Dagur - 13.03.1990, Page 10

Dagur - 13.03.1990, Page 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 13. mars 1990 íþróttir Oldham ósigrandí á heimavelli Það var mikið um að vera í Ensku knattspyrnunni um helgina og hart barist bæði í deild og FA-bikarnum. Þrír leikir fóru fram í 6. umferð bikarsins, auk leiks úr 5. umferð sem var óútkljáður. Af þeim sökum voru aðeins leiknir se\ leikir í 1. deild, en aðeins einum leik varð að fresta í 2. deild. Þá eru það leikir laugardagsins. FA-bikarinn Oldham og Everton mættust í þriðja sinn í 5. umferð, en tveim fyrri leikjum liðanna hafði lokið með jafntefli. Oldham er nánast ósigrandi á gervigrasvelli sínum og Everton fékk að kenna á því. Tony Cottee náði þó forystu fyrir Everton á 12. mín. eftir góða sendingu frá Neil McDonald sem átti eftir að koma mikið við sögu. Fyrir leikhlé náði Roger Palmer að jafna leikinn fyrir Oldham er hann komst inní slaka sendingu McDonald til markvarðar síns. Ekki tókst liðunum að skora í síðari hálfleik og leikurinn var því framlengdur. Strax á 3. mín. framlengingar náði Oldham að skora sigurmarkið, McDonald braut þá á Ian Marshall sem Everton seldi til Oldham og hann skoraði sjálfur úr vítaspyrnunni. C. Palace áfram í bikarnum - Aston Villa á toppinn * Urslit FA-bikarinn 5. umferð endur- tekinn jafnteflisleikur. Oldhum-Everton 2:1 FA-bikarinn 6. umferð. Cambridge-Crystal Palace 0:1 Q.P.R.-Liverpool 2:2 Sheflleld Utd.-Man. Utd. 0:1 1. deild Aston Villa-I.uton 2:0 Chelsea-Norwich 0:0 Manchester City-Arsenal 1:1 Nottingham For.-Coventry 2:4 Southampton-Derby 2:1 Tottenham-Charlton 3:0 2. deild Blackburn-W.B.A. 2:1 Bradford-Stoke City 1:0 Hull City-Middlesbrough 0:0 Ipswich-Brighton 2:1 Oxford-Leeds Utd. 2:4 Plymouth-Swindon 0:3 Port Vale-Bourncmouth 1:1 Sundcrlund-Leicester 2:2 Watford-Newcastle 0:0 West Ham-Portsmouth 2:1 Wolves-Barnsley 1:1 Úrslit í vikunni. Deildabikarinn undanúrslit, síðari leikur. West Ham-Oldham 3:0 FA-bikarinn, 5. urnferð endurtekinn jafnteflisleikur. ShefTield Utd.-Barnsley 1:0 1. deild Arsenal-Nottingham For. 3:0 Luton-Coventry 3:2 2. deild Bournemouth-Oxford 0:1 Portsmouth-Wolves 1:3 Stoke City-Ipswich 0:0 Swindon-Bradford 3:1 Brighton-Plymouth 2:1 Leeds Uld.-Port Vale 0:0 Middlesbrough-Watford 1:2 Newcastle-Hull City 2:0 Oldham hefði hæglega geta bætt við fleiri mörkum, en liðið mætir nú Aston Villa á heimavelli á miðvikudag. Oldham er þegar komið í úrslit Deildabikarsins og gæti hæglega komist í úrslit FA- bikarsins, þá á liðið möguleika á að vinna sæti í 1. deild, sannar- lega glæsilegur árangur. Hetjuleg barátta Cambridge sem er um miðbik 4. deildar hef- ur vakið mikla athygli. En liðið varð þó að láta í minni pokann gegn 1. deildarliði Crystal Palace í 6. umferð á heimavelli sínum, en voru hylltir í leikslok af áhorf- endum seni kunnu vel að meta góða frammistöðu sinna manna. Liðið lék vel og framherjarnir Dion Dublin og John Taylor voru vörn Palace hættulegir strax í upphafi. Taylor skaut naumlega framhjá og Nigel Martin í marki Palace varði naumlega frá Dublin. En leikmenn Palace sóttu í sig veðrið í síðari hálf- leiknum og á 77. mín. kom sigur- mark liðsins sem fleytti liðinu í undanúrslit. Fyrirliði Palace Geoff Thomas skoraði með skoti úr þvögu sem markvörður Cambridge áttaði sig ekki á. Dublin skaut síðan yfir af stuttu færi með síðustu spyrnu leiksins, þannig að I. deildarliðið þurfti sannarlega að hafa fyrir hlutun- um. 1. deild Aston Villa náði að nýju efsta sæti 1. deildar, nýtti sér