékk
ekki frí þar sem hann leikur í 2.
deild.
Sunderland og Bournemouth
sýndu allar sínar bestu hliðar í
leik sínum þar sem Bobby Barn-
es hjá Bournemouth og Paul
Bracewell sem Sunderland keypti
nýlega frá Everton áttu stórleik.
Paul Moulden mistókst í dauða-
færi fyrir Bournemouth á 3.
mín., en á 18. mín. náði Eric
Gates forystunni fyrir Sunder-
land eftir að Gary Bennett hafði
skotið í stöng. Bournemouth
jafnaði með sjálfsmarki John
MacPhail er hann reyndi að
skalla frá hættulega sendingu
Barnes. Síðari hálfleikurinn var
frábær, Luther Blissett náði for-
ystu fyrir Bournemouth, en
Sunderland svaraði með tveimur
mörkum næstu 10 mín. Marco
Gabbiadini jafnaði og Gates
skoraði sfðan sigurmark Sunder-
land með fallegu marki eftir góð-
an undirbúning.
Ipswich sigraði Newcastle á
heimavelli sínum þar sem John
Wark náði forystu fyrir Ipswich
með marki úr vítaspyrnu sem
dæmd var á John Anderson fyrir
hendi. Ipswich sótti stíft og leik-
menn liðsins óðu í færum sem
ekki tókst að nýta og John Burr-
idge í mark Newcastle átti stór-
leik í sínum fyrsta leik með liðinu
eftir að hann var keyptur frá
Southampton. David Lowe tókst
þó að bæta við öðru marki Ips-
wich fyrir hlé. Newcastle olli von-
brigðum með leik sínum, en
Mark McGhee tókst þó að skora
eina mark liðsins 8 mín. fyrir
leikslok. Mick Quinn fékk tví-
vegis færi í lokin fyrir Newcastle
en mistókst og mjög sanngjarn
sigur Ipswich í höfn.
Bradford keypti í vikunni
Tony Adcock fyrir £215.000 frá
Northampton og hann skoraði
fyrir liðið á 22. mín. gegn
Brighton. Paul Jewell bætti öðru
marki Bradford við f síðari hálf-
leik, öruggur sigur liðsins í léleg-
um leik.
W.B.A. lék mjög vel er liðið
sigraði Watford á útivelli 2:0,
enginn lék þó betur en fram-
kvæmdastjóri þeirra Brian Tal-
bot sem dreif lið sitt áfram. John
Thomas kom W.B.A. yfir á 8.
mín. með skalla og miðvörðurinn
Chris Whyte bætti síðara mark-
inu við á 71. mín. einnig með
skalla. Bernard McNally hefði
hæglega getað bætt við þremur
mörkum fyrir W.B.A. en hann
var ekki á skotskónum í leiknum.
Watford sem lék án Paul Wilkin-
son fékk sín færi í leiknum, en
sigur W.B.A. sanngjarn þó liðið
léki án 6 fastamanna sem eru
meiddir.
Peter Swan skoraði bæði mörk
Hull City, sem var yfír 2:1 í hálfleik
gegn Swindon. Tim Parkin skor-
aði mark Swindon í fyrri hálfleik
og í þeim síðari tryggðu Fitzroy
Simpson og Alan McLoughlin
Swindon sigurinn með tveimur
mörkum.
Oldham er á mikilli siglingu
um þessar mundir, liðið slo
Leeds Utd. úr Deildabikarnum í
síðustu viku og á laugardag sigr-
aði liðið Barnsley 2:0. Frankie
Bunn og Mike Milligan skoruðu
mörkin í fyrri hálfleik.
Jim Phillips og John Durnin
skoruðu fyrir Oxford í fyrri hálf-
leik gegn Portsmouth. Gay
Whittingham svaraði með eina
marki Portsmouth í þeim síðari
og liðið missti þá Gavin Maguire
útaf með rautt spjald frá dómar-
anum.
Plymouth vann góðan heima-
sigur gegn Stoke City 3:0, Andy
Thomas, Kevin Hodges og
Tommy Tynan úr vítaspyrnu
skoruðu mörk liðsins.
Paul Reid náði forystu fyrir
Leicester á útivelli gegn Port
Vale, en heimaliðið tryggði sér
sigurinn með mörkum Darren
Beckford og Nicky Cross í þeim
síðari. Port Vale keypti Cross frá
Leicester í sumar.
Tranmere er efst í 3. deild með
21 stig, en síðan koma Bristol
Rovers með 20 og Bury hefur 18
Arsenal gegn Liverpool
- í Deildarbikarnum
Alan Smith og steve Nicol munu
mætast í næstu umferð Deildarbik-
arsins er Arsenal og Liverpool eig-
ast við.
í vikunni fóru fram síðari
leikirnir í 2. umf. Deildabik-
arsins, en í tveimur fyrstu
umferðunum er leikið heima
og að heiman. Aðeins eitt 1.
deildar lið féil úr keppni,
Chelsea sem tapaði fyrir 4.
deildar liði Scarborough.
