Dagur


Dagur - 13.03.1990, Qupperneq 8

Dagur - 13.03.1990, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 13. mars 1990 fþróttir Una ráðin ritstjóri Skinfaxa Una María Óskarsdóttir frá Laugum í S- Þingeyjarsýslu hefur verið ráðin ritstjóri Skinfaxa, málgagns Ungmennafélags ís- lands, og Fréttabréfs UMFÍ. Hún er fyrsta konan sem er ráðin ritstjóri Skinfaxa en blaðið hefur komið út í 80 ár. Una er fædd 19. september 1962. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahiíð árið 1983 og hefur lagt stund á lögfræði. Hún þekkir starfsemi ungmenna- félaganna vel og hefur starfað á skrifstofu UMFÍ í rúmlega ár. Skinfaxi hefur verið gefinn út óslitið í 80 ár og flytur fréttir af starfi ungmennafélag- anna til hinna 40 þúsund félagsmanna um allt land. í Skinfaxa eru birtar greinar um þau málefni sem hreyfingin leggur áherslu á, þ.e.a.s. skógræktarmál, umhverfismál, íslenskan iðnað, félagsmál og önnur mikil- væg málefni sem varða alla landsmenn. Una María hefur aðsetur á skrifstofu UMFÍ á Öldugötu 14 í Reykjavík. Arsenal- klúbburirai til London Arsenal klúbburinn á íslandi hyggst standa fyrir knattspyrnuferð til London föstudag- inn 27. apríl til fimmtudagsins 3. maí. Þetta verður sjöunda ferð klúbbsins á jafn mörgum árum og er því orðinn fastur liður í starfi hans. Farið verður á tvo leiki með Arsenal á Highbury, þann fyrri gegn Millwall og þann seinni gegn Southampton. Einnig verður haldið á Wembley sunnu- daginn 29. apríl og fylgst með Þorvaldi Örlygssyni og félögum. Hægt verður aö gera ýmislegt fleira ef áhugi er fyrir hcndi. Gist verður á White House hótelinu í mið- borg London. Upplýsingar um tilhögun ferðarinnar eru gefnar í síma 98-22499 á kvöldin eða á ferðaskrifstofunni Ratvís í síma 91- 641522. íþróttasamband fatlaðra: Leiðbeinenda- námskeið í vetraríþróttum íþróttasamband fatlaðra mun gangast fyrir lciöheincndanámskciöi í vetrar- íþróttum fatlaðra á Vetraríþróttahátlð I.S.Í sem fram fer á Akureyri dagana 23. mars til 1. apríl nk. Áætlað er að námskeiðið hefjist kl. 20.00 föstudag- inn 23. mars og því Ijúki seinni hluta mánudagsins 26. mars. Á námskeiðinu verður megináhersla lögð á að kenna notkun sleða fyrir hreyfi- hamlaða og að kenna einfættum að skíða á einu skíði. Námskeiðið verður bæði bók- legt og verklegt og rnunu þátttakendur fá tækifæri til að vinna með fötluðum ein- staklingum síðari hluta námskeiðsins. Þátttökugjald verður kr. 3000 og greið- ist það í upphafi námskeiðsins. Innifalið í því er kennsla, kennslugögn og ferðir frá rniðbæ Akureyrar og upp í Hlíðarfjall. Tilkynna þarf þátttöku á námskeiðið til skrifstofu fþróttasambands fatlaðra, íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykja- vík, fyrir föstudaginn 17. mars. Síminn á skrifstofunni er 91-83377 og eru þar gefnar allar nánari upplýsingar um námskeiðið. HM í handknattleik lokið: Islendingar ekki lengur í hópi þeirra bestu í heimi Draumur íslenska landsliðsins um sæti á næstu Ólympíuleik- um er úr sögunni eftir að liðið tapaði illa fyrir Frökkum á HM í handknattleik á laugardags- — liðið átti ótrúlega slakan leik er það tapaði 23:29 fyrir Frökkum Bogdan Kowalczyk er hættur með landsliðið. morgun. Að auki eru fréttir um að liðið hafí tryggt sér sæti í A-keppninni í Svíþjóð úr lausu Iofti gripnar og Ijóst er að liðið leikur í B-keppninni eftir tvö ár. Eftir að hafa unnið frækinn sigur á A-Þjóðverjum í síðasta leiknum í milliriðli héldu margir að liðið væri komið á beinu brautina á ný en það var greinilega misskilning- ur. Frakkar unnu sanngjarnan sigur, voru hreinlega betri á flestum sviðum handboltans og með leikgleðina í fyrirrúmi rúlluðu þeir okkar mönnum upp. Lokatölurnar urðu 29:23 og verður þessi síðasti Ieikur að teljast táknrænn fyrir gengi íslenska Iiðsins á mótinu en það endaði 110. sæti. Leikurinn á laugardag var jafn framan af en greinilegt var að íslenska liðið lék ekki eins og það best getur. Leikgleðin var engin og taugaóstyrkurinn greinilega mikill. Varnarleikurinn var hreint ótrúlega slakur og Frakkar áttu ekki í miklum erfiðleikum með að ganga í gegnum íslensku vörnina. Upp úr miðjum fyrri hálfleik fór að draga í sundur með liðunum og staðan í leikhléi var 15:11 Frökkum í vil. fslendingar virtust til alls lík- legir í upphafi síðari hálfleiks og náðu að minnka