Dagur - 11.01.1990, Síða 3

Dagur - 11.01.1990, Síða 3
 Fimmtudagur 11. janúar 1990 - DAGUR - 3 Bæjarstjórnarkosningar á Húsavík í Dagsljósinu: Fjórir af níu fulltrúum ákveðnir í að hætta - ekki vitað um nein sérframboð, nema hvað Bakkus er í framboði Fulltrúar fimm lista eiga sæti í Bæjarstjorn Husavikur a þessu kjörtímabili. Meirihluta bæjarstjórnar skipa tveir fulltrúar Alþýðuflokks, tveir fulltrúar Framsóknarflokks og einn fulltrúi Sjálfstæðisflokks. í minnihluta bæjarstjórnar eru þrír fulltrúar Alþýðubandalags og óháðra og einn fulltrúi Víkverja. Sam- kvæmt samtölum er Dagur hefur átt við alla bæjarfulltrúa verða miklar breytingar á bæjarstjórninni eftir kosningarnar 26. maí í vor, hvernig sem atkvæði skiptast á milli flokka, því fjórir af níu fulltrúum segjast ekki gefa kost á sér til endurkjörs. Þar er um að ræða báða fulltrúa Framsóknarflokks, annan fulltrúa Alþýðuflokks og fulltrúa Víkverja. Samkvæmt heimildum Dags er ekki ákveðið um framboð nema fjögurra lista að þessu sinni. Framboð Víkverja eða Kvennalista er ekki ákveðið og ekki er vitað um neitt sérframboð nema þá sérframboð Bakk- usar, en kosið verður um opnun áfengisútsölu á Húsavík sam- hliða bæjarstjórnarkosningunum Alþýðuflokkur „Það hefur ekkert verið ákveðið ennþá hvernig stillt verður upp á listann, hvort við höfum prófkjör eða forval. Ég hef lagt það til við flokksfélagið að kosin verði sér- stök uppstillingarnefnd,“ sagði Jón Ásberg Salómonsson, að- spurður um hvernig Alþýðu- flokkurinn muni standa að vali á frambjóðendum fyrir kosning- arnar í vor. Jón Ásberg er annar bæjarfulltrúi flokksins en hinn er Guðrún Kristín Jóhannsdóttir. „Hvað mig varðar hefur ekkert Þorvaldur Vestmann Magnússon, Sjálf- stæðisflokki: Tala við samstarfsmenn á und- an fjölmiðlum. Pálmi Pálmason, Vík- verjum: Ljóst að ég fer ekki fram. verið rætt um það ennþá og ég hef ekki ákveðið mig hvort ég gef kost á mér á framboðslistann eða ekki. Ég tel það alfarið flokksins að ákveða framboðið en ekki frambjóðendanna, svo framar- lega sem menn gefi kost á sér.“ „Ég er alveg ákveðin í að gefa ekki kost á mér,“ sagði Guðrún Kristín Jóhannsdóttir. Hún sagði að sér finndist þetta vera of mikið starf með heimilinu og fullri vinnu utan heimilis og hún yrði einhversstaðar að bakka. „Þegar manni finnst orðið að maður geri engan hlut almennilega, þá er þetta orðið of mikið,“ sagði Guðrún Kristín. Framsóknarflokkur Komin er hreyfing á framboðs- mál hjá framsóknarmönnum á Húsavík og nk. laugardagsmorg- un munu þeir funda um komandi kosningar. Ekki er reiknað með að gengist verði fyrir skoðana- könnun um val á frambjóðendum að þessu sinni, heldur að kjörin verði uppstillingarnefnd úr full- trúaráði félagsins, og að nefndin gangi frá framboðslista í samráði við stjórn. Fulltrúar Framsóknarflokksins í Bæjarstjórn Húsavíkur eru þau Tryggvi Finnsson og Hjördís Árnadóttir, en hvorugt þeirra mun gefa kost á sér til endur- kjörs. „Ég gef ekki kost á mér. Ég er búinn að vera í bæjarstjórn í átta ár, eða tvö kjörtímabil sem aðalmaður og önnur tvö sem næsti varamaður og ætli að það verði ekki að telja að það sé nóg,“ sagði Tryggvi. „Það er alveg fastáKveðið að ég gef ekki kost á mér,“ sagði Hjördís. Hjördís hefur setið eitt kjörtímabil í bæjarstjórn og seg- ist hafa lært margt og kynnst mörgu, en vegna ýmsra aðstæðna henti henni ekki að