Dagur - 13.03.1990, Blaðsíða 13

Dagur - 13.03.1990, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 13. mars 1990 - DAGUR - 13 - Lítil kveðja - Kæri vinur og frændi. Nú, þegar elli, kvef og ófærð hafa sameinast um að útiloka mig frá að kveðja þig, er þú leggur í för þá, sem okkur öllum er fyrirbúin, langar mig til að senda þér fáein- ar línur, trúandi því, að þær birt- ast þér, hvar á „plani“, sem þú ert staddur. Svo margar minnis- og mark- verðar eru þær minningar, sem upp koma í huga minn við þessi tímamót, að varla tekst mér að færa þær allar í letur, heldur verð- ur þar fremur tilviljunin að ráða hvað á pappírinn fer og hvað framhjá flýgur. Öllum er okkur áskapað að þola bæði skúri og skin á vegferð okkar og að á skiptist ljúft og leitt; og má óhætt segja að þú hafir ekki verið þar nein undan- tekning, Veikindi á barnsaldri, sem þú alla ævi barst menjar eftir og á sinn hátt, settu þér þau takmörk, sem þú áttir erfitt að sætta þig við, móðurmissir skömmu síðar, sem góðrar fóstru hugur og hendur lögðu þér líkn við, svo sem unnt var, margskon- ar tilfelli, eins og maga-„perfor- ing“, sem telja má til óskiljan- legra undra að ekki varð þér að aldurtila á miðri ævi, „Parkinson- veiki“ og garnli ættardraugurinn „glákan“ á síðari árum, allt.þetta setti á þig sín mörk, sem hlutu að verða meira og meira ljós, þeim sem með þér fylgdust. En ljósu „punktarnir“ urðu líka margir. Þér hlotnaðist góð og ntikil eigin- kona, sem ávallt hefir staðið með þér, jafnt í blíðu sem stríðu. Þið hafið eignast, alið upp og fært þjóðinni myndarlegan hóp glaðra og góðra barna, sem til alls góðs eru líkleg. Þú hefir myndað um þig drjúgan hóp vina, sem ávallt hefir farið stækkandi. Og ótaldar ánægjústundir hefir þú átt með þeim „Musiku“ og „Braga“, sent mér er kunnugt að víða hafa bor- ið nafn þitt og hróður. Það má ég því fullyrða, að sjóður þess, sem mölur og ryð fá ekki grandað og nafni þínu er og verður tengdur, mun nú þegar dávænn orðinn og líklegur til þroska er fram líða stundir. Ljúft væri mér, ef þú safnaðir saman gömlum söngfélögum okkar, konum jafnt sem körlum, til móttöku, þegar ég stíg yfir strikið. Hafðu svo þökk fyrir samver- una og farðu heill. Páll Helgason. Minnmg: Sr. Trausti Pétursson Sigríður Sveinsdóttir Sr. Trausti Pétursson fyrrverandi sóknarprestur á Djúpavogi andaðist á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 5. mars s.l. Hann var fæddur 19. júlí 1914. Fjórum dögum áður andaðist tengda- móðir hans, Sigríður Sveinsdóttir á elliheimilinu Seli. Trausti kom til Djúpavogs 1949 ásamt eiginkonu sinni, Maríu Rögnvaldsdóttur, Sigríði dóttur þeirra og Sigríði Sveinsd. móður Maríu. Sigríður var alla tíð hjá Trausta og Maríu þar til hún fluttist á elliheimilið Sel fyrir rúmu ári. Hún hefði orðið 100 ára 11. apríl n.k. var fædd 11. apríl 1890. Sr. Trausti var sóknarprestur á Djúpavogi í rúm 30 ár. Mín fyrstu kynni af honum voru þegár hann kom í Miðhús 14. mars 1951 og tilkynnti lát systur minn- ar Önnu Margrétar sem lést suð- ur í Reykjavík. Þá um vorið fermdi sr. Trausti mig og skírði yngstu systur mína, sent fæddist 4 dögum eftir lát þeirrar eldri. Þarna hófst vinátta milli þessara heimila, sem enst hefur alla tíð síðan. Vil ég nú þakka fyrir þá miklu góðvild og vináttu sem for- eldrar mínir nutu ávallt og var. það gagnkvæmt. Þegar ég var unglingur fannst mér sr. Trausti strangur og alvar- legur og bar ég alltaf mikla virð- ingu fyrir honum. Þegar ég varð eldri fann ég hins vegar að oft var stutt í gamansemina. Hann var stofnandi skógrækt- arfélagsins á Djúpavogi og þar er sá minnisvarði sem aldrei mun mást. Ég man eftir því að hann fór með nokkrum unglingum