tækifærið þar sein Liverpool var upptekið í bikarnum og sigraði Luton örugglega á heimavelli. Petta var kæ,rkominn sigur hjá Villa sem hafði verið í nokkurri lægð að undanförnu. Tony Daley skoraði í fyrri hálfleik eftir mikinn ein- leik, þar sem hann flaug yfir tæklingar þriggja varnarmanna Luton á leið sinni í gegnum vörn- ina. David Platt bætti öðru marki Villa við í síðari hálfleiknum og gulltryggði þar með sigur liðsins. Chelsea og Norwich urðu að gera sér markalaust jafntefli að góðu, en Chelsea hefur örugg- lega ætlað sér stærri hlut úr leikn- um eftir góða leiki að undan- förnu. Arsenal náði ekki að fylgja eft- ir sigrinum gegn Forest í vikunni, er liðið mætti Man. City á útivelli og varð að láta sér lynda jafntefli. David White náði raunar forystu fyrir City í fyrri hálfleik og það Tony Daley, hinn frábæri úthcrji, skoraði fyrra mark Aston Villa gegn Luton. var ekki fyrr en í þeim síðari að Brian Marwood tókst að jafna fyrir Arsenal og tryggja liðinu stig. City hefði ekki veitt af öllum stigunum í fallbaráttunni sem lið- ið á nú í. Þorvaldur Örlygsson og félagar hans hjá Nottingham For. urðu að þola tvö töp í sömu vikunni, fyrst gegn Arsenal og síðan gegn Coventry á laugardag. Coventry náði þar fram nokkrum hefnd- um, en eins og menn muna sló Forest liðið úr Deildabikarnum í undanúrslitum fyrir skömmu. Það bjuggust þó fæstir við því að Forest myndi tapa á heimavelli gegn Coventry, en það fór á ann- an veg og Coventry komst í 4:0. Kevin Gallacher, David Speedie tvö og Kevin Drinkell skoruðu fyrir Coventry áður en þeir David Currie og Brian Laws lög- uðu aðeins stöðuna fyrir Forest. Southampton vann góðan sigur gegn Derby eftir markalausan fyrri hálfleik. Rodney Wallace og Matthew Le Tissier skoruðu fyrir liðið snemma í síðari hálfleik, en Dean Saunders skoraði eina mark Derby skömmu síðar. Tottenham sigraði nágranna sína Charlton nokkuð örugglega 3:0. Tottenham mátti þó kallast heppið að hafa yfir í hálfleik með marki John Polston, en í síðari hálfleiknum lék liðið betur og þeir Gary Lineker og David Howells bættu við mörkum fyrir liðið. 2. deild • Leeds Utd. hcfur gengið allt í óhag undanfarnar vikur og lengi leit út fyrir að ófarirnar héldu áfram er liðið var undir 2:0 í hálf- Man. Utd. stefnir á Wembley - Liverpool og Q.P.R. mætast að nýju Tveir leikir fóru fram í 6. umferð FA-bikarkeppninnar á sunnudag ug að þeim loknum var dregið um hvaða lið mæt- ast í undanúrslitum keppninn- ar, en þeir leikir fara fram á hlutlausum velli. Q.P.R. og Liverpool léku stór- skemmtilegan leik þar sem Liverpool átti fyrstu 20 mín., en síðan komst heimaliðið inn í leik- inn og eftir hálftíma leik náði Ray Wilkins forystu fyrir liðið eftir að Bruce Grobbelaar hafði misst frá sér fyrirgjöf. Eftir 10 mín. leik í síðari hálfleik jafnaði John Barnes með glæsilegri auka- spyrnu fyrir Liverpool og liðið lék nú eins og það gerir best, en David Seaman í marki Q.P.R. var í miklu stuði. Eftir sjaldséð mistök Paul Parker í vörn Q.P.R. tókst Gary Gillespie að leggja upp mark fyrir Ian Rush, en Q.P.R. tókst að jafna 7 mín. fyrir leikslok er Simon Barker braust í gegnum vörn Liverpool og skoraði af öryggi. Liðin verða því að mætast að nýju á miðvikudag, þá á An- field og ætti Liverpool að sigra í þeim leik. Manchester Utd. heldur áfram sigurgöngu sinni í bikarnum þrátt fyrir að liðið hafi leikið á útivelli í hverri untferð. Á sunnudag sótti Utd. lið Sheffield Utd. heim, en Sheffield liðið er sem kunnugt er eitt besta lið 