Dagur - 16.01.1990, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 16. janúar 1990
íþróttir
i
Handknattleikur/2. deild kvenna:
Selfossstúlkur of sterkar
Stefán Magnússon.
Þrátt fyrir ágætan endasprctt tókst
Þórsurum ekki að vinna upp sex
marka forskot Selfyssinga í 2. deild-
inni í handknattleik karla á laugar-
daginn. Lokatölur urðu 21:19 gest-
unum í vil og sigla því Þórsarar lygn-
an sjó um miðja deild.
Leikur Selfyssinga og Þórs átti að
fara fram á föstudagskvöldið en var
frestað vegna veðurs og fór hann því
fram á laugardaginn. Leikurinn var
fjörugur og þvi hin besta skemmtun
fyrir áhorfendur.
Jafnræði var með liðunum í fyrri
hálfleik en Selfyssingar voru þó öllu
sterkari aðilinn. Þar munaði mestu að
sóknarmenn Þórs voru ekki nógu hittn-
ir og Klemens markvörður gestanna
varði mjög vel á sama tíma og Her-
mann fann sig ekki í Þórsmarkinu. Sel-
foss leiddi því í leikhléi 13:11.
Sævar Árnason reynir hér markskot gegn Selfyssingum en Klemens markvörður varði eins og oftar í leiknum. Fyrstu 15 mínúturnar í síðari hálf-
Mynd: kl leik voru hreinasta hörmung hjá Þórs-
bóga. Gestirnir náðu tveggja
marka forskoti fyrir leikhlé, 11:9.
í síðari hálfleik tóku Selfoss-
stúlkurnar öll völd á vellinum og
juku muninn jafnt og þétt. Á
tímabili var orðinn átta marka
munur 19:11 en Þórsstelpurnar
klóruðu í bakkann undir lok
leiksins og munurinn var ekki
nema 5 mörk, 23:18, er dómar-
arnir flautuðu til leiksloka.
Hjá Þór bar mest á Maríu Ingi-
mundardóttur og var hún nánast
sú eina sem hafði í fullu tré við
Selfossstúlkurnar. Að vanda var
Þórunn Sigurðardóttir einnig
áberandi í Þórsliðinu.
Selfossliðið er skipað jöfnum
stúlkum og ætti liðið að geta
spjarað sig í 1. deildinni en það
stefnir allt í það að liðið fari upp
í þá deild.
Mörk Þórs: María Ingimundardóttir 7,
Pórunn Sigurðardóttir 6, Harpa Örvars-
dóttir 2, Eva Eyþórsdóttir 1, Hugrún Fel-
ixdóttir 1, Þórdís Sigurðardóttir 1.
Mörk Selfoss: Auður Hermannsdóttir
8, Hulda Bjarnadóttir 6, Guðbjörg
Bjarnadóttir 3, Inga F. Tryggvadóttir 3,
Hulda S. Hermannsdóttir 2, Kristjana
Aradóttir 1.
Þórsstelpurnar sóttu ekki gull í
greipar efsta liðs 2. deildar,
Selfoss, er liðin mættust í
íþróttahöllinni á Akureyri á
laugardaginn. Gestirnir voru
mun sterkari og sigruðu 23:18.
Jafnræði var þó með liðunum í
fyrri hálfleik en Selfyssingar voru
þó oftast fyrri til að skora.
Leikur liðanna í fyrri hálfleik
var ekki sérstaklega vel spilaður
og var töluvert um mistök á báða
María Ingimundardóttir var best Þórsstúlkna gegn Selfyssingum.
Har
Lokasprel
1. deildin í blaki:
Létt hjá KA
- HSK án lykilmanna
KA-menn leyfðu því öllum
varamönnunum að spreyta sig og
áttu þeir í litlum erfiðleikum að
KA lenti í litlum erfiðleikum
með vængbrotið lið HSK í 1.
deildinni í blaki á laugardag-
inn. Leikurinn fór fram í Gler-
árskóla og lauk með sigri KA
3:0.
Flesta lykilmenn HSK-liðsins
vantaði vegna veikinda og var því
leikur liðsins hvorki fugl né
fiskur. í HSK vantaði bræðurna
Andrés og Pétur Guðmundssyni
og Sigfinn Viggósson þannig
að það var fátt um fína drætti hjá
liðinu.
leggja gestina að velli. Fyrsta
hrinan fór 15:6, önnur hrinan
15:6 og þriðja hrinan 15:9.
