Dagur - 27.03.1990, Blaðsíða 7
Þ'riðjudagur 27. mars Í990 — DAGUR - 7
Birgitta Guðjónsdóttir lcikinaður KA lcmur boltann í gólfíð hjá Stúdínum í
leik liðanna á sunnudag. Mynd: ki
íslandsmótið í handknattleik 1. deild:
Úrslitakeppnin í blaki:
Karlaliðið vann ÍS og
tryggði sér siifurverðlaunm
- kvennaliðið tapaði hins vegar fyrir ÍS
KA hefndiófaranna í bikarnum
og lagði ÍBV að velli í Evjum
15:13, aðra hrinuna 15:10 og
þriðju hrinuna einnig 15:10.
Leikur KA og ÍS var jafnframt
síðasti leikurinn í úrslitakeppn-
inni og nú er aðeins eftir úrslita-
leikurinn í bikarnum en þar mæt-
ast KA og Þróttur Reykjavík.
KA-stelpurnar náðu sér ekki á
strik gegn Stúdínum, eftir að
hafa tapað fyrstu hrinunni naum-
lega. Stúdínur byrjuðu betur í
fyrstu hrinunni en KA-stelpurnar
náðu að jafna leikinn og komast
yfir 11:9. En þær sunnlensku
reyndust sterkari á endasprettin-
um og sigruðu í hrinunni, 15:12.
ÍS vann aðra hrinuna 15:8 og þá
þriðju 15:10.
Kvennalið KA á eftir að leika
einn leik í úrslitakeppninni, gegn
UBK en það mun þó ljóst nú
þegar að liðið endar í fjórða sæti.
Leikurinn gegn UBK fer fram á
Akureyri á laugardaginn en dag-
inn áður eigast þessi sömu liö við
í bikarkeppninni og fer sá leikur
i einnig fram á Akureyri. -KK
tapsins í bikarnum fyrr í vik-
unni. KA hefur nú unnið síð-
ustu tvo leiki sína í deildinni og
hefur liðið með því komið sér
af mestu hættusvæðinu, í bili
að minnsta kosti. Segja má að
KA hafi unnið tímamótasigur,
því langt er síðan liðinu hefur
tekist að hafa betur í viðureign
við heimamenn í Eyjum.
KA-menn mættu mjög ákveðnir
til leiks í Eyjum á laugardag og
ætluðu sér greinilega ekkert ann-
að en sigur í leiknum Þeir voru
með undirtökin frá upphafi og
höfðu ná fjögurra marka forystu í
hálfleik, 13:9.
KA-menn gáfu hvergi eftir í
síðari hálfleik og héldu nokkuð
öruggri forystu. Um miðjan síð-
ari hálfleik gerðu heimamenn
örvæntingafulla tilraun til þess að
jafna metin og tóku þá tvo KA-
menn úr umferð. Liðinu tókst þó
;aðeins að minnka muninn í tvö
mörk á tímabili en nær komust
þeir ekki og KA-menn juku mun-
inn í þrjú rnörk á ný og sigruðu
sem fyrr sagði 24:21.
KA-menn unnu þennan leik
fyrst og fremst á góðri mark-
vörslu og góðri vörn en Axel
Stefánsson stóð í markinu allan
leikinn. Allir þeir leikmenn sem
þátt tóku í leiknum stóðu sig vel
og uppskáru samkvæmt því.
Sem fyrr var Sigurður Gunn-
arsson atkvæðamestur hjá ÍBV
en þó tókst Erlingi Kristjánssyni
að halda honum nokkuð vel
niðri. Sigurður skoraði 10 mörk
og þar af 6 úr vítaköstum.
Mörk KA: Sigurpáll Aöalsteinsson 6,
Erlingur Kristjánsson 6/2, Jóhannes
Bjarnason 4, Pétur Bjarnason 4, Karl
Karlsson 2 og Guðmumlur Guömunds-
son 2.
Mörk IBV: Siguröur Gunnarsson 10/6,
Guðmundur Albertsson 3. Siguröur
Friðriksson 3, Hilmar Sigurgtslason 2,
Sigbjörn Óskarsson 2 og Guöfinnur
Kristmarsson 1. -KK
KA sigraði ÍS mjög örugglega
3:0, er liðin áttust við í úrslita-
keppni karla á Islandsmótinu í
blaki á sunnudaginn. Það
dugði KA þó aðeins til þess að
krækja í annað sæti keppninn-
ar, því daginn áður hafði
Þróttur Reykjavík tryggt sér
Islandsmeistaratitilinn með
sigri á HK í Kópavogi. í
úrslitakeppni kvenna, snéru
Stúdínur við dæminu og sigr-
uðu KA-stúIkur mjög örugg-
Iega 3:0. Leikið var í Iþrótta-
höllinni á Akureyri.
