Dagur - 27.03.1990, Blaðsíða 5

Dagur - 27.03.1990, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 27. mars 1990 - DAGUR - 5 Konur, vmnum með körlum í Degi 20. mars sl. birtist grein eftir Lilju Mósesdóttur um slæma stöðu kvenna bæði hvað varðar launakjör þeirra og völd í þjóð- félaginu. Um margt get ég verið Lilju sammála en tilgangur skrif- anna er greinilega sá að benda konum á kvennasamtök sem eina raunhæfa vettvanginn til úrbóta. Því er ég ekki sammála og vil því koma eftirfarandi á franrfæri. Konur ná aldrei jafnri stöðu við karla sem sérhagsmunahóp- ur, hvorki í launum né völdum. Innan verkalýðshreyfingarinnar eru víða starfandi verkakvenna- félög. Þau hafa ekki náð að sýna frarn á betri árangur í kjarabar- áttunni en blönduð stéttarfélög. Aftur á móti er það staðreynd að skástu kjarasamningar fyrir kon- ur hafa náðst þar sem ólíkir hóp- ar hafa unnið samciginlega að sérkjarasanmingum viö einstök fyrirtæki. bar hafa betur launaðir hópar karla þekkt til starfa kvennanna innan fyrirtækjanna og tekið heils hugar undir kröfu- Úlfhildur Rögnvaldsdóttir. gerð þeirra. Við skulum ekki gleyma því að karlar eru 50% þjóðarinnar og konur verða því að fá þá til liðs við málefni sín ef þau eiga að ná fram, í stað þess að líta á karla sem andstæðinga. Konum hefur því miður oft tekist illa upp í jafnréttisumræðu undanfarinna ára og karlar litið á okkur sem leiðinda nöldrara. Bæði innan launþegasamtaka og í pólitíkinni hafa karlar heyrst tauta „byrjar hún nú einu sinni enn á þessu jafnréttiskjaftæði". En ef karlmaður flytur sömu ræðuna hlusta ýmsir betur á hann. Virkari þátttaka kvenna innan stéttarfélaganna og í pólitísku flokkunum er höfuðmálið. Á þeim vettvangi verðum við konur að standa saman og vinna karl- ana til fylgis við baráttumál okkar. Sem betur fer skilja marg- ir karlar að okkar hagsmunamál eru einnig þeirra og fjölskyldunn- ar allrar. Við veröum að vinna saman, bæði kynin, á öllum víg- stöðvum, enda hlýtur það að vcra eðlilegasta leiðin þegar á allt er litið. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir. I löfiuidur er liæjarfulltrúi á Akurejri lyrir Framsókiiarflokkinn. Ferðaþjónusta bænda - Tíu ára búgrein Uni þessar mundir eru tíu ár liðin frá því að Ferðaþjónusta bænda var sett á laggirnar. Hugmyndin er upphaflega komin frá Finn- landi, en þar hefur slík ferða- þjónusta starfað í mörg ár og gef- ið góða raun. Fyrsti bæklingur Ferðaþjónustunnar hérlendis var gefinn út 1981 og var hann í umsjá Oddnýjar Björgvinsdótt- ur, sem var fyrsti framkvæmda- stjóri Ferðaþjónustu bænda og hugmyndasmiður. Fjölgun þátttökubæja Þegar Ferðaþjónusta bænda var stofnuð voru færri en 30 bæir inn- an hennar vébanda en í dag eru þeir orðnir 111 og verða 120 á næsta ári. Má því glögglega sjá að mikill vöxtur hefur verið í þessari nýju búgrein. FB býður ekki aðeins gistingu, heldur einnig lax- og silungsveiði í ám og vötnum, hestaleigu, gönguferðir, og nú síðast sjó- stangaveiði og dorg á ísilögðum vötnum, sem er nýjung hér norðanlands. Margir halda að þessi þjónusta sé fyrst og fremst fyrir útlend- inga, en jietta er misskilningur. Æ fleiri Islendingar notfæra sér þessa þjónustu, enda er hún kjör- in leið til að kynnast landinu sínu og fólkinu sem það byggir og að komast í snertingu við hreina ómengaða náttúru. Þetta er mik- ils virði fyrir þéttbýlisbörnin í dag, sem mörg liver vita varla hvað orðið sveit merkir. Viðurkennd búgrein Ferðaþjónusta er í dag viður- kennd búgrein og er hún ýmist stunduð með öðrum búskap eða ein sér. Hún er stöðluð og með henni strangt gæðaeftirlit. Bæirn- ir eru flokkaðir eftir eðli þeirrar þjónustu sem þar er veitt, gæðum Helena Uejak. hennar og verði. Eftirlit er í höndum svæðisstjóra sem starfa í umboði heildarsamtakanna í Reykjavík. Flakkarar Ýmis tilboð eru í gangi hjá FB, til dæniis hinir svokölluðu flakkarar sem njóta mikilla vinsæla. Gisti- flakkarinn svokallaði byggist á því að fólk borgar minnst fimrn 1 gistinætur sem bókaðar skulu með sólarhrings fyrirvara. Fimni- tíu bæir taka þátt í þessu tilboði. Veiðiflakkarinn er einnig mikið notaður. 