Dagur - 15.12.1989, Blaðsíða 2

Dagur - 15.12.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 15. desember 1989 fréttir ------------------------------------------------------- Norðaustanátt hrekur ísinn vestur með Norðurlandi: „Þessi átt er næstbesti kosturínn núna“ - segir Þór Jakobsson á hafísdeild Veðurstofu íslands Hafís gæti lokað siglingaleið- inni fyrir Horn á næstu dögum þar sem vindur hefur nú snúist Fiskifélag íslands: Nóvember- aflinn rýr Nóvemberaflinn var rýr miðað við saina mánuð í fyrra enda var litla loðnu að fá. Sam- kvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélags íslands komu alls 138.763 tonn á land í mánuðin- um á móti 244.872 tonnum í nóvember 1988. Minni loðnu- veiði skýrir nær allan þennan mun enda veiddust ekki nema rúm 35 þúsund tonn af loðnu nú á móti 142.235 í sama mán- uði í fyrra. Þorskaflinn í nóvember var 24.181 tonn en var 28.384 tonn í fyrra. Hins vegar veiddist 2000 tonnum meira af ýsu nú, 4000 tonnum meira af karfa, öllu meira af rækju og nokkru meira af grálúðu og steinbít. Veiði á ufsa og síld er rninni í þessum mánuði miðað við sama mánuð í fyrra. Öll kjördæmi sýna minni nóvemberafla nú en í sama mán- uði á síðasta ári. Á Norðurlandi komu 34.488 tonn á land en afl- inn var helmingi meiri í fyrra, eða 69.298 tonn, sem er rúmlega 100% samdráttur. Loðnuleysið vegur þar þyngst, 24.535 tonn á móti 55.544 tonnum í nóvember 1988. Þá er þorskaflinn á Norðurlandi 2.600 tonnum minni í nóvember nú. SS til norðaustlægrar áttar. Að sögn Þórs Jakobssonar, veður- fræðings á hafisdcild Veður- stofu Islands, er ekki hætta á að hafís geri sjómönnum í Grímsey erfitt um vik en hins vegar verði sjófarendur með ströndinni á vestanverðu Norðurlandi að fara að öllu með gát. Landhelgisgæslan fór í ískönnunarflug í fyrradag og Þannig var hafísinn fyrir Norðurlandi á að siglingaleið fyrir Horn lokist. kannaði hafís úti fyrir Vestfjörð- um og Norðurlandi. í ljós kom að ísbrúnin lá næst landi, 55 sjóml. NV- frá Barða, 23 sjóml. N- frá Kögri, 7 sjóml. N- frá Horni og 12 sjóml. NV- frá Grímsey. A siglingaleið frá Straumnesi að Horni og á Húnaflóa voru stakir jakar sem varað er sértaklega við, séu skip á siglingu í slæmu skyggni og myrkri. „Þessi vindátt er góð fyrir haf- ísinn í heild sinni, þrátt fyrir að erfiðleikar geti orðið á siglinga- leiðinni fyrir Horn. Þetta gerir að verkum að ísinn hrekst til vesturs og suður með Grænlandi. Suð- austanátt væri besti kosturinn fyrir okkur ef við viljum losna við ísinn frá landinu en við getum sagt að þessi norðaustanátt sé næst besti kosturinn," sagði Þór Jakobsson í samtali við Dag. JÓH Verðkönmin NAN NAN hefur að undanförnu kannað verð á kjöti sem líklegt er að verði á jólaborðinu. Farið var í 6 verslanir að þessu sinni, KEA Hrísalundi, Matvörumarkaðinn, Hagkaup og Svarfdælabúð á Dalvík. Einnig voru tekin verð í KEA Nettó og Plús markaðnum en þær verslanir hafa eins og kunnugt er aðra uppbyggingu en hinar og grundvöllur verðs þar 'annar. Það skal tekið fram að Hagkaup er með kjöt frá nokkrum aðil- um og því geta verið fleiri verð í gangi en getið er hér. Svo kann einnig að vera í hinum verslununum í einstaka tilfellum. í þessari verðkönnun er ekki lagt mat á gæði vöru eða þjónustu. Nýtt svinakjöt: KEA Matvöru- Hagkaup Svarfdæla- Hrisalundi markaóurinn búó KEA Nettó Plús markaóurinn Mism. á hæsta Mismunur og l«gsta verói % læri m/beini lkq 517,- 486?- 514.- 517,- 31.- 6.3 lari úrbeinað Xkq 894.- 759?- 854.- 135.- 17-7 bóaur hrinqskorinn lkq 397?- 469,- 460.- 397?- 72.- 1 R . 1 K<!>tilettur Ikg 9.33 ■ - 81.0,- 842.- 933.- 933.- 797?- 136,- 17.0 lærissneiðar lkq 550.- 514 .- 521.- 556.- 495?- 61 .- 12.3 Reykt svinakjöt: hamborqarhrvqqur m/beini lkq 1032.- 898,- 889?- 1032.- 1032 .- 898,- 143.- 16.0 hamborqarhrvuaur úrbeinaöur lkq 1640,- 1418.- 1348?- 1640.- 292.- læri m/beini lkq 530?