Dagur - 16.01.1990, Side 7
Þriðjudagur 16. janúar 1990 - DAGUR - 7
Rafmagnið í Höllinni:
Taflan sprakk í naumu tapi Þórsara
- íslandsmeistarar ÍBK sluppu með skrekkinn í frábærum
leik
Það gekk mikið á í íþróttahöll-
inni á Akureyri á sunnudags-
kvöldið er Þór og Keflvíkingar
mættust í Urvalsdeildinni í
körfuknattleik. Svo mikil
spenna var í loftinu að skor-
taflan sprakk er tæpar tvær
mínútur voru til leiksloka.
Leikur liðanna var hnífjafn
fram á síðustu sekúndu en skot
Þórsara geigaði og Islands-
meistarar Keflavíkur fóru með
sigur af hólmi með minnsta
mun, 106:104.
Þórsarar léku þennan leik
mjög vel og var grátlegt fyrir þá
að fara ekki með sigur af hólmi.
Þeir leiddu framan af fyrri hálf-
leik en misstu gestina fram úr sér
í síðari hluta hálfleiksins.
Þá var áhorfendum farið að lít-
ast illa á stöðuna því ÍBK náði 12
stiga forskoti og fóru leikmenn
ÍBK á kostum á þessum leik-
kafla, m.a. skoraði Sandy Ander-
son sirkuskörfu. Þegar gengið var
til búningsherbergja var staðan
59:50 ÍBK í vil.
En heimamenn komu mjög
grimmir til leiks í síðari hálfleik.
Vel studdir af áhorfendum söx-
uðu þeir jafnt og þétt á forskot
gestanna og náðu að komast yfir
65:63.
En Þórsarar létu ekki staðar
nuinið og náðu 8 stiga forskoti á
tímabili, 87:79. Keflvíkingar gáf-
ust ekki upp og náðu að jafna
leikinn 94:94. Lokamínúturnar
voru æsispennandi, ÍBK náði for-
ystunni hvað eftir annað en frá-
bær langskot frá Kennard, Jóni
Erni og Konráði héldu Þórsurum
á floti. En lokaskotið, þegar rúm-
ar 5 sekúndur voru eftir brást, og
Keflvíkingar hrósuðu sigri.
Þórsliðið átti mjög góðan dag
að þessu sinni og var það svekkj-
andi að tapa leik á slíkum degi.
Þetta var besti leikur liðsins á
heimavelli í vetur og lofar góðu
unt framhaldið. Jón Örn Guð-
mundsson var fremstur í flokki
Þórsara að þessu sinni og átti
hann frábæran leik. Konráð Ósk-
arsson var daufur í fyrri hálfleik
en var óstöðvandi í þeim síðari.
Jóhann Sigurðsson var feikna-
sterkur í vörninni og átti einnig
góða spretti í sókninni. Dan
Kennard var frekar daufur að
þessu sinni en var sterkur í vörn-
inni að vanda. Guðmundur
Björnsson meiddist í upphitun og
gat því ekkert leikið með og
munar um minna.
ÍBK-liðið er skipað mjög
sterkum leikmönnum og er engin
skömm að tapa fyrir slíku liði.
Guðjón Skúlason fór á kostum í
fyrri hálfleik en var rólegur í
þeim síðat i. Þá tók Falur Harðar-
son við og skoraði úr flestum
skottilraunum sínum. Einnig var
Bandaríkjamaðurinn Sandy
Anderson góður og leikur hann
vel fyrir liðið.
Dómarar voru þeir Leifur
Garðarsson og Guðmundur Mar-
íasson. Þeir dærndu leikinn með
sóma enda leikmennirnir prúðir.
Stig Þórs: Jón Örn Guðmundsson 34,
Dan Kennard 18, Konráð Óskarsson 17,
Eiríkur Sigurðsson 17, Jóhann Sigurðs-
son 10, Björn Sveinsson 4, Ágúst Guð-
mundsson 2, Davíð Gíslason 2.
Stig ÍBK: Guðjón Skúlason 32. Falur
Harðarson 25, Sandy Anderson 20,
Nökkvi Jónsson 9, Albert Óskarsson 7,
Sigurður Ingimundarson 6, Magnús Guð-
finnsson 5, Einar Einarsson 3.
Knattspyrna:
Hörður í Leiftur
Hörður Benonýsson hefur
ákveðið að ganga til liðs við
Olafsfirðinga og leika með
þeim í 2. deildinni í sumar.
Hann var reyndar búinn að
ráða sig til HSÞ-b en skipti um
Hörður Benonýsson.
skoðun og verður því í Ólafs-
firði næsta sumar.
Rúnar Guðlaugsson formaður
knattspyrnudeildar Leifturs sagði
reyndar að ekki væri búið að
ganga frá félagaskiptum Harðar
en það væri nánast formsatriði.
Þorlákur Árnason markaskor-
ari frá Þrótti N. verður með
Ólafsfirðingum næsta sumar og
sagði Rúnar að ekki væri rétt sem
komið hefði fram í Múla, blaði
þeirra Ólafsfirðinga, að Þorlákur
myndi þjálfa fyrir austan næsta
sumar.
Garðar Jónsson framlínumað-
ur verður hins vegar ekki með
Leiftri í sumar. Hann mun að öll-
um líkindum þjálfa Síndra frá
Hornafirði á næsta keppnistíma-
bili.
Næsta verkefni Leiftursmanna
er þátttaka í 1. deildinni innan-
húss helgina 26.-28. janúar. Þar
eru Ólafsfirðingar í mjög erfiðum
riðli en andstæðingarnir eru
Fram, ÍA og ÍK.
Gantla kempan Eiríkur Sigurðsson átti góðan leik gegn ÍBK, eins og reyndar allt Þórsliðið.
Mynd: KL
Sænskt Skíði: ur skíðat riálfari
til Ólafsfíarðar
Ólafsfiröingar liafa loksins ráðið skíðaþjáifara eftir langa leit. Hún heitir Viktoria Westberg og er sænsk að þjóðerni. Viktoria er reyndur skíðaþjálfari þrátt fyrir ungan aldur og er hún væntanleg til Ólafsfjarðar 24. janúar. Það var Kajsa Nyberg landsliðs- þjálfari sem kotn Ólafsfirð- ingum í samband við Viktoriu en hún kemur frá bænum Taby í Svíþjóð. „Við erum auðvitað í sjöunda hintni,“ sagði Björn Þór Ólafs- son skíðafrömuður í Ólafsfirði. „Það vantar bara snjóinn til þess að þetta sé fullkomiö," bætti hann viö. Skíöamenn í Ólafsfirði eru farnir að taka frant skíðin. Nokkur snjór hefur fallið á lág- lendi þannig að göngumenn hafa getað stundaö sína íþrótt þokkalega. Litli stökkpallurinn í bænum er kominn í gagnið og yngri kynslóðin stekkur þar af fullurn krafti. Nýbúið er að setja upp lyftu í bænum þannig að þeir yngstu geta farið að æfa sig á svigskíðunum. Með hinum nýja sænska skíðaþjálfara má búast við góð- unt árangri keppnisfólks frá Ólafsfirði á mótum vetrarins.