Dagur - 15.12.1989, Side 1
72. árgangur
Akureyri, föstudagur 15. desember 1989
241. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdaegurs
GULLSMIÐiR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Þrotabú trésmiðjunnar Vinkils:
Tiíboði í húseign
og vélar hafnað
Tilboði í húseign og vélar þrota-
bús trésmiðjunnar Vinkils á
Akureyri hefur verið hafnað af
bústjóra þrotabúsins, Ásgeiri
Björnssyni. Samkvæmt heim-
ildum blaðsins stóðu að þessu
tilboði nokkrir fyrrverandi
starfsmenn trésmiðjunnar
ásamt tveimur öðrum aðilum.
Aðspurður hvort mikið hafi
vantað upp á að tilboðið væri
aðgengilegt segir Ásgeir
Björnsson, bústjóri, að tilboðs-
gjafar hafi verið ófáanlegir til að
Akureyri:
Brotist inn í KEA
og Gagnfræðaskólann
Tvö innbrot voru framin á
Akureyri í fyrrinótt, annað í
Gagnfræðaskóla Akureyrar
þar sem unnin voru
skemmdarverk en hitt var í
kjörbúð KEA í Byggðavegi.
Þar var stolið um 100 þús-
und krónum í peningum.
Tvær ungar stúlkur voru
handteknar, grunaðar um
innhrotin, og voru þær í
yfirheyrslu hjá rannsóknar-
lögreglunni þegar Dagur
lcitaði upplýsinga þar í gær.
' Að sögn Daníels Snorrason-
ár, fulltrúa hjá rannsóknarlög-
reglunni, var aðkoman í Gagn-
fræðaskólanum óskemmtileg í
gærmorgun. Brotist var inn
um glugga í skólanum og það-
an fóru viðkomandi rakleiðis
inn á skrifstofu skólastjóra og
unnu þar spellvirki, en engu
mun hafa verið stolið.
Möppum og bókurn í skrif-
stofu skólastjóra var sópað úr
hillum og dreift yfir gólfið.
Bleki var hellt yfir skjölin og
þá höfðu viðkomandi skrifað
ýmis ókvæðisorð með túss-
pcnna á veggi og hurðir skrif-
stofunnar, auk þess sem skóla-
bjallan var skemmd.
Stúlkurnar sem voru í yfir-
heyrslu í gær voru grunaðar
um bæði innbrotin og þá var
rannsóknarlögreglan að kanna
hugsanleg tengsl við óupplýst
innbrot í Gagnfræðaskóla
Akureyrar fyrr í vetur þegar
töluverðar skemntdir voru
unnar í skrifstofum kennara
og skólastjóra. SS
Hvað segja þeir
umálver
við Eyjaflörð?
Ertu hlynntur byggingu álvers
við Eyjafjörð? Er bygging
álvers við Eyjafjörð raunhæf-
ur möguleiki? Dagur leitaði
svara við þessum áleitnu
spurningum hjá ýmsurn sveit-
arstjórnarmönnum á Eyja-
fjarðarsvæðinu svo og þing-
mönnum Norðurlandskjör-
dæmis eystra.
Sjá miðopnu.
hækka tilboð sitt og það því fallið
um sjálft sig. Ásgeir vildi hins
vegar ekki svara þeirri spurningu
hvort önnur tilboð hafi borist í
eignir búsins.
„Eignirnar eru allar til sölu enn
og ég vil ekki selja neitt úr búinu
meðan óreynt er hvort búið selst
í heilu lagi. Það er fýsilegri kost-
ur að reyna að selja fasteignir og
vélar saman í þeim tilgangi að
þarna verði áfrant svipaður
rekstur. Þessi leið verður reynd
fram að skiptafundi sem haldinn
verður 21. febrúar en verði eignir
og vélar óseldar þá mun skipta-
fundur taka ákvörðun um fram-
haldið,“ segir Ásgeir Björnsson.
JÓH
Sjávarútvegsbraut Háskólans á Akureyri:
Akveðið að brautin taki til
starfa 4. janúar á næsta ári
- væntanlegir nemendur boðaðir þann dag til viðtals í skólanum
Eins og Dagur skýrði frá í vik-
unni komu engar tillögur frá
fjárveitinganefnd um aukin
framlög til Háskólans á Akur-
eyri við aðra umræðu um fjár-
lög fyrir næsta ár. Beðið er
þriðju umræðu um fjárlögin
sem áætluð er á þriðjudag í
næstu viku. Þrátt fyrir óvissu
með fjárveitingar til skólans
hefur HA sent bréf til væntan-
legra nemenda sjávarútvegs-
brautar þar sem tekið er fram
að brautin taki til starfa 4.
janúar nk.
