Dagur - 22.11.1989, Side 11
Miðvikudagur 22. nóvember 1989 - DAGUR - 11
í DAGS-ljósinu
Skipasmíðaiðnaðurinn telur þörf á „tiltekt“ til að mæta tímabundinni niðursveiflu:
Dýrmætrí þekkingu má ekki kasta á glæ
Það hefur vart farið fram hjá nokkrum manni að íslenskur skipasmíða-
iðnaður á nú við alvarleg vandamál að etja. í stórum dráttum má segja að
erfiðleikarnir stafi fyrst og fremst af því að skyndiiega hefur eftirspurn
bæði nýsmíða- og viðgerðaverkefna hrunið. Forsvarsmenn skipasmíða-
stöðva líta svo á að hér sé um að ræða tímabundna erfiðleika en hins veg-
ar telja þeir að þær standi frammi fyrir meiri vanda en áður. Ástæðan er
sú að fyrirtækin eru vel flest fjárhagslega illa stödd eftir erfiða samkeppn-
isstöðu á tímum fastgengisstefnu og á sama tíma og almenn samkeppnis-
skilyrði eru að batna, standa þau frammi fyrir verulegum samdrætti
markaðarins.
Forráðamenn skipasmíða-
stöðva líta svo á að í þessari
stöðu þurfi sameiginlegt átak
skipasmíðaiðnaðarins sjálfs,
stjórnvalda og hagsmunaaðila í
sjávarútvegi til lausnar á vandan-
um. Á aðalfundi Félags dráttar-
brauta og skipasmiðja á Akureyri
um síðustu helgi var samþykkt
ályktun þar sem fram kemur að
fyrirtæki í þessum iðnaði þurfa
að hafa frumkvæði að ýmsum
hlutum í rekstrinum.
Fyrirtækin skoði sín mál
1. Fyrirtækin þurfa að leita
leiða til að sameinast eða að auka
samvinnu bæði við einstök verk-
efni og almennt. Huga þarf að
því, hvort hægt sé að fá fjársterka
aðila til að leggja fram fé í endur-
skipulögð skipaiðnaðarfyrirtæki.
2. Fyrirtækin þurfa að efla
verulega markaðsstarf sitt, bæði
á innlendum og eriendum mark-
aði. Jafnframt þarf að haída
áfram og víkka út sameiginlegt
markaðsátak á innlendum mark-
aði og vinna að því að útvega fé
til þess að færa það út á erlendan
markað einnig. Markaðsátak
þetta nái einnig til þess að leitað
verði eftir markaði eriendis fyrir
gömul skip.
3. Fyrirtækin þurfa að gera
átak í hagræðingu, þar sem lögð
verði áhersla á samspil verkáætl-
ana og hönnunar m.t.t. fram-
leiðslu og verkskipulags. Stjórn-
völd aðstoði við þetta starf með
því að auðvelda útvegun verk-
efna, sem eru nauðsynleg
forsenda þess að hægt verði að
vinna að slíku skipulagsstarfi
innan fyrirtækjanna.
4. Fyrirtækin þurfa að taka
upp verkáætlanir í ríkara mæli og
að athuga möguleika á sveigjan-
legri verðstefnu með það að
markmiði að jafna árstíðabundn-
ar sveiflur í eftirspurn. Þannig
má hvetja útgerðarmenn til að
dreifa viðhaldi skipa jafnar eftir
árstíðum.
Verkefni á þrotum um
áramót
Jósef Þorgeirsson, formaður
Félags dráttarbrauta og skipa-
smiðja, leggur á það áherslu að
skipasmíðastöðvarnar geti hag-
rætt með margvíslegum hætti.
Hann nefnir m.a. hvernig staðið
skuli að skipulagi verka, undir-
búningi þeirra og innkaupum og í
hvaða röð þau séu unnin. Jósef
segir að skipasmíðastöðvar vinni
nú þegar saman á ýmsum sviðum
og samvinnuna beri að auka.
