Dagur - 22.11.1989, Qupperneq 1
72. árgangur Akureyri, miðvikudagur 22. nóvember 1989 224. tölublað
A//t fyrir'
errabodin
HAFNARSTRÆTI 92 602 AKUREYRI SiMI 96 26708 BOX 397
Líf að færast í tuskumar á loðnumiðunum:
„Það er eins og loðnan
komi upp úr botninunf
- segir Bjarni Bjarnason á Súlunni EA
„Jú, hér eitthvað að sjá en
loðnan er bara neðarlega
ennþá. Yið köstum þó eftir
stutta stund,“ sagði Bjarni
Bjarnason, skipstjóri á Súlunni
EA-300 í gær en skipið var þá
á loðnumiðunum suðaustur af
Kolbeinsey.
Súlan fékk 250 tonn af loðnu í
Nauðsynlegt að
móta íþrótta-
stefnu fyrir
Akureyrarbæ
Iþróttamál komu til umræðu
Bæjarstjórnar Akureyrar t
gær vegna tillögu sem Þórar-
inn E. Sveinsson, varabæjar-
fulltrúi Framsóknarflokksins,
flutti um stefnumótun í
íþróttamálum.
í tillögunni, sem vísað var til
bæjarráðs, lagði Þórarinn til að
bæjarráð myndi fela ÍBA,
íþróttaráði og íþróttafélögum í
bænum að móta sameiginlega
stefnu um uppbyggingu og rekst-
ur íþróttastarfsins á Akureyri.
Þórarinn sagði á fundinum að
ef bæjarfélagið mótaði ekki
ákveðna stcfnu í þessum mála-
flokki myndu íþróttamenn
bæjarins fljótlega dragast aftur
úr vegna aðstöðuleysis. Nauð-
synlegt væri að Akureyri hcldi
áfram þeirri forystu sem
almennur vilji væri fyrir, og
legöi meiri kraft í áframhald-
andi uppbyggingu, bæði fyrir
keppnisíþróttir og svonefndar
ahnenningsíþróttir. Samtímis
verði hafnar viöræður við Þór
og KA um byggingu og rekstur
íþróttamannvirkja á félags-
svæðum þeirra.
„Ég hef fylgst með ótrúlegu
uppbyggingarstarfi hinna ýmsu
félaga í bænum, bæði hvað
aimennings- og keppnisíþróttir
snertir. í dag finnst mér nauð-
synlegast að klára þá íþróttaað-
stöðu sem er í uppbyggingu á
vegunt stóru félaganna tveggja;
þ.e. íþróttahús á vegum KA/
Lundarskóla og félagsheimili
Þórs í Glerárhverfi. Auk þess
veröi könnuð þörf annarra
íþróttafélaga á aðstoð til upp-
byggingar," segir Þórarinn. EHB
fyrrinótt þrátt fyrir að skipin
gætu ekki athafnað sig fyrr en
seint vegna veðurs. Veðrið gekk
niður í gær og leit út fyrir góða
veiði í gærkvöld. Flotinn var nær
allur kominn á miðin í gær.
„Loðnan er dálítið dreifð núna
en á stærra svæði en oft áður.
Menn klóra sér mest í skallann
hér á slóðinni yfir því hvaðan
þessi loðna kemur. Ég held að
það viti enginn. Þetta fannst bara
upp úr þurru hér þrátt fyrir að
rannsóknaskip og loðnuskip hafi
leitað allt í kring. Það er eins og
þetta komi upp úr botninum.
Jafnvel gamlir loðnuhundar sem
búnir eru að vera í 20 ár geta ekki
svarað því af hverju þetta gerist.
Það ætti að fara að láta einhverja
af þessum háskólaborgurum í
loðnusálfræði rannsaka hegðun
loðnunnar núna,“ sagði Bjarni.
JÓH
í gær var haldinn fjölmennur borgarafundur í Sjallanum um atvinnumál á Akureyri, en atvinnumálanefnd bæjarins
stóö fyrir fundinum. Atvinnumál eru í brennidepli vegna óvissuástands sem skapast hefur undanfarnar vikur og
mánuði og stóraukins atvinnuleysis. Mynd: KL
Staðan í byggingariðnaðinum á Akureyri:
Frjálsi markaðurinn lamaður og
seinagangur í félagslega kerfinu
- uppsteypa fjölbýlishúsa dregst fram á frostkaldan vetur
Á Akureyri er verið að steypa
upp fjölbýlishús þótt komið sé
fram á vetur. Enn hefur ekki
verið gengið endanlega frá
úthlutun íbúða fyrir Verka-
mannabústaði til bygginga-
verktaka og er það megin-
ástæðan fyrir því að verktakar
berjast nú í steypuvinnu í frost-
kaldri tíð í stað þess að vinna
við frágang innanhúss. Verka-
mannaíbúðirnar virðast vera
grundvöllur fyrir byggingar-
iðnaði á Akureyri, frjálsi
markaðurinn er lamaður.
Þetta eru helstu niðurstöður af
yfirferð Dags á byggingamarkað-
inum á Akureyri. Sigurður Jóns-
son hjá Meistarafélagi bygg-
ingamanna sagði t.a.m. að þessi
dráttur á úthlutun verkamanna-
íbúða kæmi sér mjög illa, upp-
steypa um hávetur væri bæði
kostnaðarsöm og varhugaverð. í
sama streng tók Haraldur
Júlíusson, byggingaverktaki.
