Dagur - 06.01.1990, Blaðsíða 9

Dagur - 06.01.1990, Blaðsíða 9
Laugardagur 6. janúar 1990 - DAGUR - 9 - Er það satt að þinn fyrsti leikur með meistaraflokki í fót- bolta hafi tapast 7:0? „Já, það er satt. Það var gegn Isfirðingum á ísafirði þegar við vorum í annarri deildinni um árið. Ég man nú ekki eftir að hafa gert neinar rósir í þeim leik. Ég hef líklega haft mig lítið í frammi." - Hefurðu einhvern tímann gert upp á milli körfubolta og fót- bolta hvað skemmtun varðar? „Ég hef nú oft verið spurður að þessu og það kemur nú alltaf sama svarið upp í hugann. Þegar maður fór að finna grasilminn á vorin þá vildi maður ólmur kom- ast í fótboltann en þegar slyddan var farin er berja mann í andlitið á haustin þá komst ekkert annað að en að fara inn í sal í körfu- bolta.“ - Færðu útrás í íþróttum? „Ég veit ekki hvort ég myndi haga mér eitthvað öðruvísi ef ég væri ekki í íþróttum. En allavega líður mér vel þegar ég er búinn að taka vel á og hlaupa mikið og hamast og ég held að hver og einn sem er á annað borð eitt- hvað í íþróttum finni þessa vel- líðan innra með sér.“ Mikill stígandi hjá Tindastóli - En hvernig finnst þér Tinda- stóll hafa staðið sig undanfarið í keppnum, þá bæði í körfuknatt- leik og knattspyrnu? „Það hefur verið gífurlegur stígandi í þessu á undanförnum árum. í körfunni hafa orðið mikl- ar framfarir og við eigum lið í Úrvalsdeild. Það sama má segja um fótboltann. Við hér á Krókn- um stöndum vel í báðum þessum greinum og höfum aldrei áður náð svona langt. Yngri flokkarnir eru virkilega sterkir og þá sér- staklega yngstu strákarnir bæði í körfu og fótbolta. Þeir æfa mun markvissara núna heldur en þeg- ar ég var í yngri flokkunum." - Eins og þú sagðir áðan þá hafa liðin í Úrvalsdeildinni í körfubolta og annarri deildinni í knattspyrnu aldrei náð svo góð- Texti: Karl Jónsson Eyjólfur var lykilmaður í Tindastólsliðinu í körfuknattleik og var m.a. valinn til landsliðsæfinga í körfunni. Hér sést hann í leik gegn IBK í fyrra í Urvals- deildinni í körfuknattleik. Eyjólfur í baráttu við finnska varn- armenn í leik með knattspyrnu- landsliðinu U-21 árs, en eins og kunnugt er skoraði hann öll fjögur mörk íslenska liðsins í leiknum. Á innfelldu myndinni er hann í leik með Tindastóli gegn ÍR í 2. deild- inni síðasta sumar. um árangri, sem blasir við í dag. Hvað finnst þér um það að fá utanaðkomandi leikmenn til að styrkja liðin? „Ég er hlynntur því að fá sterk- an mann til að fylla upp í lið ef það vantar eitthvað upp á, en ég er ekki hlynntur því að miðlungs- leikmönnum sé smalað saman, en það er alveg sjálfsagt að styrkja hópinn.“ Menn verða að horfast í augu við hálf-atvinnumennskuna - Heldur þú að það séu miklir peningar í íþróttum á íslandi? „Ég held að það séu nú ekki miklir peningar í íþróttum núna, en það á eftir að aukast. Þetta er farið að nálgast hálf-atvinnu- mennsku í sumurn greinum." - Er tími til kominn að menn fari að horfast í augu við það að hálf-atvinnumennska sé það sem koma skal? „Já, ég held það. Enda voru samþykktar nýjar reglur á KSÍ- þinginu þannig að liðum er frjálst að gera einhvers konar samninga við sína leikmenn. Þau eru að gera það eitt af öðru um þessar mundir. Það er því ljóst að þetta er að breytast að einhverju leyti. En hjá því verður ekki litið að fjármagn félagsliða býður ekki upp á mikla möguleika hvað þetta varðar og þetta er erfitt viðureignar.“ Nauðsynlegt að fá styrkt- araðila að Islandsmótinu - Nú hafa farið af stað viðræður um stofnun annarrardeildar fé- laga, af sama meiði og Samtök fyrstudeildar félaga og finna um leið styrktaraðila að Islandsmót- inu. Finnst þér þetta rétt stefna að leita eftir slíkum styrktaraðil- urn og jafnvel skíra keppnina eft- ir þeim? „Ég held að það sé nauðsyn- legt svo að dæmið gangi hrein- lega upp fyrir félögin þó að það sé kannski ekkert sniðugt að breyta nafni mótsins." - Hvernig heldurðu að Tinda- stóli gangi í 2. deildinni næsta sumar? „Ég held að þeim komi til með að ganga vel. Það eru ungir og efnilegir strákar að koma upp og ég held að liðið verði á svipuðu róli og síðustu ár. Það er ljóst að nokkrir leikmenn eru að hætta en það er það sem koma skal. Það á sér alltaf stað einhver endurnýj- un í þessu og þá er sjálfsagt að byggja liðið upp á heimamönnum en styrkja það með aðkomu- mönnum ef með þarf.