Dagur - 26.10.1989, Síða 3
fréttir
, Fimmtudagur 26. október 1989 - DAGUR - 3
E
Efnahagsnefnd Framsóknarflokksins:
Stóriðja verði skattlögð
til byggðajöfiiunar
- stjórnsýslumiðstöðvum komið upp í öllum kjördæmum
Efnahagsnefnd Framsóknar-
flokksins, sem í eiga sæti Stefán
Guðmundsson, Alexander
Stefánsson, Ólafur Þ. Þórðar-
son og Guðmundur G. Þórar-
insson, hafa kynnt ítarlegar til-
lögur í efnahags-, atvinnu-, og
byggðamálum. Þar er m.a. lagt
til að Byggðastofnun verði efld
með auknum fjárframlögum
og ótvíræðum rétti til frum-
kvæðis að áætlunargerð.
Stjórnsýslumiðstöðvum verði
þegar komið upp í öllum kjör-
dæmum utan höfuðborgar-
svæðisins og margvísleg þjón-
ustustarfsemi þess opinbera
flutt frá Reykjavík til stjórn-
sýslumiðstöð vanna.
Stefán Guðmundsson, formað-
ur nefndarinnar, sagði í samtali
við Dag að í tillögunum væri lögð
mikil áhersla á efla atvinnulíf á
landsbyggðinni. Hann benti á að
fyrirsjáanlegir áframhaldandi
búferlaflutningar til höfuðborg-
arsvæðisins hefðu ófyrirséðar
afleiðingar í för með sér fyrir
landið í heild. Pví þyrfti að
sporna við þessari þróun án tafar.
„Við bendum á í þessu sambandi
að Byggðastofnun verður að efla
og henni verður að gera kleift að
gera langtímaáætlun um eflingu
byggðar," segir Stefán. Hann
segir að á bak við hugmynd um
stjórnsýslumiðstöðvar í öllum
kjördæmum felist að með því
móti verði stjórnun ýmissa þátta
komið frá miðstýringarvaldinu í
Reykjavík heim í héruðin. „Við
leggjum ennfremur til að sam-
bönd sveitarfélaga verði virkari
um gerð tillagna um opinberar
framkvæmdir og þá leggjum við á
það áherslu að staða dreifbýl-
isverslunar verði endurmetin og
ríkisvaldið hafi frumkvæði um
aðgerðir sem leiði til betri stöðu
hennar,“ segir Stefán.
Hann segir að fjórmenningarn-
ir leggi til að stóriðja í landinu
verði skattlögð til byggðajafn-
vægis. „Okkur þykir ekki óeðli-
legt að eitthvað af því fjármagni
sem stóriðjan skilur eftir sig á
þeim stöðum sem mannfjöldi er
mestur komi dreifðum byggðum
landsins til góða. Pannig viljum
við að Álverið í Straumsvík verði
skattlagt og þeir skattpeningar
nýttir til að styrkja dreifbýlið. Að
sama skapi yrði hugsanlegt álver
við Eyjafjörð skattlagt og þeir
fjármunir gætu t.d. komið íbúum
á Þórshöfn til góða,“ segir Stefán
Guðmundsson.
í kafla um iðnað er ennfremur
lagt til að Landsvirkjun og Raf-
magnsveitur ríkisins verði sam-
einuð í eitt orkuöflunar- og dreif-
ingarfyrirtæki og raforkuverð
verði jafnað til allra dreifiveitna
og sambærilegrar notkunar. óþh
fslenskir ríkisborgarar sem flytja af landi brott:
Halda kosningarétti við alþingis-
kosningar og forsetakjör í átta ár
Meö lögum sem santþykkt
voru á síðasta Alþingi um
breytingu á Iögum um kosning-
ar til Alþingis var breytt þeim
ákvæöum kosningalaganna er
kveða á um kosningarétt
íslenskra ríkisborgara sem flutt
hafa af landi brott. Þessi
ákvæði gilda með sama hætti
við kjör forseta Islands.
Samkvæmt hinum nýju reglum
halda íslenskir ríkisborgarar sem
flytja af landi brott nú kosninga-
rétt við alþingiskosningar og
forsetakjör í átta ár (í stað
fjögurra ára) frá því þeir fluttu úr
landi, talið frá 1. desember næst-
um fyrir kjördag. Skulu þeir
sjálfkrafa teknir á kjörskrá í því
sveitarfélagi þar sem þeir áttu
síðast lögheimili samkvæmt
þjóðskrá.
Ennfremur verða íslenskir
ríkisborgarar sem dvalið hafa
erlendis lengur en átta ár nú
einnig teknir á kjörskrá en þó því
aðeins að þeir sæki um það sér-
staklega.
Umsókn íslensks ríkisborgara
um að verða þannig tekinn á
kjörskrá skal undirrituð af
umsækjanda sjálfum og send
Hagstofu íslands á þar til gerðu
eyðublaði sem hún lætur í té.