- 585,- 697.- 530?- .. 167.- 31.5 læri úrbeinað lka (Bavonneskinka) 795.- 798,- 695?- 795.- 795,- 798.- 103,- 14.8 kambur úrbeinaóur lkq 898,- 829?- 879.- 898,- 898.- 829?- 69.- 8.3 bóqur hrinqskorinn lkq 584 .- 460.- 584,- 405?- 179.- 44.1 Lambakjöt: hryqqur nýr lkg 717.- 716.- 730.- 717.- 548?- 182 .- 33.2 læri nýtt lkq 760,- 805,- 823.- 768,- 616?- 207.- 33.6 læri rauðvinsleqið lkq 932.- 777?- 777?- 155.- 19.9 londonlamb úr framparti lkq 806.- 794*- 749t- 806 .- 794?- londonlamb úr læri lkq 1070.- 794*- 749Í- 1070.- 794+- hanqilæri m/beini lkq 784 ,- 772.- 698?- 784.- 784.- 772 .- 86.- 12.3 hangilæri úrbeinað lkg 1177,- 1168,- 979?- 1177,- 1177,- 1168,- 198.- 20.2 hanqikiöt úr framp. m/beini lka 480.- 486,- 478?- 480,- 486.- 8,- 1.6 hanqikiöt úr framp. úrb. lkq 00 00 ÞJ 1 869.- 785?- 882 ,- 882.- 869.- 97,- 1.2 hrvqqur léttreyktur lkq 530,- 529?- 659,- 530,- 530,- 618.- 130.- 24.5 Nautakiöt: lundir lkg 2461,- 1435?- 1999,- 1858.- 1026.- 71.4 'innanlærisvöðvi lkq 1824,- 1099?- 1669.- 1200.- 725,- 65.9 Fuglakjöt: rjúpur hamflettar 1 stk 480.- 42 5?- 55. - 12.9 rjúpur óhamflettar lstk 430?- 435,- 5,- 1 . 1 aliqæs lkg 722?- 1050.- 328.- 45.4 kalkúnn lkq 998,- 995?- 3.- 0.3 x merkir lægsta verð * ekki tekið fram hvort um frampart eða læri er að ræða Siglufjörður; Bæjarmála- punktar ■ Bæjarráð hefur samþykkt að útsvarsprósenta á árinu 1990 skuli vera í hámarki lög- um samkvæmt, þ.e. 7,5%. Fasteignamat rtkisins hefur sént bæjarráði bráðabirgða- yfirlit um heildarniðurstöðu- tölur fasteignamats á Siglufirði og öðrum sveitarfélögum á Norðurlandi eins og þær koma til með að verða í fasteigna- skrá sem tók gildi 1. des 1989. Heildargjaldstofn á Siglufirði hækkar um 95,5% frá gjald- stofni við álagningu fasteigna- gjalda 1989. ■ Bæjarráði hefur borist bréf frá umdæmisverkfræðingi Vegagerðar ríkisins á Sauðár- króki, þar sem staðfest er, í framhaldi af fundi hans með bæjarráði þann 20. okt. sl. að ákveðið hafi verið að opnun- ardagar á Siglufjarðarvegi frá Hofsósi til Siglufjarðar verði mánudagar. þriðjudagar og föstudagar. Opnunardagar á Norðurlandsvegi frá Reykja- vík til Akureyrar eru mánu- dagar, miðvikudagar og föstu- dagar. ■ Bæjarráð hefur samþykkt að bæjarstjóri skuli vera full- trúi Siglufjarðar í samstarfs- nefnd um uppbyggingu og framtíðarrekstur Fjölbrauta- skólans á Sauðárkróki og að bæjarritari verði varamaöur. ■ Slökkviliðsstjóri sendi bæjarráði nýlega greinargerð yfir vinnu manna og tækja sem látin hafi verið í té án endur- gjalds við nýbyggingu slökkvi- stöðvar á Siglufirði í ár, sam- tals að fjárhæð kr. 529.750,- Ráðið samþykkti að færa slökkviliðsstjóra og slökkviliði bæjarins alúðar þakkir fyrir þetta myndarlega framlag. ■ Húsnæðisstofnun ríkisins hefur sent bæjarráði bréf, þar sem tilkynnt er að félags- íbúðanefnd H.R. hafi sam- þykkt heimild til Siglufjarðar- kaupstaðar að selja leigu/sölu íbúðir að Laugarvegi 37-39, sem verkamannabústaði. Bæjarráð samþykkti að vísa málinu til framkvæmda hjá stjórn verkamannabústaða. ■ Veitunefnd hefur borist lausleg kostnaðaráætlun frá Orkustofnun varðandi rann- sóknarboranir í Skarðsdal 199*0.' Áætlunin gerir ráð fyrir að kostnaður sé 7 til 9,3 millj- ónir króna. Veitnpfnd hefur samþykkt að fela veitustjóra að sækja um jarðhitaleitarlán vegna fyrirhugaðra fram- kvæmda 1990 á grundvelli framangreindrar áætlunar. ■ Veitunefnd hefur samþykkt að fela veitustjóra að kaupa tvo bíla af gerðinni „Toyota Hilux Double Cab.“, til afnota fyrir Rafveitu og Hitaveitu, þar sem þær bifreiðar sem nú eru í notkun eru úr sér gengnar. Verð bílanna sam- kvæmt tilboði er kr. 1.490.000.- hvor bíll og til- heyri þeir fjárfestingum veitn- anna á árinu 1990. Jafnframt eru veitustjóra falið að selja eldri bíla veitnanna fyrir hæsta fáanlega verð, staðgreitt.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.