Samkvæmt upplýsingum sem
Dagur aflaði sér í gær ríkir enn
mikil óvissa um hvernig staðið
Heilbrigðisnefnd Dalvíkur:
Óttast flugur, lykt, rottur
og mýs frá Böggvisstaðabúinu
- Valdimar Brynjólfsson hefur sent bústjóra Pólarpels
bréf um málið
Valdimar Brynjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftir-
lits Eyjafjarðar, hefur fyrir
hönd heilbrigðisnefndar Dal-
víkur ritað bréf til bústjóra
þrotabús Pólarpels þar sem
þess er getið að nefndin áskili
sér rétt til að krefjast þess að
allur úrgangur frá Böggvis-
staðabúinu verði fjarlægður í
vor. Afrit bréfsins var sent til
bæjarstjórans á Dalvík og
sýslumannsins í Eyjafjarðar-
sýslu.
Eins og kómið hefur fram er
nú lokið við að lóga öllum dýrum
á Böggvisstöðum og að öllu
óbreyttu verður þar ekki rekið
loðdýrabú á næstu mánuðum.
Heilbrigðisnefnd Dalvíkur óttast
að í ljósi þess verði ekki hirt um
að fjarlægja úrgang og uppfylla
kröfur um þrifnað. Mörg undan-
farin ár hefur þess gætt á vormán-
uðum, með hækkandi hitastigi,
að fluga hafi kviknað vegna úr-
gangs á Böggvisstöðum. Flugan
hefur oftar en ekki herjað á Dal-
víkinga við lítinn fögnuð. „Menn
hafa bæði áhyggjur af flugnageri
og að lykt gjósi upp og leggi yfir
bæinn í vor. Þá óttast menn að ef
þess verði ekki gætt að hreinsa
nægilega vel út úr skálunum
kunni rottur og mýs að sækja í að
vera þar.“
Valdimar segir ekki ástæðu til
að gera kröfu um að fjarlægja
skítinn nú en hins vegar áskili
menn sér rétt til að gera kröfu um
að hann verði fjarlægður í vor.
óþh
Klettur, félag smábátaeigenda:
Vill halda banndagakerfinu
Klettur, félag smábátaeigenda,
telur að halda beri áfram með
banndagakerfið og félagið
krefst þess að við úthlutun
kvóta verði tekið mið af árinu
1989.
Þetta kemur m.a. fram í sam-
þykkt félagsfundar í Kletti á
Akureyri sl. sunnudag. í ályktun
fundarins er þess krafist að
mönnum verði frjálst að velja til
viðmiðunar tvö ár af fjórum, það
er 1986-1989. Síðan segir: „Allt
frá árinu 1981 hefur afli á smá-
báta á Norðurlandi verið afar rýr,
sbr. grein Arnar Pálssonar í 4.
tbl. Ægis 1989. Þar af leiðir að
kvóti margra smábátaeigenda er
mjög rýr og má benda á í því
sambandi að kvóti Lófótlínuveiði-
manna í Eyjafirði er í sumum til-
fellum langt neðan við svokölluð
hungurmörk. Því lítur fundurinn
svo á, að við úthlutun á aflaupp-
bót (ef til kemur) til báta undir
svokölluðu meðaltali hvers
stærðarflokks, að rétt sé að út-
hluta smábátaeigendum á
Norðurlandi sérstökum viðbótar-
kvóta, sem kæmi eins og uppbót,
þannig að meira samræmis gæti í
kvótastærð um land allt.“ óþh
verður að fjármögnun sjávar-
útvegsbrautarinnar. Viðmælend-
ur Dags töldu þó öruggt að í það
minnsta yrði tryggt fjármagn til
þess að brautin færi af stað með
bóklegri kennslu um áramót eins
og ríkisstjórnarsamþykkt gerði
ráð fyrir. Um hitt ríkir meiri
óvissa hvernig staðið verði að
húsnæðismálum fyrir rannsókn-
araðstöðu við skólann. Rætt hef-
ur verið um leigu húsnæðis til
bráöabirgða og kaup á nauðsyn-
legum tækjum til rannsókna sem
fyrsta skref og yrði þeirri aðstöðu
komið á laggirnar fyrir haustið
1990. Þá eru einnig sterkar raddir
um það í þinginu að nemendur
verði sendir utan til verklegs
náms. í því sambandi hefur
háskólinn í Tromsö oftast heyrst
nefndur. Margir eru mjög efins
um að þessi leið sé fær. Á það er
bent að án verklegrar kennslu
hér heima sé brautin hvorki fugl
né fiskur og nær væri að nemend-
ur sæktu áfram allt nám í sjávar-
útvegsfræðum út fyrir landstein-
ana.
Þrátt fyrir að ekki liggi fyrir
endanlegar tillögur fjárveitinga-
valdsins um fjármögnun sjávar-
útvegsbrautarinnar hefur
Háskólinn á Akureyri sent bréf,
dagsett 12.12. 1989, til væntan-
legra nemenda skólans þar sem
þeim er greint frá því að hún taki
til starfa 4. janúar nk. Orðrétt
segir:
„Vegna fréttaflutnings
undanfarna daga vill Háskólinn á
Akureyri eyða öllum vafa um
starfsemi sjávarútvegsdeildar.
Deildin tekur til starfa þann 4.
janúar 1990 kl. 13.15. Væntanleg-
tr nemendur eiga þá að mæta í
hús Háskólans við Þórunnar-
stræti. Kennsla hefst síðan vænt-
anlega 5. janúar.“
óþh