Dagur - 06.01.1990, Page 16

Dagur - 06.01.1990, Page 16
mam Akureyri, laugardagur 6. janúar 1990 Sauðárkrókur 95-35960 Húsavík 96-41585 Loðnumiðin: Loksins sáu loðnusjómenn til sólar - veiðin í fyrrinótt sjötti hluti heildarveiðinnar í vetur í gærmorgun tilkynntu alls 13 loðnubátar um afla í fyrrinótt, alls 8670 tonn. Veiðin á þessari nóttu er því sjötti hluti einu aflans sem kominn er á land frá því loðnuveiðarnar hófust í haust. Ohætt er því að segja að loðnusjómenn hafi nú loks tek- Bæjarþing Sauðárkróks: Um 40 ný nauðungaruppboðsmál þingfest á síðasta ári - þar af þrjár endanlegar sölur Árið 1989 voru um 40 nauð- ungaruppboðsmál þingfest hjá bæjarþingi Sauðárkróks. Er það svipað og verið hefur síð- Húsavík: Ný hótelstjóri Þórdís Hrönn Pálsdóttir tók við stöðu hótelstjóra á Hótel Húsavík um áramót. Þórdís Hrönn er Reykvíkingur, en af húnvetnskum ættum. Hún lauk námi í hótelstjórn frá svissneskum skóla i desember sl., en hefur starfað á hótelum á sumrin og á námstímanum þurfti hún að afla sér starfs- reynslu við hótelstörf. Þórdís Hrönn mun taka við stjórn hótelsins af rekstrarnefnd þess, en síðastliðið ár hefur nefndin séð um reksturinn, án þess að sérstakur hótelstjóri væri ráðinn. „Mér líst mjög vel á það sem ég hef séð hér fram að þessu. En ég er ekki alveg búin að átta mig á öllu og það tekur sinn tíma að kynna sér hlutina," sagði Þórdís Hrönn, er Dagur innti hana eftir hvernig henni litist á aðstöðuna og hvort einhverjar nýjungar væru á döfinni í framtíðinni. IM Þórdís Hrönn Pálsdóttir. Slökkvilið Hvammstanga: Eitt útkall í fyrra Slökkvilið Hvammstanga var aðeins kvatt út einu sinni á nýliðnu ári. Þar var um að ræða eld í bíl sem var á leið til Akureyrar. Bíllinn sem var sendiferðar- bifreið eyðilagðist og farmur hennar einnig. Ólafur Valdimarsson slökkvi- liðsstjóri sagði að þetta hefði ver- ið með allra rólegustu árum sem hann myndi eftir. Árið á undan voru útköllin hins vegar 6 talsins. kj ustu þrjú ár. Að sögn Halldórs Þ. Jónssonar sýslumanns og bæjarfógeta voru endanlegar sölur á uppboðum þrjár. Af þeim var ein á fyrirtæki í atvinnurekstri sem reyndar var íbúðarhúsnæði líka. Halldór sagði að endanlegar sölur vegna nauðungaruppboða hefðu mest farið upp í 6 á undanförnum þremur árum. Hann sagði enn- fremur að alltaf væru í gangi 40- 50 mál í einu á sama tíma en endanlegar sölur ekki Iíkt því eins margar. kj ið gleði sína á ný eftir afspyrnu ' slæma haustvertíð. I Þeir 13 bátar sem tilkynntu afla í gærmorgun fóru allir til iöndun- ar á Raufarhöfn, Þórshöfn eða Austurlandshöfnum. Yfir 20 skip biðu í gær eftir nóttinni og ætluðu að freista þess að fá fullfermi, enda flestir komnir með einvern afla eftir nóttina. Gera má því ráð fyrir að heildarveiðin á mið- unum í fyrrinótt hafi verið 10-15 þúsund tonn. i Eftirtaldir bátar tilkynntu um afla í gærmorgun og sigla á eftir- talda staði: Háberg 650 tonn til Þórshafnar og Björg Jónsdóttir| 550 tonn til Þórshafnar. Óákveðn- ir með löndunarstað voru: Örn með 750 tonn, Gullberg með 620 tonn og ísleifur með 620 tonn. Á j Raufarhöfn lönduðu: Keflvíking- j jur 530 tonnum, Dagfari 520 tonnum, Þórður Jónasson 710 tonnum, Erling 100 tonnum og Gígja 750 tonnum. Börkur land- aði í gær 1200 tonnum á Nes- kaupstað og Jón Kjartansson 1000 tonnum á Eskifirði. JÓH Slappað af. Mynd: KL Ekki ljóst hvað Landvernd fær í kassann fyrsta „plastpokaárið“: Mun færrí vilja haldapoka í kjölfar gjaldtöku Landvemdar - samdrátturinn nemur allt að 50% „Við erum mjög hress með fyrsta árið og að okkar dómi hafa viðbrögð almennings ver- ið mjög góð. Það er auðvitað ómetanlegt að fá með þessu móti tekjur til landgræðslu og umhverfismála, sem óhætt er að segja að hafi til þessa verið fjársvelt,“ sagði Svanhildur Skaftadóttir, framkvæmda- stjóri Landverndar, þegar