Dagur - 28.03.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 28. mars 1990
Menntaskólinn á Akureyri:
Hannes Hólmsteinn með
íyrirlestur í kvöld
-1
fréffir
Einn helsti postuli frjálshyggj-
unnar á íslandi, Hannes Hólm-
steinn Gissurarson, verður
með fyrirlestur í Mennta-
skólanum á Akureyri í kvöld.
Til stóð að Hannes Hólm-
steinn og Svavar Gestsson,
menntamálaráðherra, yrðu báðir
á fundinum og ræddu um „fram-
tíðarlandið, frjálshyggju eða fé-
lagshyggju,“ en ráðherra forfall-
aðist og því var fundinum breytt í
fyrirlestur Hannesar Hólmsteins.
Að fundinum standa HÍMA,
Hægri menn í MA, LOMMA,
Lenín og marxistar í MA og
MFH, Málfundafélag Hugins.
óþh
Landssamband iðnaðarmanna og
Meistarafélaga byggingarmanna:
Opna sameiginlega
skrifstofu á Akurewi
Um næstu helgi mun Lands-
samband iðnaðarmanna og
Meistarafélag byggingarmanna
á Norðurlandi í sameiningu
opna skrifstofu á Akureyri.
Skrifstofan verður til húsa að
Geislagötu 12 og mun hún
bjóða upp á samskonar þjón-
ustu og veitt er félagsmönnum
og fyrirtækjum á skrifstofu
Landssambands iðnaðarmanna
í Reykjavík, en sambandið
hefur fram til þessa aðeins haft
bækistöðvar í höfuðborginni.
Að sögn Þorleifs Jónssonar
framkvæmdastjóra Landssam-
bands iðnaðarmanna verður
skrifstofunni ætlað að þjóna öllu
Norðurlandi og er stefnt að því
að þar vinni fastir starfsmenn í
einu og hálfu starfi. „Þetta verð-
ur skref í þá átt að við teygjum
okkur enn betur til landsbyggðar-
innar því við lítum á okkur sem
samband sem nær til alls lands-
ins. Til þessa liggja ýmsar ástæð-
ur. Aðilar í iðnaði úti á lands-
byggðinni eiga erfiðara með að
sækja þjónustu til okkar höfuð-
stöðva en þeir sem búa á höfuð-
borgarsvæðinu en sem kunnugt
er er hvers konar þjónusta í mun
ríkara mæli þar en á landsbyggð-
inni. Með opnun skrifstofu á
Akureyri teljum við okkur koma
til með að ná betur til okkar
manna en ella.“
Sem dæmi um þjónustu verður
veitt aðstoð við hvers konar
vandamálum sem kunna að koma
upp hjá félagsmönnum, t.d. lög-
fræðilegum eða rekstrarlegum
atriðum. Þá leita menn gjarnan
aðstoðar hjá LI áður en þeir leita
til opinberra aðila um ýmis konar
efni. „Við bjóðum upp á nám-
skeið og fræðslufundi um ýmis
efni og mun skrifstofan á Akur-
eyri vinna að því að kanna hvort
áhugi er á slíku fyrir norðan. Þá
mun skrifstofan upplýsa félags-
menn á svæðinu um hvaða málefni
eru til umfjöllunar hverju sinni
hjá Landssambandinu og gert er
ráð fyrir að starfsmaður eða
-menn heimsæki skrifstofuna á
Akureyri með reglulegu millibili
en þar verða á ferðinni sér-
fræðingar á ýmsum sviðum sem
verða til taks í ákveðinn tíma,“
sagði Þorleifur. VG
Lionsmenn ásamt læknum og röntgentækni. Halldór sýslumaður Kristinsson, formaður klúbbsins í hjartalínurits-
tækinu.
Sjúkrahúsið í Húsavík:
Fékk hjartalínurita að gjöf
Lionsklúbbur Húsavíkur
ákvaö, í tilefni af 25 ára afmæli
sínu, að gefa Sjúkrahúsinu í
Húsavík tækjagjöf. Fyrir val-
inu varö hjartalínuriti sem
afhentur var sl. miðvikudag.
Það var formaður klúbbsins,
Halldór Kristinsson, sýslumaður
Þingeyinga, sem afhenti tækið að
viðstöddum nokkrum Lionsfé-
lögum, læknum og blaðamönn-
um. Ólafur Erlendsson, fram-
kvæmdastjóri Sjúkrahússins,
þakkaði gjöfina og sagði að
klúbburinn hefði fært sjúkrahús-
inu margar stórgjafir á undan-
förnum árum. Nýja tækið var
reynt með því að Filippía Guð-
brandsdóttir, röntgentæknir, tók
hjartalínurit af sýslumanni, og
síðan var viðstöddum boðið upp
á veitingar. IM
Framkvæmdir við byggingu Hamars, félagsheimilis Þórs að heíjast á ný:
Verður hægt að taka hluta hússins í
notkun á 75 ára afmælisdegi félagsins?
