Dagur


Dagur - 06.01.1990, Qupperneq 8

Dagur - 06.01.1990, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Laugardagur 6. janúar 1990 Eyjólf Sverrisson ættu flestir íþróttaáhugamenn að kannast við og líklega enn fleiri. Hann hefur gert það gott á íþróttasviðinu undanfarin ár hvort heldur í körfuknattleik eða knattspyrnu. Hann gerði nýlega atvinnumannasamning við v-þýska stórliðið Stutt- gart og heldur þangað út á morgun, sunnudag. Hann var í vikunni valinn „Norðlendingur ársins“ eftir harða keppni við „Knattspyrnumann ársins“ Þorvald Örlygsson og sýnir það kannski best vinsældir hans sem íþróttamanns. Hann lék með landsliði U-21 í knattspyrnunni á síðasta ári og varð markahæsti maður liðsins og annar íslendingurinn frá upphafi til að skora fjögur mörk í einum og sama leiknum. Þá var hann valinn í landslið íslands í körfuknattleik, en hann gat ekki sótt æfingar sökum annríkis í knatt- spyrnunni. Bræður hans eru einnig miklir íþrótta- menn og náðu þeir þeim merka áfanga að leika allir með í sama liðinu þegar Tindastóll lék í þriðju deild. Nú fá lesendur Dags kjörið tækifæri til að kynnast þessum dáða íþróttamanni nánar því hann er einmitt í helgarviðtalinu að þessu sinni. - Hvenær og hvar ertu fæddur? „Ég er fæddur 3. ágúst 1968 á Hólavegi 24 á Sauðárkróki í hjónarúminu hjá pabba og mömmu.“ - Hverjir eru foreldrar þínir og hvað gera þau? „Þau eru Guðný Eyjólfsdóttir og Sverrir Björnsson. Pabbi er húsasmíðameistari og mamma hefur í nægu að snúast sem hús- móðir.“ - Ertu alinn upp hér á Krók? „Ég er hreinræktaður Króks- ari.“ „Wembley“ árin minnisstæð - Manstu eftir einhverju atviki úr æsku sem er minnisstætt? „Ég man alltaf eftir því þegar við vorum á róluvellinum skammt frá heimili mínu. Þar var leikinn fótbolti frá morgni til kvölds. Svo man ég líka vel eftir „Wembley" völlunum okkar númer eitt, tvö og þrjú. Það voru okkur mikil vonbrigði þegar haf- ist var handa við að byggja á þeim.“ - Hvernig voru æskuárin? „Ég held að þau hafi nú ekki verið mikið frábrugðin hjá mér Eyjólfur lætur hér ríða af bylmingsskot og andartaki síðar lá boltinn í marki andstæðinganna miðað við hjá öðrum. Maður reyndi fyrir sér í allskonar íþrótt- um og var ég mikið í sundi. Petta var yfirleitt þannig að maður var í fótbolta frá því maður vaknaði og þangað til sundlaugin var opn- uð kl. fimm á daginn, þá var farið í sund og dvalið þar þangað til lauginni var lokað kl. níu.“ - Þú átt einhver systkini er það ekki? „Jú, mikil ósköp. Ég er næst- yngstur af fimm systkinum. Ég á þrjá bræður og eina systur." - Hvernig var að alast upp í svona stórri fjölskyldu? Hörð barátta um stöður og stæði „Það má eiginlega segja að þetta hafi verið „Survival of the fittest". Pctta var mikil barátta oft. Ég þurfti oft að láta í minni pokann fyrir eldri systkinum mínum. Það var barist um öll stæði og stöður á heimilinu." - Nú hafa foreldrar þínir ekki verið bendlaðir mikið við íþrótt- ir. Er ekki ráðgáta á heimilinu hvernig þau hafa alið af sér alla þessa íþróttamenn? „Þau voru ekkert í íþróttun- um. Ég held að pabbi hafi komist næst því að stunda íþróttir þegar hann synti í Húseyjarkvíslinni á sínum yngri árum. En annars held ég að maður hafi hrifist með fjöldanum. Pað er gífurlega mik- iíl íþróttaáhugi hérna í bænum og svo voru eldri bræður mínir byrj- aðir að stunda íþróttir. Og það voru líka leikjanámskeið í gangi sem að kyntu undir áhugann." - Hvenær byrjaðirðu að stunda skipulegar íþróttaæfing- ar? „Snemma byrjaði ég að stunda allar æfingar sem ég mögulega komst á, s.s. sund, fótbolta, frjálsar, körfubolta og í rauninni allt sem iðkað var hérna á Krókn- um þá. Þá hafði maður nægan tíma fyrir þetta allt en svo kom að því að þetta fór að stangast á, sundið á sömu tímum og fótbolt- inn þannig að þetta gekk ekki upp og ég valdi að lokum fótbolt- ann á sumrin og körfuna á vet- urna.“ Kemur aö uppgjöri milli íþróttagreina - Hvernig líst þér á það að krakkar stundi körfu á veturna og fótbolta á sumrin? „Ég held að það sé mjög gott að gera þetta á meðan krakkar hafa nægan tíma. Þau halda sér í góðri þjálfun allt árið. Þetta er gott upp að vissum aldri, því þetta færist alltaf nær hvort öðru með tímanum þ.e. fótboltatíma- bilið fer að ná inn á körfutímabil- ið og svo öfugt og það kemur allt- af að því að menn verða að velja á milli, því fljótlega fara menn að stofna fjölskyldu og þá er enginn tími til þess að snúast í hvoru- tveggja.“ - Éf ekki er valið á milli getur það þá komið niður á árangri? „Þegar ég var í þessu var ekki mikið um fótbolta á veturna og körfuboltinn var enginn á sumrin. En það er aðallega, held ég, vegna tímaskorts sem að fólk verður að velja á milli í tæka tíð.“ - Er eitthvað til í því að fót- bolti byggi upp fyrir körfubolt- ann og öfugt? „Já ég held að megi segja það. Allavega hér um slóðir og þá sér- staklega ungu strákarnir, sem geta haldið sér í góðu formi.“ - Nú hefur þú yfir miklum stökkkrafti að ráða sem hefur nýst þér vel í fótboltanum. Er það vegna áhrifa frá körfuboltan- um? „Það er margt sem nýtist í báð- um greinunum. Og þar nýtist stökkkrafturinn einna best. Sér- staklega í skallaboltana. Það er einmitt mjög gott fyrir framherja að búa yfir góðum stökkkrafti. Það má segja það sama um sprengikraftinn almennt sem þarf í báðum þessum greinum." - Hvort er erfiðara að spila körfubolta eða fótboltá? „Ég veit það eiginlega ekki. Ég tók yfirleitt ekki þáttií undirbún- igstímabilum fyrir hvora grein því mótin náðu svo langt inn á þau. En ég held að mér hafi fund- ist erfiðara að koma :úr körfunni yfir í fótboltann vegna þess að í fótboltanum eru miklu lengri sprettir sem maður þarf að taka.“ Fyrsti leikurinn meö meistaraflokki tapaðist 7:0 - Hvað varstu gamall þegar þú lékst þína fyrstu leiki með meistaraflokkum í körfubolta og fótbolta? „Ætli ég hafi ekki verið 15 ára þegar ég lék minn fyrsta leik í körfunni og 16 ára í fótboltan- um.“

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.