„Akureyrarbær sótti um 40
verkamannaíbúðir í ár þannig að
hann hefur ætlað sér að láta
byggja þær. Eftir því sem ég best
veit fékk bærinn svar frá Hús-
næðisstofnun í ágúst en samt hef-
ur ekki verið gengið til samninga
Óhappið hjá Árlaxi á Kópaskeri:
Breytír ekkí áhuga á að ljúka
uppbyggingu stöðvarinnar
Fiskurinn sem drapst hjá
Arlaxi í Kelduhverfí aðfara-
Mælskukeppni framhaldsskólanna:
MA í fjögurra liða úrslit
Lið Menntaskólans á Akureyri
hefur tryggt sér þátttökurétt í
4ra liða úrslitum í Mælsku-
keppni framhaldsskólanna.
Sigraði lið MA lið Fjölbrautar-
skólans á Suðurnesjum í 8 liða
úrslitum sl. föstudagskvöld, en
hafði áður sigrað lið MH.
Þetta verður að teljast hinn
besti árangur hjá nemum MA en
þeir eru nú ásarnt liðum Verslun-
arskólans, MR og Fjölbrautar-
skólans í Garðabæ í 4ra liða úr-
slitum sem fram fara í febrúar á
næsta ári.
Lið MA er skipað fjórum
mönnum, frummælandi og 1.
ræðumaður er Þorvaldur Lúðvík
Sigurjónsson, meðmælandi og 2.
ræðumaður er Hjörvar Péturs-
son, stuðningsmaður og 3. ræðu-
maður er Unnur Mjöll Donalds-
dóttir og liðsstjóri er Hjördís
Halldórsdóttir. VG
nótt mánudags fór allur í físki-
mjölsverksmiðjuna á Raufar-
höfn. Þetta var gert að ósk
fulltrúa tryggingafélags stöðv-
arinnar. Tjónið í þessu óhappi
nemur um 4 milljónum króna
en fískurinn sem drapst átti að
koma til slátrunar í vetur.
Ástæða óhappsins er sú að
dæla bilaði án þess að öryggis-
búnaður sem settur var upp til
bráðabirgða færi í gang.
Eins og blaðið hefur skýrt frá
er áhugi hjá veðhöfum á að ljúka
uppbyggingu stöðvarinnar og
selja hana síðan. Nú er mjög far-
ið að þrengja að seiðaeldisstöð-
inni í Ártungu og verður á næstu
dögum að taka ákvörðun um
endanlega uppbyggingu á Kópa-
skeri svo þangað megi flytja
seiði.
Örlygur Hnefill Jónsson,
þrotabússtjóri Árlax, segist von-
ast til að þetta óhapp breyti ekki
áhuga veðhafa á að uppbyggingu
stöðvarinnar verði haldið áfram.
„í Ártungu eru 67 þúsund fiskar
sem ættu að verða 1,2 kg. í júní
og nú er lífsspursmál að þeir
komist í betra rými. í dag funda
veðhafar um þetta mál og þar
verður rætt um að gera svæðið á
Kópaskeri þannig að það geti
tekið við fiskinum úr Ártungu,“
segir Örlygur Hnefill. JÓH
við verktaka um seinni skammt-
inn af þessum íbúðum fyrr en nú,
þegar desember er á næstu
grösum. Verktakar hafa beðið í
allt sumar, sumir með grunna eða
hálfbýggð hús,“ sagði Haraldur.
Fyrirtækið Haraldur og Guð-
laugur hf. hefur verið með 25
íbúðir í smíðum á þessu ári, 5
íbúðir í raðhúsi við Múlasíðu, 15
íbúðir í ljölbýlishúsi við Mela-
síðu og þá er verið að ljúka við
uppsteypu á 5 íbúða raðhúsi við
Vestursíðu. Haraldur sagðist
hafa selt 16 íbúðir af þessum 25 í
verkamannabústaðakerfinu, átta
þeirra reyndar á síðasta ári.
„Frjálsi markaðurinn er í rusli
og þá verða verktakar að treysta
á félagslega kerfið. Það er lífs-
nauðsyn fyrir verktakana að fá
svör fyrr, til að þeir geti farið af
stað. Nú er komið 10-15 stiga
frost og það er klikkun að standa
í uppsteypu við þessar aðstæður.
Þetta er líka hrikalega dýrt.
Verktakarnir eru ekki að berjast
við bæinn eða Verkamannabú-
staði, þessir aðilar eiga að vinna
saman, en ástandið er að drepa
okkur eins og það er í dag,“ sagði
Haraldur.
Haraldur og Guðlaugur kusu
að btða ekki eftir endanlegu svari
og byggðu fjölbýlishús við Mela-
síðu síðastliðið vor. Þær íbúðir
verða tilbúnar um næstu mánaða-
mót. Verkamannabústaðir
keyptu 12 en 3 seldust á almenn-
um markaði. Á sömu slóðum er
Fjölnir sf. að steypa upp fjölbýl-
ishús og uppsteypa fjölbýlishúss
er nýlega hafin hjá Aðalgeiri
Finnssyni hf. SS