- það er ýmislegt hægt að gera með samstilltu átaki
Bygginganefnd íþróttafélags-
ins Þórs, boðaði til fundar á
mánudagskvöld í Hamri, félags-
heimili Þórsara og var þar
saman kominn fjöldi félaga.
Tilefnið var að kynna stöðu
mála við byggingu Hamars en
framkvæmdir þar hafa legið
niðri í rúmt ár. Mikill áhugi er
fyrir því á meðal bygginga-
nefndarmanna að halda fram-
kvæmdum áfram og stefna á
að taka einhvern hiuta hússins
í notkun þann 6. júní n.k., á 75
ára afmælisdegi félagsins.
Framkvæmdir voru stöðvaðar
á sínum tíma þegar ljóst var að
nánast ekkert framlag fengist frá
ríkinu. Síðan þá hefur verið
reynt að halda í horfinu og það
litla fé sem bygginganefnd hefur
haft úr að spila verið notað til
greiðslu skulda.
Bygginganefndarmenn vona
nú að heldur sé að rofa til. Von
er á smá slettu frá ríkinu, eins og
þeir orða það en það sem bundn-
ar eru mestar vonir við er samn-
ingur sem fyrirhugað er að gerður
verði nú alveg á næstunni milli
Þórs og Akureyrarbæjar í sam-
ræmi við breytta verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga.
Það er þó ljóst að félagið á
ekki von á neinum stórum upp-
hæðum, þannig að mikillar sjálf-
boðavinnu er þörf, ef mögulegt á
að vera að taka hluta húsnæðisins
í notkun í júní og þess í stað
verði hægt að nota væntanleg
fjárfrainlög til efniskaupa, eftir
að skammtímaskuldum hafa ver-
ið gerð skil.
Er það von bygginganefndar-
manna að félagsmenn í Þór, jafnt
iðnaðarmenn sem handlangarar
og aðrir sem áhuga hafa á að
koma húsinu í notkun sem fyrst,
bretti nú upp ermarnar og leggi
■RR......
Glæsilegt fiskborð
með hreint ótrúlegu úrvali af fiski
Ýsa ★ Þorskur ★ Lúða ★ Lax ★ Skötuselur ★
Tindabykkja ★ Blálanga ★ Rauðspretta ★ Fiskfars ★
Rækjufars ★ Ýsa í rækjusósu ★ Ýsa í humarsósu ★
Gráðostfyllt stórlúða ★ Fiskipaté, 4 tegundir.
KYNNUM SALTFISK
fimmtudag frá kl. 15.(
og föstudag frá kl. 15
KEA Hrísalundi
Opið mánudaga,
þriðjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga frá
kl. 9-18.
Föstudaga frá kl. 9-19.
Laugardaga frá
kl. 10-14.
Lágt vöruverð
Veríð velkomin.
þessu máli lið.
Bygginganefnd félagsins skipa
þeir Hallgrímur Skaptason, Guð-
mundur Sigurbjörnsson og Gísli
Kristinn Lórenzson. -KK
Grímsey:
Karlpeningur-
innísánun
vegna skorts
ástúlkum
Línuveiði hefur gengið með
eindæmum vel á Bjargeyju II í
Grhnsey að undanförnu og
hefur hún aflað um 90 tonn frá
áramótum. Mest af þcssunt
afla hefur hún náð í febrúar og
mars.
Óli Ólason festi kaup á Bjarg-
eyju í fyrra og þetta er hans
fyrsta línuvertíð á henni. Aflann
leggur hann upp hjá Fiskverkun
KEA í Grímsey. Að sögn
Sæmundar Ólasonar, verkstjóra,
hefur þar verið nóg að gera að
undanförnu. Hann segir að betur
hafi gengið á línunni en netum,
en sá netafiskur sem hafi fengist
sé mjög góður, stór og feitur.
Hjá Fiskverkun KEA eru 14
starfsmenn, þar af 10 farand-
verkamenn úr landi. Að sögn
Sæmundar er svo merkilegt með
það að þrátt fyrir töluvert
atvinnuleysi í landi sæki kven-
fólkið ekki í vinnu í Grímsey, til
mikillar mæðu fyrir ólofaða pilta
í eynni. Hins vegar hafi gengið
vel að fá pilta úr landi í vinnu,
ólofuðum kvenpeningi í Grímsey
til mikillar ánægju. óþh