muninn í eitt mark. Lengra komust þeir hins vegar ekki og þegar leið á leikinn vissu allir að draumurinn um sig- ur myndi ekki rætast. Óþarfi er að rekja gang mála frekar, niður- staðan varð 6 marka tap og má þakka fyrir að það varð ekki stærra. Það er ekki gott að telja upp það sem „klikkaði" hjá íslenska liðinu í þessum leik. Mun fljót- legra er að telja það sem var í lagi. Kristján Arason náði sér nú loksins á strik og þrátt fyrir að hann hafi oft leikið betur var þetta besti leikur hans í keppn- inni. Markvarslan var á köflum ágæt hjá Guðmundi og er sorg- legt að liðið lék sinn versta leik einmitt þegar hún var að komast í lag. Pað er ljóst að breytingar verða á málefnum landsliðsins eftir þessa keppni. Bogdan hefur lýst því yfir að hann sé hættur og verður að telja það viturlega ákvörðun. Ljóst er að einhverjir leikmenn hafa sagt sitt síðasta orð en ekki er endanlega ákveðið hverjir það verða. En það þýðir ekki að gráta það sem liðið er. Vonandi snúa landsmenn ekki baki við þessum fræknu íþrótta- mönnum því án stuðnings þeirra kemst ísland ekki í hóp þeirra bestu á ný. Mörk Islands: Kristján Arason 7, Alfreð Gíslason 5/4, Júlíus Jónasson 3/1, Bjarki Sigurðsson 3, Þorgils Óttar Mathiesen 2, Sigurður Gunnarsson 2 og Héðinn Gilsson 1. Mörk Frakklands: Volle 8, Debureau 7, Perreaux 6, Portes 3, Mahe 2, Stoeckl- in 1, Hager 1 og Richardson 1. Úrvalsdeildin í blaki karla: KA-menn í erfiðleikmn með HK-inga Særún Jóhannsdóttir stóð sig vel gegn UBK. Það dugði þó ekki til og liðið hefur enn ekki hlotið stig í úrslitakeppninni. Úrvalsdeildin í blaki kvenna: KA-stúlkur áttu ekki möguleika - gegn UBK KA-menn halda enn í vonina um íslandsmeistaratitilinn í blaki karla eftir 3:2 sigur á HK í Kópavogi á laugardag. Leikurinn var mjög jafn og spennandi og KA-menn þurftu svo sannarlega að hafa fyrir sigrinum á skcmmtilegu liði HK. Möguleikar liðsins velta nú á því að það sigri í þeim tveimur leikjum sem það á eft- ir og einnig að Stúdentar sigri Þrótt Reykjavík á miðvikudag- inn. Liðin þrjú yrðu þá jöfn að stigum og þyrftu að leika sér- staklega um titilinn. KA-menn unnu fyrstu hrinu 17:15. Þeir komust í 10:6 en HK náði að jafna 11:11 og komust yfir 12:11 en KA-menn voru sterkari á endasprettinum. Önn- ur hrinan var enn jafnari. HK byrjaði betur og komst í 6:1 en KA-menn jöfnuðu. HK-ingar gáfust þó ekki upp og unnu 16:14. I þriðju hrinu voru KA- mönnum vægast sagt mislagðar hendur og HK vann 15:5 en KA vann síðan fjórðu hrinuna 15:12 og þá síðustu einnig 15:12 eftir að hafa haft forystuna nálega allan tímann. Viðureignin var mjög spenn- andi og ágætlega leikin af hálfu beggja liða ef þriðja hrinan er undanskilin hjá KA. HK-ingar voru frískir og sigur KA langt frá því að vera öruggur. -bjb/JHB KA-mótið: Sverrir og Hildur sigruðu Sverrir Rúnarsson Þór og Hildur Þorsteinsdóttir KA sigruðu á KA-mótinu í svigi 13-14 ára sem fram fór í Hlíð- arfjalli á sunnudag. 24 þátttak- endur mættu til leiks. Úrslitin urðu sem hér segir: Piltar: 1. Sverrir Rúnarsson Þór 1:25.87 2. Alexander Kárason Pór 1:29.21 3. Magnús Magnússon KA 1:30.07 4. Magnús Lárusson Pór 1:30.83 5. Elvar Óskarsson Þór 1:31.49 Stúlkur: 1. Hildur Þorsteinsdóttir KA 1:30.18 2. Þórey Árnadóttir Þór 1:31.22 3. Helga B. Jónsdóttir KA 1:33.54 4. Fjóla Bjarnadóttir Þór 1:35.81 5. Þrúður Gunnarsdóttir KA 1:43.50 KA-stúlkur áttu ekki mikla möguleika þegar þær mættu Breiðabliki í úrslitakeppninni í blaki kvenna í Digranesi á laugardag. Breiðabliksliðið hafði þó nokkra yfírburði og vann sannfærandi sigur, 3:0. KA-stúlkurnar héldu jöfnu fyrstu mínúturnar í fyrstu hrinu eða þar til staðan var orðin 4:4. Þá náði Breiðablik yfirhöndinni og komst í 11:5 og vann síðan 15:7. í annarri hrinu hafði Breiðablik síðan mikla yfirburði og komst í 10:0 en lokatölurnar urðu 15:5. KA-stúlkur hresstust aðeins í síðustu hrinunni en það dugði ekki til og Breiðablik vann þá hrinu 15:11. KA-liðið átti slakan dag að þessu sinni. Særún Jóhannsdóttir átti þó ágætan dag en aðrar náðu sér ekki á strik. -bjb/JHB Staðan Karlar: ís 4 3-1 9: 6 6 Þróttur R. 4 3-1 9: 6 6 KA 4 2-2 9: 8 4 HK 4 0-4 5:12 0 Konur: UBK 4 3-1 11:6 6 ÍS 4 3-110:6 6 Víkingur 3 1-2 6:6 2 KA 3 0-3 2:9 0 Sverrir Rúnarsson sigraði á KA-mótinu um helgina.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.