En fleiri 1. deildar lið komust í
hann krappan, t.d. Tottenham og
Nottingham For. sem komust
áfram á mörkum skoruðum á úti-
velli þar sem samanlögð marka-
taia þeirra og mótherjanna var
jöfn. Tottenham sló 4. deildar lið
Southend út, en Nottingham For.
slapp með skrekkinn gegn 3.
deildar liðinu Huddersfield.
3. umf. keppninnar fer fram í
vikunni sem hefst 23. okt. og þá
leika eftirtalin lið saman.
Arsenal-Liverpool
Aston Villa-West Ham
Crystal Palace-Nottingham For.
Derby-Sheffield Wed.
Everton-Luton
Exeter-Blackpool
Manchester City-Norwich
Manchester Utd.-Tottenham
Middlesbrough-Wimbledon
Newcastle-W.B.A.
Oldham-Scarborough
Q.P.R.-Coventry
Southampton-Charlton
Sunderland-Bournemouth
Swindon-Bolton
Tranmere-Millwall
Það er því ljóst að mörg 1.
deildar lið munu falla úr keppni í
þessari umferð þar sem 8 leikir
eru innbyrðis viðureignir liða úr
1. deild.
Tveir leikir standa þar upp úr,
leikir Arsenal gegn Liverpool og
Manchester Utd. gegn Totten-
ham. Það verður örugglega hart
barist í leik Arsenal og Liver-
pool, en þessi lið háðu einvígi um
meistaratitilinn sl. vor þar sem
Arsenal hafði betur. Alex Fergu-
son framkvæmdastjóri Manchest-
er Utd. hefur verið sagt af stjórn
félagsins að hann verði að vinna
til verðlauna í vetur, annars verði
hann rekinn. Ef til vill er Deilda-
bikarinn hans besta von, en til
þess verður lið hans að sigra
Tottenham og það gæti orðið
erfitt.
Deildabikarmeistarar Notting-
ham For. eiga erfiðan útileik
gegn Crystal Palace og verða að
leika betur en gegn Huddersfield
til að eiga möguleika á að verja
titilinn. En það verða örugglega
margir spennandi leikir í umferð-
inni og fróðlegt að sjá hvaða 16
lið það verða sem komast áfram í
4. umferð keppninnar. Þ.L.A.
stig. Á botninum eru Chester
með 6 stig, Cardiff City 5 og
Wigan neðst með 4 stig.
I 4. deild hefur Southend 22
stig, Lincoln 20 og Carlisle hefur
19 stig.
Á botninum eru Cambridge
með 6 stig og Hartlepool rekur
lestina með 5 stig. Þ.L.A.
Mervyn Day hóf feril sinn hjá West
Ham, en lék í marki Leeds Utd.
gegn sínum gömlu félögum á laugar-
dag.
Staðan
1. deild
Liverpool 7 4-3-0 19: 3 15
Chelsea 8 4-3-1 13: 6 15
Arsenal 7 4-2-1 11: 5 14
Norwich 8 3-5-0 12: 7 14
Millwall 8 4-2-2 14:12 14
Everton 8 4-1-3 12:11 13
Coventry 8 4-1-3 7: 8 13
Southm.pton 8 3-3-2 13:14 12
Crystal Palace 8 3-2-3 7:15 11
Man.City 8 3-1-4 15:11 10
QPR 8 2-3-3 7: 6 9
Nott.Forest. 8 2-3-3 9: 9 9
Luton 8 2-3-3 6: 7 9
Aston Villa 8 2-3-3 8:10 9
Derby 8 2-2-4 5: 8 8
Wimbledon 8 1-5-2 7: 9 8
Tottenham 7 2-2-310:14 8
Man.Utd. 7 2-1-4 13:15 7
Charlton 8 1-3-4 6: 8 6
Sheff.Wed. 81-2-5 2:16 5
2. deild
Sheff.Utd. 10 64-0 19: 9 22
Sunderland 10 5-4-1 19:12 19
Leeds Utd. 10 5-4-1 15:10 19
Blackburn 9 4-5-0 17: 8 17
Newcastle 10 5-2-3 18:13 17
Oldhant 10 5-2-3 15:12 17
Plymouth 10 5-1-4 19: 9 16
Brighton 10 5-0-5 17:14 15
West Ham 10 4-3-3 12:12 15
W.B.A. 10 4-3-3 18:16 15
Bournemouth 10 4-24 18:19 14
Watford 10 4-24 10:1114
Ipswich 10 34-3 16:16 13
Swindon 10 34-3 13:14 13
Wolves 10 3-3-4 18:17 12
Oxford 10 3-3-4 15:17 12
Barnsley 10 3-3-4 11:17 12
Middlesbr. 9 3-24 15:15 11
Port Vale 10 2-5-3 8:10 11
Bradford 10 2-5-3 13:10 11
Stoke 10 0-7-3 9:14 7
Portsmouth 101-3-6 7:17 6
Hull 10 0-5-5 12:18 5
Leicester 101-2-7 9:18 5