2. deildar. Manchester liðið var vel að sigrinum komið, lék af miklu öryggi og heimamenn sköpuðu sér lítið af góðum mark- tækifærum í leiknum. Sigurmark- ið kom eftir 30 mín. leik, Danny Wallace tók þá hornspyrnu sem Gary Pallister skallaði áfram til Brian McClair og honum tókst að hnoða boltanum í markið eftir að hafa „kiksað" í fyrstu tilraun. Ekki glæsilegt mark, en gífurlega mikilvægt fyrir Utd. og ekki hvað síst framkvæmdastjórann Alex Ferguson. Að leikjunum loknum var dregið til undanúrslit og þá leika saman annars vegar Manchester Utd. gegn Oldham eða Aston Villa og hins vegar núverandi bikarmeistarar Liverpool eða Q.P.R. gegn Crystal Palace. Þ.L.A Ian Rush og Paul Parker verða að mætast að nýju á miðvikudag og fæst þá væntanlega úr því skorið hvor mætir Crystal Palace í undanúrslitum. leik gegn Oxford þar sem John Durnin og Paul Simpson höfðu skorað fyrir heimaliðið. En í síð- ari hálfleik vaknaði Leeds Utd. loks til lífsins, Lee Chapman minnkaði munin um miðjan síð- ari hálfleik og undir lok leiksins tóku leikmenn Leeds Utd. öll völd á vellinum, bættu við þrem mörkum og unnu óvæntan sigur 4:2. • Swindon undir stjórn Ossie Ardiles er á miklu flugi og er nú komið í annað sætið. Liðið sigr- aði Plymouth auðveldlega á úti- velli 3:0 með mörkum Steve White sem skoraði tvö og Dunc- an Shearer. Swindon ætlar sér greinilega að vinna sæti í 1. deild. • Mark Atkins og Nicky Reid skoruðu mörk Blackburn gegn einu marki Tony Ford fyrir W.B.A. • Middlesbrough gerði marka- laust jafntefli gegn Hull City, en Bruce Rioch stjóri Middles- brough var látinn taka pokann sinn í vikunni. • John Wark og Simon Milton skoruðu fyrir Ipswich gegn Brighton, en Dean Wilkins gerði mark Brighton. • Newcastle gerði aðeins marka- laust jafntefli gegn Watford og missti þar tvö dýrmæt stig. • Malcolm Allen og Julian Dicks skoruðu fyrir West Ham í sigrinum gegn Portsmouth og West Ham virðist nú vera að sækja í sig veðrið eftir slaka byrjun. • Wolves missti af sigri í síðari hálfleik gegn Barnsley eftir að Steve Bull hafði náð forystu fyrir liðið í fyrri hálfleiknum. Þ.L.A. Staðan: í . deild Aston Villa 28 17- 4- 7 45:27 55 Liverpool 27 15- 8- 4 51:23 53 Arsenal 28 14- 5- 9 42:28 47 Nott. Forest 28 12- 7- 9 40:31 43 Chelsea 29 11-10- 8 44:40 43 Coventry 28 13- 4-11 32:37 43 Southampton 28 11- 9- 8 55:47 42 Tottenham 29 12- 6-1142:36 42 Norwich 28 10- 9- 9 30:31 39 Derby 27 11- 5-12 34:26 38 Wimbledon 27 9-11- 7 34:29 38 Everton 26 11- 5-10 35:34 38 Q.P.R. 26 9- 9- 8 29:26 36 Sheff. Wed. 29 8- 9-12 24:37 33 Crystal Palace 27 9- 6-1232:50 33 Man. Utd. 27 8- 7-12 34:37 31 Man. City 28 7- 8-13 31:43 29 Luton 29 6-11-12 32:45 29 Millwall 28 5- 9-14 33:42 24 Charlton 29 5- 8-16 23:41 23 2. deild Leeds Utd. 34 18-10- 6 59:38 64 Swindon 34 17- 9- 8 65:44 60 Sheff. Utd. 31 16-11- 4 48:31 59 Newcastle 33 14-12- 7 59:40 54 Wolves 34 14-11- 9 54-46 53 Oldliam 31 13-12- 6 47:36 51 Blackburn 34 12-14- 7 58:48 50 Sunderlund 33 12-13- 8 51:50 49 Ipswich 32 12-11- 9 46:46 47 West Ham 32 12-10-10 44:38 46 Port Vale 34 11-13-10 44:40 46 Oxford 33 13- 7-13 46:44 46 Watford 33 11-10-12 41:38 43 Bournemouth 3411-10-1348:5343 Leicester 33 11-10-12 46:52 43 Brighton 33 11- 6-16 41:45 39 Portsmouth 33 7-13-13 43:51 37 W.B.A. 33 8-12-13 51:52 36 Middlesbr. 34 9- 9-16 39:49 35 Hull 33 7-14-12 37:47 35 Plymouth 32 9- 7-16 45:47 34 Bradford 34 7-12-15 37:49 33 Barnslcy 32 7-10-15 32:57 31 Stoke 34 5-13-16 26:47 28

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.