Dagur - 26.10.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 26. október 1989
Opið virka daga frá kl. 13.00-18.30
Opið á laugardögum frá kl. 10.00-14.00
Kindabjúgu
Lambahryggir
Kjúkiingavængir
WC-pappír
Eldhúsrúllur
Kynnist NETTÚ-verdi
KEANETTÓ
#fö/ðafti!rð W
Löggæslumál á Austfjörðum í ólestri:
Óraunhæft að beita sömu aðhalds-
aðgerðum í öllum löggæsluumdæmum
- segir m.a. í ályktun frá bæjarstjórn Egilsstaða sem mótmælir
harðlega skerðingu á þjónustu vegna yfirvinnubanns
Bæjarstjórn Egilsstaða mót-
mælir harðlega þeirri skerð-
ingu á þjónustu sem íbúar
bæjarins verða fyrir vegna
giidandi skerðingar á yfirvinnu
lögreglumanna og krefst þess
að dómsmálaráðuneytið beiti
sér nú þegar fyrir því að úr
verði bætt áður en í algert
óefni verður komið. Alyktun
þessa efnis hefur verið send
dómsmálaráðherra, sýslu-
manni S-Múlasýslu og lögreglu-
varðstjóranum á Egilsstöðum.
Bæjarstjórn bendir á að eftir-
litssvæði lögreglu úti á landi er
jafnan víðáttumikið og erfitt yfir-
ferðar vegna snjóa og slæmra
vega og því algjörlega óraunhæft
að beita sömu aðhaldsaðgerðum
í öllum löggæsluumdæmum
landsins án tillits til aðstæðna á
hverjum stað.
Sigurður Símonarson bæjar-
stjóri á Egilsstöðum segir bæjar-
yfirvöld hafa miklar áhyggjur af
þessu máli. „Vegna manneklu og
skerðingu á yfirvinnu höfum við
t.d. lent í því hér að ef hringt er í
lögregluna er vísað á símsvara á
Fáskrúðsfirði þar sem e.t.v. er
aðeins einn maður á vakt. Nýlegt
dæmi er innbrot á Eskifirði þar
sem hálfur sólarhringur leið áður
en lögregla gat sinnt málinu því
enginn var á vakt. Ástandið er
mjög slæmt og við hrósum happi
yfir hvað veðrið hefur verið gott
en um leið og ófærð fer að tefja
lögregluna verður þetta enn
alvarlegra því þeir mega ekkert
fara ef þeir sjá fram á að lenda í
yfirvinnu."
Á Egilsstöðum eru tveir lög-
reglumenn á einni vakt auk bak-
vakta. Peir sem eru á bakvakt
mega alls ekki fara í útkall nema
líf liggi við og eins og Sigurður
sagði er oft erfitt að meta hvenær
líf liggur við. „Lögreglan hefur
t.d. ekki getað sinnt ábendingum
um drukkna ökumenn á ferð og
ef umferðarslys verður fara þeir
ekki á staðinn nema um meiri-
háttar slys sé að ræða.“ Hann
segir nauðsynlegt að fjölga lög-
gæslumönnum þannig að um tvær
mannaðar vaktir verði að ræða
meirihluta sólarhringsins svo
tryggja megi að alltaf séu menn á
vakt þó þeir þurfi að fara í langt
útkall, en Egilsstaðalögreglan
ásamt sýslumanni N-Múlasýslu
sinnir mjög stóru 3000 íbúa svæði
í mjög dreifðri byggð.
Lögreglan á Egilsstöðum sér
um gæslu á Hótel Valaskjálf þeg-
ar þar eru dansleikir sem er svo
til um hverja helgi. í þessum til-
fellum er það samkomuhúsið sem
þarf að greiða fyrir gæsluna en
þrátt fyrir það dragast þessir tím-
ar frá yfirvinnukvóta lögreglunn-
ar. Sigurður segir þetta furðulega
ráðstöfun sem t.d. tíðkist ekki í
Reykjavík en með þessu sé veit-
ingahúsum mjög mismunað. VG
Ný neyðaráætlun fyrir ÓlafsQörð samþykkt:
„Erum með allan pakkaim“
Á fundi almannavarnanefndar
Ólafsfjarðar sl. föstudag var
samþykkt nýtt neyðarskipulag
fyrir Ólafsfjörð. Guðjón
Petersen, framkvæmdastjóri
Almannavarna ríkisins, sat
fund nefndarinnar.
Ólafsfjörður er þar með þriðja
svæðið á Norðurlandi sem sam-
þykkir nýja neyðaráætlun. Akur-
eyri reið á vaðið og því næst var
gengið frá áætlun fyrir Mývatns-
sveit.
„Þessi áætlun er í sjálfu sér
mjög áþekk þeirri sem nú þegar
hefur verið samþykkt á Ákur-
eyri. Við leggjum að vísu ekki
eins upp úr hópslysum og þar. En
segja má að við séum með allan
„pakkann“. Við höfum hug-
myndir um hvernig bregðast skuli
við t.d. eldgosum, jarðskjálftum,
skriðuföllum og snjóflóðum,“
sagði Bjarni Kr. Grímsson,
bæjarstjóri í Ólafsfirði. óþh
TÍnúom Snjódekk
fVisa jlEuro |[SamkTI[Vixill ||?
lÍrtdoM Merkið tryggir gæðin
Dekk!
Dekk!
★ Nýir vetrarhjólbarðar.
★ Sólaðir hjólbarðar.
★ Neglum gömul dekk.
★ Skerum munstur í gömul
dekk.
★ Jafnvægisstillum.
Bílaþjónustan - Hjólbarðaverkstæði
Tryggvabraut 14 • Símar 21715 og 23515 • Verkstjóri: Sveinn Bjarman