Dagur - 03.03.1990, Side 8

Dagur - 03.03.1990, Side 8
8 - DAGUR - Laugardagur 3. mars 1990 II Tilboð Vátryggingafélag íslands hf. Akureyri, óskar eftir tilboðum í eftirtaldar bifreiðar, skemmdar eftir umferðaróhöpp. 1. Renault GTL árg. 1989 2. Space Wagon 4 WD árg. 1988 3. Chevrolet Monza CL árg. 1988 4. Subaru 1800 st árg. 1987 5. Toyota Camry XL st árg. 1987 6. Mazda 323 GLX 1500 árg. 1987 7. Galant 2000 GLS árg. 1985 8. Ford Sierra 1600 árg. 1984 9. MMC Tredia árg. 1983 Bílarnir verða til sýnis mánudaginn 5. mars n.k. í geymslu við Glerárósa, frá kl. 12.30 til 16.00. Tilboðum sé skilað til Vátryggingafélags íslands hf. fyrir kl. 17.00 þriðjudaginn 6. mars 1990. vatryggingafelag ^rlaF ÍSLAINDS HF Pyrir fenningamar! Teppi og dúkar í úrvali 66° N loðfóðraðir gallar á góðu verði Yerfð velkomiii á. Byggingavörur Lónsbakka Sími 96-30300 Fremst á myndinni er Vorrar frúar kirkja (Vor Frue Kirke) og í fjarska sér yfir Eyrarsund. „Lykken er et smil,“ segja Danir. Víða rekst maður á þessi orð í Danmörku, jafnvel skrif- uð inn í blóðrautt hjarta. Ekki veit ég með vissu hvernig á að segja þetta á íslensku, enda höf- um við íslendingar ekki brosað síðan land byggðist - nema þeg- ar við urðum reiðir, eins og Skarphéðinn á Bergþórshvoli. Hvergi hef ég séð fólk brosa meira en í Danmörku. Brosið er eins og hluti af umgengnis- venjum fólks. Maður getur átt það á hættu að brosað sé til manns án minnsta tilefnis, jafn- vel á miðri götu - og án þess að fólk meini nokkuð með því, það er brosað til þín í lestinni frá Farum inn til Kaupmannahafn- ar og í mjólkurbúðinni. Rekist þú á í mannþröng er sennilegt að þú fáir fallegt bros og af- sökunarbeiðni: „Undskyld." Að ég tali nú ekki um bros afgreiðslufólks í verslunum og bönkum. Þú ert ekkert að trufla. Það er ótrúlegt hvað fallegt bros getur haft mikil áhrif á geð manna. Sennilega hefur ekkert betri áhrif á heilsu manna en bros - nema ef vera kynni að syngja. Þetta hafa menn vitað lengi. í Hávamálum segir: Vini sínum skal maður vinur vera og gjalda gjöf við gjöf, hlátur við hlátri, skulu höldar taka, en lausung við lygi. Hávamál eru hér sem annars staðar raunsæ í boðskap sínum. Auðvitað eigum við að brosa til vina okkar - en við eigum að gjalda lausung við lygi, gjalda Tryggvi Gíslason skrifar líkum líkt, „tönn fyrir tönn,“ eins og Hamúrabí sagði. Einar Benediktsson hefur hins vegar - eins og oft endra- nær - orðað setningu um brosið betur en aðrir menn í kvæði sínu EINRÆÐUM STARK- AÐAR: Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Pel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Ósköp er gott að geta brosað til vinar síns, til náungans og til þess sem þú þekkir ekkert. „Eitt bros getur dimmu í dags- ljós breytt." En Danir eru auðvitað líka að hugsa um viðskipti og versl- un, þegar þeir brýna fyrir fólki að brosa. „Spis og vær glad.“ Rejs og vær glad,“ segir Spies. Danir eru duglegastir allra Evr- ópuþjóða að selja, jafnvel það sem þeir eiga ekki. Þeir eiga engar orkulindir, enga Blöndu eða Þjórsá, en þeir eiga viðmót sem vekur hlýju. „Lykken er et smil.“ Það er gott að mæta hlýlegu viðmóti - öllum. Illt er að lenda í þeim ógöngum að það sé talið tortryggilegt að brosa, menn séu taldir undarlegir, eitthvað brenglaðir ef þeir brosa til ókunnugs fólks - að ekki sé nú talað um að brosa til barna, en það er önnur saga. Gamall Akureyringur sagði mér fyrir mörgum árum að hann hefði tamið sér að brosa til fólks, jafnvel fitja upp á viðræð- um á förnum vegi af litlu tilefni. Þetta vakti hins vegar tortryggni meðal hugsandi manna, og varð jafnvel til þess að hann var tal- inn skrýtinn í þessum „danska" bæ, Akureyri, þar sem brosið ætti að vera hluti af hversdags- leikanum. „Si det með blomster," segja Danir líka, og það fylgir bros og ef til vill hvatning að kaupa blóm handa konunni eða móður sinni. Það var því notalegt, þeg- ar ég gekk um lystigarðinn á Húsavík í sumar leið með forn- vinum mínum innan um öll blómin, að fá fallegt bros frá húsvískri yngismey, þegar ég leit til hennar á göngu okkar í blómagarðinum og brosti. Kannski danska brosið sé líka á leið til íslands. Danmerkur- pistill I Danska brosið

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.