Dagur - 10.03.1990, Síða 18
18 - DAGUR - Laugardagur 10. mars 1990
tómstundir
Ljósmyndun, vinsælt tómstundagaman:
„Fólk og falleg form í náttúruimi óska myndefni“
- konulíkaminn hefur alltaf verið heillandi
Ljósmyndun á vaxandi vin-
sældum að fagna sem tóm-
stundagaman. Fyrir þá sem
ekkert vita um Ijósmyndun
koma upp ótal spurningar.
Fiestir hafa átt vasamyndavél
og tekið myndir við ýmis tæki-
færi með misjöfnum árangri.
En hvað þarf til að taka góðar
myndir? Hvað kostar góð
myndavéi, flass, linsur? Borg-
ar sig að framkalla fílmurnar
sjálfur og hvaða aðstöðu þarf
til þess? Margt fleira kemur
upp í hugann. Til að leita svara
við þessum spurningum og
fræðast meira um Ijósmyndun
heimsótti blaðamaður Dags
tvo pilta, þá Skúla Gunnarsson
og Einar Einarsson, sem feng-
ist hafa við Ijósmyndun og eru
félagar í Ijósmyndaklúbbi Fjöl-
brautaskólans á Sauðárkróki.
Það lá beinast við að byrja
spjallið á því að spyrja hvenær
áhuginn hafi kviknað.
Skúli: „Það er nú ekki mjög
langt síðan hjá mér, ekki nema
tvö ár.“
Einar: „Það byrjaði strax í
níunda bekk fyrir alvöru, það
heillaði mann strax að geta fest
liðnar minningar á filmu og
pappír".
- Hvað með kostnaðarhliðina,
er ljósmyndun ekki frekar dýrt
sport?
Skúli: „Það verður jú að segj-
ast alveg eins og er. Þetta er frek-
ar dýrt til að byrja með en þegar
þú ert kominn með það sem þú
þarft er þetta ekki svo dýrt“.
Gott að vera í
Ijósmyndaklúbb
Þeir Skúli og Einar eru í ljós-
myndaklúbbi Fjölbrautaskólans
á Sauðárkróki, reyndar báðir í
stjórn klúbbsins. Fyrir þá sem
ætla að framkalla filmurnar sjálf-
ir og koma þeim síðan á pappír
er gott að vera í ljósmynda-
klúbbi, þá er hægt að nota sam-
eiginlega aðstöðu og tæki, svo
sem stækkara og vökva. Félags-
skapurinn er líka mikilvægur,
fólk hittist og skoðar myndir og
ræðir um nýjungar í faginu.
- Er vaxandi áhugi á ljós-
myndun meðal krakka?
Skúli: „Já ég held að óhætt sé
að segja það. Það er fastur kjarni
sem kemur saman og þeir sem
meira kunna reyna að segja hin-
um til. Þetta eru bæði stelpur og
strákar enda er þetta gott áhuga-
Félagarnir Skúli og Einar í myrkrakompunni.
'
Raflagnir.
Viðgerðir
á raflögnum.
Raftækjaviðgerðir.
Dyrasímaviðgerðir.
Dyrasímar.
Efnissala.
tgzsmæm
rafQrka
Kotárgerði 22
Sími 23257
mál fyrir bæði kynin. Það tekur
ekki langan tíma að læra fram-
köllun, en maður verður að fylgj-
ast með og æfingin skapar meist-
arann í þessu eins og svo mörgu
öðru.“
Að taka myndir
Þeir félagar eru skólaljósmyndar-
ar við Fjölbrautaskólann. Þar
þurfa þeir að taka myndir fyrir
skólablaðið og einnig andlits-
myndir af öllum íbúum heima-
vistarinnar sem síðan birtast í
sérstakri vistarbók sem gefin er
jút árlega. Ég spurði þá félaga
jhvernig það gengi að fá fólk til að
myndast vel.
