Dagur - 13.03.1990, Síða 11
hér & þor
Furstasonurinn ungi á hótelinu í Stuttgart á mcöan á „megrunarkúrnuin“ stóð.
Þriðjudagur 13. mars 1990 - DAGUR - 11
EVROPA
Akureyringar
Upplýsingafundur um
Evrópska efnahagssvæðið, EES
Utanríkisráðuneytið heldur upplýsingafund um
viðræður Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og
Evrópubandalagsins (EB) um myndun
Evrópska efnahagssvæðisins (EES)
í Alþýðuhúsinu á Akureyri í dag,
þriðjudag 13. mars, kl. 21.00.
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra
hefur framsögu og svarar fyrirspurnum.
Upplýsingadeild.
ORÐSENDING
UM LEIÐRÉTTINGU A VERÐBÓTUM
Á SKYLDUSPARNAÐI
Furstasonur í
„ströngum“ megrunarkúr
- kúrinn stóð í átta mánuði en kappinn lagði ekki af um eitt kg!
Þegar 19 ára gamall Saudi-
Arabi var orðinn 225 kg að
þyngd ákváðu foreldrar hans
að láta hann dvelja á hóteli í
Stuttgart og hitta sérfræðinga í
von um að hann myndi leggja
af. Þau voru ekkert að horfa í
kostnaðinn enda faðirinn olíu-
fursti og vel efnaður.
Sonurinn byrjaði morguninn á
því að ganga til sérfræðinga og
lofa þeim öllu fögru. Því næst
pantaði hann ógrynnin öll af mat
upp í svítuna sína og hélt
„partý“. Svona gekk þetta í átta
mánuði og eini árangurinn, ef
einhver var, voru nokkrar auka-
fellingar. Hann stundaði mat-
sölustaði út um alla borg og sendi
yfirleitt aðstoðarmenn til að
athuga hvort allir stólar á staðn-
um væru öruggir. Ef hann þurfti
á salerni, varð hann að nota sal-
erni ætlað fötluðum, vegna gífur-
legs ummáls síns. Á einum veit-
ingastað voru 12 manneskjur að
fá sér að borða ósköp venjulega
máltíð. Svo þegar furstasonurinn
pantaði hjá þjóninum, bað hann
um það sama og þessar 12 mann-
eskjur þ.e. jafnstóran skammt og
þær allar til samans og hann klár-
aði hann á mettíma, 6 mínútum
og 35 sek. Eftir 8 mánuði áttaði
hann sig á því að þessir læknar
hjálpuðu honum ekki neitt.
Svona til gamans má taka það
fram að hann eyddi samanlagt 60
millj. ísl. króna á þessum átta
mánuðum. 5 milljónir fóru í hót-
elsvítuna, 30 milljónir í mat og
skemmtanalíf. 15 milljónir fóru í
bílinn og þjónustuna. Loks kost-
aði „læknismeðferðin“ 10 millj-
ónir króna.
Höf.: I.S., E.I.J. og J.G.P., nemendur í
Hrafnagilsskóla í starfskynningu.
Vinningstölur laugardaginn
10. mars ’90
11)Í^P
17
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 3 818.041,-
A OÚS,.Æi. dím 4af5^j3. 9 47.374,-
3. 4af5 149 4.936,-
4. 3af 5 5.182 i cö co
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.331.195,-
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Umboðsmenn og aðstandendur einstaklinga sem
búsettir eru erlendis eða sem látist hafa og
söfnuðu skyldusparnaði á árunum 1957
til l.júlí 1980, eru hér með hvattir til að kanna
í upplýsingasímum stofnunarinnar hvort greiðslur
vegna leiðréttinga á verðbótum liggi þar fyrir.
Allar leiðréttingar til þeirra, sem áttu skráð
heimilisfang hér á landi 1. desember 1989 s.l. hafa
verið sendar út. Eftir standa töluvert af leiðréttingar-
greiðslum til fólks, sem skráð er erlendis
og sem látið er.
í desember s.l. ákvað Húsnæðisstofnun ríkisins að
greiða út leiðréttingar varðandi verðbætur á
skyldusparnað. Hér var einungis um að ræða
verðbætur sem reiknast áttu af verðbótum.
Leiðréttingarnar vörðuðu tímabilið l.júní 1957 til
1. júlí 1980 og náðu aðeins til hluta þeirra sem áttu
skyldusparnað umrætt tímabil.
Upplýsingasímar eru 696946 og 696947
kl. 10-12 virka daga.
cSo HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK • SÍMI 696900
Akureyringar
Ferskar
fréttir með
morgunkaffinu
Áskriftar*SSÍ 96-24222