Dagur - 26.10.1989, Síða 11
Fimmtudagur 26. október 1989 - DAGUR - 11
fþróttir
ión Örn hcfur náð sér ótrúlega fljótt af meiðslunum og verður með gegn
Grindavík í kvöld kl. 19.30. Mynd: kl
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Tindastóll lagði ÍR
Tindastóll vann öruggan sigur
86:80 á ÍR-ingum í Úrvals-
deildinni í körfuknattleik í
Seljaskóla. Sigur Sauðkræk-
inga var öruggari en tölurnar
gefa í skyn, því rétt fyrir leiks-
lok höfðu þeir 13 stiga forskot,
82:69.
ÍR skoraði fyrstu körfuna í
leiknum og var það í eina skiptið
sem þeir voru yfir. Tindastóll
skoraði síðan margar körfur í röð
og náði öruggri forystu 20:7. En
IR-ingar gáfust ekki upp og
minnkuðu muninn í 3 stig 17:20.
f>á keyrðu Sauðkrækingar upp
hraðann og náðu aftur öruggri
forystu 30:19, en ÍR-ingar
minnkuðu aftur muninn í 33:30.
En hálfleikstölur voru 42:32
Tindastóli í vil.
Gestirnir settu í annan gír í
síðari hálfleik og voru komnir
með yfirburðarstöðu rétt fyrir
leikslok 82:69 þegar kæruleysi fór
að gera vart við sig og ÍR gerði 11
stig í röð. En munurinn var of
mikill fyrir Reykvíkingana og
lokatöiur því 86:80 fyrir Tinda-
stól og stigin fóru því norður til
Sauðárkróks.
- 86:80 í Reykjavík
Valur Ingimundar.son átti mjög góð-
an leik gegn ÍR.
Besti maður Tindastóls í þess-
um leik var Valur Ingimundarson
og var þetta besti leikur hans á
þessu keppnistímabili. Einnig var
Bo Heiden sterkur að vanda.
Sverrir Sverrisson hélt Karli
Guðlaugssyni langskyttu ÍR-inga
vel niðri og Sturla Örlygsson lék
vel þrátt fyrir villuvandræði.
Einnig stóð knattspyrnumaður-
inn Ólafur Adólfsson sig vel þann
tíma sem hann var inni á vellinum
en hann er nýbyrjaður að leika
með liðinu.
Hjá ÍR bar mest á þeim Birni
Steffensen og Thomasi Lee þjálf-
ara.
Dómarar voru þeir Árni F.
Sigurlaugsson og Bergur Stein-
grímsson og höfðu þeir ekki
nægilega góð tök á leiknum.
bjb/AP
Stig IR: Björn Steffensen 21, Karl
Guðlaugsson 21, Thomas Lee 20, Bragi
Reynisson 10, Jóhannes Sveinsson 5.
Björn Leósson 3.
Stig Tindastóls: Valur lngimundarson
30, Bo Heiden 27, Sverrir Sverrisson 9,
Sturla Örlygsson 8, Björn Sigtryggsson 8,
Ólafur Adólfsson 4.
Knattspyrna:
Þorsteinn
með ÍBK?
Keflvíkingar hafa rætt við Þor-
stein Olafsson um að hann taki
að sér þjálfun ÍBK-liðsins í
knattspyrnu á næsta ári.
Þorsteinn staðfesti að viðræður
hefðu átt sér stað. „Maður ber
Karfa:
Getum alveg unnið Grindavík
- segir Jón Örn Guðmundsson sem leikur með Þór í kvöld
eftirleikurinn auðveldur fyrir
okkur. Petta veltur að vísu mikið
á stuðningi áhorfenda því þeir
geta verið sjötti leikmaðurinn
inni á vellinum fyrir okkur,“
sagði Jón Örn Guðmundsson
leikmaður Þórs í körfuknattleik.
Áhorfendum er bent á að
leikurinn byrjar kl. 19.30 í kvöld.
Búið er að fresta leikjum KR og
Reynis og ÍBK og Hauka sem
vera áttu í kvöld vegna Evrópu-
leiks KR við franska liðið Ortez
þar sem Haukamaðurinn Bow
leikur með KR-liðinu í Evrópu-
keppninni.
Þórsarar mæta Grindvíkingum
í Úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik í kvöld í íþróttahöllinni á
Akureyri kl. 19.30. Jón Örn
Guðmundsson hefur náð sér
ótrúlega fljótt af þeim meiðsl-
um sem hann hlaut í leiknum
gegn ÍR og verður með Þórs-
liðinu í kvöld.
