Dagur - 27.03.1990, Blaðsíða 10
'ÍO - DAGUR ÞnðjÉictagur'27; tttáteifðOÖ
íþróttir
Enska knattspyrnan:
Crystal Palace vann toppliðið
- Man. Utd. að rétta úr kútnum - Staða Leeds Utd. sterk í 2. deild
Nú er lokaspretturinn að hefj-
ast í Ensku knattspyrnunni,
lokað hefur verið fyrir kaup og
sölur á leikmönnum og nú
verða félögin að treysta á þá
leikmenn sem þau hafa í sínum
röðum. Það er því Ijóst að
meiðsli geta sett mikið úr
skorðum hjá liðunum, því ekki
verður mögulegt að kaupa
nýja leikmenn til að fylla skörð
þeirra sem heltast úr lestinni til
vorsins. En lítum þá á leikina
sem fram fóru á laugardaginn.
Óvænt úrslit urðu í leik Crystal
Palace og Aston Villa. Villa hafði
nýlega keypt miðherjann Tony
Cascarino frá Millwall fyrir £1.5
milljónir, en Palace keyptu í vik-
unm miðherjann Gary Thomp-
son sem áður lék með Villa fyrir
£150.000. Og það var hinn ódýri
sem stal senunni og skoraði eina
mark leiksins. Aðeins 5 mín.
höfðu liðið af hans fyrsta leik
með Palace er boltinn barst til
hans eftir langt innkast Andy
Gray og hann þrumaði knettin-
um í netið. Cascarino hins vegar
átti aðeins tvo skalla að marki
sem hvorugur rataði rétta leið.
Leikmenn Palace hugsuðu um
það eitt eftir markið að halda
fengnum hlut sem þeim tókst, en
leikurinn varð fyrir vikið lítil
skemmtun fyrir áhorfendur og
Villa tapaði dýrmætum stigum í
baráttunni við Liverpool.
Martin Hayes skoraði fyrsta
mark Arsenal á 6. mín. er hann
jfékk boltann óvaldaður í víta-
Iteignum. Kevin Campbell bætti
löðru marki við eftir undirbúning
'Perry Groves og á síðustu mín.
fyrri hálfleiks skoraði Hayes sitt
annað mark en hann fékk bolt-
ann úr þverslánni eftir skalla
Alan Smith. Bobby Briscoe lag-
aði stöðuna fyrir Derby á 52.
mín., hans fyrsta mark fyrir
Derby, en lengra komst liðið
ekki og öruggur sigur Arsenal var
í höfn.
Everton hefur nú skotist upp í
fjórða sæti deildarinnar eftir
góða sigra að undanförnu og á
laugardag lagði Everton, Nor-
wich að velli 3:1. Norwich lék þó
betri knattspyrnu í leiknum þrátt
fyrir tapið, en það voru leikmenn
Everton sem stóðu uppi sem sig-
urvegarar. Á síðustu mín. fyrri
hálfleiks náði Norwich forystu er
Robert Rosario stóð af sér tækl-
ingu Ian Snodin og David Phillips
afgreiddi sendingu hans af stuttu
færi í markið. Tony Cottee hinn
lágvaxni miðherji Everton skor-
aði síðan tvö skallamörk á fyrstu
^15 mín. síðari hálfleiks og er 5
mín. voru til leiksloka bætti
Graham Sharp því þriðja við fyr-
ir Everton.
Man. Utd. þokaði sér af mesta
hættusvæðinu í 1. deild með
góðum sigri á útivelli gegn
Southampton. Utd. hafði undir-
tökin í leiknum, Danny Wallace,
Mark Hughes og Colin Gibson
voru nálægt því að ná forystu fyr-
ir liðið í markalausum fyrri hálf-
leik. Snemma í síðari hálfleik
skoraði síðan Gibson sem hefur
verið meiddur sl. 18 mánuði gott
mark með skoti af um 20 metra
færi eftir sendingu frá Hughes.
Það var síðasta spyrna Gibson í
leiknum, því hann hafði verið
kallaður útaf og í hans stað kom
Neil Webb inná í sinn fyrsta ieik
síðan hann meiddist í landsleik
með Englendingum í haust. Mark
Robins bætti síðara marki Utd.
við og gulltryggði sigur liðsins
sem lék vel þrátt fyrir rok og erf-
iðar aðstæður.
Úrslit
Full Members Cup
Úrslitaleikur.