gefa kost á sér aftur. Sjálfstæðisflokkur Fyrir undangengnar bæjarstjórn- arkosningar hafa sjálfstæðismenn verið með skoðanakannanir fyrir val frambjóðenda á lista sinn. Farið hefur verið eftir niðurstöð- um skoðanakannananna á svip- aðan hátt og um prófkjör væri að ræða, þ.e.a.s. að úrslit þeirra eru bindandi fyrir uppstillingarnefnd- ina, ef þátttaka nær ákveðnu marki og frambjóðandi fær visst prósentuhlutfall. Rætt hefur ver- ið um að hafa þennan hátt á áfram en ekki er búið að ákveða hvenær skoðanakönnunin fer fram. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn er Þorvaldur Vest- mann Magnússon sem tók við á kjörtímabilinu af Katrínu Ey- mundsdóttur. Aðspurður um hvort Þorvaldur ætlaði að gefa kost á sér til endurkjörs sagði Kristján Ásgeirsson, Alþýðubandalag og óháðir: Fer eftir valkost unum. Valgerður Gunnarsdótt- ir, Alþýðubandalag og óháðir: Tilbúin að halda áfram ef stuðnings- menn vilja. Örn Jóhannsson, Alþýðubandalag og óháðir: Samráð við fjölskyldu og flokks- systkini. Hjördís Árnadóttir, Framsóknarflokki: Alveg fastákveðið að ég gef ekki kost á mér. Tryggvi Finnsson, Framsóknarflokki: Gef ekki kost á mér. Jón Ásberg Salómons- son, Alþýðuflokki: Hef ekki ákveðið hvort ég gef kost á mér. Guðrún Kristín Jóhannsdóttir, Alþýðu- flokki: Alveg ákveðin að gefa ekki kost á mér. hann: „Ég hef ekki tilkynnt mín- um samstarfsmönnum um það neitt formlega og ætla að tala við þá á undan fjölmiðlunum." Alþýðubandalag Þrír fulltrúar sitja í bæjarstjórn fyrir Alþýðubandalagið og óháða, sem buðu fram sameigin- legan lista fyrir síðustu kosning- ar, eins og gert hefur verið nokk- ur undanfarin kjörtímabil. Bæj- arfulltrúarnir eru Kristján Ásgeirsson, Valgerður Gunnars- dóttir og Örn Jóhannsson. „Þetta er ekki komið í gang hjá okkur en það fer að líða að því að menn fari að huga að þeim málum hvernig staðið verði að þessu. Annað er ekki hægt að segja í dag,“ sagði Kristján, aðspurður um hvernig staðið yrði að uppsetningu listans. Hvað sitt framboð varðaði sagði Kristján: „Það fer eftir því hvaða valkostir eru í þessu, eins og gefur að skilja.“ „Mér finnst þetta ekki bara vera mitt mál en lít á þetta sem mál þeirra sem styðja mig líka,“ sagði Valgerður, fulltrúi óháðra á listanum. „í sjálfu sér er ég til þess að gera tilbúin að halda áfrarn því að á fyrsta kjörtímabil- inu lærir maður heilmikið.“ Val- gerður segir samstarfið við Alþýðubandalagið hafa verið tnjög gott á kjörtímabilinu og hún sjái í sjálfu sér ekkert sem mælti á móti að halda því áfram. Aðspurður um hvort Örn Jó- hannsson gæfi kost á sér til áframhaldandi setu í bæjarstjórn svaraði hann: „Þetta er hlutur sem tekin verður ákvörðun um í samráði við mína fjölskyldu og ntín flokkssystkini.“ Víkverjar Pálrni Pálmason, tryggingafull- trúi situr í Bæjarstjórn Húsavík- ur fyrir Þ-lista, lista Víkverja. „Það er allavega ljóst að ég fer ekki fram aftur. Hvað aðrir sem að þessu framboði stóðu síðast gera nú hefur ekki verið rætt, en ef af verður verð ég ekki með í þeirri baráttu,“ sagði Pálmi aðspurður um framboð fyrir kosningarnar í vor. Pálrni sagði að markmið Vík- verja hefði verið enn meiri heimavarnarbarátta en mönnum fannst vera fyrir hendi fyrir fjór- um árum síðan, nú væri sú bar- átta að koma frarn miklu meira unt landið en verið hefði þá. IM

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.