Bestur KA-manna var Stefán
Magnússon en í heildina var liðið
mjög jafnt. Lítið er hægt að segja
um HSK-liðið. Leikmenn liðsins
reyndu þó að berjast en mættu
algjörum ofjörlum sínum að
þessu sinni.
íslandsmótið í innanhússknattspyrnu:
Þór og KA upp í 1. deild
- Umf. Fram á Skagaströnd upp um deild
íslandsmótið í innanhússknatt-
spyrnu, 2., 3. og 5. deild, fói
fram í Laugardalshöll um helg-
ina. KA og Þór unnu bæði sína
riðla í 2. deild og leika því í 1.
deild á næsta ári. í 5. deildinni
unnu Skagstrendingar sig upp
um deild.
í A-riðli 4. deildar unnu Vals-
menn öruggan sigur. Leiknir R.
lenti í öðru sæti, HSÞ-b þriðja
sæti en Njarðvíkingar féllu niður
í 3. deild.
KA lenti með frekar slökum
liðum og vann B-riðilinn með
fádæma yfirburðum. KA vann
Skallagrím 15:1, Einherja 9:1 og
Sindra 3:1. Sindri féll niður í 3.
deild en Skallagrímur og Einherji
héldu sætum sínum.
Þórsarar lentu í erfiðum riðli
en stóðust þrekraunina og kom-
ust upp í 1. deild. Þeir gerðu
jafntefli við FH 2:2 í fyrsta leikn-
um, en unnu Hauka 3:1 og Vík-
verja 5:2 og tryggðu sér þar með
l. deildarsæti. Víkverji féll niður
í 3. deild.
í C-riðli sigraði Breiðablik en
Hvöt féll niður í 3. deild. Siglfirð-
ingar byrjuðu vel er þeir gerðu
jafntefli en náðu ekki að fylgja
þeirri góðu byrjun eftir, töpuðu
m. a. fyrir Hvöt, og lentu í þriðja
sæti í riðlinum.
í 3. deildinni voru tvö lið af
Norðurlandi, Reynir frá
Árskógsströnd og Kormákur frá
Hvammstanga.
Reynismenn voru hársbreidd
frá því að komast upp í 2. deild.
Þeir voru hins vegar með lakara
markahlutfall en Hveragerði og
Sunnlendingarnir fóru því upp
um deild en ekki piltarnir frá
Árskógsströnd.
Kormáki frá Hvammstanga
tókst ekki að komast upp en þeir
lentu í öðru sæti í sínum riðli á
eftir Árvakri. Árvakursmenn
með Sæbjörn Guðmundsson,
fyrrverandi KR-ing, í fararbroddi
voru með mjög sterkt lið og var
sigur þeirra aldrei í hættu. Það
voru sem sagt Árvakur, Hvera-
gerði, Víkingur Ó. og.Ármann
sem komust upp en Reynir S.,
Höttur, Grundarfjörður og BÍ
féllu niður í 4. deild.
í 5. deildinni voru þrjú lið að
norðan, Umf. Fram á Skaga-
strönd, Neisti frá Hofsósi og SM
úr Eyjafirðinum.
Páll Leó Jónsson og félagar í
Umf. Fram á Skagaströnd unnu
sig örugglega upp um deild. Páll
Leó fór á kostum í flestum
leikjunum og skoraði meirihluta
marka Skagstrendinga. Umf.
Fram er að hugsa um að taka þátt
í 4. deildinni utanhúss næsta
sumar en það skýrist á allra næstu
dögum.
Neisti frá Hofsósi lenti í öðru
sæti í A-riðli. SM gekk ekki vel
og lenti i næst-neðsta sæti í C-
riðli. í 4. deild leika því Fram,
Eyfellingur og Fjölnir að ári.
Helgina 26.-28. janúar fer síð-
an síðari hluti Islandsmótsins
fram. Þá verður leikið í 1., 4., og
1. deild kvenna. Eina norðanlið-
ið í 1. deildinni er Leiftur og eru
þeir í heldur erfiðum félagsskap,
Fram, ÍA og ÍK.
í 1. deild kvenna verður KA og
mörg norðanlið eru í 4. deild
karla, m.a. UMSE-b, Magni,
Æskan, Tindastóll, Dalvík og
TBA.