Chelsea-Middlesbrough 1:0
1. deild
Coventry-Charlton 1:2
Crystal Palace-Aston Villa 1:0
Derby-Arsenal 1:3
Everton-Norwich 3:1
Luton-Millwall 2:1
Q.P.R.-Nottingham For. 2:0
Southainpton-Manchester Utd 0:2
Wimbledon-Sheffield Wed. 1:1
2. deild
Blackburn-Newcastle 2:0
Boumemouth-Watford 0:0
Ipswich-Bradford 1:0
Leeds Utd.-Portsmouth 2:0
Leicester-Plymouth 1:1
Oldham-Hull City 3:2
Oxford-Swindon 2:2
Port Vale-Wolves 3:1
Shefficld Utd.-Barnsley 1:2
Sunderland-West Ham 4:3
W.B.A.-Stoke City 1:1
Úrslit í vikunni. 1. deild
Crystal Palace-Derby 1:1
Q.P.R.-Aston Villa 1:1
Manchester City-Chelsea 1:1
Millwall-Everton 1:2
Sheffield Wed.-Manchester Utd. 1:0
Tottenham-Liverpool 1:0
2. deild
Port Vale-Barnslcy 2:1
Blackburn-Portsmouth 2:0
Hull City-Stoke City 0:0
Ipswich-Swindon 1:0
Oldham-Bournemouth 4:0
Plyinouth-Middleshrough 1:2
Sunderland-Leeds Utd. 0:1
Watford-Brighotn 4:2
Wolves-W.B.A. 2:1
Bradford-Newcastle 3:2
Oxford-Leicester 4:2
West Ham-Sheffield Utd. 5:0
Colin Gibson trúir vart sínum eigin
eyrum. Kallaður útaf strax cftir að
hafa skorað fyrra mark Man. Utd. í
leiknum gegn Southampton.
Arsenal vann góðan sigur á úti-
velli gegn Derby 3:1, en í undan-
förnum leikjum hefur Arsenal
gengið illa að skora mörk. Að
þessu sinni gekk þeim vel, en
leikmenn Derby sem fengu, álíka
möre færi tókst illa að nvta sín.
Charlton komst loks af botni
deildarinnar með góðum sigri
gegn Coventry á útivelli. Coventry
náði þó forystu með marki Kevin
Gallacher eftir hálftíma leik og
góður leikur Charlton virtist ekki
ætla að gefa mikið af sér. Steve
Ogrizovic varði mjög vel í marki
Coventry, Paul Williams og
Robert Lee misnotuðu dauðafæri
og Andy Peake átti skot í slá.
Charlton menn gáfust þó ekki
upp og Scott Minto jafnaði fyrir
liðið eftir hornspyrnu og er 25
mín. voru til leiksloka kom sigur-
mark liðsins. Andy Jones átti þá
skot að marki Coventry sem Kevin
Drinkel! stýrði í eigið mark og
sanngjarn sigur í höfn.
Leikur Q.P.R. gegn Notting-
ham For. var sýndur í sjónvarp-
inu, góður leikur þar sem bæði
lið sýndu ágæta spretti. Ray
Wilkins var mjög sterkur á miðj-
unni hjá Q.P.R. og margir telja
að hann ætti að leika með
Enska landsliðinu á Ítalíu í
sumar. Mörkin komu sitt í hvor-
um hálfleik, Andy Sinton skoraði
eftir 26 mín. með skoti niðri eftir
sendingu Roy Wegerle og 10
mín. fyrir leikslok bætti Simon
Barker öðru marki Q.P.R. við
eftir að vörn Forest hafði mistek-
ist að hreinsa frá eftir horn-
spyrnu. Porvaldur Örlygsson var
varamaður og kom inná undir lok
leiksins, en Forest hefur slakað
mjög á í undanförnum leikjum
sínum.
Luton krækti sér í mikilvæg
stig er liðið sigraði Millwall 2:1 í
fallbaráttuslagnum. Luton lék
betur í leiknum og náði forystu á
42. mín. er Mick McCarthy skor-
aði sjálfsmark í sínum fyrsta leik
með Millwall. Kinsley Black
skoraði síðara mark Luton á 77.
mín. með góðu skoti af löngu
færi. en mín. síðar niinnkaði Les
Briley inuninn fyrir Millwall
aðeins 30 sek. eftir að hann kom
inná sem varamaður. Við ósigur-
inn féll lið Millwall í neðsta sæti
1. deildar.
Peter Nicholas fyrirliði Chelsea
leiddi lið sitt til sigurs á Wembley á
sunnudaginn.
Bikar til
A sunnudag léku Chelsca ug
Middlesbrough til úrslita í Full
Members bikarkeppninni á
Wembley fyrir 75.000 áhorf-
Wimbledon og Sheffield Wed.
gerðu jafntefli í sínum leik og
voru bæði lið sátt við þau úrslit.
Á 50. mín. náði Sheffield forystu
er Peter Shirtliff skoraði af stuttu
færi eftir góða sendingu Trevor
Francis. Wimbledon jafnaði 15
ntín. síðar er John Fashanu var
felldur innan teigs og hann skor-
aði sjálfur úr vítinu sem var sér-
lega kæruleysislega tekið. Dalian
Atkinson var nærri að tryggja
Sheffield öll stigin, en Hans
Segers í marki Wimbledon varði
frábærlega frá honum.
2. deild
• Leeds Utd. hefur nú náð
afgerandi forystu í 2. deild og
vann Portsmouth auðveldlega á
laugardag. Vinnie Jones og Lee
Chapman skoruðu mörk liðsins
sitt í hvorum hálfleik.