Umsóknareyðublöðum hefur
verið dreift til sendiráða og fasta-
nefnda við alþjóðastofnanir, svo
og til sendiræðisskrifstofa og
skrifstofa kjörræðismanna. Auk
þess liggja eyðublöðin frammi á
Hagstofunni.
Gildi umsóknar miðast við 1.
des. og gildir ákvörðun um að
maður sé þannig tekin á kjörskrá
í 4 ár frá 1. des. næstum á eftir að
umsóknin berst Hagstofunni.
Anna Einarsdóttir kynnir bækurnar um Karólínu fyrir börnunum á Króga-
bóli. Við hliö hennar er Virpi Pekkala sem teiknaði myndirnar í bókunum.
Mynd:KL
í tilefni barnabókaviku:
Finnskur bamabókateiknari heim-
sækir dagheimili á Akureyri
Börn og bækur er yfirskrift
barnabókaviku sem stendur
yfir um þessar mundir í
skólum, bókasöfnum og fjöl-
miðlum. Markmið vikunnar er
að vekja athygli á bókum,
hvetja börn og unglinga til
bókalestrar og foreldra til að
sinna lestri barna sinna.
Af því tilefni er stödd hér á
landi finnsk kona að nafni Virpi
Pekkala en hún hefur teiknað
myndir í bækurnar uin Karólínu
eftir Laura Voipio, sem segir frá
fjögurra ára stelpuhnátu og
uppátækjum hennar.
Pekkala heimsótti tvö dag-
heimili á Akureyri í vikunni,
Krógaból og Pálmholt og kynnti
bækur sínar fyrir börnunum þar
og færði þeim barmmerki með
mynd af Karólínu. Með henni í
för var Anna Einarsdóttir frá Máli
og menningu semgefur bækurnar
út á íslandi. -KK
Skákfélag Akureyrar:
Rúnar sigraði á
tveimur mótum
| Rúnar Sigurpálsson, hinn ungi
; og efnilegi skákmaður Skákfé-
1 lags Akureyrar, sigraði á
tveimur mótum sem félagið
hélt um helgina. Á föstudaginn
sigraði hann í Startmótinu og
fékk 11 vinninga af 12 mögu-
legum. Hann vann í 10 skákum
og gerði tvö jafntefli. Þetta er
annað árið í röð sem Rúnar
sigrar á Startmótinu.
í öðru sæti á Startmótinu, sem
var hraðskákmót, varð Smári
Ólafsson nteð 9'/2 vinning og í
þriðja sæti varð Sigurjón Sigur-
björnsson með 9 vinninga.
Á sunnudaginn var haldið 15
mínútna mót og þar sigraði Rún-
ar glæsilega. Hann fékk 7 vinn-
inga af 7 mögulegum, eða fullt
hús. Þorleifur Karlsson varð ann-
ar með 6 vinninga og Skapti Ingi-
marsson varð í þriðja sæti með 5
vinninga.
Af öðrum félögum í Skákfélagi
Akureyrar er það að frétta að
Pálmi Pétursson stóð sig vel á
Bikarmóti Taflfélags Reykjavík-
ur. Hann varð í þriðja sæti á eftir
þeim Magnúsi Sólmundarsyni og
Héðni Steingrímssyni. SS
JJWIA
HEILSUQÆSLUSTÖÐIN A AKUREVRI
Influensubólusetning
Á næstunni mun íbúum á þjónustusvæði Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri gefinn kostur á
bólusetningu gegn influensu.
Sérstaklega er mælt með að aldraðir og þeir sem
eru haldnir langvinnum sjúkdómum fái bólusetningu.
Þeir sem óska bólusetningar eru beðnir að hafa
samband við heimilislækni sinn fyrir 3. nóvember
nk. í síma 22311 á heilsugæslustöðinni.
Kjördæmisþing
Norðurlands eystra
Kjördæmisþing Alþyðuflokksíns í Norðurlandskjör-
dæmi eystra verður í Alþýðuhúsinu Skipagötu 14
Akureyri laugardaginn 28. október og hefst kl.
10.00.
Dagskrá:
1. Þingsetning.
2. Efling atvinnulífs og aukin tengsl við Evrópu.
Framsögumaður: Jón Sigurðsson ráðherra.
3. Stjórnmálaviðhorfið.
Framsögumaður: Árni Gunnarsson alþingismaður.
4. Sveitarstjórnarkosningar.
Framsögumenn: Freyr Ófeigsson og Gísli B. Hjartar-
son bæjarfulltrúar.
5. Önnur mál.
6. Þingslit.
Stjórnin.
Kjotbuðingur
aðeins kr. 465,- kg.
Paprikupylsa
aðeins kr. 495,- kg.
Haway-pylsa
aðeins kr. 842,- kg.
Tilboðtö stendur aðeins
fimmtudag og föstudag
Blanda Vz lítri
verð kr. 49,-
Kjörbúð KEA
Brekkugötu 1