Dagur - 09.01.1990, Síða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 9. desember 1990
íþróttir
Enska bikarkeppnin:
Dagur hinna smáu í FA-bikamum
- Tottenham, Forest, Luton og Wimbledon úr leik
Um helgina fór fram á Eng-
landi 3. umferð FA-bikarsins,
en í þeirri umferð hefja liðin úr
1. og 2. deild þátttöku. Að
venju var nokkuð um óvænt
úrslit eins og alltaf eru í þessari
keppni, þar sem leikmenn
smáliðanna berjast af tvöföld-
um krafti gegn sér betri og
frægari leikmönnum. En þá er
að renna yfir leikina 29 á laug-
ardaginn.
• Coventry sem varð bikar-
meistari 1987 sótti 3. deildar lið
Northampton heim og þar urðu
óvænt úrslit. Eina mark leiksins
var skorað 3 mín. fyrir Iok fyrri
hálfleiks, Steve Berry skoraði
fyrir Northampton eftir sendingu
Bobby Barnes. Það munaði litlu
að Barnes bætti öðru marki við
fyrir Northampton er hann komst
einn í gegn, en skot hans hafnaði
í stöng. Coventry lagði allt í söl-
urnar í síðari hálfleik til að jafna,
en án árangurs og sigur Nort-
hampton var sanngjarn.
• Terry Venables stjóri Totten-
ham fékk ekki sigur á afmælis-
degi sínum. Lið hans tapaði
heima gegn Southampton sem
lék mun betur í leiknum. Jimmy
Case, Matthew Le Tissier og Rod
Wallace áttu mjög góðan leik hjá
*
Urslit
FA-bikarínn, 3. umferð. Birmingham-Oldham 1:1
Blackburn-Aston Villa 2:2
Blackpool-Burnlcy 1:0
Brighton-Luton 4:1
Bristol City-Swindon 2:1
Cambridge-Darlington 0:0
Cardifl City-Q.P.R. 0:0
Charlton-Bradford 1:1
Chelsea-Crewe 1:1
Crystal Palace-Portsmouth 2:1
Exeter-Norwich 1:1
Hereford-Walsall 2:1
Huddersneld-Grimsby 3:1
Hull City-Ncwcastle 0:1
Lceds Utd.-Ipswich 0:1
Leicester-Barnsley 1:2
Manchester City-Millwall 0:0
Middlcsbrough-Everton 0:0
Northampton-Covcntry 1:0
Nottingham For.-Man. Utd. 0:1
Plymouth-Oxford 0:1
Port Vale-Derby 1:1
Reading-Sunderland 2:1
Rochdale-Whitley Bay 1:0
Shelfield Utd.-Bournemouth 2:0
Stoke City-Arsenal 0:1
Swansea-Liverpool 0:0
Torquay-West Ham 1:0
Tottenham-Southampton 1:3
Watford-Wigan 2:0
W.B.A.-Wimbledon 2:0
Wolves-SheRield Wed. 1:2
Eftirtalin lið leika saman í 4.
umferð FA-bikarsins þann janúar. Hereford-Manchester Utd. 27.
Manchester City/Millwall-Cam-
bridge/Darlington Rochdale-Northampton Blackpool-Torquay
Exeter/Norwich-Swansea/Liverpool
Arsenal-Cardiff City/Q.P.R. Shefiield Utd.-Watford
Sheffield Wed.-Middlesbrough/
Everton
Southampton-Oxford Bristol City-Chelsea/Crewe
Blackhurn/Aston Villa-Port Vale/
Derby Reading-Newcastle Barnsley-lpswich Birmingham-OIdham-Brighton Crystal Palace-Huddersficld W.B.A.-Charlton/Bradford
Southampton. Le Tissier skoraði
fyrsta markið á 28. mín. eftir
sendingu frá Case og 4 mín. fyrir
hlé opnaði Le Tissier vörn Tott-
enham og Barry Horne bætti
öðru marki liðsins við. Totten-
ham lék mun betur í síðari hálf-
leik og David Howells mirínkaði
muninn með hörkuskoti, en á
síðustu mín. leiksins skoraði Rod
Wallace þriðja mark Southamp-
ton með skalla.
• 3. deildar lið Crewe náði að
gera jafntefli við Chelsea á úti-
velli og fær því annað tækifæri.
Liðið lék mjög góða vörn með
gömlu kempuna Kenny Swain
sem besta mann og náði forystu í
síðari hálfleik með marki Steve
Walters. Chelsea sótti mjög eftir
markið og náði að jafna á 76.
mín., skot Kerry Dixon fór í
stöng, en Steve Clarke fylgdi vel
á eftir og skoraði úr frákastinu.