„Það háir mörgum þessara fyrir-
tækja hversu fáa starfsmenn þau
hafa. Ef hægt er að auka sam-
vinnu fyrirtækja geta þau samein-
að krafta og tekist á við stærri
verkefni og á skemmri tíma en nú
er.“
Forsvarsmenn skipasmíða-
stöðva telja að vandi þeirra sé
tímabundinn. Þeir benda á að
flotinn sé í eldri kantinum og
mikið verk sé óunnið í endurbót-
um á honum. Staða sjávarútvegs-
fyrirtækja sé hins vegar slík um
þessar mundir að líkur séu á að
þau haldi sem kostur er að sér
höndum í endurnýjun flotans.
Verkefni dagsins í dag sé því að
finna ný verkefni fyrir stöðvarnar
næstu misseri. Samkvæmt upp-
lýsingum Félags dráttarbrauta og
skipasmiðja horfa flest fyrirtæki
til verkefnaþurrðar um áramót
eða í lok janúar. Eins og fram
hefur komið í fjölmiðlum eru
mörg járn í eldinum við að afla
stöðvunum verkefna. í því sam-
bandi er m.a. horft út fyrir land-
steinana. Nægir þar að nefna
þreifingar Stálvíkur í Arabalönd-
um og fyrirspurnir sovéskra
útgerðarfyrirtækja um möguleika
á að koma með skip til íslands til
viðgerða og þjónustu. Fljótt á lit-
ið virðist sem lagaákvæði frá
árinu 1922 standi í vegi fyrir að
þetta geti orðið að raunveru-
leika. I lögunum er bann lagt við
verkun og veiði erlendra skipa í
landi eða íslenskri landhelgi.
Jafnframt er útlendingum bann-
að að hafast við í landi eða í höfn
4000
3000--
2000--
1000
1986 1987
1988
ERLENDIS
INNANLANDS
1989 1990
Samanburður á endurbótum og nýsmíðum samtals, innanlands og erlendis
1986-1990 (í millj. kr. á verðlagi 1988). Heimild: Þjóðhagsstofann, áætlun
1989 og 1990.
til þess að reka þaðan fiskveiðar
utan landhelgi. Að mati sjávar-
útvegsráðuneytis er síðarnefnda
ákvæðið talið fela í sér bann við
því að útlendingar leiti hingað til
viðgerða á skipum sínum.
Stjórn Félags dráttarbrauta- og
skipasmiðja vinnur nú að úttekt á
lagaheimildum varðandi þetta
mál í samvinnu við Landssam-
band iðnaðarmanna. Meðal ann-
ars hefur verið aflað greinargerð-
ar frá norska sjávarútvegsráðu-
neytinu um skipan þessara mála
þar í landi.
Staðið verði betur að
undirbúningi verka
Jósef H. Þorgeirsson segir að
erlendir aðilar telji þjónustu
íslenskra skipasmíðastöðva ekki
of dýra enda hafi verið staðfest
að hún sé fyllilega samkeppnisfær
í verði við erlendar stöðvar. „Ég
bendi á að í 52 útboðum á endur-
bótaverkefnum á þriggja ára
tímabili sem boðin voru út á
alþjóðlegum markaði voru inn-
lendar stöðvar oftar í lægsta
verðflokki en erlendar. Þetta
þýðir með öðrum orðum að
íslensku stöðvarnar hafa haldið
verðinu niðri og veitt erlendu
stöðvunum harða samkeppni
hérlendri útgerð til hagsbóta."
Þorleifur Jónsson. fram-
kvæmdastjóri Landssambands
iðnaðarmanna, telur að ef næst
meiri stöðugleiki í skipasmíðun-
um og íslenskur skipasmíðaiðn-
aður fær í auknum mæli verkefni
erlendis frá muni með tíð og tíma
komast á nauðsynlegur stöðug-
leiki sem lækki sjálfkrafa verð á
þessari þjónustu. „Það ber að
leggja mikla áherslu á að standa
betur að undirbúningi verka
íslensku stöðvanna. Þar verða
útgerðarmenn að koma til
aðstoðar, ef má orða það svo.
Skipasmíðastöðvarnar verða að
hafa frumkvæði í að fá útgerðar-
menn til samstarfs. Menn eru til-
búnir til að setjast niður með
útgerðarmönnum og undirbúa
verk betur.
Eitt stærsta vandamál skipa-
smíðastöðvanna er árstíðabundin
sveifla í verkefnum. Fjóra mán-
uði á ári er mjög mikið að gera og
stöðvarnar anna ekki eftirspurn.