“ Samningurinn beið undirritunar í Stuttgart - En svo við snúum okkur að því sem tekur nú við hjá þér, harður heimur atvinnumennskunnar. Áttirðu von á að fá samning er þér var boðið út til æfinga síðast- liðið haust? „Fyrst þegar ég fór út í æfinga- búðirnar hjá þeim var ég ein- göngu spenntur fyrir að sjá þetta og kynnast þessu og fá að æfa með þessum körlum. Ég var nátt- úrlega mjög forvitinn að vita hvernig þetta væri. En svo eftir landsleikinn við V-Þjóðverja vildu þeir fá mig til sín til samn- ingaviðræðna. Það var allt klárt þegar ég kom, samingurinn kom- inn á borið og allt á hreinu og til- búinn til undirritunar." - Hefðirðu farið til Brann ef þú hefðir ekki samið við Stuttgart? „Ég veit það ekki. Maður var ekkert farinn að hugsa alvarlega um það. Það er gífurlegur munur á þessum tveimur klúbbum, Stuttgart er eitt af stærstu liðun- um í Evrópu. Ég hefði hugsað málið vandlega gagnvart Brann, en þegar tilboðið kom frá Stutt- gart var ekki þörf á því.“ Aðstaðan frábær - Hvernig er aðstaðan sem Stutt- gart hefur upp á að bjóða? „Hún er frábær og eiginlega ekki hægt að hugsa sér hana betri. Það er tíu æfingavellir af fullri stærð á svæðinu og öll önn- ur aðstaða er við þá s.s. búnings- herbergi, tækjasalir, sundlaug, gufubað, nuddpottar, afslöppun- arsalir, þreksalur og nuddarar sem bíða eftir þér þegar þig vant- ar nudd. Þannig að það er ekki hægt að hugsa sér þetta betra." - Hefur Arie Haan ekki að- stoðarmenn með sér? „Hann er með einn aðstoðar- mann, sem er eiginlega meiri þjálfari en hann sjálfur. Arie horfir meira á og leggur upp „taktík“ fyrir leikina. Aðstoðar- þjálfarinn sér því aðallega um þjálfunina.“ - Hvernig var þér tekið af þessum körlum þegar þú komst þarna út? „Mér var tekið nokkuð vel. Maður var að reyna að babla þýskuna og svara spurningum um ísland. Ég þekkti nú tvo þarna fyrir síðan úr landsleikjunum við V-Þjóðverja, þá Schmeler-tví- bura.“ Mjög létt yfír mönnum á æfíngum - Hvernig er mórallinn á æf- ingunum? „Hann er mjög góður og það er mjög létt yfir þessu. En það er mikil harka og menn gefa ekkert eftir, leggja sig alla í þetta.“ - Kemurðu til með að gera eitthvað annað ytra en að leika knattspyrnu? „Nei það eru það stífar æfingar að maður verður að nota tímann á milli til að slappa af. Maður vaknar eins og til vinnu hérna heima og það er æfing kl. tíu á morgnana, svo er hádegismatur og æfing aftur eftir hádegi og maður er búinn seinnipartinn einhvern tímann. Þannig að þetta er alveg fullur vinnudagur. - Hvernig borg er Stuttgart? „Það er virkilega fallegt þarna eins og alls staðar í Suður-Þýska- landi og ég kann mjög vel við mig þarna. Það er mikill bæjarbragur á þessu og lítið um stórborgarlæti þarna.“ Á ekki von á að komast í liðið í vetur - Hverja telur þú þína mögu- leika hjá liðinu? „Ég á nú ekki von á því að komast í liðið á þessu tímabili. En ég kem til með að æfa vel og bæta mig sem knattspyrnumann og ég hef sett stefnuna á að kom- ast í liðið næsta vetur. Það er mitt takmark. Nú á að breyta reglum um útlendinga í Þýskalandi þann- ig að þeir mega vera fjórir í liðs- hópnum í staðinn fyrir þrír í dag Þrír í byrjunarliði og einn á bekknum." - En svona að lokum áttu þá ekki einhver holl ráð í pokahorn- inu handa yngri íþróttamönnum, sem eru að stíga sín fyrstu skref í dag? „Það er bara að æfa vel og reglulega og gefast aldrei upp þó á móti blási. Þá lætur árangurinn ekki á sér standa.“ Með þessum töluðum orðum lýkur viðtalinu við Eyjólf. Króks- arar koma væntanlega til með að fylgjast grannt með sínum manni sem og flestir landsmenn. Það er algert einsdæmi að menn fari beint úr annarri deild á íslandi í hinn harða heim atvinnumennsk- unnar í Þýskalandi. Dagur óskar Eyjólfi og unnustu hans, Önnu Pálu Gísladóttur, alls hins besta á erlendri grundu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.