• Torquay sem leikur í 4. deild
sló West Ham úr keppninni þó
sigurinn væri ósanngjarn. Eina
mark leiksins kom á 77. mín.
gegn gangi leiksins, Paul Smith
braust þá upp kantinn án þess að
varnarmönnum West Ham tækist
að stöðva hann. Sending hans
barst til Dean Edwards sem kiks-
aði, en boltinn barst fyrir fætur
hins 19 ára varnarmanns Paul Hir-
ons sem þrumaði boltanum í net-
ið framhjá Phil Parkes með sinni
fyrstu spyrnu í leiknum.
• Annað 4. deildar lið, Exeter
gerði það gott gegn Norwich og
liðin verða að leika að nýju eftir
jafntefli. Darren Rowbotham
náði forystu fyrir Exeter með því
að skalla yfir Bryan Gunn í marki
Norwich. En leikmenn liðsins
fögnuðu markinu full lengi því
Robert Fleck braust fram og
jafnaði fyrir Norwich 45 sek.
síðar.
• Frábærum leik Blackburn og
Aston Villa lauk með 2:2 jafntefli
og getur Villa þakkað Nigel
Spink sigurinn, en hann varði
tvívegis mjög vel í lokin. Ian
Olney náði forystu fyrir Villa á
14. mín., en Frank Stapleton
jafnaði fyrir Blackburn á 34.
mín. Eftir að David Platt hafði
skotið í slá fyrir Villa náði Ian
Ormondroyd forystunni að nýju
eftir klukkutíma leik. Þá tóku
leikmenn Blackburn við sér og á
65. mín. jafnaði Scott Sellars
leikinn og liðið var óheppið að
sigra ekki í lokin.
• Swansea úr 3. deild gerði sér
lítið fyrir og náði markalausu
jafntefíi gegn bikarmeisturum
Liverpool í hörkuleik og var
fögnuðurinn mikill í leikslok.
Liðið fékk nokkur færi í leiknum
og var Keith Walker næst því að
skora. En liðið getur þakkað
Á sunnudag fóru fram þrír síö-
ustu leikirnir í 3. umferð FA-
bikarsins. Þar á meðal var
stórleikur umferðarinnar, leik-
ur Nottingham For. og Man-
chester Utd. og var honum
sjónvarpað beint á Englandi.
Mikil stemmning var fyrir leik
Forest og Utd., talið var að tap
Utd. myndi kosta Alex Ferguson
stjóra liðsins stöðu sína. Á hinn
bóginn er FA-bikarinn það eina
sem Brian Clough stjóra Forest
hefur ekki tekist að sigra á glæsi-
legum ferli sínum. En því miður
markverði sínum Lee Bracey
jafnteflið, hann átti stórleik og
varði glæsilega frá Steve McMa-
hon tvívegis og Ian Rush. Liver-
pool ætti að vinna auðveldlega á
Anfield, en Swansea getur hugg-
að sig við að fá væna fjárfúlgu í
“ kassann eftir leikina.
• Darlington sem féll úr 4. deild
í fyrra er eina utandeilda liðið sem
enn er eftir, liðið gerði markalaust
jafntefli á útivelli gegn Cam-
bridge og fær því annað tækifæri.
• Bakvörður Reading, Linden
Jones, var í eldlínunni er lið hans
sló Sunderland út. Á fyrstu mín.
datt hann er hann ætlaði að senda
til markvarðar síns og Gordon
Armstrong náði af honum bolt-
anum og skoraði. Hann bætti fyr-
ir mistökin í síðari hálfleik er
hann skoraði tvö mörk fyrir
Reading og tryggði liðinu sigur.
• Wimbledon sem sigraði í bik-
arnum fyrir tveimur árum féll á
útivelli fyrir W.B.A. Gary Rob-
son og Kevin Bartlett skoruðu
sitt markið hvor.
• Leeds Utd. tapaði heima gegn
Ipswich þar sem Jason Dozzell
skoraði eina markið í upphafi
síðari hálfleiks.
• Arsenal marði sigur gegn
Stoke City á útivelli eins og menn
sáu í sjónvarpinu þar sem Niall
Quinn skoraði sigurmarkið með
skalla á 74. mfn. Sigurður Jóns-
son kom inná sem varamaður hjá
Arsenal í heldur slökum leik.
• Nigel Gleghorn náði forystu
fyrir Birmingham gegn Oldham,
en Frankie Bunn jafnaði fyrir
Oldham.
• Cardiff City úr 3. deild náði
markalausu jafntefli á heimavelli
gegn Q.P.R.
