Dagur - 13.03.1990, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 13. mars 1990
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (Iþróttir),
KÁRI GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Hvað kostar sú
byggðaröskun...?
Það sem á hátíðlegum stundum er nefnt byggða-
stefna stjórnvalda hefur á síðustu árum fyrst og
fremst einkennst af tilviljanakenndum aðgerðum til
að bjarga einstaka sveitarfélögum og jafnvel heilu
byggðarlögunum frá hruni. Þótt fólksflutningarnir
miklu frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins
hafi staðið yfir í marga áratugi, hefur engin áætlun
um það hvernig beri að bregðast við, litið dagsins
ljós.
Það er staðreynd að í nútímaþjóðfélagi er hverri
þjóð nauðsynlegt að eiga öfluga höfuðborg. Slíka
borg höfum við íslendingar byggt okkur og ör vöxt-
ur hennar og viðgangur hefur vissulega stuðlað að
framförum á flestum sviðum þjóðlífsins. En þar
kemur í sögu hverrar þjóðar að vissum tímamótum
er náð í byggðaþróuninni; tímamótum þegar höfuð-
borgin er orðin nógu öflug til að fjölþætt þjón-
ustustarfsemi, menning, listir og vísindi geti
dafnað. Eftir að þeim tímamótum er náð skapar
áframhaldandi ör fólksfjölgun á höfuðborgarsvæð-
inu dýran vanda.
Líklega stóð íslenska þjóðin á þessum tímamót-
um í byrjun 9. áratugarins, þótt þess yrði ekki vart
í byggðaaðgerðum stjórnvalda. Áframhaldandi
byggðaröskun hefur haft í för með sér mikinn
kostnað og umtalsvert óhagræði fyrir þjóðina. Víða
um land standa mannvirki vannýtt vegna fólks-
fækkunar. Sömu sögu er að segja um ýmsar auð-
lindir þjóðarinnar. Fólksfækkunin hefur einnig leitt
af sér verulega erfiðleika í atvinnulífi á landsbyggð-
inni og skapað ýmis vandamál í rekstri sveitar-
félaga. Á sama tíma hefur þurft — og þarf - að
byggja þjónustumannvirki á höfuðborgarsvæðinu,
sem í mörgum tilfellum eru til annars staðar. Einnig
hefur þurft - og þarf - að byggja dýr umferðar-
mannvirki á höfuðborgarsvæðinu til að anna stór-
auknum umferðarþunga þar. Vaxandi félagsleg
vandamál valda einnig auknum sameiginlegum
kostnaði og þannig mætti lengi telja. Þessi „þróun"
er vafalaust bæði efnahagslega og félagslega óhag-
kvæm þjóðinni í heild. Um það verður ekki deilt.
Það er löngu tímabært að fá svör við tveimur
grundvallarspurningum varðandi þróun byggðar
hér á landi. Annars vegar má spyrja: Hvað kostar
sú byggðaröskun, sem spáð er að verði hér á landi
næstu ár og áratugi, þjóðina? Og hins vegar: Hvað
kosta aðgerðir sem líklegar eru til að breyta
byggðaþróuninni á hagkvæmari veg? (Þar má m.a.
nefna stórbættar samgöngur innan einstakra
landshluta, svo sem jarðgöng bæði á Vestfjörðum
og Austurlandi). Þessum spurningum verða stjórn-
völd að svara, því svörin við þeim hljóta að verða
lögð til grundvallar þegar ný og markviss byggða-
stefna verður mótuð. BB.
Vélsleðakeppnin í Mývatnssveit um liðna helgi:
Skemmtilegri keppni
með hveiju árinu
Það var margt um inanninn í
Mývatnssveit um helgina þar
sem fram fór vélsleðakeppnin
„Mývatn ’90“. Aðsókn að
þessari keppni hefur sjaldan
verið önnur eins og nú og telja
þeir sleðamenn sem blaðið
hefur rætt við framkvæmd
keppninnar með miklum
sóma. Með sama áframhaldi
verði þessi keppni enn stærri
viðburður í vetraríþróttum hér
á landi í framtíðinni.