Hina átta mánuðina ríkir óvissa
um verkefni. Fyrir utan þetta
gera stöðugar efnahagssveiflur og
þar með sveiflur í sjávarútvegin-
um skipasmíðastöðvunum erfitt
fyrir. Nú er búin að eiga sér stað
mikil efnahagsholskefla og
reynslan sýnir að eftir slíka hol-
skeflu kemur dautt tímabil."
Sérfræðingar eru sammála um
að ekki sé með nokkru móti hægt
að áætla hversu lengi þessi niður-
sveifla varir. Þó búast flestir við
að hún verði með lengsta móti og
í því ljósi sé nauðsynlegt að hag-
ræða sem kostur er í rekstri skip-
asmíðastöðvanna. Guðmundur
Guðmundsson, verkfræðingur
hjá Landssambandi iðnaðarmanna,
bendir á það að það sé mjög
slæmur kostur að þurfa að fækka
mönnum enn frekar en orðið er í
þessari starfsgrein því að með því
sé kastað á glæ dýrmætri þekk-
ingu og hugviti starfsmanna sem
tíma taki að afla á nýjan leik.
Málið snýr líka að
stjórnvöldum
Vandi skipasmíðastöðvanna snýr
ekki bara að þeim sjálfum.
Stjórnvöld koma með beinum
eða óbeinum hætti að málefnum
þeirra. Á aðalfundinum um síð-
ustu helgi bar þessi mál á góma
og var um þau ályktað á eftirfar-
andi hátt.
1. Stjórnvöldum hefur ekki
tekist að minnka sveiflur í sjávar-
útvegi og þar með fjárfestingu í
útgerð og jafna þannig eftir-
spurn. Hér er um að kenna slakri
hagstjórn, sem áhrif hefur á allt
þjóðfélagið og er stærsta vanda-
mál skipaiðnaðarins til lengri
tíma litið.
2. Stjórnvöld hafa ekki staðið
við samþykkt ríkisstjórnarinnar
frá 2. september 1986 þar sem
kveðið er á um að leitað skuli til-
boða innanlands áður en lánveit-
ingar eru veittar og þau metin á
viðskiptalegum grundvelli, að
íslenskum skipaiðnaðarfyrirtækj-
um skuli standa til boða sambæri-
legar bankaábyrgðir og þegar
verkefni eru unnin erlendis og að
skipaiðnaðinum skuli gefinn
kostur á samkeppnislánum til að
mæta niðurgreiðslum frá eriend-
um fyrirtækjum.
3. Stjórnvöld hafa ekki leitast
við að svara erlendum styrktar-
aðgerðum óbeint t.d. með því að
auka mun á lánum til verkefna
innanlands og erlendis, þrátt fyrir
endurteknar ábendingar félagsins
um mikilvægi þess.
4. Stjórnvöld hafa ekki auð-
veldað innlendum skipasmíða-
stöðvum að taka notuð skip upp í
ný. Lagðar hafa verið fram tillög-
ur um hvernig endurnýjunarregl-
um skipa skuli háttað.
5. Stjórnvöld hafa ekki rutt úr
vegi hindrunum, fyrir því að
eriend skip geti komið til lands til
viðgerða og þjónustu. Hér er um
töluverða hagsmuni að ræða fyrir
fleiri atvinnugreinar en skipaiðn-
að.
6. Ekki er gert ráð fyrir því í
fjárlagafrumvarpi að uppsafnað-
ur söluskattur verði greiddur út
nema vegna hluta af yfirstand-
andi ári.
7. Stjórnvöld hafa enn ekki
komið því til leiðar að endur-
greiðslur á aðflutningsgjöldum
vegna viðgerða og endurbóta á
skipum séu fullnægjandi til að
tryggja eðlileg samkeppnisskil-
yrði að þessu leyti.
8. Með aðgerðarleysi sínu eru
stjórnvöld að leggja stein í götu
framkvæmda innanlands, þess
vegna er eftirspurn sem fyrir
hendi er fullnægt eriendis. óþh
ARCTKCAT
Lítið notaðir sleðar
á góðu verði
★
Cougar '89
Cheetha '89 ónotuð
Wild Cat '89
★
Greiðsluskilmálar
Höldursf.
söludeild,
Tryggvabraut 10, sími 27385