• Vikan var slæm hjá Luton,
framkvæmdastjórinn, Ray Har-
ford, rekinn og síðan steinlá liðið
fyrir Brighton 4:1. Keith Dublin,
Gary Nelson, Robert Codner og
Alan Curbisley gerðu mörk
Brighton, en eina mark Luton
skoraði Danny Wilson.
• 1. deildar liðin Manchester
City og Millwall verða að leika að
nýju eftir markalaust jafntefli.
• Bristol City vann góðan sigur
gegn Swindon, Bob Taylor og
Rob Newman skoruðu fyrir liðið.
Duncan Shearer skoraði eina
mark Swindon.
• Everton ætti að komast áfram,
en liðið gerði 0:0 jafntefli á úti-
velli gegn Middlesbrough.
• Newcastle sigraði Hull City á
útivelli með marki Liam O’Brien
í síðari hálfleik.
• Blackpool náði að knýja fram
sigur gegn Burnley í lokin með
eina marki leiksins.
• Gay Wittingham náði forystu
stóð leikurinn ekki undir þeim
væntingum sem við hann voru
bundnar og eitt mark dugði til að
gera út um leikinn. Markið sem
öllu skipti kom á 10. mín. síðari
hálfleiks, Mark Hughes sendi fyr-
ir mark Forest frá hægri þar sem
Mark Robins kastaði sér fram og
skallaði í mark Forest. Fyrri hálf-
leikur var afspyrnu slakur hjá
báðum liðum, en eftir markið
jókst sjálfstraustið hjá Utd. og
Mike Phelan lék vel á miðjunni.
Forest náði aldrei þeim leik sem
liðið hefur sýnt að undanförnu,
en liðið fékk þó tækifæri og Jim
Jim Leighton markvörður Man. Utd.
sunnudaginn.
fyrir Portsmouth gegn Crystal
Palace, en Portsmouth sem rak
stjórann John Gregory í vikunni
tókst ekki að halda út. Palace
náði að sigra, Andy Gray skoraði
sigurmarkið úr vítaspyrnu á síð-
ustu mín., en áður hafði Geoff
Thomas jafnað.
• Walsall virtist hafa sigur í
hendi sér gegn Hereford, en á 88.
mín. jafnaði Hereford og gerði
sigurmarkið á sömu mínútunni.
• David Gilbert skoraði fyrst
Forest
Leighton í marki Utd. varði þrí-
vegis mjög vel og átti stóran þátt
í sigri Manchester liðsins. Þor-
valdur Örlygsson lék að venju vel
hjá Forest, en fór útaf er 3 mín.
voru til leiksloka.
Hinum leikjunum tveimur lauk
báðum með 1:1 jafntefli, 2. deild-
ar lið Bradford náði jafntefli á
útivelli gegn Charlton og Port
Vale úr 2. deild var nærri sigri á
heimavelli gegn Derby, en Peter
Shilton landsliðsmarkvörður
Englands bjargaði liði sínu sem
fær nú annað tækifæri. Þ.L.A.
var leikmönnum Furest erfiður á
fyrir Grimsby gegn Huddersfield,
en fyrir heimamenn svöruðu
Mark Smith, Craig Maskell og
sjálfsmark Mark Lever.
• Alan Paris kom Leicester yfir
á heimavelli gegn Barnsley, en í
síðari hálfleik tryggðu David
Currie og Steve Lowndes Barns-
ley sigurinn.
• Oxford vann góðan sigur á úti-
velli gegn Plymouth þar sem
sigurmarkið kom undir lok leiks-
ins.
• Utandeilda lið Whitley Bay
féll úr keppni gegn liði Rochdale
úr 4. deild. Steve Johnson skor-
aði sigurmarkið í síðari hálfleik.
• Ian Bryson og Tony Agana
tryggðu Sheffield Utd. sigur gegn
Bournemouth með tveimur
mörkum í fyrri hálfleik.
• Watford komst áfram eftir 2:0
sigur gegn Wigan þar sem þeir
Glenn Roader og Glyn Hodges
skoruðu mörkin.
• Wolves var óheppið að tapa
fyrir Sheffield Wed., Steve Bull
fór illa að ráði sínu í fyrri hálfleik
er hann lét Chris Turner í marki
Sheffield verja frá sér vítaspyrnu
sem hann fiskaði sjálfur. Honum
tókst þó síðar að ná forystu fyrir
Wolves, en Peter Shirtliff jafnaði
fyrir Sheffield og á síðustu mín-
útu leiksins skoraði Dalian At-
kinson sigurmarkið úr víta-
spyrnu. Þ.L.A.
Man. Utd. lagði