Dagur - 27.03.1990, Side 11

Dagur - 27.03.1990, Side 11
hér & þar Jerry Paren horfir á mynd af konu sinni. Eiginkona biður um hjálp Bandaríkjamaður nokkur, Jerry Paren að nafni, varð fyrir vægast sagt einkennilegri reynslu sem vafalaust myndi flokkast undir dulræn áhrif. Frásögn hans hefur orðið mörgum umhugsunarefni. í 44 ár var hann hamingjusamlega giftur fjölskyldufaðir, en með konu sinni, Shirley, átti hann fjögur börn. Shirley lést í mars árið 1986, og dauði hennar var mikið áfall fyrir Jerry. Hún var jarðsett í svonefndri neðanjarðargrafhvelfingu í kirkju- garðinum í heimaborg sinni, Toledo. „Hún var eina konan sem ég hef nokkru sinni elskað, og ég hlakkað alltaf jafn mikið til að koma heim,“ segir Jerry. Þremur mánuðum eftir útför- ina byrjuðu martraðirnar. „Mig dreymdi alltaf sama drauminn. Konan mín grét, og ásakaði mig um eitthvað sem ég skildi ekki. Pað eina sem hún sagði var: „Hvers vegna gerir þú mér þetta?“ og ég skildi ekkert í þessu. Svona gekk þetta í 16 mánuði, ég vaknaði alltaf milli klukkan tvö og þrjú á nóttunni," segir Jerry. I september 1987 ákvað Jerry að láta opna gröf konu sinnar og flytja líkið í annán kirkjugarð. handan grafar og dauða Svona leit gröfín út eftir að kistan hafði verið fjarlægð. Vatn hafði sigið nið- ur með lokinu. Hann taldi að sú ráðstöfun myndi binda endi á martraðirnar, sem voru farnar að taka á sig nýja mynd, því jafnvel að degi til heyrði hann rödd hennar kalla á hjálp. Þegar gröfin var opnuð kom í ljós að djúpt vatn var í steinhvelf- ingunni sem kistan hvíldi í. Jerry varð reiður þegar þetta uppgötv- aðist, en vatnið hafði sigið niður gegnum sprungu í samskeytum. Kistan hafði flotið í vatninu. „Nú skildi ég af hverju þessar martraðir ásóttu mig. Konan mín var að kvarta yfir meðferðinni, handan grafarinnar.“ Jerry lét flytja kistuna í annan kirkjugarð, en hefur höfðað mál á hendur uprrunalega kirkju- garðinum. Krefst hann skaða- bóta vegna meðferðarinnar á líki konu sinnar. kvikmyndarýni Umsjón: Jón Hjaltason Morðingiim Jack Borgarbíó sýnir: Endurkomu Jacks (Jack’s Back). Leikstjóri: Rowdy Herrington. Helstu hlutverk: James Spadcr og Cynthia Gibb. Simcom 1989. Óttasleginn kvenmaður kemur hlaupandi út úr mistri stórborgar- innar. (Skyldi þetta eiga að vera þoka eða mengun sem leikstjór- arnir nota ætíð í svona tilfellum?) Ráðþrota hallar hún sér upp að timburvegg og fyrr en varir er hún liðið lík. Þannig byrjar þessi eilítið furðulega ntynd leikstjór- ans Herrington’s, setn er jafn- framt höfundur handrits. Eitt morðið rekur annað og að minnsta kosti í þrígang fannst mér einskonar endapunkti vera náð en jafnoft hrökk allt aftur í James Spader leikur tvö hlutverk í Endurkomu Jack's, læknanemann og bróður hans. gang. Þrátt fyrir þennan skrykkjótta gang fannst mér kvikmyndin eins og gagnsæ; það mátti sjá atburðina fyrir, sérstaklega þó endalokin. Þetta er engu að síður spennandi bíó en svolítið blóðidrifið. Áður en þið hristið af ykkur hausinn yfir framanskrifuðum mótsögnum vil ég minna ykkur á að mætur maður sagði eitt sinn; gott ef það var ekki Matthías Jochumsson; að maðurinn lifði ekki á samkvæminni einni saman. Hvað sem þessu líður þá geri ég ráð fyrir því að geðjist ein- hverjum á annað borð að hryllings-spennumyndum þá verði hann varla svikinn af Endurkomu Jacks. Þriöjudagur. 27j fnars T990 - OAGUR -;1f1 Bókmenntasamkeppni Bókaklúbbs AB í tilefni af 15 ára afmæli Bóka- klúbbs Almenna bókafélagsins sem var í september 1989 ákvað Almenna bókafélagið að veita 300 þúsund krónum til bók- menntaviðurkenningar. Viður- kenningin skal vcitt frumsömdu íslensku verki, áður óprentuðu, sem gefa má út sem bók. Upphæðin verður veitt cinu verki eða skipt á milli tveggja eft- ir því sem dómnefndin ákveður. Þó skal hærri viðurkenning ekki vera lægri en kr. 200 þúsund krónur. Eftirtaldar tegundir bókmennta- verka gætu komið til geina til viðurkenningar. Skáldsaga, leikrít, Ijóð, endur- minningar, smásögur, ferðasaga. Handritunum skal skilað gegn kvittun í skrifstofu Almenna bókafélagsins, Austurstræti 18, Rcykjavík, fyrir 1. júní 1990. Þau séu vélrituð og heft eða i gatamöppu. HandrÍtin verði merkt dulnefni en rétt nafn og heimilisfang fylgi með í lokuðu umslagi. Eingungis verður opnað af útgáfunni það umslag (þau umslög) merkt dulnefni sem viðurkenning hlýtur (hljóta). Dómnefndina skipa: Davíð Scheving Thorsteins- son, framkvæmdastjóri; Einar Már Guðmundsson, rithöfundur; Eiríkur Hreinn Finnbogason, útgáfustjóri; Helga Guðrún Johnson, fréttamaður; Kjartan Árnason, lesandi. Almenna bókafélagið áskilur sér útgáfurétt þess handrits (þeirra handrita) sem viðurkenn- ingu hlýtur (hljóta), gegn fullum höfundarlaunum skv. samning- um Félags íslenskra bókaútgef- anda og Rithöfundasambands ís- lands. Telji dómnefndin ekkert inn- kominna handrita vert viður- kenningar áskilur Almenna bókafélagið sér rétt til að ákveða nýjan skilafrest eða fella viður- kenninguna niður. Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, á neðangreindum tíma: Borgarsíða 11, Akureyri, þingl. eig- andi Árni Björgvinsson, föstud. 30. mars ’90, kl. 15.15. Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild Landsbanka íslands og Ásgeir Thoroddsen hdl. Helgamagrastræti 48, e.h. Akureyri, talinn eigandi Odda M. Júlíusdóttir, föstud. 30. mars, ’90, kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur eru: Hreinn Pásson hdl. og Gunnar Sólnes hrl. Höfðahlíð 3, 1. h. og ris, Akureyri þingl eigandi Þórarinn Stefánsson, föstud. 30. mars '90, kl. 13.45. Uppboðsbeiðandi er: Veðdeild Landsbanka íslands. Mímisvegur 16, Dalvík, talinn eig- andi Rafvélar sf. föstud. 30. mars ’90, kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru: Innheimtumaður ríkissjóðs og Hró- bjartur Jónatansson hdl. Nonni EA-188, Grímsey, þingl. eig- andi Sigurbjörn Júlíusson, o.fl., föstud. 30. mars ’90, kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi er: Gunnar Sólnes hrl. Sandskeið 10-12, Dalvík, þingl. eig- andi Hallgrímur Antonsson, föstud. 30. mars '90, kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi er: Hróbjartur Jónatansson hdl. Sandskeið 31, Dalvík, þingl. eigandi Ölunn hf., föstud. 30. mars '90, kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru: Hróbjartur Jónatansson hdl. og inn- heimtumaður ríkissjóðs. Skarðshlíð 22 e, Akureyri, þingl. eigandi Jóhanna Valgeirsdóttir, föstud. 30. mars ’90, kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er: Ólafur Gústafsson hrl. Stórholt 9, n.h., Akureyri, þingl. eig- andi Birgir Antonsson, föstud. 30. mars ’90, kl. 14.45. Uppboðsbeiðendur eru: Sveinn H. Valdimarsson hrl. og Gunnar Sólnes hrl. Sæból, Dalvík, þingl. eigandi Hauk- ur Tryggvason, föstud. 30. mars '90, kl. 14.45. Uppboðsbeiðendur eru: Hróbjartur Jónatansson hdl. og Eggert B. Ólafsson hdl. Sænes EA-75, þingl. eigandi Rán hf., föstud. 30. mars ’90, kl. 15.15. Uppboðsbeiðandi er: Tryggingastofnun ríkisins. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu. Nauðungaruppboð annað og síðara, á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, á neðangreindum tíma: Borgarhlíð 6 a, Akureyri, þingl. eig- andi Jakob Jóhannesson, föstud. 30. mars ’90, kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl., Veðdeild Landsbanka íslands, Guðjón Ármann Jónsson hdl. og innheimtu- maður ríkissjóðs. Draupnisgata 3, M-N-O, hl. Akur- eyri, þingl. eigandi Valgeir A. Þóris- son, föstud. 30. mars ’90, kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru: Iðnlánasjóður, Ásgeir Thoroddsen hdl. Gunnar Sólnes hrl., innheimtu- maður ríkissjóðs og Landsbanki íslands. Grenilundur 15, Akureyri, þingl. eig- andi Haukur Adolfsson, föstud. 30. mars '90, kl. 15.45. Uppboðsbeiðandi er: Innheimtumaður ríkissjóðs. Hafnarstræti 75, Akureyri, þingl. eigandi Svavar Ottesen, föstud. 30. mars '90, kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi er: Guðjón Ármann Jónsson hdl. Hjallalundur 17 a, Akureyri, þingl. eigandi Björk Dúadóttir, föstud. 30. mars '90, kl. 15.45. Uppboðsbeiðendur eru: Jónas Aðalsteinsson hrl., Veðdeild Landsbanka íslands, Ólafur Birgir Árnason hdl., Gunnar Sólnes hrl. og Bæjarsjóður Akureyrar. Tjarnarlundur 8 h, Akureyri, þingl. eigandi Magnús Jónsson, föstud. 30. mars '90, kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild Landsbanka íslands, Bæjarsjóður Akureyrar og Kristján Ólafsson hdl. Víðimýri 4, Akureyri, þingl. eigandi Siguröur Halldórsson, föstud. 30. mars '90, kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru: Skuli J. Pálmason hrl. og Eggert B. Ólafsson hdl.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.