Dagur - 16.01.1990, Page 6

Dagur - 16.01.1990, Page 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 16. janúar 1990 Tilkynning til sölu- skattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjalddagi söluskatts fyrir desembermánuð er 15. janúar. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkis- sjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið. Evrópuráðsstyrkir á sviði félagsþjónustu Evrópuráðið veitir starfsmönnum stofnana og sam- taka á sviði félagsþjónustu styrki vegna kynnisferða til aðildarríkja ráðsins á árinu 1991. Umsóknareyðublöð fást í félagsmálaráðuneytinu, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar nk. Félagsmálaráðuneytið, 11. janúar 1990. AKUREYRARB/ER Viðtalstímar bæjarfulltrúa Fimmtudaginn 18. janúar 1990 kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir Guðfinna Thorlacius og Sigurður Jóhannesson til viðtals á skrifstofu bæjarstjórnar, Geislagötu 9, 2. hæð. Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því sem aðstæður ieyfa. Síminn er 21000. Bæjarstjóri. kvikmyndarýni i______________________ [ Umsjón: Jón Hjaltason Kevin Bacon (til vinstri) er skjólstæðingurinn en Gary Oldman verjandinn. Skjólstæðingurínn er sannarlega engin skemmtimynd en hún vekur óneitanlega upp spurningar og er áleitin við áhorfendur. Kannski líður hún svolítið fyrir það að aðstandendur hennar hafa ekki getað gert upp við sig hvort hún ætti að vera hryllingsmynd eða sálarvekjandi spennumynd. Skilsmuimr hefndar og réttvísi Borgarbíó sýnir: Skjólstæðinginn (Criminal Law). Lcikstjóri: Martin Campcll. Höfundur handrits: Mark Kasdan. Hclstu leikarar: Gary Oldman og Kevin Bacon. Hemdalc Film Corporation 1989. Kevin Bacon segir í þessari mynd skiliö við huggulega unglinginn og sveiflar sér yfir í hlutverk unga mannsins morðóða. Gary Oldman leikur verjanda Bacons er að lok- um breytist í helsta ákæranda hans. Hvorugan þessara leikara er að finna í hinu ágæta uppflettiriti Quinlands, útgefnu 1986. Ogsatt að segja man ég ekki eftir því að hafa séð Oldman á hvíta tjaldinu fyrr, Bacon hefur hins vegar leik- ið í nokkrum fallegum unglinga- myndum áður. En það er skemmst frá því að segja að í Skjólstæðingnum fara þeir báðir, Oldman og Bacon, á kostum. Oldman er í byrjun myndar hinn dæmigerði uppi sem hugsar um það eitt að ná árangri og hafa það gott. Smám saman þokar hin óhóflega sjálfumgleði fyrir nag- andi efa sem síðar breytist í sam- viskubit og seinast í iðrun. Öllu þessu kemur Oldman til skila á þann hátt að varla verður gert betur. Bacon er af bandaríska aðlin- um. Hann er ríkur og þarf ekki að hafa áhyggjur af brauðstriti. í upphafi myndar situr hann á sakabekk, ákærður fyrir hrylli- legt morð, en Oldman fær hann sýknaðan. í raun og veru er Bacon sekur. Fleiri morð eru framin og sérstæð tengsl myndast á milli morðingjans og verjand- ans. Greinilegt er að Bacon vill að Oldman viti sannleikann og ekki aðeins það; lögmaðurinn á einnig að dæma morðingjann og um leið að fullnægja dóminum, en morð Bacons eru einmitt í samræmi við dóma sem hann hef- ur sjálfur kveðið upp. Það er þó að mínu mati svolítill feill hjá Mark Kasdan, höfundi handrits, að láta morðin líta út sem veru- lega geðtruflaður maður fremji þau. Þetta dregur óneitanlega broddinn úr aðalspurningu myndarinnar; hver er skilsmunur hefndar og réttvísi? í annan stað vekur Skjólstæð- ingurínn upp spurningar um rétt- mæti dómskerfis sem gerir kröfu um verjendur og dómendur? Lögmönnum ber beinlínis skylda til að bera í bætifláka fyrir skjól- stæðing sinn alveg óháð sekt eða sýknun. Ég spyr; má ekki finna betra kerfi? Bond og Dalton Borgarbíó sýnir: Lcyfið ariurkallað (Licence to Kill). Leikstjóri: John Glcn. Helstu leikendur: Timothy Dalton, Carey Lowell og Robert Davi. Unitcd Artists 1989. Ég skal vera hreinskilinn og játa það hér og nú að ég hef aldrei verið tiltakanlega hrifinn af James Bond bíómyndanna. Leyfið afturkallað er ekki líkleg til að breyta þessu áliti mínu í neinu. Timothy Dalton er eflaust ágætis náungi en karlmennskan skín ekki af honum í neinum við- i líka mæli og af Sean Connery né heldur hefur hann fágaðan en þóttafullan stærileika Roger Moore. Connery og Moore eru báðir ákaflega ánægðir með sjálfa sig og það lætur engan ósnortinn; þeir ætlast til að bíóið sé þeirra og það gengur eftir. Dalton er einfaldlega ekki nógu grobbinn á sama skemmtilega hátt og tveir fyrirrennarar hans eða, til að nefna nærtækara dæmi, Kristján okkar Jóhanns- son. I meðförum hans eignast Bond aldrei neinn stórbrotinn persónuleika og þess vegna nær glæponinn, Robert Davi, til að skyggja gjörsamlega á aðalhetj- una. Annars líður þessi Bond-mynd fram á svipaðan hátt og aðrar slíkar sem ég hef séð; kvenfólk er ávallt innan seilingar, miklir pen- ingar eru í húfi, vondi maðurinn er skepna og Bond morðóður dýrlingur. Ótrúlegir atburðir ger- ast og hvað eftir annað hangir líf Bonds á bláþræði en ekkert fær sálgað honum. Hann leggur nálega einsamall til atlögu við öfluga eiturlyfjasala sem hafa myrt vinkonu hans og limlest eig- inmann hennar. Bond vill hefnd og hana fær hann. Nær okkur á myndinni situr James Bond, eða Timothy Dalton, til alls líklegur.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.