Dagur - 15.12.1989, Blaðsíða 15

Dagur - 15.12.1989, Blaðsíða 15
Föstudagur 15. desember 1989 - DAGUR - 15 Póst- og símamálastofnunin: Almennt gagnahólfa- og skeytaflutningskerfi í byrjun næsta árs mun Póst- og símamálastofnun hefja nýja þjónustu til tölvusamskipta fyrir fyrirtæki og aðra notendur hins almenna símakerfis. Þessi þjón- usta, sem nefnd er gagnahólf og skeytaflutningur er útbreidd er- lendis einkum í Evrópu og Bandaríkjunum og er gert ráð fyrir að notkun gagnahólfa fari ört vaxandi. Ástæðan fyrir auk- inni notkun er að samþykktur hefur verið alþjóðlegur staðall (X.400) fyrir gagnahólfa- og skeytaflutningskerfi. Þessi staðall opnar möguleika til samskipta milli tölva mismunandi framleið- enda, en vandkvæði hafa verið á slíku fram að þessu. Gagnahólf gera þeim aðilum kleift, sem á þurfa að halda, að skiptast á hvers konar tölvugögn- um án tillits til hvort þeir nota sams konar tölvubúnað eða ekki. Með tölvugögnum er átt við tölvutækar upplýsingar s.s. texta, myndir, viðskiptaskjöl eða annað. Auk þess getur áskrifandi gagnahólfs haft samskipti við notendur annarra fjarskiptamiðla t.d. sent telex, telefax og látið prenta og bera út skeyti sín til viðtakanda. Þar sem gagnahólf allra landa munu fylgja sama staðli verður auðvelt að senda skilaboð hvert sem er í heiminum og nánast hverjum sem er og vegna teng- ingar við telex og telefaxbúnað einnig þeim sem eru ekki notend- ur gagnahólfa. Til að nota gagnahólf þarf ein- göngu einkatölvu ásamt mótaldi og samskiptahugbúnaði. Einka- tölvan, sem er til í flestum fyrir- tækjum getur því leyst telex af hólmi og síðar einnig telefaxtæki. I upphafi verður þó eingöngu hægt að senda telefax frá kerfinu til telefaxtækja. Þjónusta, sem veitt er af gagnahólfakerfum er ekki ósvip- uð venjulegri póstþjónustu. Sendandi vinnur „bréf“ sitt á tölvunni, tiltekur nafn og heim- ilisfang viðtakanda og setur bréf- ið í gagnahólf. Kerfið flytur og afhendir bréfið viðtakanda ásamt nafni og heimilisfangi sendanda. Ef sendandi óskar geta fleiri en einn viðtakandi fengið bréfið. Kerfinu er sama hvert innihald bréfsins er. Því er hugsanlega unnt að flytja í sama bréfi teikn- ingar, stafrænt tal og uppsett við- skiptaskjöl. Viðtakandi skeyta þarf ekki að tengjast kerfinu samtímis send- anda, þar sem kerfið tekur við skeytum og geymir eftir þörfum. Komist skeyti af einhverjum ástæðum ekki til skila er send- andi látinn vita. Gagnahólfakerfið, sem sett verður upp hér byggir á SYST- EM/88 tölvubúnaði frá IBM, sem hefur mun meira rekstraröryggi en algengt er um tölvubúnað. Allar einingar í tölvunni eru tvö- faldar og sama á einnig við um vinnsluna, t.d. eru öll skeyti skráð á sitt hvorn diskinn. Hugbúnaðurinn er keyptur frá breska fyrirtækinu ICL. ICL er þekkt fyrirtæki og stendur fram- arlega í gerð hugbúnaðar fyrir tölvufjarskipti. Tilkynning til sölu- skattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því að gjalddagi söluskatts fyrir nóvember er 15. desember. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkis- sjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið. egustu skemmtidagskrá fyrr og síðar - í höfuðstað Norðurlands Veislustjóri: Rósa Ingólfsdóttir Hátíðarmatseðill Ingimars Eydal leikur fyrir dansi „Sem sagt hið besta mál“ Fögnum nýjum áratug með glæsibrag Miðasala og borðapantanir daglega ísíma 22770 Lokað! Vegna vörutalningar verður lager Efna- verksmiðjunnar Sjafnar við Austursíðu lokaður 28. og 29. des. Gleöileg jól! Efnaverksmiðjan Sjöfn Viðskiptavinir Sanitas athugið! Afgreidslan er opin sem hér seglr í desember: Mánudaga-föstudaga frá kl. 8.00-17.00. Föstudag 22. desember frá kl. 8.00-19.00 og Þorláksmessu frá kl. 10.00-17.00. Sanitas hf. Norðurgötu 57 lÍÍl framsóknarmenn ||g| AKUREYRI Bæjarmálafundur verður haldinn mánudaginn 18. desember að Hafnar- stræti 90 kl. 20.30. Kynnt drög aö aðalskipulagi Akureyrarbæjar til ársins 2007. Rætt um dagskrá næsta bæjarstjómarfundar. Þeir, sem sitja í nefndum hjá Akureyrarbæ fyrir Framsóknarflokkinn, eru eindregiö hvattir til aö mæta og einnig varamenn. Björn Sigurðsson, Húsavík Símar: Afgr. 42200 Verkst. 41666 Heima 41534 Húsavík - Akureyri - Húsavík SÉRLEYFISFERÐIR: 10.12.89-07.01.90. Frá Frá Húsavík Akureyri Fimmtud. 14. des. kl. 08.00 kl. 16.00 Föstud. 15. des. kl. 08.00 kl. 16.00 Laugard. 16. des. kl. 09.30 kl. 17.00 Sunnud. 17. des. kl. 19.00 kl. 21.00 Mánud. 18. des. kl. 08.00 kl. 16.00 Þriðjud. 19. des. kl. 08.00 kl. 16.00 Miðvikud. 20. des. kl. 08.00 kl. 16.00 Fimmtud. 21. des. kl. 08.00 kl. 16.00 Föstud. 22. des. kl. 08.00 kl. 16.00 Föstud. 22. des. kl. 20.00 Laugard. 23. des. kl. 09.30 kl. 16.00 Miðvikud. 27. des. kl. 08.00 kl. 16.00 Fimmtud. 28. des. kl. 20.00 Föstud. 29. des. kl. 08.00 kl. 16.00 Þriðjud. 02. jan. kl. 08.00 kl. 16.00 Miðvikud. 03. jan. kl. 19.00 kl.21.00 Fimmtud. 04. jan. kl. 08.00 kl. 16.00 Föstud. 05. jan. kl. 08.00 kl. 16.00 Sunnud. 07. jan. kl. 19.00 kl.21.00 Síðan venjuleg vetraráætlun. AFGREIÐSLUR: Húsavík: Björn Sigurðsson, Garðarsbraut 7, sími 96-42200 Akureyri: Umferðamiðstöðin, Hafnarstræti 82, simi 96-24442 Akureyri: Vöruafgr. Rfkisskip v/Sjávargötu, sími 96-23936 Farsímar: 985-20034 • 985-20035 • 985-20036 • 985-25730 • 985-27540 Erum flutt með skrifstofu og afgreiðslu að Garðarsbraut 7, Húsavík, sími 42200.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.