27 bæir taka þátt í því tilboði og tólf bæir til viðbótar bjóða upp á veiðistangaleigu. Allir eru þessir bæir staðsettir við gjöf- ul veiðivötn eða ár. Bæklingar uni veiði- og gistiflakkarann eru fáanlegir hjá öllum söluaðilum á íslensku, þýsku og ensku. Og bráðlega keniur út pési þar sem fjallað er um hestaferðir. Sem fyrr segir, er það tilvalin leið til að kynnast landi og þjóð að nýta sér FB. Það gefur okkur kost á að kynnast fólki frá öðrum löndum og varla er til betri leið til að eyða fordómum og tortryggni á milli þjóða en að eiga saman unaðsstundir í fegurð og kyrrð íslenskrar sveitar. Þannig getum við kennt börnunum okkar og erlendum vinum að gæta landsins og bera virðingu fyrir því. Helena Dejak Höfundur er framkvæmdastjóri Ferða- skrifstofunnar Nonna á Akureyri og svæðisstjóri Ferðaþjónustu bænda á Norðurlandi. Áfengisvarnaráð: Er allt í lagi? „Rúmt ár er liðið frá því að sala áfengs bjórs hófst hérlendis. Á baksíðu Morgunblaðsins sunnu- daginn 4. mars voru m.a. þessar fréttir: 1. „Maður var handtekinn á föstudag fyrir að framvísa fölsuð- urn lyfseðli í apóteki í Kringl- unni. Maðurinn á við vímuefna- vanda að etja og hefur áður verið staðinn að svipuðu broti." 2. „Ölvaður maður var hand- tekinn þegar hann reyndi að brjótast inn í mannlausa íbúð í Vogahverfi aðfaranótt laugar- dagsins." 3. „Þrír ökumenn sem grunað- ir eru um ölvun lentu í árekstri á föstudag." 4. „Tveir bílar lentu í árekstri á Ægisíðu um klukkan hálftíu um kvöldið. Annar ökumannanna var álitinn ölvaður." 5. „Árekstur varð á mótum Miklubrautar og Lönguhlíðar á ellefta tímanum á föstudag. Ann- ar aðila var grunaður uni ölvun." 6. „Þá olli ölvaður ökumaður árekstri fjögurra bíla í miðbæn- um á föstudag. Flytja þurfti einn ökumanninn á slysadeild." 7. „Að auki voru sex öku- nienn kærðir fyrir ölvun við akst- ur á föstudag og aðfaranótt laug- ardags." 8. „Kona skar mann með gler- broti í veitingahúsinu Bjórhöll- inni, í Breiðholti aðfaranótt laug- ardagsins." Og inn í blaðinu gat að líta þessa frétt: 9. „Tveir 15 ára piltar voru handteknir í miðbænum laust fyr- ir klukkan fimm í fyrrinótt þar sem þeir óku jeppa sem þeir höfðu tekið ófrjálsri hendi. Þeir eru báðir grunaðir um ölvun." Sjálfsagt koma ekki öll kurl til grafar í þessum fréttum. Er ekki allt í lagi? Eða hvað?“ Afengisvarnaráð DAGUR Akure)Ti 0 96* Norðlcnskt dagblað Til sölu úr þrotabui Til sölu er lausafé i eigu þrotabús Þorsteins Más Aðalsteinssonar, Dalvík. Þær eignir sem hér er um að ræða eru einkum verk- færi og tæki til notkunar við loðdýrarækt. Allar nánari upplýsingar veitir Skarphéðinn Péturs- son, Hrísum, Dalvík, í símum 96-61502 og 96-61835. Tilboðum skal skilað til Skarphéðins, Hrísum, Dalvík eða Árna Pálssonar hdl., Brekkugötu 4, Akureyri, fyrir 9. apríl nk. ---------------------------------------------------------V AKUREYRARBÆR Akureyrarbær Umhverfisdeild - Skólagarðar. Flokkstjórar óskast í sumar. Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 20 ára aldri og hafi reynslu af flokkstjórn. Upplýsingar um starfið eru veittar á skrifstofu Umhverfisdeildar í síma 25600. Upplýsingar um launakjör veitir starfsmannastjóri Akureyrarbæjar í síma 21000. Skriflegar umsóknir sendist starfsmannadeild Akureyrarbæjar Geislagötu 9, 602 Akureyri, á eyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur er til 6. apríl. Umhverfisstjóri. bæjarfulltrúa Fimmtudaginn 29. mars 1990 kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir Freyr Ófeigsson og Heimir Ingi- marsson til viðtals á skrifstofu bæjarstjórnar, Geislagötu 9, 2. hæð. Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því sem aðstæður leyfa. Síminn er 21000. Bæjarstjóri. Óbreytt verð þrátt fyrir virðisaukaskatt Við hér á Degi, dagblaðinu á landsbyggðinni, vekjum athygli á að verðið á okkar vinsælu smá- auglýsingum er óbreytt þrátt fyrir aukna skatt- heimtu. Verð fyrir eina birtingu staðgreitt er kr. 860,- og síðan 200 kr. fyrir sömu auglýsingu endurtekna. Sem sagt tvær birtingar kr. 1.060,- Fimm birtingar kr. 1.660,- Tíu birtingar kr. 2.660,- Lægra er varla hægt að hafa það. auglýsingadeild sími 24222.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.