Skúli: „Ljósmyndarinn þarf að
geta látið fólk slappa af í návist
sinni og helst að fá það til að
gleyma því að verið sé að mynda
það. Hins vegar myndast sumir
alltaf vel og aðrir miður. Við því
getur stundum verið lítið hægt að
,gera.“
- Það dugar ekki alltaf að
segja sís?
Éinar: „Nei, blessaður vertu,
sumir hafa fallegt bros og aðrir
eru hreinlega óeðlilegir ef þeir
opna munninn. Það er, eins og
Skúli sagði, fyrir öllu að fá fólk til
að vera bara eðlilegt, tilgerð
myndast yfirleitt mjög illa.“
Hvaða myndefni
er skemmtilegast?
Einar: „Fólk og allar lifandi ver-
ur hefur alltaf verið mitt uppá-
halds myndefni.“
Skúli: „Falleg og sérstök form
úti í náttúrunni heilla mig alltaf,
það er líka gaman að taka myndir
af fólki sem veit ekki að maður er
að mynda það. Fólki hættir svo
oft til að verða óeðlilegt og til-
gerðarlegt ef það veit að á að fara
að mynda það. Það er líka ágæt
regla, sem ljósmyndarar eiga að
virða, að vera ekki að mynda fólk
sem ekki vill láta mynda sig.“
- Hvað um konulíkamann,
það er nú frægt myndefni.
Skúli: „Konulíkaminn er auð-
vitað óskamyndefni allra Ijós-
myndara, það er allavega mín
skoðun. Erfiðleikarnir eru skort-
ur á módelum, og ég lýsi kannski
bara hér með eftir sjálfboðalið-
um.“
Einar: „Það væri vissulega
upplífgandi að fá tækifæri til að
fást við þetta myndefni en eins og
Skúli sagði er ekki vinsælt að mis-
nota vinkonurnar í þetta og ekki
er sjálfboðaliðunum fyrir að
fara.“
Á meðan við spjölluðum sýndu
þeir Skúli og Einar blaðamanni
hluta af myndasafni sínu og þar
var að finna margar sérstaklega
fallegar myndir og greinilegt að
myndefnin eru óþrjótandi ef hug-
myndaflugið er látið ráða. Þegar
að því kom að blaðamaður skyldi
mynda þá félaga urðu þeir hálf
feimnir enda örugglega vanari að
vera hinum megin við myndavél-
ina. kg
Húsavíkurkirkja:
Sharon og David Thompson
með tónleika á sunnudag
Sharon P. Thompson, sópran,
og David B. Thompson, píanó-
leikari, halda tónleika í Húsa-
víkurkirkju sunnudaginn 11.
mars kl. 17. Þau hjónin hafa
starfað á Húsavík síðan á
haustmánuðum 1988. Sharon
er kórstjóri Húsavíkurkirkju
og kennir við Tónlistarskóla
Húsavíkur og Barnaskóla
Húsavíkur. David er organisti
Húsavíkurkirkju og píanókenn-
ari við Tónlistarskóla Húsavík-
ur.
Á efnisskrá tónleikanna eru
íslensk sönglög og verk eftir
ameríska höfunda, negrasálmar
og lög úr söngleikjum. David
mun einnig leika þrjú ítölsk
orgelverk frá sautjándu öld.
Sharon er með BA gráðu í
tónlistarkennslu og MA gráðu í
söng frá Háskólanum í Suður-
Karólínu. Hún hefur starfað sem
söngkennari og kórstjóri við
margar kirkjur. Hún hefur komið
fram sem einsöngvari með kórum
og hljómsveitum, sungið óperu-
hlutverk og farið meö einsöngs-
hlutverk í kirkulegum verkum.
David er með MA gráðu frá
Háskólanum í Suður-Karólínu,
bæði sem píanókennari og ein-
leikari, og hefur réttindi til að
kenna á öllum stigum píanó-
náms. IM
Sharon og David Thompson.
Mynd: IM