Dagur - 06.01.1990, Side 10

Dagur - 06.01.1990, Side 10
10 - DAGUR - Laugardagur 6. janúar 1990 Fréttagetraun deseiubermánaðar Nú er komið að síðustu frétta- getraun ársins 1989, getraun- inni fyrir desembermánuð. Astceða er til að hvetja sem flesta til að taka þátt í þessari fréttagetraun því ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvort við höldum leiknum áfram á nýju ári. Spurning- arnar eru 12 og tengjast frétt- um Dags í desember. Svar- möguleikar eru þrír en að- eins eitt svar rétt. Fyllið út svarseðilinn hér á síðunni og sendið okkurfyrir þriðjudag- inn 6. febrúar. Dregið verður úr réttum lausnum og úrslit kunngerð í helgarblaðinu 10. febrúar. 1) „Engin reglugerð og menn vita því ekkert í sinn haus.“ Um hvað var bæjarstjóri Ólafsfjarðar að ræða? (1) Reglugerð um virðisauka- skatt og sveitarfélög. (X) Áfengiskaup Magnúsar Thoroddsens. (2) Sameiningu lífeyrissjóða á Eyj afj arðarsvæðinu. 2) Hver voru algengustu yrkis- efnin í smásagnasamkeppni Dags og MENOR? (1) Ástir og örlög. (X) Gjaldþrot og dauði. (2) íþróttir og afreksmenn. 3) Hvaða myndlistarmaður lýsti aðbúnaði fanga í Ijósi eig- in reynslu? (1) Kristinn G. Jóhannsson. (X) Anna G. Torfadóttir. (2) Óli G. Jóhannsson. 4) Hvaða fyrirtæki átti Snæ- fellið og hvaða fyrirtæki keypti það síðan í desember? (1) Samherji hf. átti skipið uns það var selt til Kaldbaks á Greni- vík. (X) Útgerðarfélag Kaupfélags Eyfirðinga. Þorbjörn hf. í Grindavík keypti skipið. (2) Útgerðarfélag Kaupfélags Eyfirðinga. Þormóður rammi á Siglufirði keypti togarann. 5) Hvað óttast heilbrigðis- nefnd Dalvíkur, samkvæmt frétt Dags? (1) Flugur, lykt, rottur og mýs frá Böggvisstaðabúinu. (X) Salmonellu í sviðahausum. (2) Hneggjandi fálka í refaskál- um á Ytra-Holti. Þessi ungi maður sigraði í smásagnasamkeppni Dags og MENOR. En hver voru algengustu yrkisefnin í keppninni? Viiuiingshafar í nóvembergetraun Vinningshafar í fréttagetraun nóvembermánaðar eru: María Steinmarsdóttir, Lönguhlíð 10, Akureyri. Björn Snæbjörns- son, Steinahlíð 3i, Akureyri. Fjóla Rósántsdóttir, Hólum, Öxnadal. Þau fá viðurkenn- ingu sem sigurvegarar í frétta- getraun nóvembermánaðar. Rétt röð í getrauninni var þessi: 1) X 7) 2 2) 1 8) 1 3) X 9) 1 4) 2 10) 2 5) 2 11) 1 6) X 12) X Þátttaka í nóvemberget.raun- inni var ágæt og viljum við þakka þeim sem sendu inn svarseðla. Flestir voru með öll svörin rétt og það var því býsna vænn bunki sem dregið var úr, en sem fyrr eru það aðeins þrír sem fá viður- kenningu. 6) Sveitarstjórnarmenn við Eyjafjörð sendu iðnaðarráð- herra tilboð. Hvernig hljóðaði það í stuttu máli? (1) „Ef þú lætur okkur fá álver, Jón minn, þá skulum við sjá til þess að þú fáir 1. sætið á lista Alþýðuflokksins í Norðurlands- kjördæmi eystra." (X) „Ef þú lætur okkur fá álver, þá erum við reiðubúnir að kosta byggingu hafnarmannvirkja og bera ábyrgð á rekstri hafnarinn- ar.“ (2) „Ef þú lætur okkur fá álver, þá munu sveitarfélögin sjá starfs- mönnum þess fyrir hentugu hús- næði á sanngjörnu verði.“ 7) Hvaða jólagjöf sendi Gagn- fræðaskólinn í Ólafsfirði og hvert? (1) Sjávarnasl til allra gagnfræða- skóla á Norðurlandi eystra. (X) Myndband Skúla Pálssonar af jarðgangagerð í Ólafsfjarðar- múla til félaga í skólum á Norðurlöndunum. (2) Nokkra poka af Sjávarnasli til skóla á Norðurlöndunum, kvennaskóla í Bretlandi og skóla í Kanada. 8) Hvert hverfa 37 þúsund lítr- ar af rjóma, samkvæmt frétt Dags? (1) Ofan í höfuðborgarbúa frá Mjólkursamlagi KEA. (X) Ofan í Eyfirðinga yfir jóla- hátíðina. (2) Ofan í svelginn vegna um- framframleiðslu. 9) Hvað heitir plata Geir- mundar Yaltýssonar sem sló í gegn fyrir jólin? (1) Látum sönginn hljóma hátt. (X) í syngjandi sveiflu. (2) Ég syng þennan söng. 10) Hvernig á góð skata að vera, að áliti fisksalans Gunn- ars Skjóldals? (1) „Maður á að þurfa að halda fyrir nefið þegar maður borðar skötuna." (X) „Skatan á að vera svo stæk að tárin leki úr augunum þótt maður sé í næsta herbergi.“ (2) „Þétt í sér, laus frá beinum, með gulum blæ og fínlegu hland- bragði.“ 11) Hverjir voru útnefndir menn ársins í atvinnulífinu? (1) Vilhelm Þorsteinsson, Bald- vin Þorsteinsson og Finnbogi Baldvinsson. (X) Kristján Vilhelmsson, Þor- steinn Már Baldvinsson og Þor- steinn Vilhelmsson. (2) Jón Óttar Ragnarsson, Ólafur H. Jónsson og Sighvatur Blön- dahl. 12) „Ekki hægt að hafa þetta ódýrara og varla betra.“ Hver mælti og af hvaða tilefni? (1) Kjötiðnaðarmaður aðspurður um gæði svínakjötsins um þessi jói. (X) Jón Ottar Ragnarsson um rekstur Stöðvar 2. (2) Framkvæmdastjóri Sjallans eftir að nýársfagnaði var aflýst. Með fréttagetraun desember- mánaðar hefur árið 1989 verið lagt til hliðar og þakkar Dagur lesendum sínum fyrir þátttökuna í þessum leik sem hugsaður var til fróðleiks og skemmtunar. SS 1. Svarseðill (1, X eða 2) 7. 2. 8. 3. 9. 4. 10. 5. 11. 6. 12. Nafn: Heimilisfang: Sími: Utanáskriftin er: Dagur - fréttagetraun, Strandgötu 31 Pósthólf 58 602 Akureyri

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.