hún var spurð um reynslu af fyrsta tæpa árinu í sölu plastpoka til styrktar Landvernd. Ekki liggur fyrir hversu miklar Uggvænleg þróun í íbúaQölda í Norður-Þingeyjarsýslu: „Fæ ekki betur séð en að við séum í útrýmingarhættu“ - fækkað um 301 íbúa á þessum áratug „Þetta er uggvænleg þróun og er verðugt umhugsunarefni fyrir þingmennina okkar og aðra j>á sem ráða í þjóðfélag- inu. Eg fæ ekki betur séð en að við séum í útrýmingarhættu,“ segir Ingunn St. Svavarsdóttir, oddviti Presthólahrepps, um bráðabirgðatölur Hagstofunn- ar um mannfjölda I Norður- Þingeyjarsýslu. Fram kemur í tölunum að 1. desember sl. voru íbúar í sýslunni 1467 og hafði fækkað um 53 frá fyrra ári. Hlutfallsfækkunin nemur 3,5 prósentustigum. íbúum fækk- ar í 6 sveitarfélögum í sýslunni, íbúatala stendur í stað f einu og íbúum fjölgar í einu. Mannfjöldi var annars þessi samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar: Kelduneshreppur 133 en 128 árið 1988, Öxarfjarðarhreppur 115 en 121 árið 1988, Fjallahreppur 12, sem er sami fjöldi og 1988, Prest- hólahreppur 263 en 271 árið 1988, Raufarhafnarhreppur 395 en 402 1988, Svalbarðshreppur 125 en 129 1988, Þórshafnar- hreppur 374 en 404 árið 1988 og Sauðaneshreppur 50 en 53 1988. Ef litið er til þessa áratugar lít- ur dæmið ekki vel út. Frá árinu 1980 til ársins 1989 fækkar íbúum Norður-Þingeyjarsýslu um hvorki meira né minna en 301. Árið 1980 voru íbúar sýslunnar 1768, árið 1981 1744, árið 1982 1714, árið 1983 1745, árið 1984 1678, árið 1985 1668, árið 1986 1638, árið 1987 1574, árið 1988 1520 og árið 1989 1467. Þessi mikla fækkun í Norður- Þingeyjarsýslu milli áranna 1988 og 1989 svarar til að Akureyring- um hafi fækkað um 490 íbúa, Reykvíkingum um 3380 íbúa og landsmönnum öllum um 8800 íbúa. Útibú Byggðastofnunar á Ak- ureyri vinnur nú að almennri út- tekt á byggðaþróun og atvinnu- málum í Norður-Þingeyjarsýslu. Skýrslunni er ætlað að vera til ráðgjafar og leiðbeiningar um stefnu í byggðamálum á svæðinu. Að sögn Valtýs Sigurbjarnarson- ar, forstöðumanns útibúsins, verður allt kapp Iagt á að vinna af krafti við gerð skýrslunnar á næstu vikum og mánuðum. Hann sagðist ekki vilja spá um hvenær skýrslugerðinni lyki. Jafnframt sagðist Valtýr vona að skýrslunn- ar biðu ekki þau örlög að rykfalla í skrifborðsskúffum í kerfinu. Hún verði unnin til þess að tekið verði fullt mark á því sem þar stendur. óþh tekjur Landvernd fær í kassann af plastpokagjaldinu svokallaða frá því að það var tekið upp í mars sl. Svanhildur segir það ekki verða ljóst fyrr en að tveim mánuðum liðnum, eftir að allir hlutaðeigandi aðilar hafa lokið uppgjöri. Eins og fram hefur komið gerði Landvernd samning við Kaupmannasamtökin og kaup- félögin um gjaldtöku fyrir plast- poka og skyldu fimm krónur af hverjum poka renna til Land- verndar til uppgræðslu og ann- iarra verkefna á sviði umhverfis- mála. Svanhildur segist binda vonir við að framhald verði á plastpokagjaldinu. „Við höfum átt mjög gott samstarf við Kaup- mannasamtökin, Sambandsversl- anir og aðra sem standa að samn- ingnum,“ segir Svanhildur. Á fundi fulltrúa kaupmanna og Landverndar nýverið kornu fram upplýsingar um mikinn samdrátt. í plastpokanotkun almennings í kjölfar gjaldtöku. Fram kom í máli eiganda stórrar verslunar á höfuðborgarsvæðinu að sam- drátturinn næmi allt að 50% en almennt telja kaupmenn að sam- drátturinn sé á bilinu 20-30%. „Við erum ánægð með þennan samdrátt því að það var m.a. markmiðið hjá okkur með gjald- töku að fá fólk til að minnka þessa gegndarlausu plastpoka- notkun,“ sagði Svanhildur. Síðar í þessum mánuði verður auglýst eftir umsóknum um styrk úr plastpokasjóði Landverndar og að sögn Svanhildar er stefnt að næstu úthlutun í mars nk. óþh

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.