„Við sluppum fyrir horn hvað
veðrið varðar því skömmu eftir
keppnina á laugardaginn var veð-
ur orðið svo slæmt að við hefðum
ekki getað keppt við slíkar
aðstæður,“ sagði Pálmi Vil-
hjálmsson, formaður fram-
kvæmdanefndar mótsins í gær.
Pálmi segist ánægður með
aðsókn, margir hafi lagt Ieið sína
á svæðið til að fylgjast með
keppninni en einnig hafi margir
keppendur skráð sig til leiks. „í
heild voru 173 skráningar í allar
greinar hjá okkur,“ sagði Pálmi.
Mótssetning var um hádegi á
föstudag og strax að henni lok-
inni voru keppendur ræstir í
fjallarall. Þessi grein þykir mörg-
um sleðamönnum skemmtileg
enda um að ræða akstur á langri
og erfiðri leið sem krefst leikni og
þjálfunar. Nýtt form var á þessari
keppnisgrein nú þar sem um var
að ræða sveitakeppni. Nokkur
munur var á 1. og 2. sæti í þessari
grein en hins vegar var baráttan
hörð um annað og þriðja sætið.
En úrslitin urðu sem hér segir:
Sveitakcppni:
1. Sveit HK-þjónustunnar í Kópavogi:
Arnar Valsteinsson, Polaris Indy 400
Gunnar Hákonarson, Polaris Indy 400
Marinó Sveinsson, Polaris Indy Trail
Tími: 55:14,69
2. Sveit Bifreiða og landbúnaðarvéla:
Egill Steingrímsson, Artic Cat Prowler
IngóIfurSigurðsson, Artic Cat Prowler
Jóhannes Reykjalín, ArticCat Prowler
Tími: 58:04,31
3. Sveit Hjólbarðaþjónustunnar
á Akureyri skipuð:
Ingvar Grétarsson, P.Indy 400
Þorlákur P. Jónsson, P. Indy Trail
Jón Ingi Sveinsson, P. Indy 400
Tími: 58:14,15
Fjallarall:
Fimm bestu tímar einstakra kcppenda:
1. Arnar Valsteinsson,
Pol. Indy 400 26:12,27
2. Ingólfur Sigurðsson,
Art. Prowler 28:25,40
3. Jón Ingi Sveinsson,
Pol. Indy 400 28:43,39
4. Hinrik Árni Bóasson,
Pol. Indy 400 28:45,92
5. Gunnar Hákonarson,
Pol. Indy 400 29:02,42
Eftir fjallarallið hófst spyrnu-
keppni þar sem keppt var í fimm
flokkum. Þar fór fyrst fram
undankeppni en síðan úrslita-
keppni. Athygli sleðamanna
vakti árangur Tryggva Aðal-
björnssonar á Yhamaha Phazer
en hann fékk besta tímann í
undankeppninni og skaut aftur-
fyrir sig mörgum mun kraftmeiri
sleðum. Keppt var í fimm flokk-
um og fylgja úrslit hér á eftir.
Röð flokkanna er eftir stærðum
sleðanna.