Jón Örn sagðist hafa farið til
sjúkraþjálfara tvisvar á dag síðan
á sunnudaginn en á þriðjudaginn
leit samt ekki út fyrir að hann
myndi ná sér svona fljótt. En
geislameðferð sem hann fór í
hafði ótrúlega góð áhrif og sagð-
ist Jón fastlega reikna með að
spila í kvöid.
Jón Örn gekk til liðs við Þór í
haust en hann hafði leikið alla
sína körfuknattleikstíð með ÍR.
Jón Örn var spurður að því
hvernig tilfinning það væri að
leika gegn sínu gamla félagi.
„Það er vægast sagt mjög skrýtin
tilfinning því ég hef aldrei leikið
með öðru félagi en ÍR. Þegar
hraðinn var sem mestur undir lok
leiksins á sunnudaginn og ÍR-
ingarnir pressuðu á okkur mun-
aði örlitlu að ég færi að hjálpa
þeim,“ sagði Jón Örn og brosti.
Jón stundar nú nám við VMA
á viðskiptabraut og sagðist kunna
mjög vel við sig hér á Akureyri.
„Það er rólegt og gott að búa
hérna og ég kann vel við mig í
herbúðum Þórsara.“
Þórsarar spila mikilvægan leik
gegn Grindvíkingum í kvöld og
Jón Örn er bjartsýnn fyrir leik-
inn. „Grindvíkingar eru með bar-
áttulið sem gefst aldrei upp. Eí
við náum að halda þeim niðri
framan af leiknum gæti það farið
í taugarnar á þeim og þá verður
Knattspyrna:
alltaf taugar til síns gamla félags
og það væri gaman að þjálfa
ÍBK-liðiö. Þetta veltur þó á
atvinnumöguleikum fyrir sunn-
an,“ sagði Þorsteinn sem er
menntaður efnafræðingur.
Þorsteinn lék í marki ÍBK um
margra ára skeið áður en hann
hélt til Svíþjóðar þar sem hann
stundaði nám og lék með Gauta-
borgarliðinu í knattspyrnu.
Þorsteinn Ólafsson.
VMA vannMA
- í bæði karla- og kvennaflokki
VMA sigraði MA í bæði karla
og kvennaflokki í Framhalds-
skólamóti KSI í knattspyrnu. í
kvennaflokki hafði VMA
mikla yfirburði og sigraði 4:0
en í karlaflokki var baráttan
mun jafnari en VMA liafði
betur og sigraði 4:3.
Mjög góð þátttaka er í Fram-
haldsskólamótinu og taka 22
karlalið og 10 kvennalið þátt að
þessu sinni. I karlaflokki eru
VMA, MA, Fjölbraut á Sauðár-
króki, Framhaldsskólinn á
Húsvík og Menntaskólinn á
Egilsstöðum saman í riðli en í
kvennaflokki eru það MA, VMA
og Fjölbraut á Sauðárkróki.
í strákaleiknum milli VMA og
MA gerðu Hlynur Birgisson,
Árni Þór Árnason, Sigurpáll Á.
Aðalsteinsson og Jónas Baldurs-
son mörkin. Fyrir MA setti Sigl-
firðingurinn Gunnlaugur Birgis-
son tvö mörk og Þórir Áskelsson
eitt.
Mörk VMA í kvennaflokki
settu Arndís Ólafsdóttir, íris
Thorleifsdóttir, Sigríður Páls-
dóttir og Lára Eymundsdóttir.
Golf:
Uppskeruhátíð GA
- a laugardaginn
Skemmtinefnd Golfklúbbs
Akureyrar hefur ákveðið að
halda uppskeruhátíð laugar-
dagskvöldið 28. október. Boð-
ið verður upp á kvöldverð,
skemmtiatriði og dans.
Þeir sem hugsa sér að mæta á
þessa uppskeruhátíð GA eru
vinsamlegast beðnir að láta vita í
síma 22974, milli 17.-19., á morg-
un föstudag 27. október.
°%ZA IsiSWNf'
Kvennalið Þórs í handknattleik og Pizza-Elefant/Bleiki Fíllinn hafa gert með sér auglýsingasamning þannig að Þórs-
stúlkurnar keppa í bóninguni merktuni þessum fyrirtækjum. Að sögn Antonio Campos, eins af eigendum fyrirtækj-
anna, segist hann vonast til að báðir aðilar hafi hag af þessunt samningi og að ástæðan fyrir því að þeir auglýsi á
íþróttabóningum sé áhugi þeirra á framgangi íþrótta á Akureyri. Á myndinni sjást Þórsstúlkurnar í þessum nýju
bóningum ásamt Antonio, Hlyn og Andra eigendum fyrirtækjanna og Gunnari Gunnarssyni þjálfara Þórsliðsins.