á vörubíl inn í Veturhús að sækja staura til að girða skógræktina. Það var ekki bílfært alla leið og fórum við gangandi einstigi, sótt- um staura og bárum þá til baka. Nú eru liðin um 40 ár síðan þetta var og hef ég ekki séð fallegri grenitré annars staðar. Það verður ekki minnst á Trausta og Maríu án þess að Sig- ríðar Sveinsdóttur sé minnst um leið. Hún var höfðingleg á að líta hvort sem maður hitti hana í eld- húsinu að morgni eða við messu á sunnudegi. Og þó svo að hvarflað hafi að manni að ekki hafi alltaf verið auðvelt að hafa tengda- mömmu sína á heimilinu, varð maður aldrei var við annað en góðvild og gott samkomulag á milli allra. Sr. Trausti og María eiga eina dóttur á lífi og einn fósturson, Trausta Pétur, sem þau tóku að sér árið 1954. Trausti og Sigríður voru jarð- sungin mánudaginn 12. mars. Elsku María. Innilegar samúðar- kveðjur til þín og barnanna í þessum mikla missi. Margs er að minnast margt er hér að þakka Guði sé loffyrir liðna tíð. Margs er að minnast margs er að sakna Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Fjóla Björgvinsdóttir. Norræn ráðstefna um almenningssamgöngur í þéttbýli Dagana 9.-11. ntaí nk. verður haldin norræn ráðstefna í Reykjavík um almenningssam- ÞURRKUBLÖÐIN VERÐA AÐ VERA ÓSKEMMD og þau þarf aö hreinsa reglulega. Slitin þurrkublöö margfalda áhættu í umferöinni. UMFERÐAR göngur í þéttbýli. Gert er ráð fyrir 500 þátttakendum frá öll- um Norðurlöndunum. Ráð- stefnan verður haldin í sölum Háskólabíós og þar verður einnig sýning á rafeindabúnaði fyrir fargjaldagreiðslukerfi. Flestir þátttakendur koma frá fyrirtækjum sem annast almenn- ingsflutninga, en þar verða einnig stjórnmálamenn, embættismenn sveitarfélaga, sérfræðingar, fram- leiðendur almenningsfarartækja og tæknibúnaður hvers konar. Ráðstefnur sem þessi eru haldnar annað hvert ár til skiptis á Norðurlöndum, að þessu sinni eru það Strætisvagnar Reykja- víkur, sem standa fyrir ráðstefn- unni. Náið samstarf er milli nor- rænna fyrirtækja á sviði almenn- ingssamgangna og hefur SVR á ýmsan hátt notið góðs af því. Ýmsar breytingar eru að eiga sér stað í grannlöndunum m.a. í átt til einkavæðingar eins og t.d. í Kaupmannahöfn og verður rekstr- ar- og eignarform í almennings- samgöngum því ofarlega á baugi. Markaðsmál, fargjaldastefna, umhverfismál, umferðarmál og starfsmannamál verða einnig á dagskrá ráðstefnunnar. TÍMABUNDIÐ HLUTASTARF ★ Við leitum að starfsmanni til starfa við síma- vörslu, fjölföldun, sendiferða og annarra tilfall- andi starfa. Þarf að geta hafið störf strax! Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar. □□□□RÁÐNINGAR Endurskoðun Akureyri hf., Glerárgötu 24, sími 26600 Vélstjóra vantar á 50 tonna netabát Upplýsingar í síma 96-51122 og 985-24315. Hótel Laugar auglýsir eftir starfsfólki sem hefur áhuga á að vinna við ferðaþjónustu í sumar. Nánari upplýsingar í síma 27242 eða 43135. Skriflegar umsóknir er tilgreina aldur, menntun og fyrri störf sendist fyrir 30. mars n.k. til Hjördísar Stefánsdóttur, hótelstjóra, 650 Laugum. Vantar blaðbera í Grænugötu, Eiðsvallagötu og syðri hluta Norður- götu. Gleymið ekki að gefa smáfuglunum. .t Móðir okkar, ANNA MARÍA KRISTJÁNSDÓTTIR, frá Kollugerði, Lönguhlíð 15, Akureyri, lést á Hjúkrunarheimilinu Seli laugardaginn 10. mars. Börn hinnar látnu. Fyrir hönd ættingja, flytjum við bestu þakkir öllum þeim fjölmörgu sem heiðruðu minningu föður okkar, Jóhanns Frímann, skólastjóra, frá Akureyri, við andlát hans hinn 28. febrúar og jarðarför þriðjudaginn 6. mars 1990. Guð blessi ykkur öli. Systkinin. Bergijót Frímann, Sigyn Frímann, Valgarður Frímann.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.