Spyrna:
Opinn flokkur (breyttir sleðar)
1. Ingvar Grétarsson, Indy 650 9,06
2. Vilhelm Vilhelmsson, Magic 9,68
3. Benedikt Valtýsson, Indy 650 9,70
4. Finnur Aðalbj.son, Wild Cat 10,00
5. Magnús Jónasson, Wild Cat 10,54
6. Guðmundur Leifsson, Exciter 10,98
7. Ingólfur Arnarson, V.Max 11,09
8. Þorgeir Jóhannesson, EITigre 11,10
9. Árni Kópsson, V.Max 11,37
Flokkur AA-standard:
1. Kristján Bragason, Indy 650 10,11
2. Árni Grant, Ski doo Mach 1 10,44
3. Rúnar Gunnarsson, Indy 650 10,54
4. Hólmgeir Þorst.son, Indy 650 10,58
5. Gunnl. Gunnlaugss., Indy 650 10,60
Flokkur A-standard:
1. Haukur Þórhallsson,
Pol. Indy 600 10,71
2. Magnús Þorgeirsson,
Kaw. Interceptor 10,93
3. Halldór Bragason,
Pol. Indy 600 10,99
Flokkur B-standard:
1. Heiðar Jónsson, Indy 500 10.53
2. Arnþór Pálsson, Indy 500 10,64
3. Gunnar Hákonars., Indy 500 10,67
Flokkur C+D+F:
1. Arnar Valsteinsson, Indy 400 11,22
2. Tryggvi Aðalbj.son, Y.Phazer 11,36
3. Viðar G. Sigþórss., Indy Trail 11,53
Á laugardagsmorgun kl. 10
voru keppendur mættir til braut-
arkeppni og fór undankeppnin
fram fyrir hádegi. Úrslitakeppnin
fór fram eftir hádegið og þar
kfækti ■ Akureyringurinn Arnar
Valsteinsson sér í þriðja vinning-
inn á mótinu þegar hann sigraði í
flokki minnstu sleðanna. Akur-
eyringar voru að vanda sigursælir
á mótinu en þó gerðist það nú í
fyrsta skipti að gull fór suður yfir
heiðar þegar Arnþór Pálsson
sigraði í sínum flokki. Að þessu
sinni var keppt til úrslita í sam-
hliða brautum sem gerir keppnina
skemmtilegri, bæði fyrir kepp-
endurna sjálfa og áhorfendur.
Þessi breyting þótti mjög góð. En
úrslitin tala sínu máli um hve
hörð keppnin var.
Brautarkeppni:
Flokkur 5:
1. Arnar Valsteinsson,
Indy 400 3:24,22
2. Jóhannes Reykjalín, Art. Prowler 3:24,25
3. Hinrik Árni Bóasson, Indy 400 3:25,95
Flokkur 6: 1. Amþór Pálsson, Indy 500 3:16,25
2. Jón Ingi Sveinsson, Indy 500 3:16,61
3. Guðlaugur Halldórsson, Indy 500 3:20,85
Flokkur 7: 1. Árni Grant, Ski doo Mach 1 3:16,67
2. Heimir Ásgeirsson, Indy 650 3:27,98
3. Halldór Jóhannesson, Indy 650 3:33,87
Opinn flokkur: 1. Ingvar Grétarsson, Indy 650 3:30,77
2. Vilhelm Vilhelmsson, Art. 3:32,74
3. Leifur Jónsson, Artic Wild Cat 3:58,95
Mótið í Mývatnssveit gaf stig
til íslandsmeistaratitils í vélsleða-
akstri. Úrslitin ráðast hins vegar í
keppni sem haldin verður á Suð-
urlandi að mánuði liðnum, þ.e.
aðeins í brautarkeppninni en Iíta
má á sigurvegarana í spyrnu-
keppninni í Mývatnssveit á föstu-
dag sem íslandsmeistara í sínum
flokkum árið 1990.
íslandsmeistaratitil í brautar-
keppninni á Jón Ingi Sveinsson
frá Kálfskinni á Árskógsströnd
og mun hann væntanlega reyna
að verja hann í síðari keppninni.
JÓH
Tveir af keppendum í brautarkeppninni á laugardaginn geysast af stað. Þessi grein þótti nii skeinmtilegri á að horfa
en oft áður enda var keppt í samhliða brautum í úrslitum. Myndirnar á síðunni hér á móti eru úr undan- og úrslita-
keppninni í brautarkeppni. Myndir: kl