Strákarnir í KA mættu rnjög
ákveðnir til leiks gegn Stúdentum
og náðu strax yfirhöndinni í
fyrstu hrinu og áttu Stúdentar
alltaf á brattan að sækja. Því var
eins farið í hinum hrinunum
tveimur og var sigur KA aldrei í
hættu. KA vann fyrstu hrinuna
íslandsmótið í handknattleik, 4. flokkur 1. deild:
Þórsarar unnu bronsverðlaun
- FH varð íslandsmeistari og Stjarnan hafnaði í öðru sæti
Strákarnir í 4. flokks liði Þórs í
handbolta, nældu sér í brons-
verðlaun á Islandsmótinu en
síðasta fjölliðakeppni vetrarins
fór fram í Valsheimilinu um
helgina. FH varð Islandsmeist-
ari í ilokknum, Stjarnan hafn-
aði í öðru sæti, Þór í því þriðja
en Valur, sem flestir reiknuðu
með að stæði uppi sem meist-
ari, varð að gera sér fjórða
sætið að góðu.
Eftir góðan árangur í Norður-
landsriðli og síðan í 2. deild á
Akranesi, öðluðust Þórsarar rétt
til þess að leika í lokakeppni 1.
deildar. „Þessi árangur liðsins er
mun betri en ég átti von á fyrir-
fram og það var frábært hjá
strákunum að leggja Valsmenn
að velli en þeir eru með besta
liðið, þó svo að hlutirnir hafi ekki
gengið upp hjá þeim að þessu
sinni,“ sagði Árni Gunnarsson
þjálfari Þórs í samtali við Dag.
Alls tóku átta lið þátt í 1.
deildarkeppninni og léku allir við
alla. Þórsarar héldu suður á
fimmtudag og léku þá einn leik,
síðan annan leik á föstudag, þrjá
á laugardag og loks tvo á sunndag
og þótti þessi niðurröðun frekar
óhagstæð liðinu.
Þórsarar unnu fimm leiki en
töpuðu tveimur. Þórsliðið var
eina lið keppninar sem náði að
vinna sigur á Val í hörkuleik og
hafði íslandsmeistaratitilinn af lið-
inu fyrir vikið. Þór tapaði aðeins
fyrir FH og Stjörnunni en þessi
tvö lið höfnuðu í tveimur efstu
sætunum.
Urslit í leikjum Þórs urðu sem
hér segir:
Þór-Týr 15:14
Þór-Reynir S 20:14
Þór-Víkingur 15:12
Þór-Stjarnan 16:19
Þór-Valur 16:12
Þór-KR 15:14
Þór-FH 9:12
Valsmenn sáu um framkvæmd
keppninnar og að sögn Árna
Gunnarssonar var öll skipulagn-
ing mótsins til mikillar fyrir-
myndar. Valsmenn veittu auka-
verðlaun til þriggja einstaklinga
og prúðasta liðsins, til minningar
um Magnús Blöndal sem starfaði
mikið sem unglingaþjálfari félag-
ins. FH-ingar áttu besta mark-
vörðinn, Týrarar besta sóknar-
manninn og Valsmenn besta al-
hliða leikmanninn en prúðasta
liðið var lið Reynis í Sandgerði.
-KK
Hafsteinn Jakobsson leikmaður KA gerir sig líklegan til þess að „smassa“ í
leiknum gegn 1S á sunnudag. KA sigraði í leiknum og hafnaði í öðru sæti
Islandsmótsins. Mynd: kl
KA-menn gerðu góða ferð til
Vestmannaeyja er þeir mættu
heimamönnum í 1. deild
íslandsmótsins í handknattleik
á laugardaginn. Þeir höfðu á
brott með sér bæði stigin í
i24:21 sigri og hefndu þar með
Staðan
1. deild
Úrslit leikja í 14. uinferð 1. deild-
ar íslandsmótsins í handknattleik
urðu þess:
FH-Stjarnan 29:17
HK-Grótta 27:25
Valur-Víkingur 30:23
ÍBV-KA 21:24
KR-ÍR 25:18
Staðan í deildinni er þessi:
FH 14 12-1-1 379:316 25
Valur 14 11-1-2 375:320 23
Stjarnan 14 8-2-4 331:306 18
KR 14 7-3-4 304:297 17
ÍBV 14 5-3-6 324:321 13
ÍR 14 5-2-7 305:313 12
KA 14 5-1-8 318:339 11
Grótta 14 3-1-10 297:337 7
Víkingur 14 2-3-9 313:343 7
HK 14 2-3-9 291:340 7