• Sheffield Utd. tapaði á sama
tíma á heimavelli gegn Barnsley
þrátt fyrir að hafa 1:0 yfir í hálf-
leik. Steve Agnew og Andy
Saville tryggðu Barnsley sigurinn
Martin Hayes skoraði 2 mörk fyrir
Arsenal í góðuin sigri gegn Derby.
Chelsea
endur. í þessari keppni taka
þátt lið úr 1. og 2. deild, en
nokkur 1. deildarlið nýttu sér
þó ekki þátttökuréttinn þó
flest þeirra væru með.
Leikurinn var líflegur og niikill
baráttuleikur sem Chelsea hafði
betur í og sigraði með eina marki
leiksins.
Eina mark leiksins var skorað
beint úr aukaspyrnu af enska
landsliðsbakverðinum Tony
Dorigo eftir 25 mín. leik. Kevin
Wilson fiskaði aukaspyrnuna rétt
fyrir utan vítateig Middlesbrough
hægra megin, kjörið færi fyrir
vinstri fótar leikmann og Dorigo
sendi laglegan snúningsbolta upp
í markhornið fjær og þrátt fyrir
að Stephen Pears í marki
Middlesbrough kæmi við boltann
tókst honum ekki að koma í veg
fyrir mark.
Leikmenn Middlesbrough
sóttu nokkuð í síðari hálfleikn-
um, Peter Davenport var hættu-
legur, en leikmönnum liðsins
tókst þó ekki að skapa sér veru-
lega góð marktækifæri.
Það var því fyrirliði Chelsea,
Peter Nocholas, sem hóf sigur-
launin á loft í lokin og var það vel
við hæfi þar sem hann var valinn
besti maður leiksins. Þ.L.A.
Baráttujaxlinn Vinnie Jones skoraði
fyrir Leeds Utd. um helgina og lið
hans hefur nú gott forskot í 2. deild.
með mörkum í síðari hálfleik.
• Swindon varð að láta 2:2
jafntefli á útivelli gegn Oxford
duga, en er þó í þriðja sæti.
• Roger Palmer skoraði tvö af
mörkum Oldham í 3:2 sigrinum
gegn Hull City og Oldham stend-
ur all vel að vígi.
• Steve Moran og Scott Sell-
ars skoruðu mörk Blackburn
gegn Newcastle og Blackburn er
komið í fjórða sætið.
• John Wark skoraði fyrir
Ipswich gegn Bradford í fyrri
hálfleiknum.
• Sunderland lagði West Ham
4:3 og auðvitað skoraði Marco
Gabbiadini fyrir Sunderland.
Þ.L.A.
Staðan
1 . deild
Aston Villa 31 18- 5- 8 47:29 59
Liverpool 29 16- 8- 5 53:25 56
Arsenal 30 15- 5-10 45:30 50
Everton 30 14- 6-10 44:36 48
Chelsea 31 12-11- 8 46:41 47
Tottenham 31 13- 6-12 44:39 45
Nott.Forest. 30 12- 8-10 41:34 44
Coventry 31 13- 5-13 34:43 44
QPR 29 11-10- 8 35:28 43
Southampton 30 11-10- 9 58:52 43
Norwich 31 10-11-10 32:35 41
Wimbledon 29 9-13- 7 38:33 40
Sheff.Wed. 32 10-10-12 30:39 40
Derby 30 11- 6-14 36:31 39
Crystal Palace 3010- 7-1334:5537
Man.Utd. 31 9- 8-14 37:40 35
Luton 31 7-12-12 35:47 33
Man.City 30 7-10-13 33:45 31
Charlton 31 6- 9-16 26:43 27
Millwall 31 5-10-16 36:47 25
2. deild
Leeds Utd. 37 21-10- 6 65:40 73
Sheff.Utd. 35 17-12- 6 54:40 63
Swindon 37 17-10-10 68:50 61
Blackhurn 37 15-14- 7 65:48 59
Newcastle 36 15-12- 9 64:46 57
Oldham 34 15-12- 7 54:39 57
Wolves 37 15-11-11 57-53 56
Ipswich 36 15-11-10 50:48 56
Sunderland 36 14-13- 9 56:55 55
West Ham 36 14-10-12 55:45 52
Port Vale 37 13-13-11 49:44 52
Oxford 37 14- 8-15 53:51 50
Watford 37 12-11-14 45:43 47
Leicester 36 12-11-13 51:57 47
Bournemouth 3711-11-1548:5844
W.B.A. 37 10-13-14 57:55 43
Brighton 36 12- 7-17 47:52 43
Portsmouth 36 8-13-15 45:56 40
Hull 36 8-15-13 42:51 39
Middlesbr. 36 10- 9-17 41:53 38
Barnsley 35 9-10-16 36:60 37
Plymouth 35 9- 9-17 47:50 36
Bradford 38 8-12-18 41:56 36
Stoke 37 5-16-16 27:48 31