Dagur - 27.03.1990, Síða 3
Þriðjudagur 27. mars 1990 - DAGUR - 3
-J
fréttir
i
Aðalfundur Osta- og smjörsölunnar:
Tekjuafgangur á síðasta ári 65 milljónir króna
- fituminni mjólkurafurðir enn í sókn
Aðalfundur Osta- og smjör-
sölunnar sf. var haldinn 9.
mars sl. Rekstur fyrirtækisins
gekk vel á árinu 1989 og skilaði
Osta- og smjörsalan tekju-
afgangi upp á 65 milljónir
króna til mjólkurbúanna.
Heildarsalan nam tæpum 3
inilljörðum króna og jókst um
16,9% milli ára. Útflutningur
dróst mjög saman.
„Þetta var alveg þokkalegt ár
og aukning í tlestum þeim afurð-
um sem við erum með sölu á.
Dregið var úr kostnaði og tapað-
ar viðskiptaskuldir voru nánast
engar. Hins vegar er útflutning-
urinn að mestu leyti dottinn
niður, af eðlilegum ástæðum,
nema í formi undanrennuosta og
Hjalteyrin EA
á veiðar
eftlr viðgerð
Viðgerð er nú um það bil að
ljúka á Hjalteyrinni EA, frysti-
togara Samherja hf. Skipið
hefur verið til viðgerðar undan-
farnar vikur hjá Slippstöðini
hf. á Akureyri.
Hjalteyrin var tekin í slipp þar
sem gera þurfti við ísskemmdir á
botni togarans. Þá var unnið við
að breyta og endurnýja vinnslu-
línu um borð.
Kristján Vilhelmsson hjá Sam-
herja hf. segir að viðgerðin hafi
gengið vel en hún tók örlítið
lengri tíma en menn hugðu í upp-
hafi. Hjalteyrin EA mun halda á
veiðar á fimmtudag, og verður
atlinn þá frystur um borð. Togar-
inn var áður á ísfiskveiðum.
Skipstjóri á Hjalteyrinni er Jón
ívar Halldórsson. EHB
Akureyri:
Námskeið í
næringarfræði
og mataræði
Magni Björnsson íþróttalífeðl-
isfræðingur gengst fyrir nám-
skeiði í næringarfræði og mat-
aræði á Akureyri dagana 29.,
30. og 31. mars. Námskeiðið
verður haldið í Gagnfræða-
skóla Akureyrar og hefst kl.
20.00, nema laugardaginn 31.
mars, þá hefst það kl. 10.00.
Á námskeiðinu verður rætt um
alla fæðuflokka (kolvetni-sykur,
prótein-eggjahvítu, fitu og
vökva). Einnig verður rætt um
vítamín og steinefni, um melt-
ingu, upptöku og frásog. Loks
verður fjallað um sjúkdóma og
næringarskort.
Skráning þátttakenda á nám-
skeiðið fer fram í Heilsuhorninu í
síma 21889 og þar eru jafnframt
veittar nánari upplýsingar.
Athygli þátttakenda er vakin á
því að hafa með sér glósubækur á
námskeiðið. -KK
Slysið við Blöndu:
Nafn hins látna
Maðurinn sem lést í vinnuslysi
við Blönduvirkjun síðastliðinn
miðvikudag hét Sveinn Árna-
son til heimilis að Heiðargerði
50 Reykjavík. Sveinn var
ókvæntur og barnlaus.
kaseins," sagði Óskar H. Gunn-
arsson, framkvæmdastjóri Osta-
og smjörsölunnar.
Á árinu 1989 var innanlands-
neysla mjólkur- og mjólkur-
afurða heldur meiri en innvegin
mjólk til samlaganna. Fram-
leiðslan var með öðrum orðum
minni en neyslan og eru mjólkur-
vörubirgðir því í algjöru lág-
marki. Framleiðslan hefur
minnkað stöðugt og er hún nú
svipuð og fyrir 30 árum.
Mjólkurneyslan hefur minnk-
að og var að jafnaði rúmum sex
og hálfum lítra minni á hvert
mannsbarn í fyrra miðað við árið
áður. Þá er átt við mjólk,
léttmjólk, undanrennu,
súrmjólk, jógúrt og rjóma. Þó
hefur undanrennu- og léttmjólk-
urneysla aukist.
Sala á ostum jókst um 51 tonn
í fyrra eða um 2%. Meðalneysla
á íbúa var tíu og hálft kíló. Sala á
smjöri dróst saman um 7,5% en
sala á smjörva tók kipp og jókst
um 10,5%. Þá jókst sala á Léttu
og laggóðu um 3,5%. Hlutdéild
Osta- og smjörsölunnar á feit-
metismarkaðinum var 39% í
fyrra en var 30% árið 1986.
Af nýjungum á síðasta ári má
nefna Dala-Koll, þrjár tegundir
af kryddsmjöri og forsteiktan
camembert. Á árinu 1990 er
fyrirhugað að markaðssetja
bökur, sítrónu- og marmara-
kökur, 38% gráðaost og Herra-
garðsost. SS
V$km
Endursreiósla
viróisaukaskatts
til íbúóarbyggjenda
Hvað er endurgreitt?
V
W inna manna á byggingarstað var undan-
þegin söluskatti en er nú virðisaukaskattsskyld. Virðis-
aukaskattur af vinnu manna sem unnin er á byggingarstað
íbúðarhúsnæðis verður endurgreiddur skv. reglugerð nr.
641/1989.
Endurgreiðslan nærtil:
• Vinnu manna við nýbyggingar íbúðarhúsnæðis.
• Hluta söluverðs verksmiðjuframleiddra íbúðarhúsa.
• Vinnu manna við endurbætur á íbúðarhúsnæði ef heild-
arkostnaður er a.m.k. 7% af fasteignamati íbúðarhús-
næðis.
Hverjir fa endurgreiðslu?
L ndurgreiðslu fá þeir sem byggja á eigin
kostnað íbúðarhúsnæði sem ætlað er til sölu eða eigin
nota á eigin lóð eða leigulóð.
Hvaráaðsækjaum
endurgreiðslu?
k^ækja skal um endurgreiðslu á sérstökum
eyðublöðum til skattstjóra í því umdæmi sem lögheimili
umsækjandans er.
Eyðublöðineru:
• RSK10.17: Bygging íbúðarhúsnæðis til sölu eða leigu.
• RSK 10.18: Bygging íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Athygli skal vakin á því að umsækjandi verður að
geta lagt fram umbeðin gögn, t.d. sölureikninga þar sem
skýrt kemur fram hver vinnuþátturinn er og að vinnan sé
unnin á byggingarstað.
Hvenær er hægt að sækja
um endurgreiðslu?
a
_*ppgjörstímabil vegna nýbyggingar og
verksmiðjuframleiddra íbúðarhúsa ertveir mánuðir, janúar
og febrúar, mars og apríl o.s.frv. Umsókn skal berast skatt-
stjóra fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir að uppgjörstímabili
lýkur.
Athygli skal vakin á því að skilafrestur vegna janúar
og febrúar 1990 framlengist til 30. mars.
Uppgjörstímabil vegna endurbóta er aldrei styttra
en almanaksár. Umsókn skal berast skattstjóra 15. janúar
árið eftir að endurbætur voru gerðar.
Nánari upplýsingar veita RSK og skattstjórar um
land allt.
91-624422
RSK
RIKISSKATTSTJÓRI